Morgunblaðið - 02.07.1966, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 02.07.1966, Blaðsíða 26
<|U mvnuwiTBiiNViv Laugardagur 2. Júli 1908 KR vann mótið með 326 stigum gegn 221 hjá ÍR Skemmtileg keppni cg þokka- legur árangur KR var lang stigahæst á Meist- aramóti Rvíkur í frjálsum íþróttum og hlýtur því titilinn „bezta frjálsíþróttafélag í Reykjavík 1966“ KR-ingur hlutu samtals 326 stig, ÍR 221 og Ár- mann 49 á mótinu sem lauk í fyrrakvöld. Yfirleitt var keppni skemmtileg á mótinu, oft tvísýnn og þokkalegur ár- angur náðist. þó hvergi væri um toppárangur að ræða. í mörgum greinum er þó um betri árangur að ræða en á síðasta móti og þvi fram- förin greinileg. Sérstaklega ber að geta Þorsteins Þor- steinssonar KR scm sigraði glæsilega í 400 og 800 ra hlaupum á mjög góðum tima miðað við aldur hans og reynslu. Þar sem víða annars staðar er um mikinn og góð- an efnivið að ræða. Á iokadegi mótsins sigraði Halldóra Helgadóttir í 3 , greinum 100 m hlaupi, lang- stökki og 80 m grindahlaupi og var auk þess í sigursveit KR í boðhlaupi kvenna. Vel að verið. Úrslit síðasta daginn 100 m hlaup: Ragnar Guðmundsson Á 11.1 Ólafur Guðmundsson KR 11.2 í 'Valbjörn Þorláksson KR 11.3 400 m hlaup: Þorsteinn Þorsteinsson KR 50.3 Þórarinn Ragnarsson ÍR 52.3 Þórarinn Arnórsson ÍR 52.6 1500 m hlaup: Halldór Guðbjörnsson KR 4:04.5 Þórður Guðmundsson UBK 4:13.2 Kristl. Guðbjömsson KR 4:20.0 110 m grindahlaupr Valbjörn Þorláksson KR 15.5 Sigurður Lárusson Á 15.5 Þorvaldur Benodiktsson KR 16.1 Stangarstökk: Valbjörn Þorláksson KR 4.02 Páll Eiríksson KR 3.80 Magnús Jakobsson UMB 32.0 Þrístökk: Jón Þ. Ólofsson ÍR 13.72 Úlfar Teitsson KR 13.33 Þormóður Svavarsson ÍR 13.20 Kringlukast: Þorsteinn Alfreðsson UMB 45.84 Erlendur Valdemarsson ÍR 44.87 Jón Þ. Ólafsson ÍR 43.28 Sleggjukast: Jón Magnússon ÍR 49.90 Þórður Sigurðssun KR 46.45 Þorsteinn Löve IR 45.50 4x400 m boðhlaup: KR a-sveit 1.29.0 Ármann 3:37.0 ÍR 3:37.4 200 m hlaup: Halldóra Helgadóttir KR 29.6 Akureyringar unnu Val 2:1 En 3 landsliðsmenn voru ekki með Akureyri, 1. júlí. Á fimmtudagskvöidið fór fram á Akureyri hinn árlegi knatt- spyrnukappleikur til minningar um Jakob Jakobsson. Að þessu sinni léku Akureyringar við Knattspyrnufélagið Val Rvik. Mikill fjöldi áhorfenda var að leiknum, sem var prúðmannlega leikinn. Akureyringar gerðu fyrsta mark leiksins Steingrím- ur Björnsson skoraði úr þvögu, eftir hornspyrnu í iok fyrri hálf- leiks. Ingvar Elíasson jafnaði fyrir Val á 25. mínútu síðari hálfleiks með fallegu skoti af 25—30 metra færi. Á 35. mínútu var dæmd aukaspyrna á Val. Kári Árnason fékk boltann og skoraði af örstuttu færi 2:1 fyrir Akureyri. Valsliðið náði aldrei almenni- lega saman í þessum leik. Fram- línan var bitlítil og náði sjaldan að skapa hættu við Akureyrar- markið. Vörnin átti heldur ekki sériega góðan dag, að undan- skildum markverðinum, Sigurði Dagssyni, sem var bezti maður liðsins. Hermann Gunnarsson og Bergsveinn Alfonsson léku ekki með iiðinu að þessu sinni, vegna æfinga undir landsleik og breytti það liðinu eflaust til hins verra. Magnús Jónatansson lék ekki með Akureyringum af sömu orsökum. Akureyringarnir voru mun líf- legri og var samleikur þeirra oft með ágætum. Mikið var um æs- andi augnablik við Valsmarkið. Akureyringar voru nú mun ákveðnari en oft áður, er upp að markinu kom og minna um him- inháar sendingar út í bláinn. Þeirra beztur var Kári Árnason. Dómari var Sveinn Kristjánsson. — Stefán. Guðný Eiríksdóttir KR 30.6 Aðalbjörg Jakobsdóttir KR 30.7 Langstökk: Halldóra Helgadóttir KR 4.59 Regína Hoskuldsdóttir KR 4.49 Maria Hauksdótuir ÍR 4.38 Spjótkast: Arndís Björnsdóttir UBK 29.10 Birna Ágústsdóttir UBK 26.00 Elísabet Brandt IR 25.25 4x100 m boðhlaup kvenna KR 57.2 ÍR 60.2 80 m grindahlaup: Halldóra Helgadcttir KR 14.5 Elín Daníelsdóítir ÍR 16.6 María Hauksdóitir IR 16.7 Þjóðverjar heimsmeistarar í útihandknattleik Heimsmeistarakeppni í útihand- knattleik karla lauk í Vínarborg í gærkvöld (föstudag). Vestur- Þjóðverjar urðu heimsmeistarar en síðan fylgdu A-Þjóðverjar og Austurríkismenn. Úrslitaleikirnir sem röðinni réðu fóru þannig, að V-Þjóðverj ar unnu Sviss 18—12 (11—5), A- Þýzkaland vann Holland 23—9 (12—5), og Austurríki vann Pól land 19—15 (7—6). " v' v/tye //«>/• í'v/VAW / ' ’ryAV’• Þessi börn voru meðal þeirra er kepptu í boðhlaupum á Laug- ardalsvellinum 17. júní Þau hafa tekið þátt í íþrótta- og leik- námskeiðum á vegum ÍBR og voru á KR- og Þróttarsvæöum. Þessi börn skoruðu fram úr á sínum svæðum. 1 gær fengu börnin tækifæri til að reyna sig á móti á Melaveilinum og var þar fjölmenn keppni og skemmtileg. — Ljósm. Kristján Jóhannsson. Colf á Akureyri: I Höröur Steinbergsson vann ,Gunnarsbikarinn‘ í harðri keppni ÖNNUR mesta golfkeppni hvers árs á Akurryri, keppnin um Gunnarsbikarinn, fór fram í fyrri viku og lauk um sl. helgi. Kepnin varð einhver jafnasta og tvísýnasta golfkeppni, sem fram hefur farið á Akureyri, en ungur golfleikari Hörður Steinbergsson tryggði sér sigur á síðasta hringnum eða öllu heldur með góðum leik á siðustu holunum. Keppnin var 72 holur og stóð í 4 daga. Heildarúrsilt keppninnar urðu þessi: Hörður Steinbergsson 279 högg Ing. Þormóðsson 282 — Sævar Gunnarsson Hafliði Guðmundsson 282 — Jóhann Þorkelsson 291 — 20 sænskir frjálsíþrótta- menn og konur koma ti[ XR A SUNNUDAGINN 3. júlí eru hingað væntanleg-ir 20 frjáls- íþróttamenn og 2 stúlkur, ásamt 4 fararstjórum, frá Idrottsringen í Göteborg, Svíþjóð. Hópur pessi kemur hingað á vegum frjáls- íþróttadeildar KR, en frjáls- íþróttamenn KR nutu gestrisni Idrottsringen á keppnisferðalagi í Sviþjóð sumarið 1964. Svíarnir dvelja hér í vikutíma, skoða borgina og nágrennið og heiztu ferðamannastaði á Suður landinu, auk þess sem þeir taka hér þátt í frjálsíþróttamóti, sem KR stendur fyrir fimmtudaginn 7. júlí n.k. í þessum sænska hópi er að- eins einn keppandi, sem á betri árangur en íslenzkt met. Er það kúluvarparinn Stig-Lennart Eriksson, sem varpað hefur kúl unni 17,14 m. En í hópnum eru margir hlauparar, og eiga þeir beztu þeirra tíma, sem eru á borð við árangur beztu hlaupara okkar nú, svo að búast má við skemmtilegri keppni í hlaupun- um. Aðalgrein mótsins verður 800 m. hlaupiö, en þar máí nefna Svi- ana Tom Person (1:55), Tommy Hanson (1:56), Lennart Norberg (2:00), Per Olsson (1:58) og Rune Allansson (2:00). Á móti þeim hlaupa Þorsteinn Þorsteinsson og Halldór Guðbjörnsson KR, sem fengu tímana 1:56,5 og 1:56,7 á Reykjavíkurmeistaramót inu, Þórarinn Ragnarsson, KR (1:59,6 á sama móti), Agnar Levý KR (2:00,2), Þórarinn Arn órsson, ÍR (2:00,6) að ógleymd- um læknanemanum Gísia H. Friðgeirssyni, A, sem hljóp á 2:00,2 mín. í sínu fyrsta 800 m. hlaupi og jafnframt sinni fyrstu keppni á Reykjavíkurmeistara- mótinu nú í vikunni. Sr þav ó- tvírætt um mikið hlaaparaefni að ræða, sem vænta má af hinna óvæntustu afreka. Aðrir, sem sérstaklega má nefna, úr sænska liðinu, eru: 400 m. hlaupararnir Lars Phi.'ip (50,8), Holger Kállqvist (51,0), langstökkvarinn Stig Fássberg (6,89), hástökkvarinn Kjell Berntsson (1,86) og þrístökkvar- inn Lennart Larsson (13,50). A mótinu verður keppt í þess um greinum: Karlar: 100 m., 400 m., 800 m., 1500 m og 30000 m. hlaup, — 4x400 m. boðhlaup, langstökk, hástökk, stangarstökk, kúiuvarp, kringlukast. Konur: 100 m. hiaup, lang- stökk. • Sveinar: 300 m. hlaup. Þátttökutilkynningar þurfa að berast Einari Frímannssyni c/o Samvinnutryggingar, sími 38500, heimasími: 18416, í síðasta lagi á mánudag, 4. júlí n.k. Tvísýn keppni. Tuttugu manns hófu keppni en 4 heltust úr lestinni er á leið vegna óhappa, Eftir fyrsta daginn hafði Sævar forystuna með 68 högg en Ingólfur var með 68 og Jón Guðmundsson 70. Eftir 36 holur höfðu þeir skipt um forystu Ingólfur og Sævar. Ingólfur var með 136 högg en Sævar 139 og nú bland- aði Hörður Steinbergsson sér í leikinn og var einnig með 139 högg. Eftir 54 holur hélt Ingólfur enn forystu 210 högg, Hörður var með 211 en Sævar og hinn gamalkunni Jóhann Þorkelsson voru jafnir með 215. Jóhann hafði leikið mjög vel þennan dag og sýndi sig liklegan til að blanda sér í lokastríðið . Góður endasprettur. í lokaátökunum iék Hörður sérlega vel, einkum síðari 9 hol- urnar og þá sérstaklega tvær síðustu holurnar. Fram að þeim mátti ekki á milli sjá hver sigra myndi, svo jöfn var keppnin. Hörður hefur leikið golf í 3 ár, verið 1. flokks meistari 2 sl. ár en er nú tvímæialaust í fremstu röð. Akureyringar ætla þó að Sævar Gunnarsson verði eins góður eða betri er liða fer á sumarið. Hann er ungur golf- leikari en hefur æft mjög vel enda aðstaða hans góð, þar sem hann er vallarvörður á golfvell- inum. Sigurvegarinn hiaut „Gunn- arsbikarinn* en hann var gefinn til minningar um Gunnar Hall- grímsson. Framhald á bls. 27.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.