Morgunblaðið - 02.07.1966, Blaðsíða 27
Laugardagur 2. jölí 1968
MORGUNBLAÐtÐ
27
Fulltrúar ATA ráðsfundarlns voru gestir fovseta Islands kð
Bessastöðum i gær, Við það tækifæri lögðu dönsku fulltrú-
arnir blómsveig að leiði Sveins Björnssonar forseta og konu
hans frú Georgíu Björnsson. Þeir eru Egil Barfod, Per Ar-
boe-Rasmussen og Per Markusson, gjaldkeri ATA, sem er í
þann veginn að leggja blóm sveiginn.
— ATA-fundur
Framhald af bls. 1.
ins í miðju Atlantshafi hefði
verið álitin hernaðarlega mikil-
vægari, en ef íslendingar hefðu
lagt fram nokkur þúsund her-
menn. Ráðheriann rakti síðan
það hlutveik, sem ísland hefði
gegnt innan Atlantshafsbanda-
lagsins, en sagði síðan, að sam-
staða hinna 15 aðildarríkja
hefði verið mjög góð, og þess
vegna hefði bandalagið verið
sterkt og því tekizt að gegna
hlutverki sínu.
í ræðu, sem Sir Gladwyn Jebb
flutti, gat hann þess m. a. að
sér væri það sérstök ánægja að
setja þennan fyrsta ráðfund
vestrænna samtaka í þessu
landi, sem frá upphafi hefði
verið svo nátengt sögu Vestur-
landa. Hann kvaðst minnast
þess, að hann kom til Reykja-
víkur í fyrsta sinn, árið 1943,
að hann hefði ekið eftir slæm-
um vegi frá Keflavík til Reykja
víkur, þar sem hann hefði þá
haft 3—4 stunda dvöl. Minning-
in um um þessa ferð gerði sér
kleift að gera sér grein fyrir
þeirri miklu uppbyggingu, sem
átt hefði sér stað hér á landi
s.l. 23 ár. Hér væri risin upp ný-
tízkuleg borg nær óþekkjanleg
miðað við þá borg, sem hann
hefði séð fyrir 23 árum.
Sir Gladwyn kvaðst fagna
því, að þessi fámenna, stolta en
vopnlausa þjóð hefði aðhyllzt
hugsjónir hins vestræna banda-
lags, sem hefði átt sinn mikil-
væga þátt í því að varðveita
menningu vestrænna þjóða. ís-
land væri mikilvægt vegna legu
þess í miðju Atlantshafi milli
Ameríku og Evrópu og myndi
hafa vaxandi hlutverki að gegna
í samskiptum þessara hluta
heims. Kvaðst hann vilja lýsa
yfir ánægju sinni. að þessi ráðs-
fundur væri haldinn í Reykja-
vík.
Sir Gladwyn gat þess enn-
fremur, að á þessum ráðsfundi
yrði rætt um störf sambandsins
í hinum ýmsu aðildarlöndum
þgss, hvað gert hefði verið frá
því að síðasti fundur þess var
haldinn og enníremur um und-
irbúning að næsta allsherjar-
fundi sambandsins, sem halda á
í Munchen í september n.k.
Að lokiivni ræðu Sir Glad-
wyns var gerð grein fyrir dag-
skrá ráðsfundarins, flutt grein-
argerð um starfsemi sambands-
ins, og um fjármál þess. í dag
verður svo fundum sambandsins
haldið áfram og á morgun, sunnu
dag verður sérstakur fundur í
hátíðasal Háskéla íslands, þar
sem rætt verður m. a. um mikil-
vægi íslands í samstarfi Evrópu
og Norður-Ameríku.
Flestir hinna erlendu gesta á
ráðsfundi ATA munu dveljast
hér á landi í fjóra daga og munu
þá m. a. skoða sig um í Reykja-
vík og nágrenni og fara til Þing-
valla. Sumir þeirra munu hins
vegar dvelja lengur og fara
víðar svo sem til Akureyrar.
— Valdastreita
Framhald af bls. 1
starfi, lagt til að samþykkt yrði
lausnarbeiðni Aleksanders Ranko
vic, varaforseta, sem um árabil
hefði verið ábyrgur fyrir póli-
tískri starfsemi Öryggisþjónust-
unnar og jafnframt, að Svetislav
Stefanovic, formanni stjórnar-
nefndar þeirrar er fjallar um inn
anríkismál, yrði vikið úr mið-
stjórn flokksins og ríkisstjórn-
inni.
Tító sagði, að valdaþyrstir ein-
staklingar hefðu reynt að ná
völdum í flokknum með því að
beita Öryggisþjónustunni og
lagði áherzlu á, að slíkar tilraun-
ir væru hættulegar einingu þjóð-
arinnar og flokksins. Þá kvað
hann Öryggisþjónustuna hafa
undir vissum kringumstæ’ðum
reynt að hindra framkvæmd sam
þykkta miðstjórnarinnar og
flokksþinganna. Yfirstandandi
fundur, sagði hann, að hefði það
mikilvæga verkefni með hönd-
um að hreinsa til í flokknum og
búa svo um hnútana að Öryggis-
þjónustan gæti ekki komizt í ráð
andi afstöðu innan flokksins. —
„Við lifum á sögulegum tímum“,
sagði Tító, „og verðum að vinna
að gerð samþykkta, sem verða til
hagsbóta fy*ir þróun ríkisins og
efla álit þess á alþjóðavettvangi.
í öllum stéttum þjóðarinnar var
tortryggni farin að gera vart við
sig og fólk var farið að hvísla.
Minnir slíkt ekki á það, sem
gerðist á Stalinstímanum?“ sagði
Tító.
Rankovic, sem er 56 ára að
aldri, hefur lengi verið einn nán-
asti vinur og samstarfsmaður
Títós. Hann er öllum Júgóslövum
kunnur undir nafninu MARKO,
sem hann tók sér, er hann barð-
ist í neðanjarðarhreyfingu komm
únista fyrir og í heimsstyrjöld-
inni síðari. í heimsstyrjöldinni
gerði Ranckovic m.a. tilraun til
að sprengja í loft upp útvarps-
stöð í Belgrad. Var hann þá hand
tekinn af nazistum, sem mis-
þyrmdu honum svo, að hann
missti meðvitund. Tító gaf þá
skipun um áð honum skyldi bjarg
að úr fangelsi, hvað sem það
kostaði — og 40 skæruliðar brut-
ust þangað inn og náðu honum.
Rankovic var innanríkisráð-
herra frá 1946 til 1953, er hann
varð varaforsætisráðherra. 1963
varð hann varaforseti.
Gullbruðkaup
— Upphaf
Framh. af bls. 1
að skerða eldsneytisbirgðir N-
Víetnam. Goldberg lagði á það á-
herzlu, að bandarísku flugmenn-
irnir hefðu strangar fyrirskipan-
ir um að ganga vandlega úr
skugga um að eingöngu hernaðar
lega mikilvægar stöðvar yrðu fyr
ir árásum. Hann bætti því við, að
ekki væri unnt að segja að komm
únistar sýndu óbreyttum borgur-
um í S-Víetnam slíka tillitssemi,
hermdarverk þeirra og morð
færðust sífellt í aukana.
Árásirnar í dag voru gerðar frá
flugvélamóðurskipinu „Constella-
tion“, sem lá um 25 km frá Haip-
hong. AFP-fréttastofan hefur fyr
ir satt, að Hanoi-stjórnin hafi á-
kveðið að flytja óbreytta borg-
ara frá Hanoi og Haiphong.
Ýmsir hafa orðið til a'ð for-
dæma loftárásir þessar — telja að
þær muni einungis verða til þess
að hleypa meiri hörku í Hanoi-
stjórnina og e.t.v. leiða Kínverja
til beinnar þátttöku. „Dagblað al-
þýðunnar" í Peking fordæmir
árásirnar harðlega í dag og heitir
Hanoi fullum stuðningi •— án
þess þó að tilgreina á nokkurn
hátt, hvernig þeim stuðningi
verður háttað. Blaðið kveðst þó
endurnýja loforð Pekingstjórnar-
innar um, að hún muni „hætta
öllu og grei’ða hvaða gjald, sem
er“, til að styðja N-Víetnam.
Að sögn Moskvuútvarpsins hef
ur stjórnin í Hanoi skorað á öll
kommúnísk ríki að auka aðstoð
við N-Víetnam og andmæla hin-
um „glæpsamlegu árásum Banda
ríkjanna", eins og komizt var að
orði.
Brezhnev, aðalritari sovézka
kommúnistaflokksins, hélt harð-
orða ræðu í Kreml í dag, við at-
höfn, er þar var haldin til heið-
urs þeim, er útskrifuðust úr her-
skólanum sovézka. Fréttamenn í
Moskvu benda á, að Brezhnev
hafi þar að vísu ekki tilgreint
nákvæmlega með hverju Sovét-
stjórnin hyggðist veita N-Víet-
nam aukinn stuðning -— en ekki
sé ólíklegt, að hún telji sig til
þess knúna, að grípa í taumana,
eins og komið er málum.
Stjórnmálafréttaritarar í Was-
hington. eru hinsvegar þeirrar
skoðunar, að sögn NTB, að ekki
komi til beinnar íhlutunar Sovét-
ríkjanna og Kína — og á þeirri
forsendu ætli Bandaríkjastjórn
nú að sýna aukna hörku og reyna
með því að neyða Hanoi-stjórn-
ina til friðarviðræðna. — Segir
NTB, að loftárásirnar að undan-
förnu séu aðeins fyrsta stig í
harðari stefnu Bandaríkjastjórn-
ar. —
Lyndon B. Johnson, forseti,
sagði í ræ'ðu í gær, að sökum
stefnu kommúnista ættu Banda-
ríkjamenn ekki annars úrkosta
en halda áfram loftárásunum á
N-Víetnam. Forsetinn kvaðst
hafa reynt allar leiðir til að fá
komið á friðarumleitunum — en
án árangurs. Engu að síður yrði
þessum tilraunum haldið áfram,
og fulltrúar stjórnarinnar væru
reiðubúnir að fara hvert á land
sem væri með aðeins fárra
klukkustunda fyrirvara.
Nguyen Cao Ky, hershöfðingi,
forsætisráðherra S-Víetnam,
lýsti í dag einhuga stuðningi við
stefnu Bandaríkjastjórnar og
kvað loftárásirnar hafa glatt sig
mjög. Kva'ðst Ky sannfærður um,
að þær myndu valda þáttaskilum
í átökunum í Víetnam og sér
segði svo hugur, að stjórn N-Víet
nam færi fram á vopnahlé, áður
en langt um liði. Yrði lotárásun-
um haldið áfram, taldi Ky, að út-
séð yrði um úrslit átakanna í Víet
nam áður en þetta ár væri úti.
Stjórnir Ástralíu og Nýja-Sjá-
lands hafal ýst yfir stuðningi við
loftárásirnar á N-Víetnam. Hins-
vegar sagði utanríkisráðherra
Bretlands, ^ Michael Stewart, í
Sydney í Ástralíu í dag, að árás-
irnar gætu orðið til þess að heCða
baráttuvilja Hanoistjórnarinnar
og hindra skjótan sigur Banda-
ríkjamanna. Jafnframt gætu þær
orðið til þess að aðrar þjóðir yrðu
ekki eins fúsar að aðstoða við að
finna friðsamlega lausn á deil-
unni. Aðspurður um það, hvort
hann teldi líklegt, að Kínverjar
gripu til beinna a'ðgerða, svaraði
Gullbrúðkaup áttu í gær sæmdar
hjónin Elíse og Jón Jónsson, leik-
fangasmiður, Leifsgötu 28. Voru
þau gefin saman í Noregi, þar
Stewart, að Kínverjar hefðu
aldrei verið eins harðir á borði
og þeir væru í orði og ekkert
benti enn til þess að þar yrði á
breyting.
— Þyrlur
Framhald af bls. 28.
þá stærstu, sem hér eru nú, að
viðbættu einu aflvélarverði, eða
80—90 milljónir króna.
Að loknum blaðamannafund-
inum um borð í Óðni var sam-
koma gesta í borðsal skipsins og
voru þar mættir dómsmálaráð-
herra, yfirmenn varðskipanna og
slysavarnafélagsins, svo og nokkr
ir fleiri. Þar ávarpaði Pétur Sig
urðsson gesti og lýsti tilefni þess
arar samkomu, en dómsmálaráð
herra, Jóhann Hafstein, bað
menn minnast elztu starfsmanna
gæziunnar með húrrahrópi. Til
nefndi hann þar hina 5 þeirra,
sem hefðu verið uim borð í
fyrstu skipum gæzlunnar á veg-
um íslenzka ríkisins svo og látna
skipherra, sem voru brautryðj-
endur í því starfi.
Var þetta hið bezta hóf.
— Fjallvegir
Framhald af bls. 28
eyjarhöfða. Lengra kvaðst hann
ekki hafa farið, en útlit vera
fyrir, að góður vegur væri inn
að Eyvindarkofa og Innra
hreysi, gegnt Arnarfelli hinu
mikla, vestan við Þjórsá. Á þess-
um slóðum kvað Halldór var-
hugavert að fara út af vegin-
um, þar eð þar sem ótroðið væri
gætu leynzt bleytur.
Þá kvað Halldór að öllum lík-
indum orðið sæmilega fært fyrir
tveggjadrifabifreiðar að Köldu-
kvíslarbrú og austur í Jökul-
heima og Veiðivötn, leið Sigur-
jóns Rists, norðan við Þórisvatn.
Halldór kvað Fjallabaksleið
vera færa allt að Jökulkvísl, en
ekki lengra, þar eð hún lægi nú
fast við Náminn. Hann kvað
veginn í Þórsmörk hafa verið
heflaðan í vikunni, er leið, en
kvað vötnin mjög varasöm, svo
sem mjög títt er um þetta leyti
árs.
Um veginn í Kerlingarfjöll og
á Hveravelli sagði Halldór, að
hann yrði brátt fær, ef þornaði
vel. Hann kvaðst vita til þess
að Einar Sigurjónsison, vegaverk-
stjóri á Selfossí, hefði ætlað í
gær inn að Bláfellshálsi til þess
að gæta að. því, hvort unnt
væri að hefla og hvort vatnið
hefði sigið úr veginum.
Þá kvað Halldór vegi í Ár-
nes- og Rangárvallasýslum með
bezta móti, nýheflaða og að
mestu ryklausa, þannig að fólk,
sem væri að fara í sumarfrí
gæti notið fjallakyrrðarinnar í
ofanverðum sýslunum.
Halldór, sagði, að á leið þeirra
félaga hefðu þeir séð miklar
breiður af gæs með unga og
virtist honum gæsin hafa kom-
ið vel út þrátt fyrir kalt vor.
„Það má segja, að öldurnar hafi
kvikað, þegar hún forðaði sér
upp úr verunum“, sagði Halldór
að lokum.
sem þau áttu heima í 13 ár, en 19
29 fluttust þau til Reykjavíkur og
hafa búið hér síðan.
Stálfrumvarp
Wilsons
lagt fram
London, 1. júlí AP-NTB.
ir BREZKA stjórnin lagði í dag
fram frumvarp sitt um þjóðnýt-
ingu brezka stáliðnaðarins.
Er þar gert ráð fyrir þjóðnýt-
ingu 14 stærstu stálfyrirtækja
landsins eða um 90% stáliðnaðar
ins alls. Gert er ráð fyrir að eig-
endur fyrirtækjanna fái bætur,
en þær töluvert minni en fyrr
var ætlað.
Frumvarpið er að mestu eins
og það, sem lagt var fram í
fyrra en dregið til baka sökum'
hins nauma meirihluta Verka-
mannaflokksins. Umræður um
frumvarpið hefjast innan tíðar.
Framhjól sprakk
og bíllinn útaf
Bíldudal, 1. júlí.
í GÆRDAG vildi það óhapp til,
á vöruiflutningabifreiðini B-16,
er hún var að koma frá Patreks-
firði til Bíldudals að framdekk
sprakk með þeim afleiðingum
að bifreiðin fór útaf og skemmd-
ist mjög mikið. í bifreiðinni
voru tveir menn auk bílstjóra
og sluppu þeir að mestu ómeidd-
ir. Þetta var nýr bíll 8 tonn og
tjónið tilfinnanlegt hjá bifreiða-
stjóranum, þar sem hann er ný-
byrjaður á flutningum hér.
— Hannes.
— Engin miskunn
Framhald af bls. 3.
heppnaðri byltingartilraun í sept
ember s.l. Aref kvaðst þá hafa
stuðlað að því, að Razzak og
félagar hans yrðu náðaðir, en
þeir hefðu sýnt þakklæti sitt
með annarri byltingartilraim.
„Ég harma, að þetta skyldi ger-
ast meðan yfir standa hátíða-
höld vegna samkomulagsins við
Kúrda“, sagði Aref — „og svo
skömmu fyrir afmsélisdag Mú-
hammeðs spámanns“.
— /jb róttir
Framhald af bís. 26
Um þessa helgi fer fram golf-
keppni á Akureyri um bikar er
Soprtvöruverzlun Brynjólfs
Sveinssonar gaf. í dag kl. 13.30
hefst keppnin en úrslitakeppnin
kl. 8.30 á sunnudagsmorgun.
Keppnin er 36 holu höggleikur
með forgjöf.
SYNDIÐ
200 metrana