Morgunblaðið - 02.07.1966, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
£augar<fagur 9. Jflfí 1966
>r
BÍLALEIGAN
FERÐ
JDaggjald kr. 400.
Kr. 3,50 per km.
SÍMI 34406
SENDUM
Volkswagen 1965 og ’66.
LITLA
bíloleigon
Ingólfsstraeti 11.
Volkswagen 1200 og 1300.
•
BO SC H
Háspennukefli
6 volt.
12 volt.
Brœðurnir Ormsson
Lágmúla 9* — Sínii 38820.
^ Fánareglugerðin
og lögreglan
Vegna skrifa í þessum
dálkum um lögregluþjóna, sem
hafa ekki viljað skipta sér af
því, þótt íslenzkir fánar væru
hafðir upp á ólöglegum tima,
heldur vísað til skáta um vitn-
eskju í þeim efnum, hefur einn
yfirmanna lögreglunnar komið
að máli við Velvakanda. Segir
hann afar ólíklegt, að lögreglu-
þjónar viti ekki nákvæmlega,
hvenær taki beri fána niður að
kveldi, því að hver og einn lög-
regluþjónn hafi fánareglugerð-
ina undir höndum. Hafi þeir
hana í möppu ásamt ýmsum
nauðsynlegum skjölum og upp-
lýsingum, sem þeir þurfi dag-
lega á að halda. Þar að auki sé
margsinnis kært til lögreglunn-
ar vegna fána, sem hangi of
lengi uppi, og standi lögreglu-
þjónar oft i því að taka fána
niður af stöngum. f>ess vegna
sé þeim málið vel kunhugt.
Varðandi umrætt atvik sé þó
hugsanlegt, að um algera ný-
liða eða menn, sem leysi af í
sumarleyfum, hafi verið að
ræða.
Ljótt atvik
Leigubílstjóri hefur skýrt
Velvakanda frá óhugnanlegum
atburði, sem hann varð vitni
að. Hann kvaðst hafa verið að
taka fólk upp í bíl sinn hér í
borg. Þegar fólkið var að stíga
inn í bílinn, sá það önd koma
kjagandi þar skammt frá Önd-
in var rytjuleg og hafði sýni-
lega nýlegið á eggjum, enda
var hún að leita sér að æti.
Kom þá allt í einu 10—11 vetra
gamall strákur út úr húsi þar
skammt frá, og er hann kom
auga á öndina, þreif hann upp
stærðar stein og kastaði í hana.
Öndin slasaðist greinilega eitt-
hvað, en flýði bak við hús.
Drengurinn elti hana þá með
grjótkasti. Þannig stóð á, að
fólkið, sem var með tvö ung-
börn í fanginu, gat ekki heft
för drengsins, og bílstjórinn
þurfti að flýta sér með það og
börnin. Hins vegar komst bíl-
stjórinn að því, hver drengur-
inn var og hvar hann átti
heima, svo að hann hringdi til
móður drengsins og skýrði
henni frá atburðinum. Móðirin
hét því að taka drenginn til
bæna.
Börnin og ttyrm
Þeir, sem eru hlynntir
einhverskonar eða jafnvel alls
konar dýrahaldi í borgum, nota
það oft sem röksemd, hve mik-
ið uppeldislegt gildi það hafi
fyrir börnin að umgangast dýr.
Hitt gleymist þá um leið, að í
borgum eru blessuð dýrin
hrifin úr sínu eðlilega um-
hverfi. Þau eru ekki lengur
úti í náttúrunni, heldur á
steinlögðum strætum með bíla-
umferð, ysi og þysi og hávaða
borgarlífsins, enda kannast
margir við það, hve tauga-
veikluð þessi „borgardýr"
verða einatt. Og börnin, — þvi
miður verður að segja það eins
og er, að þau hugsa um dýrin
sem eins konar tuskuleikföng,
sem þau geti leikið sér að eftir
vild, teygt og togað, hent upp
í loftið og argað á. Stundum
(eða oft) verður „leikur“ barn-
anna við dýrin grimmdarlegur.
Nýlega var sagt frá því hér,
hvernig börn drápu önd hér í
borg. Og á einum stað í borg-
inni hafa borgaryfirvöldin af
einhverjum óútskýranlegum
ástæðum leyft búrekstur inni
í miðju þéttbýlu íbúðahverfi.
Þar eru kindur, endur og gæs-
ir, (fyrir utan auðvitað rottur,
dúfur, flugur og alls ■ konar
mykjuhaugapöddur, sem
dreifa sér um nágrennið en þar
eru auk íbúðarblokkana a.m.k.
tvö barnaheimili og sundlaug).
Ætla mætti nú, að návist hinna
tömdu dýra (við skulum
sleppa hinum ótömdu) hefði
göfgandi áhrif á börnin. En
það er nú öðru nær. Litlu börn-
in láta sér nægja að arga á ali-
fuglana og rollurnar, en eldri
drengirnir læðast einstöku sinn"
um inn fyrir girðinguna og snúa
eina önd eða eina gæs úr háls-
liðrium, „stúta fugli“, eins og
það heitir. Holl og göfgandi
uppeldisáhrif?
ÍC Hvernig skólar
geta eignazt
fögur listaverk
„Listunnandi" sendir
þetta bréf með ofangreindri
fyrirsögn:
„Ég var nýlega við skólaupp-
sögn Húsmæðraskóla Reykja-
víkur, og varð mér starsýnt á
falleg málverk, sem hengu þar
á veggjum eftir nokkra önd-
vegis málara okkar. Ég fór að
grennslast eftir því, hvermg
skólinn hefði eignazt þau, og
fékk ég þetta svar:
Frú Ragnhildur Pétursdóttir
i Háteigi var skólanum mikil
stoð og stytta alla tíð, en hún
var fyrsti formaður skólanefnd
ar. Við lát hennar var stofnað-
Ur sjóður til minningar um
hana, og var ákveðið að úr
honum yrði varið fé til lista-
verkakaupa. Þennan sjóð hafa
ýmsir nemendahópar skólans
eflt með peningagjöfum við
skólauppsögn á vorin. Mættu
t.d. nú 20 ára nemendur, 15 ára,
10 og 5 ára, og bættist töluvert
í sjóðinn á þessu vori.
Nýlega mátti sjá í blöðum
frétt af skólauppsögn Kvenna-
skólans í Reykjavík, og þess
getið m.a., að stofnaður hafi
verið þar listaverkasjóður. Það
er ánægjulegt til þess að vita,
að skólarnir verði jafnframt
hinu almenna námi vettvangur
fagurra lista, og glæði með því
áhuga og skilning nemendanna
á góðri list.
Mér er það enn í fersku
minni, er ég fyrir mörgum ár-
um kom í heimsókn í Mennta-
skólann á Akureyri og sá þann
fagra listaauð, sem hékk þar á
veggjum. En frumkvöðullinn
að söfnun sígildra málverka
þar var hinn merki skólafröm-
uður, Sigurður skólameistari
Guðmundsson.
Það sýnir sig, að með stofn-
un og eflingu listaverkasjóðs i
skólum má smátt og smátt
auðga þá og prýða af úrvais
listaverkum".
„Listunnandi".
Héru samankomnir í heimsókn í Ingólfs Apóteki læknakan didatar vorið 1966 frá Háskóla
fslands. Það er orðin árlega venja að nýbakaðir læknakandidatar séu gestir apóteksins dags-
stund. Á myndinni eru frá vinstri: Kristján Sigurjónsson, lngólfur S. Sveinsson, Þorsteinn
Svörfuður Stefánsson, Ingvar Kristjánsson, Baldur Fr. Sigfússon, Brynjóifur Ingvarsson, Þór-
arinn B. Stefánsson og Auðólfur Gunnarsson.
Ashtabula, Ohio.
SEX manna fjölskylda fór i
helgarferðalag yfir Erie-vatu
til sjóskíðaferða og annarrar
skemmtunar og bar ekkert til
tíðinda fyrr en að kvöidi laug
ardags er þau voru á heimleið.
Þá varð báturinn benzinlaus
og þá tók gamanið að kárna,
þvi vistir ailar voru á þrot-
um. Síðan rak bátinn stjórn-
laust um vatnið en fjölskyld-
an reyndi árangurslaust að
vekja á sér athygli með neyð-
arblysum, speglum og öðrum
tiitæku. Að kvöldi sunnudags
sáu þau loks land og tókst að
róa i átt þangað með sjó-
skíðunum og hlutu að vonum
góðar viðtökur því þá hafði
verið gert aðvart um að þau
væru týnd.
Malflutningsskrifstoia
JON N. SIGURÐSSON
Sími 14934 — Laugavegi 10
Arni Grétar Finnsson, hdl.
Strandgötu 25, HafnarfirðL
Sími 51500.
Hárþurrkur til sölu
Höfum til sölu þrjár vel með farnar Southwind hár-
þurrkur. — Upplýsingar í síma 30414 eða 32801.
Mílæðaframleiðendiir
.Klæðskeri með margra ára starfsreynslu í fata-
framleiðslu og verkstjórn, óskar eftir atvinnu í
haust. — Tilboð, merkt: „Suðurland — 8968“ legg-
ist inn á afgr. Mbl. fyrir 7. júlí.