Morgunblaðið - 14.05.1966, Side 20
20
MORGUrtBLAÐIÐ
Laugardagur 14. maí 1966
Sölubörn
Sjómannadagurinn
Sjómannadagsblaðið verður afhent sölubömum í
Hafnarbúðum og Skátaheimilinu við Snorrabraut
í dag, laugardag, frá kl. 14—17. Einnig verða merki
sjómannadagsins og sjómannadagsblaðið afhent
sölubörnum á Sjómannadaginn, sunnudaginn 15. maí
frá kl. 09:30 á eftirtöldum stöðum:
Hafnarbúðir
Skátaheimilið
við Snorrabraut
Hlíðaskóli við Hamra-
hlið
Vogaskóli
Laugalækjarskóli
Álftamýrarskóli
Mýrarhúsaskóli
Í.R. húsið
Verzlunin Straumnes
við Nesveg
Melaskóli
Breiðagerðisskóli
Sunnubúð við Mávahlíð
Hrafnista.
Auk venjulegra sölulauna fá börn sem selja merki
og blöð fyrir 100 kr. eða meira, aðgöngumiða að
kvikmyndasýningu í Laugarásbíói.
Stýrimaður og matsveinn
óskast á humarbát. — Uppl. í síma 50626.
Humar
Óskum eftir viðskiptum við humarbát.
HRAÐFRYSTIHÓSIÐ, Innrí Njarðvík.
Sími 92-6044.
Skrifstofustúlka
óskast nú þegar til að annast launaút-
reikning, vélritun og almenn skrifstofu-
störf. Tilboð er greini aldur, menntun og
fyrri störf leggist inn á afgr. Morgun-
blaðsins fyrir 22. maí n.k. merkt: „Skrif-
stofustúlka — 9322“.
Kranamenn —
Steypubílstjórar
Verk h/f vill ráða vana
kranamenn á nýjan 25
tonna bílkrana. Kranabif-
reiðin, sem er af Lorian
gerð, er feinn vandaðasti og
glæsilegasti bílkrani landsins, með 140 feta bómu.
Aðeins vanir menn koma til greina.
Vegna fjölgunar steypubíla vantar jafnframt tvo
duglega bifreiðastjóra á Scania Vabis steypubíla.
Upplýsingar á skrifstofu Verk h/f eða hjá Jóni
Ólafssyni steypustöðinni Fífuhvammi.
VERK HF.
Skólavörðustíg 16 — Sími 11380.
STEYPUSTÖÐ, Fífuhvammi
Símar: 41480—81.
Stmi okkar er
22322
' f
Konnr Kópavogi
Kona óskast til vinnu hálfan daginn.
Upplýsingar að Þinghólsbraut 36.
Til sölu
Þingeyrar dragnótarspil complett með dönskum
síðurúllum notað tvö úthöld Simrad dýptarmælir
(Basslodd). Nýlegur 8 manna gúmbátur með skoð-
unarvottorði frá eftirlitinu. Einnig 2 Boston dekk-
pollar fyrir troll og ein fótrúlla eins og var í 100
tonna Svíþjóðarbátunum. Upplýsingar í síma 30164.
Útgerðumenn
Ég óska nú þegar eftir skipstjórastöðu á trollbát.
(Humar- eða fiskitroll). Hef meira skipstjórapróf.
Þeir sem vildu sinna þessu leggi nöfn sín inn á afgr.
Mbl. fyrir 18. þ.m. merkt: „Skipstjóri — 9692“.
IMYTT! mYTT!
Nýjar gerðir af gangstéttarhellum í skrúðgarða.
Ný tegund af hleðslusteinum í skrúðgarðaveggi.
BJARG við Sundiaugaveg.
Garðeigendur
Mikið úrval af garðrósum, blómrunnum og plöntum
í limgerði.
Garðyrkjustöðin Grímsstaðir, Hveragerði.
Hallgrímur Egilsson.
íbúð
Til sölu er 2ja herb. íbúð í steinhúsi í Skólavörðu-
holti. — Upplýsingar gefur
ÞORSTEINN JÚLÍUSSON, HDL.,
Laugavegi 22
(Viðtalstími kl. 2—5) sími 14045.
Bílstfóri
vanur akstri, helzt með meira próf, óskast til aksturs
einkabifreiða svo og lagerstarfa. — Umsóknir með
upplýsingum um aldur og fyrri störf sendist afgr.
MbL fyrir 17. þ.m., merkt: „Bílstjóri — 9690“.
„Sólblik
á sænum“
ný ljóðabófc
eftir Sigfús Elíasson
Á LOKADAGINN kom út ný
ljóðabók eftir Sigfús Elíasson.
„Sólblik á sænum“, en undirtit-
ill er „Söngurinn um hafið.
Kvæðin um sægarpana, sjómenn
ina.“
Bókin er 224 blaðsiður í stóru
brotu og kvæðin alls 92, stutt og
löng. Heiti kvæðanna gefa nokk-
uð til kynna efni bókarinnar,
svo sem: Jólanótt á hafinu,
Páskamorgunn á hafinu og
Hvítasunna á hafinu. Höfundur
minnist þar föður síns, Elíasar,
sem fórst ásamt elzta syni sín-
um í óveðrinu mikla, sem gekk
yfir Arnarfjörð haustið 1900.
Þá eru kvæði ort til skipstjór-
anna Bjarna Ingimarssonar, Vil-
hjálms Árnasonar, Eiríks Kristó-
ferssonar, skipherra, Eggerta
Gíslasonar, Péturs Björnssonar
og Jóns Sigurðssonar. Einnig er
kvæði um m.s. Gullfoss og fleiri
Fossa og kveðja til Færeyja.
Þetta er 7. Ijóðabók Sigfúsar
Elíassonar, en auk þess hafa
fjöldi sérprentaðra verka komið
út eftir hann á liðnum árum. —
Útgefandi bókarinnar er Dul-
ræna útgáfan.
Roosevelt I
framboði?
New York 12. maí — NTB.
FRANKLIN D .Roosvelt jr., son-
ur Roosvelts Bandaríkjaforseta,
tiikynnti í dag að hann mundi
reyna að öðlast útnefningu sem
frambjóðandi demókrata viff
ríkisstjórnarkosningar í New
York í nóvember n.k. Núverandi
ríkisstjóri er repúblikaninn Nel-
son Rockefeller. Roosevelt, sem
er lögfræðingur, lærður viff Ha-
vard, og áður þingmaður, er
þriðji demókratinn, sem til-
kynnt hefur að hann muni reyna
að verða útnefndur í framboff.
Roosevelt forseti var ríkisstjórí
í New York áður en hann varff
forseti 1933.
47.1 tonn til
Akraness
Akranesi, 12. mai.
47.1 tonn af þorski bárust hing
aff í gær af fjórum bátum. Afla-
hæstur var Solfari með 18 tonn,
og tók hann upp net sin. Sigur-
borg fékk 14 tonn, Höfrungur L
10 tonn, og Skipaskagi 5.1 tonn
og það á línuna.
Sildarbátarnir hreyfa sig enn-
þá fekki úr höfn, sifellt stormur
og ónæði- — Oddur.