Morgunblaðið - 09.08.1966, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.08.1966, Blaðsíða 12
12 MORCU NBLAÐIÐ frífljuíagur #. ágðst 1966 Miklar umræður um verðlagsmálin á aðalfundi Stéttarsambands bænda Skiptar skoðanir um giídi sölustöðvunar á mfólk Formanni héraðsnefndanna veittur 20 mín. rœðutími á fundinum AÐALFUNDUR Stéttarsam- bands bænda var settur í gær morgun í Bændahöllinni. — Fundarstjóri var kjörinn Bjarni Halldórsson frá Upp- sölum í Skagafirði en fundar ritarar þeir Guðmundur Ingi Kristjánsson og Einar Hall- dórsson. Allmargir gestir voru á fundinum, meðal þeirra Ingólfur Jónsson ráð- herra. Gunnar Guðbjartsson, formað ur sambandsins flutti ýtarlega yfirlitsræðu um gang mála frá síðasta aðalfundi. Kvaðst hann þó ekki ræða mikið sjálf verð- lagsmálin þar sem þau kæmu greinilega fram í ýtarlegri skýrslu Framleiðsluráðs, sem fram var lögð á fundinum. Þá gerði Kristján Karlsson grein fyrir tillögum síðasta aðalfundar og hverja meðferð þær höfðu fengið. Formaður Stéttarsambandsins ræddi í upphafi máls síns gang mála í sambandi við tilkomu bráðabirgðalaga þeirra er land- búnaðarráðherra gaf út um verð lagninguna sl. haust og allan undirbúning að setningu nýrra framleiðsluráðslaga, sem stjórn stéttarsahibandsins hafði af- skipti af, eða fulltrúar hennar í nefnd þeirri, er undirbjuggu samningu lagafrumvarpsins. Var greinargerð formanns um það mál mjög ýtarleg. Að lokum kvaðst hann hafa grun um að hin nýju framleiðsluráðslög stæðu ekki lengi og kvað til þess liggja orsakir, er hann ræddi ekki að sinni. Formaður kvað meginhluta starfstíinans sl. vetur hafa far- ið í undirbúning lagasetningar- innar , en þó hefði meira og minna allan sl. vetur verið fjall- að um vandamál er lágu íyrir Framleiðsluráði og tíðræddast hefir orðið um í sumar meðal bænda vegna ákvörðunar Fram leiðsluráðs um innvigtunargjald o.fl. Eftir gerð söluáætlunar iand búnaðarvara á yfirstandandi verðlagsári kom í Ijós að vanta myndi 70—80 milljónir króna að verðlagsgrundvallarverð myndi nást og auk þess myndu halda áfram að hlaðast upp smjör- •birgðir. Orsakir þess ástands sagði formaður aðallega tvær, aukningu innveginnar mjólkur i mjólkurbú um 30 milljón kg. á sl. 5 árum, en neyzluaukningu aðeins 6 milljón lítra og í ann- an stað stórhækkun framlsiðshi kostnaðarverðs innan Iands. Síð an rakti hann viðbrögð Fram- leiðsluráðs við þessum vanda og skýrði hið alvarlega ástand mál- anna, sem leiddu til lokaákvörð unar um innvigtunargjaldið o.fl. Næst ræddi formaður nauðsyn stjórnar á framleiðslunni og sagði stjórn Stéttarsambandsins hafa rætt oft við landbúnaðar- ráðherra um það mál og hefði hann sagzt fús til samstarfs um leiðir til frambúðarlausnar á vandanum og óskað eftir tillög- um. í>á drap Gunnar Guðbjartsson á héraðsnefndirnar svonefndu og störf þeirra og kvaðst hann leggja áherzlu á að bændur yrðu að halda kjarabaráttunni innan rétts vettvangs og reka hana á félagslegan hátt. Hann kvað það ekki gott fyrir samtök in, að þótt menn greindi á um leiðir að takmarki því sem að væri keppt, væru til hópar inn- an stéttarinnar, sem í nafni stétt arinnar útvörpuðu samþykktum, sem fælu í sér beint eða óbeint vantraust á forystu stéttarsam- takanna, eins og gert hefði ver- ið í vor og sumar. Ræddi hann þessi mál nokkuð frekar og kvað nauðsyn á endurskoðun félagslaganna með tilliti til reynslu, sem fengin er í starfi. Að síðustu drap formaður á hvað framundan væri í verðlags málum og sagði í því sambandi að útflutningshallinn yrði vænt anlega tatsvert minni en áætlað var í vetur og vor, vegna minni mjólkurframleiðslu síðustu mán uði. í júní hefði hún verið 5,6% minni en í fyrra og í júlí 4,9% minni. Gerði þetta að verkum að minna mvndi var.ta á grundvall arverðið. Smjörsalan hefði orðið 223 tonnum meiri það sem af er árinu og framleiðsla smjörs 300 tonnum minni og birgðir ekki vaxið nú um sumartímann. Þetta væri beinn árangúr ákvörðunar Framleiðsluráðs. Þetta gæfi von um að smjörfjallið minnkaði. Einnig mætti búast við minni mjólk í haust vegna minni græn fóðurræktunar og kæmi þá mjög til álita að hækka útborgunar- verð til bænda. Þá væri sauðfé með langmesta móti á fjalli og mætti gera ráð fyrir miklu meiri slátrun í hnust en nokkru sinni áður, líka yrði nautgripaslátrun meiri. Hann taldi að flytja yrði út allmikið nautgripakjöt fyrir lágt verð. Ameríkumarkaður væri lokaður fyrir kjötvörur vegna úrskurðar heilbrigðisyfir- valda þar, sem telja heilbrigðis- skoðun í sláturhúsum hér ófull- komna ásamt fleiri annmörkum. Hann kvað lítið iiggja fyrir um komandi vcrðl&gssamninga og ekkert hægt að segja um þá á þessu stigi. Verðþensla væri mik il í landiuu og kaupgjald hefði hækkað allt verflagsárið. Að lokum sagði Gunnar Guð bjartsson að verðbólgan væri I geigvænleg og ekki óeðlilegt að stjórnarvöldin reyndu að spyrna þar við fótum, stjórn stéttar- sambandsins myndi gera allt sem í hennar valdí stæði til að halda hlut stéttarinnar til jafns við aðr ar stéttir. Hann sagði enga ástæðu til neinnar sérstakrar svartsýni fyr ir bændastéttina, vegna þeirra tímabundnu erfiðleika, sem nú væri við að eiga. Hann kvað stétt ina gegna þýðingarmiklu hlut- verki, sem ekki væri hægt án að vera. Loks þakkaði hann samstarfs- mönnum og óskaði samtökunum og landbúnaðinum velfarnaðar um alla framtíð og að fundur þessi mætti vinna vel að heill bændas téttarin n ar. Þá talaði Kristján Karlsson um tillögur síðasta fundar, en fund- arhlé var gefið til kl. 2 e. h. en þá talaði fyrst Sveinn Tryggva- son framkvæmdastjóri Fram- leiðsluráðs og benti á ýmislegt í fari landbúnaðarskipunar ná- grannalandanna, en taldi var- hugavert að bera okkur of mikið saman við þau vegna sérstöðu okkar. Hann taldi ekki fært að tryggja bændum launajafnrétti við aðrar stéttir gegnum verð- lagið eitt. 1 lok máls síns benti hann á leiðir sem hægt væri að fara til tryggingar launajafnrétt- is stéttarinnar, en þær yrðu að athugast vel, en sjálfsagt væru ekki þeir stórerfiðleikar á fram- kvæmdum a. m. k. sumra þeirra, að þá mætti takast að yfirstíga. Þorsteinn Sigurðsson formaður Búnaðarfélags Íslands flutti á- varp sem gestur fundarins svo sem venja er til. Hann ræddi um hina miklu byltingu í þjóðfélag- inu og sennilega hefði bændum í landinu aldrei liðið betur en nú. Þá drap hann á hina almennu kröfugerð í landinu og iþörfina fyrir að spyrna við fótum gegn þessari miklu kröfugerð. Síðan drap hann á sölustöðvun, sem hann taldi ekki færa nema í al- gerri neyð og að sú neyð væri ekki fyrir hendi í landinu í dag. Spurði síðan hvert væri mark- miðið með sölustöðvun, hvort það ætti að vera til að knýja ríkis- stjórnina til að'auka útflutnings- uppbæturnar og hvort þetta væri þá rétti tíminn til þess. Hann kvaðst lýsa því yfir að hann væri á móti því að knýja fram sölu- stöðvun á mjólk t. d. gæti höfuð- borgin lengi lifað án mjólkur og því vafasamara um árangur en vígreifir menn vildu vera láta. Þorsteinn kvaðst aldrei hafa ver- ið hræddur við hina svonefndu offramleiðslu. Við höfum undan- farið lifað góðæri og hann kvaðst heldur vilja fá ofurlítið minna fyrir sína vöru í góðæri en búa við slæmt árferði. Loks kvað for- maður Búnaðarfélags íslands Selfossfundinn hafa verið merki legan fyrir hve fjölmennur hann var og samstilltur, en fyrir ann- að hefði hann ekki verið merki- legur. Þessu næst ræddi Gunnar Guð bjartsson um það hvort fundur- inn vildi veita formanni héraðs- nefndanna svonefndu, Stefáni Valgeirssyni frá Auðbrekku, heimild til að taka til máls á fundinum og tala í 15-20 mín með takmörkuðum svartíma. Helgi Simonarson bar fram til- lagu um að hann fengi algert málfrelsi á fundinum. Sú tillaga var felld með 19 atkvæðum gegn 17, en tillaga um að Stefán fengi. að tala í 20 mínútur var sam- þykkt samhljóða. Þessu næst hófust miklar um- ræður er stóðu langt fram á kvöld. Meginþorri fundarmanna kvað innvigtunargjaldið hafa skapað bændum mikinn vanda, sem leysa þyrfti, sumir töldu rétt að afla heimildar til sölu- stöðvunar, en aðrir mæltu gegn því m.a. formaður sambandsins, sem taldi það myndi spilla fyrir NORRÆNA ungtemplaramót- inu í Reykjavík er nú fyrir nokkru lokið. Þessi hópur glað- værs fólks setti einhvern hlýjan sumarsvip á borgina meðan það gekk hér um götur. Það er óneit anlega annar blær, sem ungt bindindisfólk setur yfir um- hverfi sitt og gleðimót en óftast er hjá öðrum, sem hafa áfengi með í ferðum. íslenzkt æskufólk gæti sannarlega tekið norrænu gestina sér til fyrirmyndar um háttvísi og heilnæma gleði. En hinu má heldur ekki gleyma, að mikinn undirbúning þurfti að inna af höndum, svo að mót þetta mætti vel takast. Það var unga, islenzka bindindis fólkið, sem vann að skipulagn- ingu og framkvæmd að mestu leyti og sýndi þar trúmennsky, hugkvæmni og félagsþroska af mikilli snilld. En þannig er allt- af með íslenzka æsku, þegar hún fær að njóta sín, og er gott að mnnast ungmennamótsins á Laugarvatni í fyrra. Og nú var hér annað í borginni með sama sniði, og má því segja, að sigur- vænlega horfi í félagsmálum æsk unnar, ef merkinu er hátt á lofti haldið. Hin ýmsu héruð úti á í samningagerð. Harðastir með- mælendur sölustöðvunar voru Helgi Símonarson Þverá í Svarf- aðardal, Hermóður Guðmunds- son Arnesi og Sveinn Jónsson á Egilsstöðum. Aðrir vildu fara varlega í þetta mál og var þar á meðal Guðjón Hallgrímsson á Marðarnúpi. Stefán Valgeirsson talaði til- skilinn ræðutíma sem honum var samþykktur og tók í upphafi fram að hann hefði ekki beðið persónulega um orð fyrir sig á fundinum heldur héraðsnefndin í heild. Hefði honum sjálfum verið næst skapi að taka alls ekki til máls. Kvaðst hann hafa hvað eftir annað orðið bæði undrandi og hryggur yfir um- mælum formanns í ræðu hans um störf héraðsnefndanna. Síð- an fylgdi hann eftir samþykkt fundarins, sem haldinn var hér á Sögu 19. og 20. júní s.l. Stefán kvaðst hafa vænzt skilti ings af hálfu Stéttarsambandsins, en svo hefði ekki orðið. Hann kvað rétt að minna á að aftur yrðu kosmngar til Stéttarsam- bandsþings og þá kynni öðru vísi að fara en nú. Þá kvaðst hann vonast til að þeir fulltrúar sem sæti ættu á þessu þingi og verið hefðu í samtökum héraðs- nefndanna, bæru gæfu til sam- stöðu við, aðra fundarmenn og ekki yrðu yfingar og flokkadrætt ir. Og loks að Stéttarsambandið bæri gæfu til að taka mannlega á þessum málum. Margir aðrir fulltrúar tóku til máls. Meðal þeirra var Sigur- grímur Jónsson í Holti er flutti tillögu um að fundinum skyldi frestað, að loknum meginstörf- um hans, fram í október þar til sæist hvernig tækist um samn- inga. Hann kvað ekki goðgá að fara fram á stuðning ríkisvalds- ins vegna þeirra framkvæmda er Framleiðsluráð varð að gripa til. í því samhandi kvaðst hann vilja bencia á litle þörf fyrir jarðabótastyrk á árinu, sem nota mætti í staðinn til bótagreiðslu, þá mætti fella niður framlagið til Stofnlánadeildarinnar í eitt ár og loks mætti kannski ekki nefna að fella niður í eitt ár framlagið til Bændahallarinnar. Því miður vinnst ekki rúm til að rekja n&kvæmar umræðurn- ar ,en þær voru yfirleitt hógvær ar. Fundi verður fram haldið kL 14 í dag og þá koma fyrir tillög- ur frá nefndum. sem munu starfa fyrir hádegi í dag. landi er nú þegar farin að efna til opinberra samtaka um vín- lausar skemmtisamkomur, en af nema þá skrílslegu dansleiki, sem um árabil hafa tíðkazt á sumum fegurstu og jafnvel helgustu stöðum landsins. Er það vel, ef æskan sjálf og samtök unga fólks ins geta þannig vakið þá, sem ráða til átaka í félagslegri menn- ingu. Eitt var sérstætt og benti fram til þess, sem koma skal í menn- ingarviðleitni þjóðarinnar, en það var þátttaka eða aðstoð ráð- andi manna í þessu móti nor- rænna ungtemplara. Þar töluðu meðal annars tveir ráðherrar og fluttu hvatningarorð til unga fóiksins. Norrænu gestirnir, sem hér voru á mótinu, voru afar þakk- látir fyrir þann velvilja og gest- risni, sem þeir urðu aðnjótandi. Á lokafundi þings samtaka Nor- rænna ungtemplara var gerð sam þykkt, þar sem látin er í ljós þökk til allra þeirra, sem gerðu þeim dvölina hér ánægjulega. Sérstakar þakkir eru færðar ráðamönnum ríkis og borgar og Framhald á bls. 27 . .. ........ .. Fulltrúar á aðalfundi Stéttarsambandsins í gær. — (Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.) Ungtemplaramótið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.