Morgunblaðið - 08.07.1966, Síða 1
28 síður
Viðrœður Wilsons og Pompidous:
London, 7. júlí. — (NTB) —
FORSÆTIS^ÁÐHERRAR Bret-
Iands og Frakklands, þeir Harold
Wilson og Georges Pompidou,
ræddu saman í London í dag um
möguleikana á því, að Bretar
gerðust aðilar að Efnahagsbanda
lagi Evrópu. Allar horfur eru
hins vegar á þvi, að viðræður
þeirra hafi reynzt nær árangurs-
lausar.
Haft er eftir opinberum heim-
ildum, að vfðræðurnar, sem stóðu
í hálfa aðra klukkustund, hafi
ekki bætt hið fyrirrfam slæma
útlit með þær viðræður um að-
Ild Breta, sem bráðlega eiga að
hefjast. I>eir Wilson og Pompidou
héldu sér nær alveg við þau sjón
armið, sem Bretland og Frakk-
land hafa áður haldið fram.
Forsætisráðherrarnir luku í
dag viðræðum sínum um þau
þrjú aðalatriði, sem voru á dag-
skrá viðræ'ðnanna — samskipti
austurs og vesturs, deilurnar
innan Atlantshafsbandalagsins
og afstöðu Breta til Efnahags-
bandalagsins.
Fram kom, að afstaða þeirra
gagnvart hernaðarlegri heildar-
samvinnu innan NATO er ólík,
en reyndu áð skapa sameiginleg-
an grundvöll fyrir bættri sam-
vinnu milli austurs og vesturs.
Wilson gerði Pompidou það
ljóst, að það væri fullur ásetn-
ingur Breta að ganga i Efna-
hagsbandalagið, en bætti því viðr-*-
að því aðeins myndu Bretar fara
þannig að, að ákveðnir hagsmun-
ir þeirra yrðu tryggðir, m.a. á
sviði landbúnaðar.
Pompidou lýsti því hins vegár
yfir, að væri Bretland reiðubúið
til þess að taka á sig þá ábyrgð
og þær byrðar, sem því fylgdu
að gerast aðili, myndu Frakkar
bjóða Breta velkomna i banda-
lagið.
Fundi Varsjárbandalagsins lokið:
Vill senda sjálfboða
lida til Vietnam
Forseti Islands, hr. Asgeir Asgeirsson, fagnar U Thant er hann kom til Bessastaða 1 gærkvoldi
s Myndina tók ól.K.M.
Bukarest, 7. júlí NTB-AP.
SOVÉTRÍKIN og hin sex banda-
lagsríki þeirra innan Varsjár-
bandalagsins tilkynntu í dag, að
þau myndu senda sjálfboðaliða
til Vietnam til þess að hrinda
hinni „bandarísku árás“ eins og
segir í tilkynningunni, ef Norð-
ur-Vietnam fer fram á slika að-
stoð.
Framkvæmdastjóri S.Þ. í heimsókn hér:
Rigning og rok mætti II Thant á íslandi
FRAMKVÆMDASTJÓRI Sam-
einuðu þjóðanna, Burmamaður-
inn U Thant, kom síðdegis í gær
til landsins í boði ríkisstjórnar-
innar og dvelst hann hér til
laugardags. Framkvæmdastjór*
inn sat i gærkvöldi veizlu að
Bessastöðum, sem forseti íslands,
hr. Ásgeir Ásgeirsson, hélt hon-
um til heiðurs.
Til íslands kemur U Thant frá
Genf, en hann tók sér far hing-
að í gærmorgún í Kaupmanna-
höfn með þotu frá Pan American
flugfélaginu, sem hafði viðkpmu
í Prestwick.
*
Upphaflega var ráðgert, að
Iþota framkvæmdastjórans lenti á
Keflavíkurflugvelli kl. 6.20 síð-
degis, en henni seinkaði í Prest-
■wick um rúman klukkutíma
vegna slæmra veðurskilyrða í
Keflavík. Varð flugvél frá Loft-
leiðum m. a. að hætta við lend-
ingu í Keflavík vegna veðursins
og snúa við til Stavanger.
Um tíma var algjör óvissa um,
hvort þota U Thants lenti á
Keflavíkurflugvelli og varð það
ekki Ijóst fyrr en hún kom upp
undir landssteina. Lenti hún svo
kl. 7.10, eða um 50 mínútum síð-
ar en ráðgert hafði verið.
Á Keflavíkurflugvell i voru
mættir til að taka á móti
U Thant þeir Emil Jónsson, utan-
ríkisráðherra, Agnar Kl. Jónsson,
ráðuneytisstjóri, Hannes Kjart-
ansson sendiherra íslands hjá
Sameinuðu þjóðunum, og Páll
Ásgeir Tryggvason, deildarstjóri
í utanríkisráðuneytinu.
Slagveðursrigning og rok
Er U Thant steig út úr þot-
unni var slagveðursrigning o.g
rok, en hann var berhöfðaður og
yfirhafnarlaus. í fylgd með hon-
um voru ívar Guðmundsson, for-
stjóri upplýsingaskrifstofu SÞ á
Norðurlöndum og hr. Donald
Thomas.
Á flugvellinum sagði U Thant
við blaðamenn, að hann fagnaði
því að vera kominn til íslands
og þakkaði ríkisstjórninni og ís-
lenzku þjóðinni fyrir heimboðið.
Framhald á bls. 19
Ríki Efnahagsbandalagsins vilja
vernda eigin fiskveiðar
Heildarframleiðsla fiskafurða í
heiminum nú um 46 millj. tonn
Brússel, 7. júlí -NTB.
LÖND Efnahagsbandalogs Evr-
ópu vilja vernda eigin fiskveiðar
gagnvart innflutningi á fiski frá
löndum utan bandalagsins. Kom
þetta fram í tillögu sem
n e f n d Efnahagsbandalogsríkj-
anna í Brússel bar fram í dag.
Tillagan mun ekki gera ráð fyr-
ir því, að innflutningur á fiski
frá löndum utan bandalagsins
verði stöðvaður ,heldur að gerð-
ar verði ráðstafanir, sem geti
komið sér illa fyrir útflutning
fiskjar til bandalagsríkjanna frá
öðrum ríkjum.
Danmörk flytur mest út af
fiski og fiskafurðum til landa
Efnahagsbandalagsins, en á eftir
koma Japan, Noregur, Portúgal,
Marokko, Spánn og ísland.
Nefndin skýrði í dag opinber-
lega frá tillögu sinni um sam-
eiginlega stefnu Efnáhagsbanda-
lagsríkanna varðandi fiskveiðar.
Nær tillagan yfir 340 síður og er
þar gert ráð fyrir, að hin sam-
eiginlega stefna komi til fram-
kvæmda í síðasta lagi h. 1. júlí
1968.
Framhald á bls. 19
í yfirlýsingu, sem gefin var út
í lok fundar æðstu manna ríkja
Varsjárbandalagsins í dag í Buk-
arest kom ennfremur fram auk-^-
inn stuðningur við Norður-Viet-
nam með öðrum hætti og þar
m.a. gert ráð fyrir vopnasend-
ingum í auknum mæli. Samtímis
var skorað á öll lönd að gera
það, sem í þeirra valdi stendur
til þess að stöðva hina „banda-
rísku innrás“, að loftárásum
verði hætt, að Bandaríkin flytji
allan her sinn brott, og áð svo-
kölluð þjóðfrelsishreyfing, þ.e.
a'ð Viet Cong verði viðurkennd. í
Varsjárbandalaginu eru auk
Sovétrikjanna Búlgaria, Kúm-
enia, Ungverjaand, Pólland,
Tékkóslóvakía og Austur-Þýzka-
land.
Framhald á bls. 19
i lífshættu
vegna skordýraeiturs
Argyle, Minnesota, 7. júlí.
— (NTB-AP) —
MEIRA en 300 manns hafa
orðið að yfirgefa heimili sín
í smábænum Argyle í Minne-
sota, eftir að það uppgötvað-
ist, að flugvél hafði dreift ban
vænu skordýraeitri yfir bæ-
inn um nóttina.
Þeim íbúanna, sem ekki
höfðu þurft að yfirgefa heim-
ili sín, var gefið það ráð að
sprauta hús sín sem og tré
og runna umhverfis þau með
vatni, samtímis því að mót-
eitur hefur verið sent frá
Minneapolis allrar varúðar
vegna.
Flugvélin, sem átti að dreifa
eitri gegn mýflugum, hafði
farið þrjár ferðir yfir bæinn,
Framhald á bls. 19
Slæmar horfur um -
aðild Breta að EBE