Morgunblaðið - 14.04.1966, Qupperneq 31
31
Fimmhidagur 14. apríl 1966
MORCUNBLAÐIÐ
Sauðfé
fjölgar
1 NÝÚTKOMNUM Hagtíðindum
er birt skýrsla um tölu búf jár og
samanburður við næstu 4 ár á
undan. Þar segix að sauðfé á land
inu haíi árið 1964 verið 761.926
talsins og hafi fjölgað á árinu um
25.545 kindur. Fjölgunin var
langmest í Dalasýslu, 10.266
kindur. Þar hafi sauðfé verið
skorið niður árið áður í þremur
hreppum vegna mæðiveiki, en
fluttur inn nýr stofn á árinu
1964. Einnig fjölgaði sauðfé veru
lega í Rangárvallasýslu, um 4711
kindur, Árnessýslu um 4415 og
Skagafjarðarsýslu um 2103, og í
flestum hinum sýslumum nokk-
uð. Þó varð lítils háttar fjárfækk
un í Gullbringusýslu, Mýrar-
sýslu, Strandasýslu, Norður-
Þingeyjarsýslu og þáðum Múla-
sýslum. 1 kaupstöðum fækkaði
sauðfé alls um 2327 kindur. En
sauðfé hafði í heild fækkað úr
833.841 árið 1960.
Framteljendur sauðfjár voru
árið 1964 10.055 talsins, þar af
bændur 5255. Af þessum 761.926
voru 631.452 ær á árinu 1984.
— 0//usfr/ð/ð
Framhald af bls. 1
innanborðs um 18.000 tonn af
olíu, sem ætlunin var einnig,
að á land yrði dælt þar og
síðan dælt áfram til Rhódesíu.
Talsmaður eigenda skipsins í
Aþenu hefur sagt, að olía sú,
sem „Manuela" hefur innanborðs
verði dælt í geymslutanka í
Durban. Neitaði hann því, að
ætlunin væri að flytja olíuna síð-
ar til Rhódesíu.
Hins vegar sagði portúgalska
fréttastofan „Lusitania" í dag,
að verið gæti að „Manuela“
reyndi að komast í höfn í Beira
með því að sigla þangað innan
landhelgi. Þannig væri hægt að
koma í veg fyrir, að skipið yrði
stöðvað af brezkum herskipum.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum í S-Afríku í dag, að
stjórn landsins hafi jafnvel í
hyggju að segja landið úr sam-
tökum Sameinuðu þjóðanna,
verði gripið til ráðstafana vegna
þess að stjórnin hefur tekið upp
„hlutlausa“ afstöðu í R'hódesíu-
málinu.
Brezka stjórnin er sögð mót-
fallin því, að gripið verði til
gagnráðstaafna gegn S-Afríku,
og mun þar þyngst á metunum,
að brezkir aðilar hafa fest mikið
fé í framkvæmdum þar í landi.
Brezki konsúllinn í Beira sagði
í dag, að „Johanna V“ ætti m
ekki lengur heimahöfn í Pan-
ama, skipið því heimahafnar-
laust, og mætti hvaða sjóher,
sem væri því hertaka skipið.
— De Gaulle
Framhald af bls 1
Sagði Bourges, að de Gaulle
hefði tjáð stjórn landsins, að það
væri augljóst, að sú ákvörðun
Frakka að hætta þátttöku í sam
starfi Atlantehafsbandalagsríkj-
anna hefði í för með sér, að
Bandaríkin yrðu að flytja á brott
herlið sitt frá Frakklandi, eins
skjótt og kostur væri.
Hins vegar yrði að hefja við-
ræður við ríki bandalagsins um,
á hvern hátt skyldi hagað vörn-
um, ef til styrjaldar kæmi.
Brezka stjórnin gaf í dag út
tilkynningu þar sem þeim full-
yrðingum de Gaulle, Frakklands
forseta, er mótmælt, að samstarf
ríkja Atlantshafsbandalagsins
sé óskipulegt, og í molum að
meira eða minna leyti ,og litlar
eða engar vonir séu til þess, að
umræður um skipulagsbreyting-
ar geti leitt til nýskipunar, sem
Frakkar geti unað.
Segir í ummælum brezku
stjórnarinnar, að öll ríki banda-
lagsins verði að taka upp inn-
byrðis viðræður áður en nokkur
ákvörðun verði tekin um þær
viðræður við Frakka, sem de
Gaulle hefur nú lagt til að fram
fari um samstarf, ef til styrjald-
ar kynni að koma.
Hinn 24. maz sl. afhenti Pétur Eggerz ambassador, fastafull-
trúi fslands hjá Evrópuráðinu, f ullgildingarskjal varðandi Evr-
ópusamþykkt um einkaleyfi. fsland er 15. ríkið, sem fullgildir
samþykktina, er varð'ar formumsókna um einkaleyfi. Myndin var
tekin í Strasbourg, er fullgild ingin fór fram. Pétur Eggerz
undirritar bókun þar að lútandi, en hjá honum eru Peter Smit-
hers, forstjóri Evrópuráðsins, og dr. H. Golsong, framkvæmda-
stjóri lagadeildar ráðsins. (Ljósm. Evrópuráðsins, Strasbourg).
Frá Evrópuráðinu
Flutningobíll
vnlt d
Mývutnsheiði
Vogum, 13. apríl.
f GÆR vildi það óhapp til, að
vöruflutningabifreið héðan úr
sveitinni, sem var að koma full-
lestuð frá Húsavík, valt á hliðina
á Mývatnsheiði.
Ástæðan mun hafa verið sú.
að bifreiðastjórinn fór of tæpt
út á vegakantinn og lenti þá utan
í snjóruðningi, en svo vel vildi
til, að jarðýta var skammt á eftir
bílnum og gekk því greiðlega að
rétta hann við og ná honum upp
á veginn aftur. Ekki urðu telj-
andi skemmdir á bílnum né
farminum. — Kristján.
— Varnir
Framhald af bls 1
í götu samstarfs vestrænna ríkja,
heldur þvert á móti styrkur.
Um Þýzkalandsmálið sagði for
sætisráðherrann, að sameining
gæti því aðeins farið fram, að
á undan færu friðsamlegri sam-
skipti austurs og vesturs. og
minntist sérstaklega á bætta sam
búð við Sovétríkin í því sam-
bandi.
Franska stjórniin nýtur meiri-
hluta á þingi, 263 þingmanna af
482.
— Kvennadálkar
Framhald af bls. 11
þvo andlitið 2,5
ganga hægt 3,6
ganga hratt 5,6
Til gamans fylgir hér skrá yfir
hitaeiningar í ýmsum mat.
Hitaeiningar
í einum banana, meðalstærð 100
- fjórum litlum kexkökum 200
- einu stóru epli 100
- einni meðalstórri kartöflu 100
- einni sneið af jarðarberja-
- tertu með þeyttum rjóma 530
- einum stórum tómat 50
- einni matsk. af smjöri 100
- Yz bolla af hráu hvítkáli 13
- einni franskbrauðsneið 50
- einum mjólkurbolla 170
- einni svínakótelettu (án
fitu) 200
- einu eggi 70—75
- lítilli sneið af súkkulaði-
tertu 200
—Alþingi
Framhald af bls. 8
deilumál innan heimila um hvort
heldur ætti að horfa á sjónvarp
eða hlusta á útvarp sagði Guð-
laugur að vitanlega gæti þá al-
veg eins orðið hinn sami ágrein-
ingur þegar íslenzka sjónvarpið
kæmi til. Þá sagði Guðlaugur að
lokum að ef taka ætti tillit til
þeirra áskorana sjónvarpsand-
stæðinga er borist hefðu Alþingi,
bæri ekki síður að taka tillit til
álits sjónvarpsfylgjenda, því þeir
væru þó langt um fleiri.
Umræðu um málið var síðan
lokið, en atkvæðagreiðslu var
frestað.
— Alitalia
Framhald af bls. 2
væri góðs viti, því aukin per-
sónuleg samskipti á þessu sviði
stuðluðu að frekari kynningu og
viðskiptum.
í viðræðum fulltrúa félaganna
er einkum rætt um leiðir til
að greiða fyrir farþegaflutning-
um til og frá íslandi — um
London — og þaðan eða þanig-
að með Alitalia.
KjétgG/iéM
UJGAVEGI 59.. simi 1847Í
Þórhallur Gunnlaugsson
Kveðja
f DAG kveðjum við í hinzta
sinn góðan og tryggan vin, Þór-
hall Gunnlaugsson, símstjóra.
Hann var einn í hópi þeirra er
báru hita og þunga dagsins á
fyrstu árum landssímans, en sá
hópur þynnist nú óðum. Þórhall-
ur var mikill starfsmaður, þó að
lítið færi fyrir honum; hann var
drjúgur.
Ég kynntist Þórhalli fyrir um
það bil 55 árum, er við .gengum
báðir í þjónustu símans, og var
alla tíð síðan mjög góð vinátta
með okkur. Ég á margar hlýjar
og ánægjulegar minningar frá
samverudögum okkar við sím-
ann, og svo frá heimili þeirra
hjóna í Vestmannaeyjum, sem ég
nú vil þakka fyrir. Þeir eru marg
ir sem hið sama geta sagt um
þau hjón, enda voru þau mjög
samhent, og höfðu sérstakt lag
á að skemmta gestum sínum og
láta þeim 1-íða vel. Ég þakka
liðnar bjartar samverustundir og
sendi eftirlifandi konu Þórhallar
og bömum þeirra hlýjustu kveðj
ur mínar.
Því miður er það svo, að vin-
irnir hverfa hver af öðrum, en
við eigum þó minningarnar eftir,
og svo getum við sagt: „au
Otto Arnar.
6 ára telpa
fyrir bíl
UMFERÐARSLYS var kl. rúm-
lega 2 á föstudaginn langa á
gatnamótum Hringbrautar og
Kaplaskjólsvegar.
Þar var 6 ára telpa, Kristjana
Mjöll Sigurðardóttir, Meistara-
völlum 13. fyrir bíl.
Kristjana meiddist á höfði og
var flutt í Landakotsspítala.
Meiðsli hennar eru ekki talin al-
varleg.
Tæknifræðingur
Tæknifræðingur með nokkra starfs-
reynslu óskar eftir starfi.
Tilboð sendist í pósthólf 1255, Rvík, fyrir
20. apríl nk.
Krónur 4.200,00.
Sófasett, ný gerð.
2ja manna svefnsófar, kr. 8.500,00.
Fermingagjafir:
SVEFNBEKKIR frá kr. 2.800,00 (5 gerðir).
SVEFNSTÓLAR — VEGGHÚSGÖGN (mikið úrval).
SKRIFBORÐ — SKRIFBORÐSSTÓLAR
KOMMÓÐUR O. M. FL.
Húsgagnaverzl. ÞORSTEINS SIGURÐSSONAR
(Grettisgötu 13. — Stofnsett 1918). — Sími 14099.
Hjartans þakkir til vina og vandamanna, fyrir heim-
sóknir, gjafir, skeyti og blóm á 70 ára afmæli mínu
30. marz sl. — Lifið heil.
Inga Guðmundsdóttir. Úthlíð 14.
Eiginmaður minn
ÁRNI KRISTJÁNSSON
Bræðraminni Bíldudal,
lézt föstudaginn 8. þessa mánaðar.
Fyrir hönd vandamanna.
Guðrún Snæbjörnsdóttir.
Útför mannsins míns
BJÖRNS ÞORGRÍMSSONAR
Grettisgötu 67,
verður gerð frá Dómkirkjunni föstudaginn 15. apríl
kl. 1,30.
Marta Vaigerður Jónsdóttir.
Maðurinn minn
EINAR JÓNSSON
sem andaðist 9. apríl verður jarðsunginn laugardaginn
16. apríl frá Saurbæjarkirltju Hvalfjarðarströnd.
Elín Jakobsdóttir
Syðri-Reykjum.