Morgunblaðið - 28.07.1966, Side 3
Fimmtuðagnr júlí 1966
MORGUNBLAOIÐ
o
I*
EINS og frá hefur verið skýrt
í blaðinu lauk sl. laugardag
framkvaemdum við malbikun
Hafnarfjarðarvegar, þeim er
hófust 15. júlí sl. Eru nú
mikil viðbrigði að aka veginn
sem var áður mjög ósléttur og
holóttur, en er nú sléttur,
„sem hefluð f jöl“, eins og einn
bifreiðastjóri er við hittum
í gær komst að orði.
Upphaflega var gert ráð
fyrir að verkið tæki 6 daga
og tvo fyrstu dagana leit út
fyrir að sú áætlun myndi
standast. En þá hófu veður-
guðirnir afskipti af .nálinu
„Eins og hefluð fjöl“
— segfa bifreiðastjórar um ný-
lagfærðan Hafnarfjarðarveg
og feyktu öllum áætlunum út
í veður og vind í þeirra orða
fyllstu merkingu. Var það því
um nokkurra daga skeið, að
þeir sem fara þurftu milli
Hafnarfjarðar og Reykjavíkur
í einkabílum urðu að taka á
sig stóran krók (fara „hina
leiðina" eins og gárungarnir
köliuðu það) upp Vífilstaða-,
Vatnsenda og Breiðholtsveg,
eða gagnstætt. Var vegur
þessi, sem engan veginn er
gerður fyrir mikla umferð,
snemma slæmur yfirferðar,
sérstaklega brekkan við Vífil-
staðavatn, sem var þvotta-
bretti líkust. Bifreiðastjórar
tóku þó þessum krossi með ró,
horfandi fram á bjartari tíma
og greiðari veg þegar malbik-
un lyki.
í gær fórum við Mbl. menn
suður á nýmalbikaða kaflann,
í þeim tilgangi að stoppa þar
bifreiðir og leita álits hjá bif*
reiðastjórum um hversu þeim
'þætti að aka á nýja malbik-
inu. Við lögðum bifreið okkar
á hentugum stað og byrjuðum
að gefa aðkomandi bifreiða-
stjórum merki um að stanza.
En á íslandi, sem annarsstað-
ar, er tíminn dýrmætur og
fáir máttu vera að því að
draga úr ferðinni.
Sá fyrsti sem tók tillit til
bendinga okkar var R-merkt-
ur, rauður Volkswagen. Varð
ökumanni þeirrar bifreiðar
fyrst fyrir að spyrja um hvort
bilað væri hjá okkur. Þegar
við spurðum hann svo um
veginn sagði hann að vissu-
lega væri gott á honum að
aka, og þessar aðgerðir vega-
gerðar( rikisins væru langtum
skynsamlegri heldur en þær
holufyllingar sem áður hefðu
tíðkazt ár eftir ár. Hinsvegar
taldi þessi ökumaður að fram-
kvæmdir við endurbæturnar
hefðu ekki gengið nógu vel og
furðulegt hefði verið að vinna
ekki á vöktum á meðan veðrið
leyfði.
Næsti ökumaður sem stanz-
aði tók einnig í sama streng
og sagði ennfremur að ekki
hefði verið nægilega vel aug-
lýst hvenær vegurinn var op-
inn og hvenær lokaður. „Ég
fór þannig tvær ferðir suður
í Kópavog í trausti þess að
nann væri opinn, en varð að
leggja niður rófuna og snúa
við. — Annars er vegurinn
eins og hefluð fjöl og verkið
ágætlega unnið, að mínu áliti.
Munurinn finnst bezt þegar
maður kemur á ólagfærða
veginn“.
Nú kom stór vörubifreið
sem héit á eftir sér langri bif-
reiðalest og gekk tiltölulega
vel að fá þær bifreiðir sem
á eftir vörubifreiðinni voru
til þess að stanza. Við tókum
þrjá ökumenn tali og luku
þeir samróma lofsorði á þess-
ar framkvæmdir og sögðu
„allt annað lif að aka á veg-
inum núna“. „Komdu þökk til
vegagerðarinnar á framfæri
fyrir mig“, sagði einn þeirra,
„og jafnframt því, að nauð-
synlegt sé að setja einhvern
lágmarkshraða á leiðinni
Reykjavík-Hafnarfjörður, því
að slysahættan við þennan
eilífa framúrakstur bifreiða
sem a'ka á 20—30 km hraða,
er mikil.
Víða útisamkomur
um helgina
— IVSikil þáfttaka í ferSum
fer^faskrifstofanna
SEM venja er um verzlunar-
mannahelgar verða haldnar úti-
samkomur á nokkrum stöðum úti
á landi. Munu þær samkomur í
ár veröa á sömu stöðum og í
fyrra þ.e. í Bjarkarlundi, Vagla-
skógi og á Iiallormstað. Auk
þess verður nú hestamannamót á
Skógarhólum við Þingvöll og
búizt við miklu fjölmenni þar.
Þá mun og verða mikill straum-
ur ferðamanna í Þórsmörk.
í Húsafeiisskógi yerður bind-
indismannamót og hefst það á
laugardag kl. 9 með því að Ás-
geir Pétursson sýslumaður flytur
ávarp. Síðan verða kveiktir varð
eldar og jafnframt dansað til kl.
2 eftir miðnætti. Á sunnudag
verður guðsþjónusta og prétikar
séra Björn Jónsson í Keflavik e-
kl. 16 og kl. 19 verða s.
skemmtiatriði og meðal þeirra
krafta er þar koma fram má
nefna Ómar Ragnarsson og
Rondó tríó. Þá mun einnig Ólaf-
ur Þ. Kristjánsson stórtemplar
flytja ávarp og Guðmundur Böð-
varsson skáld lesa upp ljóð. Eins
og áður segir er það Góðtemplara
reglan sem fyrir hátíð þessari
gengst og mun skipuleggja ferð-
ir til og frá mótsstað og sjá gest-
um fyrir tjaldstæði.
Barðstrendingafélagið gengst
fyrir hátíðahöldum í Bjarkar-
lundi og verða þar dansleikir á
iaugardags og sunnudgskvöld.
Á sunnudag verður þar einnig
útisamkoma og mun þá séra
Grímur Grimsson flytja ávarp
og Ómar Ragnarsson skemmta.
Fyrir dansi mun Mónó kvartett
lei!:*. 05 verður dansað á yfir-
m útipaiii er Barðstrend
gið á.
V aglaskógi verður haldið
.amdismót og gangast fyrir
þvi nokkur æskulýðsfélög á
Framhald á bls 25
8TAKSTEII\IAR
Lygi þar ...
Morgunblaðið hefur orðið þess
mjög greinilega vart, hve mikla
athygli grein Freysteins Þor-
bergssonar, skákmeistara, sem
birtist í Mbl. sl. sunnudag, hefur
vakið. Þess gat varla verið langt
að bíða, að leigupennar Sovét-
rikjanna á íslandi hæfust handa,
einkum ef þeir ættu ógreidda
námsskuld austur í Kreml. Þó
kom svo út þriðjudagsblað af
málgagni Sovétríkjanna á ís-
landi, að ekki var minnzt á um-
getna grein.
En í gær er tekið við að
„svara“ greininni á sannan
kommúnistahátt. Engir tilburðir
eru hafðir í frami til að svara
efnisatriðum greinarinnar, held-
ur er ráðizt með rógi, níði og
dylgjum að greinarhöfundi. Gam
all landsprófsdrengur, sem fékk
að stunda „nám“ í Moskvu um
tíma, er látinn kvitta fyrir uppi-
haldið austur í Moskvu með því
að rita slappa rammagrein í
„Þjóðviljanum". Hann getur ekki
rökrætt um nokkurt atriði í
grein Freysteins, heldur eru
órökstuddar dylgjur og mis-
heppnaðar fyndnitilraunir látnar
duga. Slíkur eymingajskapur er
að vísu þekktur á síðum Moskvu-
málgagnsins, en sjálfs sín vegna
hefði piltur þessi átt að íara
varlega út í skítkast.
Rógur hér ...
Sem dæmi um rithátt þes,,.
aukamagnúsar „Þjóðviljans" má
nefna setningar eins og „Frey-
steinn, sem af greininni má ætla,
að sé fremur einföld sál“ og „Við
skulum vona, að næst þegar
draumar hans rætast og honum
tekst að koma saman greinar-
stúf“. Hvernig væri að leita til
sálfræðings?
Skammkell
Á einum stað reynir leigupenni
kommúnistablaðsins að hnekkja
frásögn Freysteins; þ. e. frásögn
hans af drykkjuskap í Sovét-
ríkjunum. Svo neyðarlega vill þó
til, að einmitt þetta atriði, sem
ekki hefur mátt viðurkenna
hingað til, er nú opinberlega ját-
að í Sovétríkjunum sama dag og
piltunginn skrifar kvittunina
fyrir „náms“gjaldið, með því að
sérstakt ráðuneyti er stofnað til
þess að fást við unglingafyllirí.
Það er ekki að ástæðulausu, að
Austri tautaði fyrir munni sér í
gær: „Hvikið þér nú allir nema
Skammkell“.
Eí íarið væri að for-
aæmi Magnúsanna
i
Annars er enginn vandi að
skrifa róg í stíl aðalmagnúsar
og aukamagnúsar „Þjóðviljans“.
Ónafngreindur maður brenglaðist
á sálarlífinu snemma í barn-
æsku; gerðist biblíufastur í fleiri
en einum skilningi. Þessi maður
dvaldist í Danmörku á styrjald-
arárunum. Þjóðverjar höfðu þá
her i Danaveldi. Þeir höfðu að-
stoðarmenn á launum. íslenzkur
rithöfundur var myrtur í striðs-
lok. Ónafngreindur maður slapp
undan Bretum og til íslands.
Freysteinn segir frá þvi, hvern-
ig lygin er tekin í þjónustu
kommúnista austur frá. Hér er
það rógurinn, sem gildir.