Morgunblaðið - 02.07.1966, Page 3
liaugardagw 2. jun íabö
IKUKb U N U LAVIU
ö
Húsmæðraskólinn að Löngumýri.
GISTIHEIMILI verður starf-! þær Sigurlaug Eggertsdóttir og! að taka með sér svefnpoka og
rækt í sumar í Húsmæðraskól- I Jónína Bjarnadóttir. Heimilið j annan ferðaútbúnað. Morgun-
anum að Löngumýri svo sem var j verður opið í tvo mánuði, j úlí og > kaffi og eftirmiðdagskaffi verð-
B.l. sumar. Fyrir starfseminni j ágúst. Ferðamönnum sem ætla j ur hægt að fá á staðnum.
standa tveir húsmæðrakennarar, I að gista á heimiiinu er heimilt
„Dagblað alþýðurmar":
Þriðja valdabaráttan
í Kína á 16 árum
Enn jarðskjálfti
í Tashkent
Moskvu, 1. júlí. NTB-AP.
• Enn hafa orðið jarðskjálftar
í Asíuborginni Tashkent í Uzbe
kistan í Sovétríkjunum. Mæld-
ist í dag kippur, 5—6 stig á 12
stiga mælikvarða þeim, er not-
aður er í Sovétríkjunum.
Fyrir tveimur dögum mæld-
ust þar tveir kippir all öflugir
á aðeins 45 mínútum. Alls hafa
mælzt 525 jarðskjálftakippir í
Tashkent frá því 26. apríl s. 1.
er hinn fyrsti og öflugasti lagði
fjölda húsa í -rúst og vare? mörg
um að bana.
Á fjórða hundrað þúsund
manna hafa orðið heimilislausir
af völdum jarðskjálftanna — eða
um fjórðungur íbúa borgarinn-
ar, sem að sögn Tass fréttastof-
unnar eru 1,1 milljón talsins.
Efnalegt tjón hefur orðið geysi-
mikið en engar opinberar tölur
hafa verið birtar um manntjón.
Fréttamönnum er enn meinað að
fara til Tashkent og fréttir það-
an berast því nær eingöngu
gegnum Tass fréttastofuna.
ST\KSIH\AK
i Peking, 1. júlí. — AP-NTB.
„DAGBLAÐ ALÞÉÐUNNAH",
skýrir svo frá í dag, að nú hafi
verið unninn fullur sigur í bar-
áttunni við þau öfl innan flokks
ins, sem reynt hafi að sölsa
undir sig völd með það fyrir
augum að innleiða kapítalismann
á ný. Segir blaðið ennfremur,
að baráttan að undanförnu hafi
verið þriðja meiriháttar valda-
baráttan siðustu sextán árin —
og þeirra skæðust, þar sem
flokksfjendurnir hafi að þessu
sinni verið kænni og öflugri en
hinir fyrri.
Blaðið segir, að fyrsta valda-
baráttan hafi verið háð arið
1953 í upphafi þróunar kommún
isku byltingarinnar. Þá hafi tveir
helztu samsærismennirnir verið
Kao Kang, þáverandi meðiimur
framkvæmdastjórnar flokksins
og Lao Shu-Sihiih. Þeir hafi verið
fulltrúar kapitalismans og tekizt
að komast inn í kommúnista-
flokkinn á fölskum forsendum.
Þar hafi þeir gert árangursiausa
tilraun til þess að hrifsa til sin
völdin í flokks- og ríkisstjórn-
inni til þess að geta komið aftur
á borgarastjórn. Miðstjórn
flokksins með formanninn, Mao
Tse Tung, í broddi fylkingar,
kom upp um þetta samsæri, að
því er blaðið ségir, og sigraði
flokksfjendurna að fullu.
Næsta valdabarátta var háð
1958 segir blaðið, er flokkurinn
átti í höggi við hóp endurskoð-
unarsinna. Þá hafi flokkurinn
lagt áherzlu á að ná skjótari og
betri árangri í uppbyggingu
sósíalismans. Þetta var „stóra
framfarastökkið", segir blaðið,
sem skaut heimsvaldasinnum,
endurskoðunarsinnum (nafngift,
sem venjulega á við Rússa) og
afturhaldsöflum heima fyrir,
skelk í bringu og sameinaði þessi
öfl í baráttu gegn kínverska
kommúnistaflokknum. Nokkrir
metorðagjarnir eiginhagsmuna-
menn lögðu þá fram gagnstæðar
áætlanir með stuðningi endur-
skoðunarklíku Krúsjeffs, — áætl
anir, sem miðuðu að því.að unnt
yrði smám saman að innleiða
kapítalismann á ný.
Grein þessi í „Dagblaði al-
þýðunnar" birtist í tilefni 45 ára
afmælis kínverska kommúnista-
flokksins. Þar birtist og mynd á
forsíðu af Mao Tse Tung og segir
þar, að ‘hún hafi verið tekin í
fyrrasumar í Austur-Kina. Ekki
er minnst einu orði á það, hvar
Mao Tse Tung muni halda af-
mæli flokksins hátíglegt.
„Mannúðin fyrsl“
reynir oð hindrn
kjornorkutilrcnn Frokku
Sydney, 1. júlí. — NTB.
LÍTILL bátur með níu manns um
borff, er nú á siglingu einhvers
staðar á Kyrrahafinu meff þaff
fyrir augum aff reyna aff koma
í veg fyrir kjarnorkutilraun
Frakka, sem fyrirhuguff er í dag.
Frá þessu skýrði í dag Lloyd
Wilkie, talsmaður nefndar, er
berst gegn kjarnorkutilraunum.
Sagði Wilkie, að bátur þessi
bæri nafnið „Mannúðin fyrst“,
og hefði farið frá Sydney fyrir
u.þ.b. mánuði. í bátnum væru
engin senditæki og hefði ekkert
frá honum heyrzt frá því hann
lagði upp í þessa ferð. Ekki
kvaðst Wilkie geta gefið neinar
upplýsingar, að svo stöddu, um
fólkið í bátnum, en sagði að
nefnd hans stæði að baki þessu
tiltæki, sem hefði þann tilgang
einan að reyna að hindra kjarn-
orkutilraun Frakka.
Barbados fær
sjálfstæði
London, 1. júlí NTB..
Eyríkiff Barbados, ein af
elztu nýlendum Breta, fær sjálf-
stæði 30. nóvember n.k., að því
er tilkynnt var í London í dag.
Eyja þessi er aðeins 428 fer-
kílómetrar að stærð og íbúar um
250.000 talsins. Áður var hún
hluti af Vestur Indiasamband-
inu sem leystist upp er Jamaica
og Trinidad# sögðu sig úr því,
árið 1962. Síðan hefur stjórn
Barbados reynt að mynda sam-
band með öðrum smáe' ium í
Karabiska hafinu, — en ,.n ár-
angurs.
Engin miskunn
að þessu sinni
Beirut, 1. júlí. AP-NTB.
• Forseti Iraks, Abdel Rahman
Aref, sagffi í útvarpsávarpi í
kvöld, aff þeim, er staðiff hefðu
aff byltingartilrauninni á fimmtu
dag, yrffi ekki sýnd nein misk-
unn. Hann upplýsti, aff átta her-
foringjar og hermenn hefðu látiff
lififf í átökunum og 14 særzt.
Bardagar, sagffi hann, aff hefðu
staðiff í fjórar klukkustundir.
Aref sagði, að nú væri allt
með kyrrum kjörum í landi.ou
— en að þessu sinni yrði bylt-
ingarmönnum ekki sýnd náð. All
ir forsprakkarnir hefðu verið
handteknir, þeirra á meðal Aref
Abdel Razzak, hershöfðingi, sem
einnig hefði staðið fyrir mis-
Framhald á bls. 27
Blátnasala við þjóð-
vetji á sunnudaty
Reykjum í Mosfellssveit,
30. júní.
Lionsklúbbur Kjalarnessþings
byrjar nú annað starfsár sitt.
Hann hefur þegar unniff gott
starf og meðal annars beitt sér
fyrir fjáröflun til kaupa á súr-
efnistækjum aff Varmárlaug.
Einnig hefur Lionsklúbburinn
beitt sér fyrir því aff afla verff-
launa til keppni í sundi og öðrum
iþróttum.
Á sunnudaginn kemur leggja
klúbbfélagar út í fjáröfiunar-
herferð. Hugmyndin er að selja
blóm við þjóðvegina til ágóða
fyrir félagsstarfsemina, en Vest-
urlands- og Suðurlandsvegir
liggja báðir um hina blómlegu
sveit. Vonazt er til, að vegfar-
endur, sem varir verða við
bJómasölutelpur, kaupi blóm af
þeim. Hér er um að ræða blóm,
sem keypt verða af blómafram-
leiðendum héraðsins og síðan
seld ykkur vegfarendur góðir.
Aðalbækistöðvar blómasölunnar
verða við BP-stöð Halldórs Lár-
ussonar og Essó-tank kaupfélags-
ins við Vesturlandsveg, en einn-
ig á Geithálsi, sem er syðsti
hluti Mosfellshrepps. Þess er
eindregið vænzt, að vegfarend-
ur taki stúikunum vel og kaupi
sér vönd fagurra blóma. — For-
maður klúbbsins er nú Sigsteinn
Pálsson á Blikastöðum.
— Fréttaritari.
Ejö! til Flugbjörguncrsveitarinnar
A myndinni eru Guffmundur
Sigurður M. Þorsteinsson og
LIONKLÚBBURINN Njörður
hefur nýlega gefið Flugbjörgun
arsveitinni i Reykjavík 50 þús-
und krónur. — Lionsklúbburinn
Njörður hefur það á stefnuskrá
sinni, að styrkja félagsstarfsemi,
sem vinnur að líknar- og mann-
úðarmálum.
í klúbbnum eru 38 meðlimir
og skipa stjórnina þessir menn:
Guðmundur Ingvi Sigurðsson,
Ingvi Sigurffsson, lengst t.v., þá
Kristján Krisíjánsson.
form., Kristján Kristjánsson,
gjaldkeri og Hafsteinn Sigurðs-
son, ritari.. Klúbburinn hefur
styrkt ýmsa aðilja áður og var
þetta síðasta verkefnið á þessu
starfsári.
Stjórn F.B.S. biður blaðið um
að flytja gefendum þakkir fyrir
gjöfina, sem kemur sér nú sér-
staklega vel vegna aukinnar
starfsemi og aukinna útgjalda.
Fleiri glíma við
sama vandann
LÆKKUN smjörverðs vegna mil
illa smjörbirgffa hafa orffiff til-
efni víðtækra umræðna unr
vandamál landbúnaðarins, Of
hafa bændur sjálfir tekið ríkar
þátt i þeim umræðum. En íslend-
ingar eru ekki einir um þaff aí
framleiöa of mikiff af smjöri. —
Flest Evrópulandanna eiga vif
samskonar vandamál að glíma,
eins og fram kemur í eftirfar-
andi grein, sem birtist í finnskr
blaði, en þar er rætt um offram-
leiðslu á smjöri, og segir:
„Nú í vor voru smjörbirgffii
Evrópulandanna komnar upp i
189 milljónir kilógr., effa 4í
milljónum kílóa meira en í samí
tima í fyrra. Á sama tima áttii
Englendingar í geymslum 7í
milljónir kilóa meira af smjöri
en þeir hafa átt sl. 8 ár. Þótt
aukning smjörframleiðslunnar s«
nú hægari en áður, er hættan á
allfof miklu framboffi augljós, og
þaff hefur greinilega komiff franc
í smjörverffinu. Útflutningsveri
fyrir okkar smjör hefur á þessi
ári veriff 15% lægra en fyrir ári.
Vegna mikilla smjörbirgffa hefui
England ákveffiff aff takmarka
smjörinnflutning sinn, svo al
England flytur inn undir núver-
andi kvóta 24 milljónum kilóa
minna en á sama timabili í fyrra
Þetta hefur þau áhrif á okkai
útflutning. a<k enda þótt okkai
grunnkvóti, sem nemur tæpum 13
millj. kilóa sé óbreyttur, hefui
aukakvóti aðeins veriff 3 milljón-
ir kilóa, effa rúmlega helmingi
minni en á sama timabili i fyrra.
Smjörútflutningur okkar hefur
frá ársbyrjun minnkaff um ca.
114 milljón kíló, útflutningsverff-
iff hefur vegna verffbreytinga
minnkað um 400 millj. marka, og
ef viff ekki fáum aukakvóta í
Bretlandi mun heildarútflutning-
urinn til marloka næsta árs að-
eins vera 15,6 milljónir kílóa“.
Af þessari tilvitnun i hið
finnska blað er Ijóst, að það er
ekki íslendingar einir, sem eiga
viff erfiðleika að etja vegna of-
framleiffslu á ákveðnum landbún
affarvörum. Þjóffir Vestur-Evr-
ópu og Bandarikin hafa lengi átt
viff samskonar vandamál að
glíma. Viff þeim hefur verið
brugðizt með mismunandi hætti,
en jafnan hafa þær affferðir ver-
ið umdeildar í þessum löndum.
Málsvari
ofbeldisins
Aðalmálsvari ofbeldis og kúg-
unar, hvar sem hún kemur fram
í heiminum, Magnús Kjartans-
son. ritstjóri Þjóffviljans, sem hef
ur variff lífi sínu i þá þokkalegu
iffju aff halda uppi vörnum fyrir
ofbeldi, kúgun, hryffjuverk og
morð, sem skoffanabræður hans
hafa stundað af kappi viða um
heim síðustu áratugi, þykist þess
umkominn aff saka affra um „rag
mennskulega þögn“ vegna þess
aff Bandarikin og fleiri þjóðir
hafa enn einu sinni komið til
affstoðar þjóð, sem hefur orffiff
fyrir ofbeldisárás skoðanabræðra
Magnúsar Kjartanssonar,
Orff Magnúsar Kjartanssonar
um „morðverkin, striösglæpina,
stríðsglæpamennina og ofbeldi“
í Vietnam hitta einungis þá
menn, sem aff slíkum verkum
standa, kommúnistana í Víet-
nam að þessu sinni, kommúnist-
ana í Kóreu áður fyrr, kommún-
istana í Ungverjalandi, kommún-
istana í Berlín og svo mætti lengi
telja. Ef nokkurs staffar ríkir rag
mennskuleg þögn um hinn raun-
Verulegu ofbeldis- og hryffju-
verkamenn, sem alltof lengi hafa
vaðið uppi i þessum heimi, þá er
þaff á ritstjórnarskrifstofum Þjóð
viljans við Skólavörðustíg og í
persónu Magnúsar Kjartanssonar.