Morgunblaðið - 14.04.1966, Qupperneq 19
Flmmtudagur 14. apríl 1966
MOR.GU N B LAÐIÐ
19
— Einkaspæjari
Framhald af bls. 17
tök meS vopnavaldi. Þar til
það skeður, segir Ponzi, munu
þeir halda áfram að kúga fé
úit úr ráðherrum og öðrum
háttsettum mönnum, því þeir
íhafa í höndum skjalasafn
leyniþjónustu Mússolínis.
Enginn hefur nokkurn tíma
efast um, að Ponzi er manna
hugrakkastur. Dag nokkurn,
árið 1948, var hann að koma
niður stigann í húsi því, er
hann bjó í. >á varð hann
þess var, að þrír menn höfðu
gert vopnaða innrás í íbúð
húsvarðarins. Ponzi stakk
hendinni niður í jakkavasann,
gekk að einum ræningjanan
i og rak fingur sinn í bak hon-
| um. Á þennan hátt tókst hon-
i um að afvopna þá alla þrjá
og færa siðan til lögregllunn-
ar.
Þetta var í fyrsta skiptið,
sem nafn Ponzis birtist í dag-
blöðunum í Mílanó.
í í dag er nafn hans í allra
augsýn, m.a. á auglýsinga-
spjöldum bifreiðar, sem ekur
um götur Mílanóborgar, gagn-
gert til að auglýsa fyrirtæki
hans.
j Dagurinn, sem Ponzi af-
vopnaði ræningjana í Mílanó,
varð afdrifaríkur fyrir hann.
Þá fékk hann hugmyndina að
setja á stofn einkaleyniþjón-
ustu. Hann byrjaði með einn
einkaritara árið 1950. Miche-
lin og Fiat-verksmiðjurnar
voru meðal fyrstu viðskipta-
vina hans. Verkefni hans var
að fylgjást með fólki, sem
keypt hafði vörur með af-
borgunum. í fyrstu tók hann
tæplega 5 þúsund ísl. kr. fyrir
þjónustu sína, en í dag tek-
ur hann allt að 50 þús. kr.
Enn í dag hefur Ponzi mik-
11 viðskipti við stórfyrirtæki
eins og Fiat, en þó kýs hann
fremur að vinna fyrir ein-
staklinga, því það gefur meira
í aðra hönd. Frá því Ponzi
hóf starfsemi sína, hafa starfs-
menn hans haft hendur í hári
rúmlega 120 Fiateigenda, sem
ekki hafa staðið í skilum með
afborganir. Starfsemi Ponzi
eykst stöðugt og allt bendir
til þess, að áframhald verði
á |3VÍ.
í júní sl. flaug hann á 130
km hraða út af hraðbrautinni
milli Como og Mílanó. Ferrari
bíllinn gereyðilagðist, en
Ponzi sakaði ekki.
Það er mikill munur á
manninum, sem forðum af-
vopnaði ræningjana í Mílanó
og forstöðumanni Ponzileyni-
þjónustunnar. Hann hefur
verið tekinn inn í hinn ítalska
„aðal“, sem hann þó fyrir-
lítur af öllu hjarta. Þótt hann
hafi leikið margt hjónakorn-
ið grátt og afhjúpað hinar
litlu syndir þeirra og látið
þau greiða ríkulega fyrir, er
það einkum vegna þess, að
þrátt fyrir hans góðu efni, er
hann ennþá sem strákur, sem
nýtur þess að tuskast við aðra
stráka, eingöngu vegna ánægj
unnar.
Starfsfólk Ponzis ávarpar
hann aldrei öðruvísi en herra
forstjóri. aHnn þarf iðulega
að fást við skipulagsmál inn-
an stofnunar sinnar; mál sem
Conan Doyle og Ian Fleming
þurftu aldrei að hugsa um.
Ponzi hefur aldrei haft tíma
til að lesa verk þessara spæj-
arahöfunda.
Að ferðast með Ponzi er líkt
og að setjast við hlið dauð-
ans. Heimur hans er hvorki
friðsæll né skrýddur ólífu-
trjám. Hann er heimur hrað-
brauta, Ferraribíla og hrað-
báta. Maður nokkur hefur
skýrt svo frá, að hann hafi
verið með Ponzi í hraðbát á
einu af vötnunum, sem eru
leikvangur Mílanóbúa. Ponzi
hafði aukið hraða bátsins upp
í 230 km, tekið síðan beygju
og sagt „rólegur: „Þeir kalla
þetta dauðabeygjuna".
Starfssvið Ponzis spannar
allan hnöttinn, en hans uppá-
halds vinnustaðir eru þó í
norð-vesturhluta Ítalíu.
Hann hefur mikið unnið við
gagnnjósnir fyrir ýms fyrir-
tæki á Ítalíu og víðar. Hann
'hefur á snærum sínum sér-
fræðinga í öllu er snertir el-
ektrónísk tæki. Meðal njósna
tækja, sem hann notar eru
lítil senditæki, sem hægt er
að koma fyrir inni í síma-
tækjum. Ponzi getur síðan
hlustað á samtöl í viðtækinu
i bíl sínum, sem staðsettur er
fyrir utan viðkomandi bygg-
ingu. Mörg fyrirtæki hafa
gefið Ponzi leyfi til að fylgj-
ast þannig með símtölum
starfsfólks, ef ske kynni, að
upp kæmist um njóenir.
Stórkostlegasta njósnamál-
ið, sem Ponzi hefur fengið til
meðferðar, var árið 1964, er
Chanel ilmvatnsfyrirtækið
réði hann til að komast að
því, hverjir væru farnir að
setja falsaðar Chanel vörur á
markaðinn í Ítalíu. Einn af
mönnum Ponzis var tafarlaust
sendur til Trieste, og þóttist
hann vera Júgóslavi í leit að
Chanel fyrir svartan markað.
Maðurinn komst brátt : kynni
við svartamarkað, sem rekinn
var í bandarískri herstöð. Þar
fékk hann nafn á ákveðnum
manni í Napólí. Á þessu stigi
málsins hafði Ponzi samband
við París og fékk leyfi til að
kaupa magn af fölsuðu ilm-
vatni og síðan kallaði hann á
lögregluna. Eftir 50 daga leit,
bárust böndin að ilmvatns-
verksmiðju og koníaksfyrir-
tæki í Forcella nálægt Napóli.
Ellefu menn voru handteknir
og málið upplýst.
ítalska lögreglan ber í dag
mikla virðingu fyrir Ponzi og
tæknideild hans. Að sjálf-
sögðu ber nokkuð á öfund í
hans garð, en lögreglan viður-
kennir þó, að hæfileikar Ponz
is eru stórkostlegir. Þessu
var ekki þannig varið árið
1958, þegar Ponzi upplýsti
mikið og alvarlegt mál í sam-
bandi við dreifingu á fölsuð-
um lyfjum.
Eftir að Ponzi hafði komizt
á spor eins manns úr glæpa-
hringnum sem dreifinguna
annaðist, steig Ponzi áhættu-
samt spor. Hann elti manninn
inn í lyfjaverzlun, klappaði á
öxl has og sagði: „Þetta er
orðið ísyggilegt, væni minn.
Nú þegar hafa fimm mann-
eskjur látizt af völdum með-
als þíns.“ Maðurinn fylgdi
honum út úr verzluninni eins
og þægur rakki. Þeir óku í
burtu saman og maðurinn
sagði Ponzi alla söguna, því
hann hélt að hann væri lög-
reglumaður. Ponzi tók söguna
niður á segulband, sem hann
hafði falið í bílnum.
Daginn eftir var hópur
flutningabíla fyrir utan skrif-
stofu Ponzis í Corso Sempi-
one ,með farma af fölsuðum
lyfjum. Þegar Mílanólögregl-
an komst að þessu, var Ponzi
tafarlaust tekinn fastur og sak
aður um að hafa pótzt vera
lögreglumaður, fyrir mann-
rán og ótímabæra handtöku.
Þetta voru hinar opinberu
þakkir fyrir að hafa komið
upp um glæpahring, sem ár-
lega hafði hagnazt um 24
millj. ísl. kr. á sölu falsaðra
lyfja.
Ponzi var varpað í fangelsi,
en vegna háværra óska í dag-
blöðum Milanóborgar, var
hann látinn laus eftir fimm
daga.
Starf Ponzis í Mílanó er al-
gjör andstæða einkalífs hans.
Þegar honum gefst tími til,
fær hann móður sína og tvö
börn í heimsókn í villu sína.
Þar leikur hann sér að járn-
brautum með Mickey syni
sínum, sem er 10 ára. Á
kvöldin horfir fjölskyldan á
kvikmyndir á móðurmálinu.
Myndin Fanginn í Zenda er
geymd fyrir enskumælandi
gesti.
Þegar Mickey var fimm ára,
ljósmyndaði hann grunsam-
legt par með armbandsmynda
vél, svo framtíðarstarf hans
virðist vera ákveðið. Dóttir
Ponzis, Miriam, er 13 ára og
er hún grunuð um að reykja
á laun. Annað veifið sjást
leitarljós í garðinum fyrir ut-
an villuna. Þar er Ponzi á
ferð og er að leita að sígar-
ettustubbum, sem hann grun-
ar dóttur sína um að hafa
'hent út um herbergisglugga
sinn. — En það eru alvar-
legri mál framundan: Sendi-
ráð einhvers Litlu-Asíu ríkis
er í símanum. Ponzi er beð-
inn að grafast fyrir um ráða-
gerðir, sem einhverjir í Míla-
nó hafa á prjónunum um að
steypa stjórn landsins.
Frá Fulltrúaráði
S jómannadags
AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs
Sjómannadagsins í Reykjavík
og Hafnarfirði var haldinn ný-
lega að Hrafnistu. Fundinn sátu
30 fulltrúar Sjómannafélaganna
í Reykjavík og Hafnarfirði, á-
SVEINN KRISTINSSON SKRIFAR UM
samt framkvæmdastjórum hinna
ýmsu fyrirtækja dagsins. Hefur
fulltrúum fækkað um tvo frá
því á síðasta aðalfundi, en Báta-
félagið Björg var lagt niður á
sl. ári.
Formaður ráðsins, Pétur Sig-
urðsson alþingismaður, gaf
skýrslu um sliörf og framkvæmd
ir á liðnu ári.
Austurbæjarbíó:
4 IN TEXAS
Framleiðandi og stjórnandi:
Robert Aldrich.
Höfuðleikendur:
Frank Sinatra,
Dean Martin,
Ursula Andress,
Anita Ekberg.
Á meðan Evrópubúar verða að
sætta sig við, að konur tjái þeim
ást sína með kökukeflum og öðr
um óbrynvörðum bareflum, þá
tjá Texaskonur ástmönnum sín-
um tilfinningar sínar með
skammbyssuskothríð í fyrstu
lotu. Síðan setja þær upp spila-
víti með þeim, til að afla fjár
til hringakaupa, og eftir það er
ekki margt í veginum. Kannski
þarf þó sá tilvonandi að skjóta
eða slá svo sem tylft manna í
hel — en þá fær líka ekkert
stöðvað klerkinn lengur.
Það er ósvikinn kúrekastæll á
mynd þessari. Þó verða mörkin
hér á stundum ógleggri milli
skúrks og göfugmennis en í ýms
um myndum af því tagi. Stund-
um virðist jafnvel fátt skera úr
nema holdafarið, þannig að mað
ur fer að leiða hugann að því,
hvort skúrknum nægði ekki að
létta sig um ca. 30—40 kg. til
að losa sig við glæpin. En trúlega
er málið ekki svo einfalt.
Emil R. B.
IHinning
Fæddur 12/1 1925. D. 12/3 1966.
MÉR VARÐ harmur í hu.g er
ég frétti um lát vinar míns og
gamla skipsfélaga Búdda, 12.
marz, en þá höfðu þessi vo-
veiflegu tíðindi gerzt á Lands-
spítalanum í Reykjavík.
Já, þessi hrausti og dreng-
lyndi ungi maður er horfinn af
sjónarsviðinu og vandi verður
að fylla upp í það skarð sem
höggið hefur verið í íslenzka
togarasjómannastétt.
Sem úthöfin víð er Guðs volduga
ást
hún verður ei könnuð né skráð.
Bú skip þitt úr landi, þeim byr
aldrei brást,
sem bað Guð um leiðsögn og náð.
Ég átti því láni að fagna að
vera Búdda samskipa um tíma
á b/v Hvalfelli. Þar gafst mér
tækifæri að endurnýja vinskap
okkar og kynnast gjörla mann-
kostum hans og hæfni í starfi,
og varð það alltaf deginum Ijós-
ara að þar sem Búddi fór, þar
fór góður drengur og gegn,
traustur og samvizkusam-ur í
starfi, og ávallt vökull fyrir ör-
yggi Og hvers konar hagsmun-
um undirmanna sinna, sem ann-
arra vina og samstarfsmanna um
borð, enda var hann lengi þar
bátsmaður, en svo er kallaður
sá maður, er stjórnar dekkvinnu
aðra hvora vakt, og get ég full-
yrt að hann var mikils metinn af
nokkru um að kenna málæði
byssuhólkanna, sem fram koma
í myndinni, en það fellur afar
illa að hrynjandi tungunnar.
Framandleg áhugamál og atferli
persónanna gerir og sitt til að
auka á þessa erfiðleika, auk þess
sem myndin er löng, hröð og við
burðarík og lýsir sér bezt sjálf.
Hún er hvergi nærri sneydd
gamansemi, oftast að vísu heldur
grárri. Þarna koma t.d. fram hin
ir kunnu amerísku „Bakkabræð-
ur“ með járnhausa og tilheyrandi
og leika listir sinar af sínum róm
aða klaufaskap. Þá eru aðalkven-
persónurnar í myndinni heldur
ekkert slor, og á það ekki sízt
við um Ursulu Andress. Munu
fáir standast hana þar sem hún
kemur fram á þilfarið í hinu
fljótandi spilavíti sínu, nálega
allsnakin með byssu í annarri
hend, en blíðu sína í hinni. Enda
sigrar hún þar í líki Dean
Martins einn harðsvíraðasta kú-
reka Ameríku, eftirlýstan mann
í öllum fylkjum Bandaríkjanna,
mann sem hafði áunnið sér
byssukúluónæmi í ótal orustum,
en hæfði sjálfur nálega hvern
sem var af næstum því hve löngu
færi, sem hann óskaði sér. Þenn
an mann sigrar ungfrúin eftir
nokkrar sviftingar og hefur þó
áður hent byssunni.
Jóhannsson
sínum yfirmönnum sem og öðr-
um, bvar sem hann fór í skip-
rúmum, og um han.n má segja,
að hann reyndist félagi félaga
sinna, ekki síður þegar í land
var komið og hvers manns hug-
ljúfi í glöðum hópi.
Búddi gekk ekki heill til skóg-
ar; hann þjáðist oft af völdum
magasárs, sem leiddi hann til
dauða er maginn sprakk og við
ekkert var ráðið að lokum, og
veit ég að sökum ósérhlífni leit-
aði hann minna lækninga en
hann hefði þurft, því starfið átti
'hann allan, og ástrík móðir hans
Guðfinna Árnadóttir, sem hann
unni mjög og sá farborða, og
veit ég að söknuður hennar er
stór og missir mikill, en ég veit
líka að hún er sterk kona, og
hefur fengið að finna að þegar
sorgin er stærst þá er huggunin
nærtækust í fyrirheitum Krists,
og vona ég að það geti líka ver-
ið henni huggun í hennar stóra
harmi að hún á stærsta þáttinn
í mannkostum þessa burthorfna
sonar, með sínu góða uppéldi og
ríkum móðurkœrleika, sem var
hans stærsta leiðarljós í Mfinu.
Við hjónin viljurn færa eftir-
lifandi móður og bræðrum og
öðrum skyldmennum okkar hug
heilar samúðarkveðjur, og að
endingu viljum við Fjóla kvðja
þig Búddi minn, og þakka þér
alla þína drengilegu viðkynningu
og vináttu í okkar garð. Vertu
sæll. Blessuð sé minning þín.
Hvíl þú í friði.
Asgeir H. P. Hraundal.
Áfram var haldið uppbygg-
ingu Hrafnistu. Á sl. sumri var
lokið við byggingu nýrrar vist-
mannaálmu, sem ítúmar 64 vist-
menn. Eru vinnusalir í kjallara.
Þá voru gerðar nokkrar breyt-
ingar á eldra húsnæði með það
fyrir augum að auka nýtingu
þess. Voru tekin í notkun fyrir
áramót 11 ný vistmannapláss í
einstaklings og tveggja manna
herbergjum. Tíu ný vistmanna-
pláss eru að verða tilbúin um
þessar mundir. Á aðalfundinum
var samþykkt að hefja þegar
byggingu síðustu álmunnar í hin
um samliggjandi byggingum
Hrafnistu og reyna að gera hana
tilbúna undir tréverk á næsta
fjárhagsári frá 1. maí 1966 til
30. apríl 1967. Heildarfjárfest-
ing samtakanna á þessu tímabili
er áætluð rúmar 9 millj. króna.
í þessari nýju álmu Hrafnistu
eru fyrirhuguð 48 einstaklings-
herbergi á efri hæðum og hjúkr
unardeild á neðstu hæð fyrir
32 einstaklinga.
Þá gáfu framkvæmdastjórar
hinna einstöku fyrirtækja skýrsl
ur um fjárh|ig og afkomu.
Vistgjaldatekjur Hrafnistu
reyndust á sl. ári kr. 13.448.688.
26, en gjöld á rekstrarreikningi
kr. 15.198.034.30. Er mismun m.a.
mætt með leigutekjum frá Laug-
arásbíó.
Geir Ólafsson lætur nú af störf
um sem framkvæmdastjóri Sjó-
mannadagsins, en við tekur
Sverrir Guðvarðsson form. Stýri
mannafélags íslands. Voru Geir
þökkuð frábær störf í þágu sam-
takanna.
Auðunn Hermannsson er nú
framkvæmdastjóri Hrafnistu og
Laugarásbíós og Baldvin Jóns-
son fyrir happdrætti D.A.S., en
af ágóða þess rennur nú aðeins
60% til byggingar Hrafnistu.
Stjórnin sér sjálf um rekstur
aðalumboðs happdrættisins og
einnig um sumardvalarheimili
fyrir börn, sem rekið hefur ver-
ið um nokkurra ára skeið að
Laugalandi í Holtum. Á sl. sumri
dvöldust þar 60 börn í um 70
daga. Forstöðukona er María
Kjeld.
Bókfærðar eignir Sjómanna-
dagsins eru nú tæpar 47 millj.
króna og varð eignaraukning á
sl. ári um 5.4 millj.
Úr stjórn átti að • ganga for-
maðurinn Pétur Sigurðsson, og
var hann endurkj/örinn tií næstu
3ja ára með þorra atkvæða. Úr
varastjórn gekk Theódór Gísla-
son og var Hannes Hafstein kjör
inn í hans stað. Á fundinum var
m.a. samþykkt að næsti Sjó-
mannadagur verði hátíðlegur
haldinn 15. maí n.k.
Fréttatilkynning frá Fulltrúa-
ráði Sjómannadagsins.
ALLSKONAR PRENTUN
Hagppent"
Siroi 21650
I EINUM OQ FLEIRI LITUM
Húseigendafélag Reykjavikur
Skrifstofa á Grundarstíg 2 A.
Sími 15659. Opin kl. 5—7 alla
virka daga nema laugardaga.
Efnisiþnáður þessarar myndar
verður ekki rakinn hér, enda
erfiður í endursögn. Er þar að
Lenga mætti þylja, en án
árangurs. Þetta er ólýsanlegt.
Hersteinn Pálsson hgfur gert
íslenzkan texta við myndina.