Morgunblaðið - 09.08.1966, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.08.1966, Blaðsíða 3
ÞriSjuflagwr 9. ágúst 1966 MORGU N BLADIÐ 3 Nærri 1700 ára rómverskur koparpeningur finnst við Hvítárholt Fannst I mo'dsrblandinni fyllingu í rústum frá 10. öld Á LAUGAKDAG fannst að Hvítárholti í Hruna- mannahreppi við uppgröft í rústum frá 10. öld róm- verskur koparpeningur frá árinu 275 eftir Krist. Þór Magnússon, safnvörður hefur stjórnað þar upp- greftri undanfarin fjögur ár, en fyrir nokkrum árum fannst þar mjög skýr vík- ingabyggð. Fundur hins rómverska koparpenings er mjög óvæntur. Peningurinn fannst er verið var að grafa upp skála og var hann í moldarblendinni fyllingu og leit út eins og spansgrænuskífa, fyrst er hann fannst. Þegar peningurinn var hreinsaður, en þvermál hans er 21—23 mm, kom í Ijós vangamynd af Marcusi Clau- diusi Tacitusi (200—276), en hann var keisari í Rómaríki á árunum 275—276 í aðeins siax mánuði. Hinum megin á peningnum er mynd af veru í kvenlíki, sem tákna á for- siónina og 'heldur hún á veld- issprota og gnægtahorni. Á þeirri hlið er áletrunin: Providenta Tac., sem þýðir forsjón Tacitusar og torkenni legt gildisletur myntarinnar: CCI, en síðasti stafurinn sést ekki. Á þeirri hlið, sem vanga- mynd keisarans er, stendur: IMP. C. MC. TACITUS AUG- USTUS í boga umhverfis vangamyndina. Þýðir sú áletr un: IMP. er skammstöfun fyrir keisari, C fyrir Cesar, MC. fyrir Marcus Claudius, en siðasta nafnið, Augustus er tignarheiti. Marcus Claudius Tacitus tók við völdum af Aurelianusi, sem var myrtur árið 275. Taci tus var 75 ára gamall, er hann varð keisari og var til þess valinn af Öldungaráðinu, en hann var af gamalli öldunga- ráðsætt og taldi sig sjálfan kominn af Tacitusi sagnritara. Hann tók nauðugur við völd- um, en var álitinn góður keis- ari og notaði auð sinn til al- menningsheilla. Hann háði styrjöld við Gota í Litlu-Asíu og vann hana, en var skömmu síðar myrtur a.f sínum eigin hermönnum. Þá tók við ríkj- um . hálítoróðir hans Marcus Annius Flávius, en valdatima bil hans var einnig mjög stútt. Hið markverðasta við fund- þessa rómverska penings er að hér er um að ræða kopar- mynt. Koparmynt var á 10. öld mjög sjaldgæf sem gjald- miðill hér á landi, en hins vegar voru silfurpeningar mun algengari. Stafar þetta að sjálfsögðu af því að silfur er dýrari málmur en kopar, auk þess sem þessir peningar voru einungis gjaldgengir á valdatímabili viðkomandi keis ara, Mun fundur iþeirra mjög sjaldgæfur utan hins forna Rómarríkis og vakna því marg ar spuringar við fund hans SLYSA TRYGGINGAR tg--.---.-aw. SJOUATRYGGT IRUELTRYGGT SIM111700 SJOIMilílHiM MOS K Hlið hins 1691 árs gamla róm- verska koparpenings, sem greinilegri er. Letrið er nokk- uð grcinilegt, en vangamynd keisarans er ógreinilegri, en þó má sjá móta fyrir útlínum andlitsins. Hinum megin er peningurinn mjög snjáður. hér á landi og þriggja ann- arra rómverskra koparpen- inga sem fundizt hafa hér áð- ur. Ekki er enn vitað, hvar þessi nýfundni peni.ngur er sleginn. Koparpeningarnir þrír, sem áður hafa fundizt hér á landi fundust allir á Austfjörðum. Sá fyrsti sem fannst fann Jón Sigfússon bóndi á Bragðavöll- um í Hamarsfirði árið 1905. Árið 1923 fann Englendingur annan pening úti fyrir Hval- dal í S-Múlasýslu og 1933 fann Jón á Bragðavöllum hinn þriðja og er sá elztur þeirra allra sleginn í Cyzieus í Litlu- Asíu á valdatíma Aurelían- usar 270—275 eftir Krist og er hann því nokkrum árum éldri en hin nýfundna mynt. Peningarnir sem fundust ár- in 1905 og 1923 eru báðir slegnir í Róm. Sú spurning, sem einna helzt sækir á við fund þessara mynta er, hvað vildu viking- arnir með svo einskisnýta my.nt sem þessa hér úti á ís- landi? Dr. Kristján Eldjárn, þjóðminjavörðúr hefur varpað fram þeirri tilgátu, að verið gaeti að rómverskir menn hafi lent í hafvillu hér við land lön.gu fyrir íslands byggð, vikingarnir síðan fundið Iþess- ar ieifar þeirra og borðið þær til bústaða sinna. Þá mó það einnig vera að þeir hafi slæðzt í silfursjóðum hingað til lands og geymzt hér sem einhvers konar minjagripir, Ekkert er að svo komnu máli u.nnt að segja með vissu. Rústirnar í Hvítárholti fund ust árið 1983 fyrir tilviljun. Guðmundur Jónsson á Kóps- vatni var staddur á staðnum og veitti hann athygli að uppi á holtinu, sem bærinn dreg- ur nafn sitt af voru sumar Þór Magnússon, safnvörður við kassann, þar sem hinir fornu koparpeningar eru sýnd ir í Þjóðminjasafninu. (Ljósm. Mbl. Ól.K.M.). þúfur stærri en aðrar. Fékk hann sér því skóflu og rak í eina þúfuna og var þá holt undir. Hafði hann komið nið- ur á eldstæði í fornum skála og gerði Þjóðminjasafninu þegar viðvart. Merkustu fornminjar, sem fundizt hafa í Hvítárholti eru tveir skálar og var sá fyrri, sem fannst allmjög skemmd- ur, en sá síðari, er peningur- inn fannst í, er minni og ein- faldari. Þá hafa einnig verið grafin upp fjós og hlaða og fjögur jarðhús og er lag hús- anna einkennandi fyrir 10. öld. í rústunum hafa fundizt pottbrot úr klébergi, en pottar úr slíkum steini, sem er linur og unnt að tálga, tíðkuðust í Noregi á 10. öld, taflmaður, snældusnúðar, gul glerperla og stór svört perla. TJm byggð í Hvítarárhoiti eru engar heimildir fyrr en um 1700, en mjög líklegt er að byggð hafi verið þar mjög stutt eftir landnámstíð. Um iandnámsibýli í nágrenni við Hvítárholt er vitað um Hrepp- hóla og Berghyl, sem enn eru í toyggð, en þriðja landnáms- jörðin Másstaðir er týnd. Þór Magnússon kom eitt sinn með þá tilgátu, að Hvítárholt gæti verið Másstaðir hinir fornu, en sú tillaga hefur hlotið gagnrýni sumra, þótt ekkert verði að sjálfsögðu fullyrt um það. Þór Magnússon safnvörður tjáði blaðinu síðdegis á laug- ardag, skömm.u eftir að frétta- ritari Mbl. Sigurður Sig- mundsson í Hvítárholti hafði símað myntfundinn, að upp- gröfturinn væri langt kom- inn. Ætlunin hefði verið að ljúka honum sl. sumar, en það hefði ekki tekizt og nú myndi verkinu Ijúka á næstunni. Þór sagði að sér til aðstoðar við uppgröftinn hefðu að jaf.naði verið tveir menn og nú er peningurinn fannst hafi verið þar fyrir austan bandarísk- ur fornleifafræðing.ur og myntsérfræðingur. Christop- her Hale, og hafi han.n talið peninginn ófalsaðann, enda fannst peningurinn í greini- legri víkingabyggð. Þess má geta að á miðöldum var nok-k- uð falsað af slíkum peningum. STAKSTEIMAR „Dómararnir" fyrirfram ákveðnir Bandariska blaðið „New York Herald Tribune" birti fyrir nokkru forystugrein um „stríðs- glæpadómstól“ Kussels lávarðar, og segir þar: „Réttur er settur af svonefnd- um „alþjóölegum stríðsglæpa- dómstól", sem mundi vafalaust vegna vel á Broadway, en verð- ur að teljast einkennilegt fyrir- brigði að öðru leyti. Fyrir hon- um stendur Bertrand Russel, en þátttakendur eru Jean Paul Sartre og Simone de Beauvoir og nokkrir aðrir, allt frá fyrrver- andi forseta Mexícó til höfundar Marat Sade. Hinir ákærðu eru forseti Bandarikjanna, utanríkis- ráðherra hans og varnarmálaráð herra. Rétturinn er sjálfskipað- ur, hann var skipaður að frum- kvæði manna, sem þegar hafa fordæmt stefnu og starfsaðferðir Bandaríkjanna í Víetnam, en talsmaður Russels lávarðar hef- ur sagt að rétturinn mundi bjóða velkominn sérhvern þann tals- mann sem verja vildi Banda- ríkin. „Við viljum ekki verða sakaðir um ósanngirni", sagði þessi talsmaður.“ Allir nema Kafka „Styrjaldir eru hörmulegar, og eftir að þær einkenndust ekki lengur af hestum, gunnfánum og fallegum einkennisbuningum, er hægt að líta þær í réttu ljósi. Þeim er ætlað að valda dauða og eyðileggingu .... Draga verð- ur í efa, að „réttur“ þessi geti komið fram með nokkrar sann- anir í sambandi við þessa deilu, sem veki sérstaka athvgli. En það sem hann getur gert og það sem hann ætlar augljóslega að gera er að ganga út frá þeirri forsendu, að Bandaríkin séu þeir einu sem sökina eiga, sýna ein- ungis fram á afleiðingar af at- höfnum Bandaríkjamanna og fella „dóm“ sem forustumenn þessarar athafnar hafa þegar ákveðið. Þetta verður væntan- lega mikil leiksýning, eina mark verða persónan, sem þar verður ekki er Kafka, en andi hans svíf- ur sjálfsagt yfir vötnum.“ Sérréttindamenn í síðasta hefti Samvinnunnar stendur þessi klausa: „Á ýmsum stöðum erlendis er þessum hlutum þannig farið, svo dæmi sé tekið, að þegar ný byggðahverfi borga og bæja eru skipulögð er frá stjórnarvald- anna hálfu komið til samvinnu- félaganna og þau spurð að því hvers þau óski í sambandi við hið nýja hverfi, hvort þau óski þar eftir lóð undir verzlunarhús næði eða aðra aðstöðu, hve mikið lóðarrými þau geri ráð fyrir að þurfa vegna langrar framtíðar og á hvern hátt verði séð fyrir aðstöðu þeim til handa, sem henti eðlilegum og frjálsum vexti þeirra í samræmi við vilja og þarfir borgaranna. Síðan er í hinu nýja skipulagi tekið tillit til eðlilegra og skynsamlegra óska og þarfa félaganna. Þetta er gert út frá því sjónarmiði. að þau séu til gagns og nytsemdar fyrir fólk ið, auk þess, sem fyllsta rétt- lætis er gætt gagnvart ólíkum skoðunum og lífsviðhorfum. Þetta er hið rétta og eðlilega viðhorf". Þá hafa menn það. Samkv. orð um málgagns S.Í.S. ber að miða skipulag borga og bæja við þarf- ir samvinnuhreyfingarinnar. Það 1 er „eðlilegt“ og „réttlátt“ að mati S.f.S. Væntanlega ætlast I SÍS-herrarnir þá til þess að full- trúar Framsóknarflokksins í sveitastjórnum starfi í samræmi við þessi „viðhorf". Hætt er við að almenning- ur telji þetta ekki „eðlilegt“ og „réttmætt“, og að skipulag bæja og borga beri að miða við hags- muni og þítrfir borgaranna í heild en ekki þröngrar sérhags- munaklíku

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.