Morgunblaðið - 09.08.1966, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 09.08.1966, Blaðsíða 27
Þriðjudagur 9. Sgfist 1966 MORCU NBLAÐIÐ 27 Aukakeppni þurfti til að útkljá 72 holu keppni Skemmtileg golfkeppni hjá Golfkl. Ness MEISTARAKEPPNI Golfklúbbs Ness lauk á sunnudag og varð keppni í öllum flokkum skemmtileg og hin harðasta fram til hins síðasta. í meistara flokki urðu þeir jafnir eftir 72 holur Jóhann Eyjólfsson og Pét- ur Björnsson en í aukakeppni á 73. holu sigraði Jóhann. í 1. flokki varð keppnin einn- Jg álíka hörð milli Tómasar Árnasónar og Ragnars Jónsson- ar. Vann Ragnar upp gott for- skot Tómasar en mistókst illa á síðustu holu og vann Tómas með 1 höggi. í 2. flokki sigraði Páll Ásg. Tryggvason með yfirburðum og náði betri árangri en nokkur í 1. flokki. í kvennaflokki sigraði Sigríð- ur Magnúsdóttir eftir harða keppni og jafna. Sóstaka athygli vakti keppni gestanna atvinnumannsins og kennarans F. Riley og Suður- nesjameistarans Þorbjörns Kjær bo. Léku þeir saman og hélt Kjærbo í við meistarann lengi vel en svo fór að 5 högg skildu þá að — og hafði Kjærbo mun betri árangur en Jóhan og Pét- ur er börðust um meistaratign í klúbbnum. ÚRSLIT: M.fl. Jóhann Eyjólfson 312 högg Pétur Björnsson 312 — Ólafur Bjarki 329 — Helgi Eiríksson 337 — Fred Riley lék 72 holur í 299 höggum en Þorbjörn Kjærbo í 304. 1. fl. Tómas Árnason 337 högg Ragnar Jónsson 338 — Þorvarður Árnason 341 — 2. fl. Páll Ásg. Tryggvason 335 högg .Júlíus Sólnes 360 — Vilhj. Árnason 388 — Kvennafl. Sigríður Magnúsdóttir 219 högg Hanna Holton 221 — Guðríður Guðmundsd. 243 — í karlaflokki var keppnin 72 holur en 36 í kvennaflokki. Jóhann Eyjólfsson. Akureyringar höfðu tæki- færi til sigurs en leik lauk 1-1 Akureyringar og Keflvíkingar deildu stigum LEIKUR Keflvíkinga og Akur- eyringa fór fram í blíðskapar- veðri að viðstö.ddum 2000 áhorf endum á Njarðvíkurvellinum á eunnudaginn. Eftir gangi leiksins hefði sig- ur Akureyringa með eins til tveggja marka mun verið sann- gjarn. Fyrstu 8 minútur leiksins var nokkuð' stöðug sókn Keflvíkinga að marki ÍBA, en flest skot EÓknarmanna voru laus og hættulítil fyrir Samúel mark- Vörð Akureyringa. Um miðjan hálfleikinn meidd- ist miðvörður Akureyringa og kom Jón Stefánsson þá inná og lék í sinni gömlu stöðu. Á 19. mín hljóp Kári af sér vörh Keflavíkur og gaf síðan knöttinn til Valsteins, sem stóð óvaldaður á vítaspyrnupunkti, en tókst að skjóta framhjá. Tíu mín síðar fékk Sævar gott tækifæri eftir skemmtilegt upphlaup Akureyringa, en skot- ið var máttlaust og Kjartan Varði Skömmu síðar var Steingrím- ur frír fyrir opnu marki, en skaut beint á markvörðinn. Á 31. mín. skoraði Sævar fyrir Akureyri. Fékk hann knöttinn vinstra megin við endamörk, lék léttilega fyrir markið og skoraði framhjá Kjartani. Keflvíkingar fengu gott tæki- færi til að jafna á 37. mín, er Jón Ólafur fékk góða fyrirgjöf frá Jóni Jóhannssyni, er hann stóð óvaldaður inni á markteig, en skotið fór framhjá. Skömmu fyrir lok hálfleiksins misnotaði Kári tvö góð tækifæri svo að fleiri urðu mörkin ekki í hálfleiknum. Keflvíkingar voru meira í sókn í upphafi síðari hálfleiks, en þeir voru ekki á skotskónum þennan dag og laus skot þeirra höfnuðu ýmist í öruggum hönd- um Samúels eða fóru framhjá. Á 11. mín. á Steingrímur skallabolta sem smýgur yfir þverslá og mínútu síðar eiga Keflvíkingar tvær hornspyrnur, sem nýtast ekki. Á 15. mín. fengu Keflvíkingar óbeina aukaspyrnu á miðjum vítateig. Norðanmenn röðuðu sér í markið, en Magnús Torfa- son sem tók aukaspyrnuna, gaf knöttinn til Jóns Jóhannssonar, sem lyfti knettinum yfir varnar- vegginn og efst í blá-hornið. Fallegt mark hjá Jóni. Við markið færðist nokkurt fjör í Keflvíkinga, en skot þeirra voru öll örugglega varin af Samúel. Skömmu fyrir leikslok fékk Karl Hermannsson slæmt spark og var borinn út af leikvellinum. Leiknum lauk með jafntefli 1-1, en sanngjörn úrslit eftir gangi leiksins hefðu verið 4-2 fyrir Akureyri. í liði Akureyringa voru lang- beztir þeir Magnús Jónatansson og Kári, en hjá Keflvíkingum var það Magnús Torfason, sem var sívinnandi og reyndi að bygja upp sóknina. Sigurður Al- bertsson var sterkur í vörninni og Karl Hermannsson átti einnig nokkuð góðan leik. Dómari var Grétar Norðfjörð. — IFG. Bítlarnir óvinsælir Birmingham, Alabama, 7. ágúst (AP—NTB). ENN hafa „The Beatles", brezka bítlahljómsveitin heimskunna, fengið að gjalda ummælanna, sem einn úr hljómsveitinni viðhafði í síð- ustu viku um vinsældir þeirra og Jesús Krists. En John Lennon á að hafa sagt að „The Beatles“ væru vin- sælli en Kristur. Nýjustu ’ viðbrögðin við þessum ummælum eru frá Birmingham í Alabama, en þar á að mölva niður mörg hundruð plötur með bítlun- um, í stórri tréslípivél, sem borgarstjórnin á. En einn af leiðtogum ofstækissamtak- anna Ku Klux Klan í Birm- ingham hefur sagt að komm- únistar hafi heilaþvegið bítlana. Þegar búið verður að mölva niður plöturnar, verð- ur brotunum safnáð saman í skrín, sem afhent verður bítl unum við komu þeirra til Memphis í Tennessee hinn 19. þ.m., en þar eiga þeir þá að halda hljómleika. Þegar kunnugt var um ummæli Lennons, hófu útvarpsstarfs- menn í Birmingham herferð gegn þeim, og létu koma upp 14 söfnunarstöðvum fyrir bítlaplötur víðsvegar f* borg- inni. Segja þeir að fjöldi ung- menna hafi orðið við áskor- uninni um að afhenda plötur sínar til eyðileggingar. Einn- ig hefur bítlabókum og plöt- um verið varpað á bálkesti víða í Birmingham, þar sem íbúðarnir eru vanari brenn- andi krossum Ku Klux Klan. „The Beatles“ eiga að leggja af stað í hljómleikaför um Bandaríkin á föstudag, en Ibandarískur öldungadeildar- þingmaður hefur lýst því yfir að hann muni reyna að koma því til leiðar að hljómsveit- inni verði bannað að koma fram, að minnsta kosti í einu ríki. Það er ekki eingöngu I Bandaríkjunum, sem guðlast bítlanna hefur vakið gremju. Þrjár útvarpsstöðvar á Spáni hafa bannað útsendingar á lög um bítlanna þar til Lennon hefur opinberlega dregið um mæli sín til baka. Fjölþættara atvinnu- líf á Siglufirði EINS og greint hefur verið frá hér í blaðinu hefur tekizt sam- starf Sjálfstæðisflokksins, Al- þýðuflokksins og Framsóknar- flokksins á Siglufirði um stjórn bæjarmála. Sigluf jarðar, kjör- imabilið 1966-70. Hér fer á eftir stefnuyfirlýsing flokkanna: „Bæjarfulltrúar greindra flokka telja að meginverkefni bæjarstjórnar Siglufjarðar kjör- tímabilið 1966-1970 felist í eftir- farandi: 1) Að stuðla að atvinnuöryggi og fjölþættara atvinnulífi hér, í náinni samvinnu við viðkom- andi stjórnarvöld, á grundvelli þeirra möguleika, sem Fram- kvæmdaáætlun Norðurlands skapar. Höfuðáherzlu beri í því sambandi að leggja á aukna út- gerð, vinnslu og fullnýtingu sjáv arafurða s.s. lýsisherzlustöð og frekari niðurl. síldar, aukinn iðn að, — sérstaklega þjónustuiðnað við sjávarútveginn s.s. dráttar- braut, skipasmíðastöð o.fl., sem og ýmis konar þjónustuiðnað við nærliggjandi sveitir ■ Austur- Skagafjarðar, sem á ýmsan hátt eiga hagsmunalega samleið með Siglufirði. 2) Að vinna að traustari og ár- vissari tekjustofnum bæjarfélags ins, m.a. með því að vinna að breytingu á tekjustofnalögum sveitarfélaga, er skapi meiri jöfnuð skattborgaranna — án til lits til sveitfestis — og fyrir- tækja án tillits til rekstrarforms — gagnvart opinberum álögum, — og útiloki jafnframt, eða mildi verulega, skilyrði um stór hækkuð útsvör frá gildandi út- svarsstiga hjá þeim byggðarlög- um, sem af óviðráðanlegum ástæðum þurfa að sækja um aukaframlag úr Jöfnunarsjóði. 3) Að koma í höfn þeim áföng um í samgöngumálum kaupstað arins, sem nú er að unnið, og tryggja öruggar og góðar sam- göngur við Siglufjörð. 4) Að endurbyggja eða vinna að varanlegri viðgerð Öldu- brjóts, að bæta útgerðaraðstöðu hér og vinna Innri-höfnina í áföngum. 5) Að halda áfram að stein- steypa þær götur, er tilheyra innanbæjarþjóðvegum, að gera tilraun með olíumöl og nota- gildi hennar í gatnagerð innan- bæjar og leggja áherzlu á grjót- mölun til ofaníburðar í götur bæjarins. 6) Að vinna að endurnýjun vatnsveitukerfis bæjarins, og stuðla að frekari borun eftir heitu vatni í Skútudal, með varmaveitu sem markmið, í framhaldi af niðurstöðum at- hugana Vermis s.f. 7) Að hraða endanlegu skipu- lagi kaupstaðarins, að hafa jafn an tiltækar nokkrar hentugar byggingarlóðir og stuðla að nýt ingu þeirra möguleika í íbúðar- byggingum, sem ýmis konar lög gjöf skapar nú orðið. 8) Að efla aðstöðu æskunnar til menntunar og hollrar tóm- stundaiðju, að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana, að fullgera Sjúkrahúsið á þessu ári, að vinna að tilkomu Félagsheimilis og bæta aðstöðu í félags-, heil- brigðis-, meningar- og íþrótta- málum. 9) Að stuðla að hagkvæmni í rekstri bæjarins og bjóða út öll meiriháttar verk, sem kaupstað- urinn eða fyrirtæki hans hafa með höndum hverju sinni, og kanna möguleika á ráðningu verkfræðings eða tæknifræðings í samstarfi við eitt eða fleiri bæjarfélög í nágrenninu. Siglufirði, 2. ágúst 1966“. — Ungtempl. Framhald af bls. 17. útvarpi og blöðum þakkað fyrir ágætan fréttaflutning frá mót- inu. Að sjálfsögðu eru forvígis- menn íslenzkra ungtemplara innilega þakklátir öllum bæði einstaklingum og stofnunum fyr ir störf og fórnarlund, svo að allt gæti orðið svo ánægjulegt sem raun bar vitni um. — Þama unhu allir samtaka í mörgum nefnd- um, en hitt fólkið var einnig margt, sem lagði hönd og hug sem gengu um heima til beinnar þjónustu, og til þeirra, sem sungu, að verki allt frá þeim, léku, dönsuðu og fluttu ræður og skreyttu salinn í nýju Templara- höllinni við Eiríksgötu með lista verkum til yndis fyrir gestina. Heill þeim, sem styðja heilla vænlegt félagslíf íslenzkrar æsku. Reykjavík, 28. júlí 1966. Árelíus Nielsson. -*

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.