Morgunblaðið - 04.08.1966, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagiir 4. ágúst 1966
BÍLALEIGAN
FERÐ
Daggjald kr. 400.
Kr. 3,50 per km.
SÍMI 34406
SENDUM
MAGIMÚSAR
SKIPHOITI21 SÍMAR 21190
eftir lokun simi 40381
,|HI 3-11-60
m/iiFim
Volkswagen 1965 og ’66.
RAUÐARÁRSTÍ6 31
Sl’MI 22022 „
LITLA
bilaleigan
Ingólfsstræti 11.
Volkswagen 1200 og 1300.
tf'ÞRBSTUR^-
22-1-75
Málflutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar,
Guðlaugs Þorlákssonar,
GuSmundar Péturssonar
Aðalstræti 6.
S.: 1-2002, 1-3202 og 1-3602.
B08CH
SPENNUSTILLAR
6 VOLT
12 VOLT
24 VOLT
Brœðurnir Ormsson
Lágmúla 9.
Sími 3-88-20.
^ Rússneska benzínið
Félagi í FÍB skrifar:
„Rússar eru nú venjulega
alltaf fyrstir, en í þetta sinn
hefur rússneskur sérfræðingur,
hr. Monzachin, sem sagður er
vera vara-aðal-tæknifræðingur
í einni stærstu bifreiðaverk-
smiðju Rússlands, verið heldur,
síðbúinn að birta þá niðurstöðu
sína í rússneskum blöðum, að
rússneskt benzín væri (vélum)
skaðlegt, ónýtízkulegt og bein-
linis hættulegt! Sumir vissu
þetta fyrr, og hafa hugleiðing-
ar um þessi mál ítrekað birzt á
prenti, m.a. í leiðara Mibl.
nokkuð nýlega. Gagnrýni þessi
hefur vakfð athygli (og undr-
un), en hr. Monzachin heldur
því fram, að 66 oktan benzín sé
sá gæðaflokkur, sem gera megi
ráð fyrir sem (beztri) markaðs-
vöru þar, — benzíngæði, sem
varla nægi elztu gerðum
hreyfla. Sami hr. M. hugleiðir
og, hvernig takast megi að fá
þá 500—600 þús. hreyfla FIAT-
bíila, sem nú hefur verið samið
um smíði á (með framleiðslu-
leyfi í Rússlandi til að snúast!
„Lærið af vestrinu", segir þessi
sami framtíðarmaður. Aðeins,
ef reikna mæitti méð 85 oktan
benzíni, yrði sparnaðurinn 16,7
milljarðar íslenzkra króna inn-
an næstu 5 ára. Og ekki er virð
ingin meiri fyrir smurningsolí-
unni, en rússnesk smurnings-
olía hefur minna þjáð íslenzka
bíleigendur en benzínið. Loks
kemur svo röðin að hemlavökva
og frostleginum, en þar virðist
vilja svo einkennilega til, að
hvort tveggja frjósi í kulda, en
gufi upp í hita.
Er nú ekki kominn tími til,
að samninganefndir og innflytj-
endur (dreifendur) benzíns
hætti að skella skollaeyrum
við? Menn vita nú mætavel, að
almennt er krafizf um 93 oktan
benzíns fyrir nýjustu hreyifla, í
Evrópu er mest selt af benzíni
frá 93—98 oktan, og nokkuð yf-
ir 100 oktan benzín er á mark-
aði og er nauðsynlegt fyrir hina
nýrri, háþrýstari benzínhreyfla.
Hið nýlega Rússa-benzín or-
sakar tugmilljóna skemmdir á
dýrum bilum, og lélegar olíur á
sama hátt, einnig á öðrum bún-
aði. Óhæfur hemlavökvi er lifs
hættulegur.
Nú koma upplýsingar frá
Rússa, háttsettum í Rússlandi
sjálfu, og er m.a. heimildir að
finna á bls. 17 í eintaki af Poli-
tiken, miðvikud. 27. 7. 1966.
Fél. nr. 33, FÍB“.
0 Leitin og leitendurnir
Vesturbæingur skrifar:
Vel er það, að blöðin styðji
prestana í starfi þeirra, en ekki
með frómum vaðli, innihalds-
lausri mælgi, heldur með kenni
mannlegum hugvekjum, og
nota ég þá orðið í þess réttu
merkingu. Vaðallinn vekur
engan til hugsunar, en kenni-
mannleg ræða er fræðandi.
Nokkrar slíkar hugvekjur eftir
síra Jón Auðuns hefir Morgun-
blaðið flutt nú að undanförnu.
Slíkt lesa hugsandi menn með
ánægju, en hitt láta þeir helzt
ólesið.
Hugvekjan í blaðinu síðast-
liðinn sunnudag (31. júlí) hlaut
að falla þeim mönnum í geð,
sem eiga leitandi huga. Hún
rifjaði upp fyrir mér fjórar
ósköp óbrotnar vísur, er maður
um áttrætt, hversdagslegur al-
múgamaður, kvað í rúmi sínu
að morgni þess 18. júilá, eða
fyrir réttum hálfum mánuði.
Eins og allir aðrir í húsinu hafði
hann átt vökunótt sökum þess
áð fólkið á hæðinni fyrir neðan
hann var að halda svo hressi-
lega „þjóðihátíð" að lögreglan
varð að skerast í leikinn. Frá
þessum „gleðileik" vildi gamli
maðurinn leiða hugann og gerði
til þess téðar vísur, er svo
hljóða:
Leitaði’ ég vissu, er veikan
grun
vakna fann í sinni.
Leitinni naumast lokið mun
þó Ijúki hérvist minni.
Minn var grunur sífellt sá,
að sálin þroska stærri
mundi héðan farin fá
við.fegurð æðri og hærrL
Mun ég senn ei leitarljós
langtum skærri finna?
spyr ég nú, við yzta ós
ævidaga minna.
Svars að krefjast of snemmt er,
en ég hygg það fáist,
og það sem dylst í móðu mér
við meiri birtu sjáist.
Láti svo dómprófasturinn þær
koma sem flestar hugvekjurn-
ar. Ég er ekki viss um að á
öðru sé þjóðinni nú meiri nauð-
syn, en vaktir séu hugir sem
flestra landsmanna til hleypi-
dómalausrar íhugunar sem
flestra alvarlegra mála.
V esturbæingur".
0 Grettisgatan
H. J. skrifar:
„Hvort vakir þú, sem sef-
ur? var sagt við mig í svefnin-
um í nótt. Og þegar ég vaknaði
í morgun sagði ég strax við
sjálfan mig. Þú skrifar Velvak-
anda Morgunblaðsins, góði,
hann er gáfaður eins og þú.
Vestast á Grettisgötunni
höfðu blessuð börnin skrifað
með krít á gangstéttina: Ljót
gata. Þebta var falleg skrift,
enda eru ÖU börnin í götunni
falleg og góð. Það var engin
furða þá börnunum blöskraði.
Grettisgatan byrjar við tugt'hiús
garðinn, þar er migildi í krókn-
um, alltaf fullt af rusli og gler-
brotum. Aumingjarnir koma
þangað með hárvötn, brennslu-
spíritus, möndludropa og fleira,
sem þeir svo blanda og þynna
með því, sem lekur úr vatns-
pípunum. Svo borða þeir þarna
lika matinn sinn, en henda um-
búðunum.
Grettisgatan er mjó, en sunn-
anmegin er endalaus röð af bíI—
um alla leið inn á Rauðarárstíg.
Þetta eru bílar neðan af Lauga-
vegi, á sunnudögum eru fláir bíl
ar. Um götuna er stanslaus bíla
umfei'ð, jafnt gangstéttina og
akbrautina, sumir tveggja
hæða, svona eins og timburhús-
in gömlu við götuna. Og rrú eru
burgeisarnir við Laugaveginn
farnir að eignast útkeyrsiluleið-
ir á Grettisgötuna. Og svo er
Ölgerðin, heljarmikil fabrikka,
sem hefir útkeyrslu til götunn-
ar og Frakkastígs, þó hún sé
staðsett við Njálsgötuna.
Ég veit að blessaður borgar-
læknirinn grætur, er hann ih.ug
ar allan þann sóðaskap og ó-
hollustu, sem þetta orsakar. Og
umferðarnefndin hilýtur að há-
gráta yfir slysahættunni.
Eftir skipulaginu á Grettis-
gatan að verða breið umferðar-
gata, en ekki bakgata vfð
Laugaveginn. Tugthúsið á að
fara upp að Árbæ, enda hefir
það löngu lokið sínu menning-
arhlutverki. Því vil ég biðja
máttarvöld borgarinnar, að
renna sínum mildu náðaraug-
um um Grettisigötuna og at-
huga náðarsamlegasit, hvort
ekki er hægt að lagfæra eitt-
hvað.
Og af því nú verða miklar
frosthörkur í vetur, þá væri
það miklu fallegra hugsað at
Hitaveitunni, sem stendur beint
í sambandi við þá í neðra, að
athuga hitalögnina i götunni.
Ég held hún sé alltof grönn, og
flytji ekki nægilegt vatn. Og
svo eru sum húsin við Lauga-
veginn tengd við hitalögnina i
Grettisgatunni, og það í gegn-
um húsin. í frostum er því eng-
an hita þar að hafa, ef húsin
eru hærri en kjallari. Mikið
hefi ég oft skolfið í húsinu, sem
ég hefi unnið í nú í 27 ár, og
jafnvel blótað okkar ágætu
borgarstjórn, sem er alvitur oig
almáttug, og ekkert nema mann
gæðin.
H. J.“.
Happdrætti
Dregið hefur verið í happdræt.ti U. M. F. Haúks í
Leirár- og Melahreppi — þessi númer komu upp:
1. Sjónvarpstæki nr. 1572.
2. Vikudvöl í KerlingarfjölJum nr. 4092.
3. Ryksuga nr. 4043.
4. Skáldverk Gunnar Gunnarssonar
nr. 3445.
5. Ferðaviðtæki nr. 2827.
6. Ferðaviðtæki nr. 4143.
7. Sýningarvél nr. 1708.
8. Myndavél nr. 1625.
9. Armbandsúr nr. 4446.
10. Veiðileyfi í Laxá í Leirársveit 8. ágúst
nr. 1017.
11. Veiðileyfi í Laxá í Leirársveit 8. ágúst
nr. 4888.
12. Stofuklukka nr. 4388.
13. 1 kg. æðardúnn nr. 2298.
14. Veiðistöng nr. 4497.
15. Stálborðbúnaður fyrir 6 manns
nr. 3742.
Vinninga má vitja til Erlings Guðmundssonar,
Melum.
Ullarvinna
Vantar lagtækan, reglusaman kembinga-
mann strax. — Upplýsingar í verk-
smiðjunni.
Lllarverksmið|an
Framtíðin
Frakkastíg 8.
Sjómenn
Höfum til sölu nokkra 10—12 tonna báta,
nýlega með góðum vélum.
Austurstræti 12.
Sími 1-41-20, heimasími 3-52-59.