Morgunblaðið - 08.07.1966, Qupperneq 4
4
MORGU N BLAÐIÐ
Föstudagur 8. júlí 1966
BILALEIGAN
FERÐ
Daggjald kr. 40«.
Kr. 3,5« per km.
SÍMI 34406
SENDUM
Volkswagen 1965 og ’66.
LITLA
bíloleigon
Ingólfsstræti 11.
Volkswagen 1200 og 1’uu.
Sími 14970
BILALEIGAN
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Daggjald 350 og kr. 4 pr. km.
Fjölvirkar skurðgröfur
I
R
I ÁVALT TIL REIÐU.
N Sími: 40450
*TA'L
BOSCH
SPENNUSTILLAR
24 VOLT
Brœðurnir Ormsson
Lágmúla 9.
Sími 3-88-20.
•Jr Hávaðasamar
„skellinöðrur“
eru ólöglegar
Vegna bréfs frá P.P., sem
birtist í þessum dálkum á mið-
vikudag, hefur Óskar Ólason,
yfirlögregluþjónn, komið að
máli við Velvakanda. Hann
segir þetta:
,4 Velvakanda í dag, 6. júlí
1966, skrifar P.P. um hávaða af
léttum bifhjólum, og hvprt
lögreglan hafi heimild til að
skipta sér af farartækj-um, er
valda óeðlilega miklum háv-
aða.
í 4. gr. umferðarlaga segir
svo: „Sérhvert ökutæki skal
svo gert og haldið þannig við,
að af notkun þess leiði hvorki
óþarfa hættu, né óþægindi, þar
með talinn hávaði, reykur eða
óþefur, eða hætta á skemmd-
um á vegi“.
í reglugerð um gerð og bún-
að ökutækja segir svo í 14. gr.
m.a.: „Hreyfill bifreiðar skal
þannig gerður og við haldið, að
ekki stafi frá honum ónauðsyn-
legur reykur eða hávaði‘‘. í 45.
gr. sömu reglugerðar, sem fjall
ar um reiðhjól með hjálparvél,
segir: „Ákvæði 14. gr. gilda um
,reðihjól með hjálparvél eftir
því sem við á“.
Af framanskráðu má sjá, að
ekki skortir heimild til að hafa
afskipti af farartækjum, sem
valda óþarfa hávaða, enda ger-
ir lögreglna mikið að því að
stöðva og taka úr umferð slík
farartæki. Lögreglan er sam-
mála P.P. um, að ónauðsynleg-
ur hávaði frá ökutækjum, hvort
sem um reiðhjól með hjálpar-
vél eða bifreið er að ræða, á
ekki að eiga sér stað, enda um
ólöglegt athæfi að ræða. Lög-
reglan hefir kært allmörg ung
menni, sem hafa ekið reiðhjóli
með hjálparvél með útblásturs
rörið úr sambandi. Virðast ung
mennin hafa skemmtun af því
að gera mestan hvávaða á leið
sinni um borgina, en gæta þess
þá ekki, hversu miklu ónæði
þeir valda friðsömu fólki, sem
ekki þolir hávaða eða vill njóta
svefns og hvíldar að loknu
erfiðu dagsverki.
Um leið og P.P. er þakkað
fyrir þarflega ábendingu, skal
fólk hvatt til að gera lögregl-
unni aðvart, ef vart verður við
óeðlilega hávaðasöm farartæki.
Jafnframt hvetur ögreglan alla
þá, sem farartækjum stjórna,
til að stuðla eftir beztu getu að
því, að umferðin verði sem
hávaðaminnst. Aðstandendur
ungmenna, sem eiga létt bif-
hjól, ættu að hvetja þau til
að hafa tækin í sem allra beztu
lagi.“
Kattagloría
Jóns Óláfssonar
K. Á. á Akureyri skrifar:
Þegar ég las þrjú erindi af
Kattagloríu Jóns Ólafssonar í
dálkum yðar, minntist ég þess,
að einhvern tíma höfðu mér
verið kennd fjögur erindi af
gloríu þessari, og set ég hér
fjórða erindið:
Dómarinn:
Þetta er jú injúría, injúría
• er það,
það er það,
hann lýgur því sá fjandi,
en að laxinn gangi á þurru
landi —
þa-þa-það sagði ég, é-ég sagði
það,
mjá, mjá!
^ Þolinmæðin prautir
vinnur allar
Velvakandi minnir enn á
það, að hann birtir ekki ádeilu
bréf frá nafnlausum sendend-
um. Nöfn bréfritara eru ekki
birt, ef um það er beðið, en
bréf frá fólki, sem Velvakandi
veit engin deili á, eru ekki birt.
Þess vegna fser t.d. S.H., sem
skrifar um nýtt gistihús hér i
borg, bréf sitt ekki birt. Sama
er að segja um bréf, sem Vel-
vakandi hefur borizt undir dul
nefninu „Ein af fínustu frúm
Hafnarfjarðar á sínum tima“.
Ýmsir gerast óþolinmóðir, ef
bréf þeirra eru ekki prentuð í
dálkum Velvakanda daginn eft
ir að þau berast. Sem betur fer
(eða því miður?) berast Vel-
vakanda allt of mörg bréf til
þess, að hægt sé að birta þau
samstundis. En bréfunum er
ekki fleygt! Þau bíða síns
tíma. Æskilegt er og allra hluta
vegna, að bréfin séu vélrituð
í aðra hverja línu, eða a.m.k.
skrifuð gisin.
'lr Sköpunargáfan •
og eyðileggingar-
fýsnin
Úlfur Ragnarsson, læknir,
skrifar eftirfarandi bréf:
„Ég bý í blokk eins og fleiri,
Hér utan við húsið voru nokkr
ar hrúgur af stórgrýti, sem voru
eftirlætis leikvangur barnanna.
Þar áttu húsmæður bú og vík-
ingar vígi, og nokkuð var sótzt
í að kynda þar eld milli steina.
Lengi hafa maður og eldur átt
samleið í rás aldanna og senni
lega eins gott að kynnast eðli
éldsins í bemsku, eins og að
brénna sig á honum síðar.
Lóðin var sem sagt ólagfærð
enn. En stórvirk tæki höfðu
verið pöntuð til að fjarlægja
þetta grjót, sem ekki féll inn í
framtíðarskipulagið.
Á fundi í húsfélaginu fór ég
fram á, að grjótið væri tekið
inn í skipulagið, af því að það
væri börnunum til yndis og þá
tæplega okkur, sem fullorðin
nefnumst, til verulegs óyndis.
Grasið átti að fá að gróa kring-
um þessa fallegu íslenzku
steina.
Tillagan hlaut góðar undir-
tektir, svo að það hefur senni-
lega orðið fyrir misskilning, að
stóru vélarnar komu í dag og
hirtu megnið af grjótinu, sem
ég og fleiri vildu fá að sjá í
friði.
Og nú er ég dálítið sár yfir
þvi, að hluti þess fjár, sem mér
er gért að greiða í hússjóðinn,
rennur til þess að skapa börnun
um fátæklegra umhverfi en
nauðsyn bar til.
Svona er nútíminn. Við höld-
um, að við höfum efni á því að
skipuleggja í hel umhverfi, sem
börnin okkar eiga að alast upp
við. Við breytum fjölbreytilegu
umhverfi, sem vel gæti verið
þokkalegt, þó að það fengi að
halda sínum svip, í eggsléttar
eyðimerkur. Eyðimerkur þessar
eru að vísu fagurgrænar þá fáu
mánuði, sem við njótum sum-
ars á íslandi, en þarna eiga
sálir barnanna engin raunveru
leg lífsskilyrði. Sköpunargáfan
á sér engin verkefni á ósnert-
anlegum montblettum fávisra
húseigenda, sem eiga sér þá
afsökun eina, að þeir vita ekki
hvað þeir gera.
Það er sköpunargáfan, sem
gerir manninn að manni. Ef
hún laðast ekki að jákvæðum
verkefnum fyrir áhrif góðs um
hverfis og uppeldis, breytist
hún í ranghverfu sína, eyði-
leggingarfýsn. Þar sem skil-
yrði til- frjórrar, jákvæðrar
sköpunar eru eyðilögð t.d. með
óhóflegri eða óskynsamlégri
skipulagningu, verða þessi ó-
sköp í sálum mannanna.
Sjáandi og hugsandi manni
er það engin ráðgáta, hvers
vegna eyðileggingarfýsn er
landlæg plága í sumum ríkjum,
sem talin eru háþróuð. Þar
hverfur skyggnin á lífsskilyrði
mannssálarinnar fyrir áhrif
þeirrar kærleikssnauðu eigin-
girni, sem dafnar óneitalega vel
í velferðarríkjum. Og svo verð
ur ekki annað en það, sem við
má búast, hvar sem kröfuharð-
ir blindingjar með fjármagn í
höndum 'hafa aðstöðu til þess
að skipuleggja lífið í hel. —
Þar, sem kærleikurinn er ekki
með í verki, erfiða smiðirnir
til ónýtis.
Ef fyrri tímar voru tímar
vanþróiVa landa, þá eru okk-
ar tímar tímar vanþróaðra
hjartna. Birtan af gáfnaljósun-
um virðist blinda sálarsjón
flestra nútímamanna. Þess
vegna sitja gáfnaljósin öðrum
fremur í valdastólunum.
Við nánari athugun getur þó
hver heilbrigður maður séð, að
sumir eru þessir menn raun-
yerulega vangefnir, vangefnir
að því leytinu, að þeir eru van
heilir á hjarta. Óbrigðul greind
er ekki til, né heldur óbrigðul
heilindi mannlegs hjarta. En
hvort tveggja má rækta, greind
ina og hjartað.
Nútíminn og framtíðin þarfn
ast þess öðru fremur, að at-
hyglin beinist að ræktun hjart-
ans. Samkvæmt íslenzkri mál-
venju er það sama og alhliða
ræktun hugarfarsins með heil-
indin að takmarki.
Barnið er upphafið, barnið í
okkur sjálfum og líka önnur
börn, sem lífið leggur okkur f
hendur. Við verðum að vaxa
upp úr því að eyðileggja þroska
skilyrði barnanna. Við verðum
að hafa gát á því að smíða fram
tíðinni hús, en ekki líkkistur.
Úlfur Ragnarsson, læknir“.
Hyrnurnar enn
Velvakandi fer nú brátt
að verða leiður á öllum hyrnu-
bréfunum, þótt hann skilji vel
gremju álme'nnings yfir þess-
um óþægilegu umbúðum. Hér
birtist eitt stutt bréf, sem
nokkuð lengi hefur beðið:
„Reykjavík, 29. maí 1966.
Velvakandi minn!
Margir hafa kvartað undan
mjólkurhyrnunum við þig, en
fáu verið svarað til af hálfu
þeirra, sem því ráða, að þær
eru notaðar. Þó minnir mig, að
Mjólkursamsalan hafi einu
sinni lýst því yfir, að hyrnurn
ar væru svo þægilegar í „pakkn
ingu“ frá Samsölunni. Þ.e.a.s.
að gott og auðvelt væri að
stafla þeim í grindur, sem síð-
an eru fluttar á vörubílum í
búðimar.
Þetta er alveg „typiskt“. Það
er ekki vefið að hugsa um okk
ur, sem kaupum mjólkina,
hvort hyrnurnar eru þægilegar
fyrir okkur, heldur er allt mið
að við þægindi seljandans. Það
er náttúrulega algert auka-
atriði, að hyrnurnar eru þann-
ig í laginu, að ekki er hægt að
bera þær frá mjólkurbúð og að
heimili nema í netum, sem þær
skera gjarnan; í töskum er það
ekki hægt. Við, sem ekki eig-
um því stærri ísskápa, sjáum
eftir plássinu, sem þær taka,
enda er það ekki lítið, ef heim
ilið er stórt. Svo eru þær svo
óþægilegar í meðförum, að
engu lagi er líkt. Hvers vegna
má ekki selja mjólkina hérna
í Reykjavík í köntuðum plast-
umbúðum, eins og t.d. í Noregi,
í Bandaríkjunum og í Luxem-
borg? Þurfum við alltaf að
vera á eftir Akureyringum,
sem mér skilst að hafi þegar
fgngið þessar köntuðu?
Svo er þetta ekki lengra i
bili, með kveðju.
Guðrún Jónsdóttir“.
Herrabuxur
úr Terlanka (hliðstætt terylene).
Þykkt efni og gott snið.
Vandaðar og góðar buxur
stærðir: no. 44—46—48—50—52.
verð kr. 595,-
Lækjargötu 4 — Miklatorgi — Akureyri.