Morgunblaðið - 28.07.1966, Side 25

Morgunblaðið - 28.07.1966, Side 25
Fimmtuéfagur 28. júlí 1966 MOHGUNBLAÐIÐ 25 — Bóndi i Mýrdal M Framhald af bls. 14 Ihjá sér fara. Hann hefur verið að shoða höfðann og rannsaka berg- lagaskipan í honum. Nú hefur á- ihugi manna beinzt mjög að .þess- ari klettaeyju, vegna hugsanlegr ar hafnargerðar við hana, og ifeveðst Einar einkum hafa verið að athuga hana undanfarin ár. Hefur hann myndað sér ákveðn- ar kenningar um hvernig hún varð til. f — Þeim bar svo illa saman, jarðfræðingunum, um það hvern ig Dyrhólaey hefði orðið til, seg- ir hann til skýringar. En ég hefi ékveðna skoðun á því hvernig þáð hefur borið að, eftir að hafa rannsakað hana. Dyrhólaey hef- ur orðið til á nákvæmlega sama hátt og Surtsey, fyrir neðan- ejávargos. Dyrhólaey hefur þó myndast í tveimur gosum, líklega með allnokkru millibili. f dag- legu tali er eynni skipt í Háey, sem er vesturhlutinn og að mestu úr móbergi, og Lágey úr basalti. Aðalsönnunargagnið um að eyjan sé orðin til á fyrrgreindan hátt, er að undirlag basaltsins er sýni lega malarfjara. Þá bendir og saltútfellingin í móberginu í Há- eynni til þess, að hún sé mynd- uð með neðansjávargosL Vestur- hluti eyjarinnar er hlaðinn upp I úr lausum gosefnum, en austur- hluti hennar úr hraungrýti. Gos- ið hefur byrjað eins og í Surts- ey, á ne'ðansjávarsprungu með stefnu norður-suður. Hefur gosið ösku og vikri á þremur stöðum að minnsta kosti. Efni eyjarinn- ar hefur eingöngu orðið laus gos- efni, möl og gjall, sem öldur hafsins skoluðu seinna burtu, nema grágrýtistöppunum, er myndazt höfðu í gígunum. Á þeim vann hafaldan ekki og standa þeir enn sem þögul ör- ugg vitni um fyrsta þátt sköp- unarsögu Dyrhólaeyjar. Löngu Seinna hófst aftur gos um 1600 m. vestar. Allt bendir til að þetta síðara gos hafi verið miklu öfl- ugra en hið fyrra. Ekki er unnt að segja hve margir gígarnir voru, sem í fyrstu gusu ösku og vikri. En síðar tók sá nyrsti að spúa hrauni, sem flæddi austur af eynni og breiddi úr sér um alisléttar og víðáttumiklar malar tfjörur. Nú gerist það, að nyrzti sýnilegi gígtappi fyrra gossins verður hluti af hinni nýju eyju við það, að hraunið nær að renna að honum. Hraungígurinn virð- ist ekki hafa verið lengi virkur, en bergkvikan mjög punnfljót- andi, og hefur breitt jafnt úr sér ©g fyllt sprungur. Þannig hefur uppbygging Dyrhólaeyjar átt sér stað. } En sköpunarsaga eyjarinnar var þó ekki ölþ er eldur óg aska höfðu lokið starfi sínu. Enda er sú Dyrhólaey, sem við sjáum þarna, ólík hinni upprunalegu eyju. Mörgum smálestum af jarð efnum hefur hún orðið að fórna og mikið brotnað af henni. Nú er hraungígurinn aðeins skeifulaga kvos inn í eyna að vestan, en vesturbarmur hans horfinn í haf- ið. Það voru ekki aðeins vindar og sjór, sem unnu á goseynni, því jökull hefur gengið þarna yfir á síðasta jökulskeiði ísaldar, og sorfið, skafið og rifið burt hraunið. Því eru nú þarna jökul- ; rispaðar og vindsorfnar basalt- klappir, þar sem allþykkur gróð- urjarðvegur hylur ekki. Um aldur eyjarinnar er það að segja, að ég tel áð hún sé til orðin á hlý- viðrisskeiði fyrir síðasta jökul- skeið hinnar kvarteru ísaldar. Þá má geta þess, að sjávar- staða hefur verið alveg eins og nú þegar eyjan var að myndast, hefur seinna lækkað mikið, en er nú aftur komin í sömu stöðu. tÉg hefi ekki fundiið neinar skelj- ar í Dyrhólaey, bara brot úr seti, og skýri það þannig, að gígarnir hafi gosið svo stöðugt að þær hafi lent í undirstöðunni. Þannig hefur nú þessi eyja, sem vadð éföst landi, myndast. Hún var syðsti hhxti íslands allt frá is- aldarlokum þangað til Katla myndaði í gosinu lál8 tanga á Hjörleifshöfðafjöru, sem teygir sig lengra suður í sjóinn. Hann er þó ekki úr varanlegu efnL x — En hvernig lízt þér á hafnar gerð við Dyrhólaey? Og hvoru megin viltu láta gera hofnina? — Það mundi valda gerbylt- ingu um bætta afkomumögu- leika sveitanna á Suðurlandb ef góð höfn kæmi við Dyrhólaey. Og tæknin er mikils megnug nú orðið. Þó held ég, að Þjóðverj- arnir -hefðu lent illa í þvb ef þeir hefðu grafi'ð höfn inn að vestan. Þá hefðu þeir lent f gamla gígnum, komið í grágrýtis klöpp. Það hlýtur að vera mikið af þeim í sandinum. Ég tel miklu meiri lrkur til að hægt verði að grafa að austan. Enda minni sand burður og fíngerðari þar. — Var það ekki vestan megin, sem sjórinn fór að grafa sig inn í vetur? — Jú, það er nokkuð sem alltaf gerist öðru hverju í noi’ð- austanátt. Og gerðist alltaf þeg- ar þeir voru þarna með útræði. Það yrði vissulega ómetanlegt að fá höfn við Dyrhólaey. Sandburð urinn yrði aldrei meiri en á Rifi. Og svo eru komin tæki til að losna við hann. x Það hefði verið gaman að fræð- ast meira af Einari í Skamma- dalshól, og þiggja böð hans um að koma heim til hans seinna um kvöldið og skoða skeljasafn ið hans. En okkur fannst nóg að gert, að tefja hann frá rúning- unni. Kindurnar kæra sig víst kollóttan um jarðfræðikenning- ar, fornskeljar og fugla. Þær vilja bara losna við ullina og finna aftur lömbin sín. — E. Pá. — Kynning á Frarnh. af bls. 5 leggja sífellt meiri áherzlu á alhliða kynningu út á við. Slík kynning auki ekki aðeins þekkingu og skilning um- heimsins á högum, viðfangs- efnum og vandamálum hinna einstöka þjóða, heldur stuðli hún einnig beint og óbeint að viðskiptum, flutningum og ferðalögum landa á milli. — Við getum verið allánægðir með árangur þriggja ára út- gáfustarfs, sögðu ritstjórarn- ir, því þörfin fyrir rit á borð við Iceland Review er nú enn ljósari en áður og við teljum, að mikill árangur hafi náðzt með útgáfunni. En við von- um að þetta sé aðeins byrj- unin. Þeir sögðu ennfremur að ritið kæmi út í 9—10 þús- und eintökum að jafnaði, það væri borið út af póstþjónum í meira en 100 löndum og bréf frá lesendum berast úr öll- um heimsálfum. Einnig kváðu þeir það mikið ánægjuefni að fylgjast með því hve auglýs- ingagildi ritsins hefur vaxið — og innlendir auglýsendur hefðu stundum kvartað undan því í gamíii, að sá ókostur fylgdi auglýsingu í ritun, að svo margar fyrirspurnir bær- ust að það tæki tíma að svara þeim. Og mörg dæmi kváðust þeir vita um að auglýsing í Iceland Review hafi skapað ný viðskiptasambönd, sem síð an hafa leitt til viðskipta sem nema milljónum króna. Þó út gáfan hafi gengið vel á þess- um þriggja ára reynslutíma, sögðu þeir Haraldur og Heim ir að verðlagsþróunin hefði hækkað útgáfukostnaðinn svo mikið að undanförnu, að horfurngr væru vægast sagt slæmar. En óhægt er um vik vegna þess að áskriftagjald er lendis er erfitt að hækka stöð ugt, þótt aukin útgjöld hér- lendis krefiist þess. Verði því að treysta á að hægt verði að auka útgáfu blaðsins. Á ári hverju koma út 4 hefti og var það nýjasta 92 síður, svo árs- ritið er væn bók, sem kostar kr. 230,00. f heftinu, sem var að koma út, er margvíslegt efni. Þar er fróðleg og ýtarleg grein um beizlaða og óbeizlaða orku í íslenzkum fallvötnum o. fl. eft ir Eirík Rriem og fylgdu marg ar myndir. Steindór Steindórs son skrifar yfiriitsgrein um gróður á íslandi og er hún skreytt fallegum blómamynd um í svarthvítu og í litum. Þá eru greinar um fsafjarðarkaup stað á 100 ára afmælinu eftir Birgi Finsson og Pétur Karls son, greinar eru um Hótel Loftleiðir, Færeyjaflug F. í., skrifstofu Loftleiða í Chicago, veitingahúsið Naust o.fl. Þá eru greinar um atvinnu- og viðskiptamál, m.a. skrifar Eggert Þorsteinsson, sjávarút- vegsmálaráðherra, um íslenzk an sjávarútveg, Amalía Lín- dal um kísilgúrinn í Mývatni, dr. Þórður Þorbjarnarson um fiskimjöJ og Gísli Hermanns- son um niðursuðuiðnaðinn. Og ýmsir fleiri þættir eru í heft inu. Iceland Rcview hefur nú sett upp skrifstofu í Tjarnar götu lo og gefinn hefur verið út kynoingarbæklingur með ummælum ýmissa aðila, er- lendra um ritið og gagnsemi þess. — Ufisamkomur "v- Framh. af bls. 3. Akuréýri, í Eyjafirði og Suður- Þingeyjarsýslu. Hefst mótið á laugardagskvöld og verður þá dansað í Brúarlundi og á mið- nætti á að skjóta upp flugeldum. Daginn eftir verða tvaér útisam komur og einnig verður þá dans- að um kvöldið. Margir skemmti- kraftar koma fram á útisamkom- um þessum. Mótsgestum verður ■séð fyrir tjaldstæðum og lög- reglu- og sjúkravörður verður í Vaglaskógi meðan mótið fer fram. Algjört skilyrði fyrir þátt- töku í mótinu er að fólk hafi ekki vín um hönd. í Hallormstaðaskógi gengst Ungmenna og íþróttasamband Austurlands fyrir útihátíðarhöld um. Hefjast þau á laugardag og standa til mánudags. Ýmislegt verður þarna til skemmtunar m.a. varðeldur á laugardagskvöld ið og hefur komið til tals að hafa hann á fleka úti á fljótinu. Á samkomunni verður algjört vínbann og hart eftir því gengið að því verði framfylgt. Þá hafði Morgurrblaðið enn fremur samband við nokkrar ferðaskrifstofur og spurðist fyrir um þátttöku í ferðum hjá þeim um helgina. Ferðafélag fslands efnir ekki til sérstakra ferða í tilefni verzl unarmannahelgarinnar. Hinsveg- ar efnir félagið til þriggja daga- ferða um helgina og verður á laugardag farið til Krísuvíkur, á sunnudag til Gullfoss og Geys. is og á mánudag verður farin hringferð um Þingvelli til Hvera gerðis. Á mánudaginn hefst einn ig 9 daga hringferð um landið á vegum félagsins. Skrifstofa fé- lagsins gaf okkur þær upplýsing ar að allgóð þátttaka væri í flest um þessum ferðum. Lönd og leiðir og Guðmundur Jónsson efna til ferða í Þórs- mörk og fara þangað tvær ferð- ir »g verða um 150 manns með hvorri. Gist verður í tjöldum. Þá efnir Lönd og leiðir tii ferð- ar um Landmannaleið og eru skráðir þátttakendur í þeirri ferð 25. Litli ferðaklúbburinn mun gangast fyrir ferð í Þórsmörk og verður yngra fólki en 16 ára ekki leyfð þátttaka í þeirri ferð. Einn ig setur klúbburinn, sem alltaf áður þátttakendum það skilyrði að þeir hafi ekki vín um hönd. Ferðaskrifstofa Úlfars Jakob- sens efnir til ferða í Þórsmörk og munu þær verða fjölmennar. Hefur Úlfar fengv hljómsveit- ina Tempó til að skemmta far- þegum sínum og sagði hann í gær, að þá dansleiki yrði að takmarka eingöngu við það fólk er með honum færi. Þá sagði hann ennfremur að reynt yrði að hafa einhver skemmtiatriði og söng til að halda fólkinu saman. , — Leitin Framhald af bls. 32. ist um Sigurð í gærkveldi ákvað leitarstjórinn að hætta leitinni, þar sem búið væri að gjör- kanna allt svæðið, sem til greina kom, eins og mögulegt værL en þarna er víða mikið kjarr, sem gerir leitármönnum erfiðara fyr- ir. — Ólafsvakan Framh. af bls. 1 ' 1 setja svip á hátíðahöldin í ár, þar sem þaðan koma bæði hand- bolta- og knattspyrnulið. Auk þess koma hópar á veguna ís- lenzkra stúdenta og æskulýða- samtaka og fleiri ferðamenn. Norska útvarpið hefur sent útvarps- og sjónvarpsstarfsfólk til að fylgjast með hátíðinnL og danska og hollenzka sjónvarpið hafa sent hingað menn til að fylgjast með. Hátíðahöldin hefjast með keppni í þjóðarilþróttinni — kapp róðri — og taka 40 áhafnir þátt í róðrinum víða að úr eyjunum. Á föstudag verður skrúðganga frá þinghúsinu til kirkju, (þar sem guðsþjónusta verður haldin. Seinna um daginn verður svo þingsetning. Hátíðahöldin standa yfir svo til dag og nótt, og dansað verður á götum í Torshavn. JAMES BOND ->f- — ->f- Eftii IAN FLEMING Ég er búinn að komast að hver and- stæðingur okkar er. Hann ferðast á banda- rísku vegabréfi og við verðum að hafa gát á hlutunum í kvöld. „Vel gert, Nash“. Lestinn hristist og Nash veltir óvart um glasi Taniu. — Fyrirgefðu, þetta var klaufalegt af mér. — Eigum við ekki að skála fyrir ró- legri nóttu harðna. áður leikurinn J Ú M B <5 - -K- Teiknari: J. MORA Gamli maðurinn segir, að hann og *ett hans hafi lært að umgangast hinar ævagömlu ófreskjur, en allir aðrir hafi yfirgefið þetta hérað af því að veiðidýrin séu farin til friðsamari dala. Ég hef ekkert nema maisinn til að draga fram lifið, segir hann að lokum. — Við ætlum ekkl að gera þér neitt til miska, við viljum aðeins fá að búa í einum liellanna í nokkra daga. — Gjörið þið svo vel, en ég tek enga ábyrgð á, ef eitthvað kemur fyrir, segir öldr.ngur- inn. Þeir kveðja daufir í bragði. Það er ekki beinlínis uppörvandi að þurfa að láta fyrirberast um nóttina i rökum og dimmum helli með ævagamlar ófreskjur allt í kring. I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.