Morgunblaðið - 02.07.1966, Qupperneq 2
V
2
MORCUNBLAÐIÐ
!
Laugardagur 2. júlí 1966
?
Tækniskóla íslands slitið
TÆKNISKÓLA íslands var slit-
ið í hátíðarsal Sjómannaskó-lans
í gær. Við skólaslitin flutti skóla-
stjórinn Ingvar Ingvarsson ræðu
þar sem hann skýrði frá starf-
semi skóians og úrslitum prófa.
Tækniskóli íslands tók til starfa
haustið 1964 og er þetta því í
annað skintið sem nemendur eru
útskrifaðir úr fyrrihlutadeild
skólans.
í upphafi ræðu sinnar sagði
Ingvar m.a.:
Á síðastliðnu sumri útskrifuð-
ust 14 nemendur úr fyrrihluta-
deild. Eru flestir þessara nem-
enda nú við nám í síðarihluta
tæknifræði, aðallega í Dan-
mörku, en einnig í Noregi. Eru
þessir menn nú að Ijúka fyrra
af tveggja ára framhaldsnámi
erlendis og vonumst við því til
að sem flestir þeirra komi aft-
ur heim til íslands á næsta ári
sem fullmenntaðir tæknifræðing
ar.
Síðastliðið haust settust 34
nemendur í fyrrihlutadeild
Tækniskólans. Af þessum nem-
endum höfðu 23 lokið prófi frá
undirbúningsdeild Tækniskólans
hér í Reykjavík og á Akureyri.
í deildina settust einnig 2 nem-
endur, er lokið höfðu vélstjóra-
prófi og fjórir nemendur, er
áður höfðu lokið stúdentsprófi.
Á skólaárinu hættu 3 nemendur
námi.
Á hinum nýafloknum prófum
náðu 23 nemendur fyrrihluta-
deildar þeim tilskildum próf-
einkunum, sem með þarf til að
Sovézkir mælast
til sátta
Moskvu, 1. júlí. — NTB
• Kommúnistaflokkur Sovétríkj
anna hefur enn á ný skorað á
kínverska kommúnistaflokkinn
að slíðra sín sverð og stuðla að
einingu og samvinnu kommún-
ista í baráttunni við vaxandi á-
gengni Bandaríkjamanna.
Askorun þessi kom fram í orð-
sendingu frá miðstjórn sovézka
kommúnistaflkksins til flokks-
stjórnarinnar í Pekinig í tilefni
þess, að kínverski flokkurinn
heldur um þessar mundir hátíð-
legt 45 ára afmæli sitt.
Fréttamenn í Moskvu segja að
orðalag orðsendingarinnar sé
svipað og oftast áður, og ekkert
sé þar að finna sem bendi sér-
staklega á hinar auknu loftárás-
ir Bandaríkjamanna á N-Viet-
nam.
í Peking hefur fréttastofan
Nýja-Kína hins vegar birt úr-
drætti úr opinberum yfirlýsing-
um Bandaríkjamanna um loftár-
ásirnar og staðhæfir, að Banda-
ríkjastjórn hafi skýrt Sovét-
stjórninni fná því fyrirfram, að
hún hyggðist færa út stríðið í
Vietnam.
standast prófin, en undir prófin
gengu 31 nemandi. Einn nem-
andi varð veikur á próftímabil-
inu, en 2 nemendur náðu ekki
tilskildum lágmarkseinkunum í
einstökum greinum. Samkvæmt
heimilid í reglugerð skólans geta
þessir nemendur endurtekið próf
í þessum greinum. Vonast má
því til, að einnig þessir nem-
endur ljúki fyrrihlutadeildar-
prófi innan tíðar.
Fimm aðrir nemendur luku
ekki prófum.
Við byrjun fyrra missiris þetta
skólaár settust 48 nemendur í
forskóladeild. Af þessum nem-
endum hættu 3 námí í byrjun
skólaársins, vegna vankunnáttu
í dönsku. Undir missirispróf, er
fór fram í síðari hluta janúar-
ust í hópinn 6 nýir nemendur.
en af þeim stóðust 35 prófið. Er
kennsla hófst í öðru missiri bætt
ust í hópinn 6 nýir nemendur.
Voru það nemendur, er lokið
höfðu prófum úr fyrsta missiri
áð áður, en ekki lokaprófi. Fjöldi
nemenda, er hófu nám á öðru
missiri forskóladeildar var því
41 v
I hinum nýafloknu prófum
náð>u 30 nemendur tilskildum
einkunnum af þeim 40, er gengu
undir próf. Einn utanskóla nem-
andi innritaðist í prófin, en lauk
þeim ekik.
Eins og kunnugt er þá er einnig
starfrækt undirbúningsdeild
fyrir Tækniskóla á Akureyri.
Hefur sú deild starfað í þrjú ár.
Hafa 33 nemendur þreytt próf
og hafa þar af 27 lokið prófum.
Nú í vetur tók til starfa for-
skóladeild Tækniskóla á fsafirði.
Verður deildin þar rekin sem
framhaldsdeild iðnskóla, þannig
að það mun taka nemendur tvo
vetur að fara yfir námsefnið.
Sjö nemendur eru nú í þeirri
deild.
í>á vék skólastjóri að fram-
haldsnámi við erlenda tækni-
skóla, og bað nemendur að minn-
ast þess að þrátt fyrir ýmsa byrj-
unarerfiðleika ætti námið þar
ekki að verða erfiðara en hér
heima, er fram í sækti.
Hann ræddi því næst framtíð-
arverkefni Tf og fjallaði í því
sambandi um þörf tæknimennt-
aðra manna á íslandi og sagði:
Iðnaðar og tæknimenntun má
skipta í þrjá aðalflokka.
1) Iðnnám, iðnverkamenn, iðn-
skólar.
2) Tæknifræði, tæknar, tækni
skóli.
3) Verkfræði, eðlis og efna-
fræði, háskóli.
Verksvið iðnskólanna verður
þá fyrst og fremst menntun iðn
aðarmannsins og iðnmeistarans.
Allt nám á að geta farið fram
innanlands, nema þá í stuttum
námskeiðuim í einstökum 9érgrein
um. Verið er að athuga hver
skuli verða verksvið verkfræði-
deildar Háskólans á sviði verk-
fræðimenntunar á næstu árum.
Ef til vill verður þróunin sú, að
deildin útskrifi verkfræðinga
eftir 4 ára nám hér innanlands
(menntun tilsvarandi ensku B.S.
gráðu). Síðan má ráðgera, að
hluti þessara manna fari í fram-
haldsnám við erlenda háskóla.
Verksvið Tækniskóla íslands
Verður þá að veita menntun á
þeim stigum tækninnar, sem
liggur á miili verksviðs iðnaðar-
mannsins og verkfræðingsins.
Verkefnum má skipta í tvo aðal
hluta.
1) Tækna- nám; styttra tækni
nám (1-2-3 ár), fyrir teiknara,
aðstoðarfólk í rannsóknarstofum
m. m.
Hafa skólanum borizt margar
fyrirspurnir vaiðandi kennslu í
ýmsum sérgreinum ,sem til
þessa hafa ekki verið kenndar
hér á landi: Hefur því miður
ekki verið hægt að sinna þess-
um beiðnum ennþá.
2) Tæknifræðinganám; sem
skiptist í undirbúningsnám, fyrri
hlutanám og síðarihlutanám.
Undirbúningsnámið getur ver-
ið að nokkru leyti sameigin'.egt
fyrir bæði tækna og tæknifræð-
inga. Nám í fyrrihluta verður
að nokkru leyti sameiginlegt í
öllum greinum tæknifræðinnar
og ætti að vera kennt hér
heima, eins og nú er gert. Nám í
síðarihluta tæknifræðinnar verð
ur sérnám í einstökum greinum.
Verkefni, sem T. í. þarf að leysa
í náinni framtíð umfram nú-
UNDANFARIN sumur hefur
veðurstofan gert spár fyrir
síldarmiðin austur stf landinu.
Þetta svæði hefur nú verið
stækkað og skipt í þrjá hluta,
sem hver um sig er að flatar-
máli álika og allt ísland.
Svæðið er á milli 12. gráðu
og 1. gráðu ... Nær nyrzti
hlutinn norður að 70 gráðu N
og er kallaður Norðaustur-
djúp. Syðri takmörk syðsta
hlutans er um 62. gráðu N,
eða við Færeyjar og heitir
Færeyjadjúp. Miðhluti svæð-
isins er austur af íslandi, milli
64,5. gráðu og 67. gráðu N, og
er nefndur Austurdjúp. Á
kortið hér að ofan eru spá-
svæðin teiknuð til glöggvun-
ar þeim, sem spárnar nota, en
það eru að sjálfsögðu síld-
veiðisjómenn og útgerðar-
menn.
Skólastjóri afhendir Jóni Vigni Karlssyni prófskírteini, en Jón
hlaut hæstu einkunn sem gefin hefur verið við T.Í.
(Ljósm.: Sv. Þorm.)
verandi starfsemi er - í fyrsta
lagi að koma á kennslu í ýmsuin
greinum „tækna“-náms og að
hefja kennslu í síðarihluta tækr.i
fræðináms í nokkrum sérgrein-
um tæknifræðinnar.
Aðalástæðan fyrir að koma
þarf á síðarihluta kennslu í
tæknifræði hér heima sem fyrst
1) Sérþarfir íslenzkra atvinnu-
vega, t.d. í fiskiðnaði (fiksiðn
aðartæknifræði) sbr. landbún
aðartæknifræði í Danmörku).
2) Vegna mikils álags á erlenda
tækniskóla og þarafleiðandi
tokmörkun á fjölda íslenzkra
nemenda, er geta fengið skóla
vist við erlenda tæknifræði-
skóla.
Skólastjóri ræddi því næst hús
næðismál skólans og skort á vel-
menntuðum kennurum til starfa
þar, en kvaðst vona að úr þess-
um málum rættist fljótlega.
Að lokum lýsti hann úrslitum
prófa og afhenti verðalun. Einn
nemandi, Jón Vignir Karlsson,
hlaut ágætiseinkunn, 184 stig,
sem er hæsta einkunn sem gefin
hefur verið við skólann. Afhenti
skólastjóri honum bókaverðlaun
fyrir framúrskarandi námsafrek.
Níu nemendur fengu 1. einkunn
og var þar hæstur Karl Þorleifs-
son með 177 stig og hlaut hann
verðlaun fyrir hæstu prófseink-
unn í þýzku. Þrettán nemendur
hlutu aðra einkunn.
Skólastjóri óskaði nemendum
til hamingju með prófin og árn
aði þeim allra heilla í framtíð-
inni.
Skólanum barst vegleg gjöf
frá Einari Ásmundssyni í Sindra.
Er það kvikmyndasýningarvél
sem ætluð er til kennslu og
tvö sýningartjöld. Er annað
fylgja henni um 60 filmur og
þeirra einskonar sjónvarpsskerm
ur, sem nota má í fullri dags-
birtu. Er útbúnaðuf allur mjög
fullkominn og færði skólastjóri
góðu gjöf, sem hann kvað mundu
verða skólanum til mikils gagns.
Einari beztu þakkir fyrir þessa
Að lokum tók til máls af hálfu
nemenda Þorvarður Vilhjálms-
son og færði skólastjóra og kenu
urum beztu þakkir fyrir góða
og ánægjulega samvinnu.
Þessa mynd tók Sveinn Þormáðsson, Ijósmyndari Mbl., af bifreið,
sem ekið hafði á ljósastaur á Eiðsgranda í gær. Bifreiðastjórinn
gleymdi sér eitt augnablik, að því er ljósmyndaranum var tjáð
og á myndinni má sjá afleiðingarnar. Það má segja, að aldrei sé
nægilega brýnt fyrir mönnum að aka varlega.
Strangari aðgerða
þörf
- segir Seðlabankinn um hina
innistæðulausu tékka
HINN 25. júní sl. fór fram skyndi
könnun á innistæðulausum tékk-
um með svipuðu sni'ði og áður
hefur verið. Kom í ljós, að inn-
stæða var ófullnægjandi fyrir
rékkum, hamtals að upphæð kr.
2.247.000.—. Heildarvelta dagsins
í tékkum við ávísanadeild Seðla-
bankans var 213,8 milljónir kr.
og var því 1,05% fjárhæðar tékka
án fullnægjandi innstæðu.
Frá nóvember 1963 hafa alls
farið fram 11 skyndikannanir. í
fyrstu skyndikönnuninni kom
fram, að um verulega misnotkun
tékka var að ræða, en er fram í
sótti og þessar aðgerðir Seðla-
bankans og viðskiptabankanna
urðu tíðari, virtist draga úr mis-
notkuninni. Til dæmis var prós-
entutala innstæðulausra tékka
miðað við heildarveltu í ávísana-
skiptadeild Seðlabankans, er
skyndikannanir fóru fram á síð-
asta ári 0,48%—0,69%.
Niðurstaða þessarar síðustu
skyndikönnunar ber með sér, að
misnotkun tékka hefur aukizt
verulega á ný miðað við undan-
farandi skyndikannanir. Seðla-
bankinn og viðskiptabankarnir
líta á þessa niðurstöðu mjög al-
varlegum augum. Er ljóst, að
frekari og strangari aðgerða er
þörf til þess að sporna við mis-
notkuninni. Eru slíkar aðgerðir
í undirbúningi hjá bönkunum. —
Kemur m.a. til greina að leita
lagabreytinga, sem leiddi til
þyngri refsidóma fyrir útgáfu
innstæðulausra tékka. Auk þess
verða bankarnir að setja strang-
ari reglur um stofnun tékkareikn
inga og innlausn tékka.
Seðlabankinn mun, sem áður,
halda áfram aðgerðum til þess
að vinna á móti misnotkuninni,
m.a. með tíðari skyndikönnunum
og öðrum nauðsynlegum aðgerð-
um. (Frá Seðlabanka íslands).
Skólastjóri
hættur
VIÐ skólaslit Tækniskóla íslands
ar Ingvarsson frá því að hann
hefði beðizt lausnar frá störfum
frá og með næsta hausti áf
fjárhagslegum ástæðum. Kvaðst
skólastjórinn hafa ákveðið að
í gær skýrði skólastjórinn, Ingv- I leita sér að staríi annars staðar,