Morgunblaðið - 25.08.1966, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.08.1966, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 25. ágúst 1966 10 ÁÐUR en langt um líður kemur fyrir rétt í Berlín mál 43 ára manns, Walters Gúnt- hers að nafni, sem í tuttugu ár starfaði sem læknir, naut alþjóðlegrar virðingar fyrir færni í sérgrein sinni, elli- sjúkdómum og stóð fyrir smíði sjúkrahúss fyrir aldr- aða, sem þykir til fyrirmynd- ar um flesta hluti — án þess að hafa nokkru sinni stigið fæti í háskóla eða fengið réttindi til að stunda lækn- ingar. Slíkur virðingarmaður var maður þessi, að hann var kosin í borgarstjórn Berlínar og sjúklingar leituðu til hansÁ hvaðanæva úr heiminum, þar Margt kunnra manna og konungborinna leitaði aðstoðar Gúnthers Iæknis við ýmsu. mynd þessari má sjá með honum systur Iranskeisara, t.v. og prinsessu frá Thailandi (með gleraugun). Starfaði sem læknir í 20 ár réttindalaus — Naut mikillar virdingar sem sér- fræðingur og lét byggja fyrirmyndar sjúkrahús. Sat í borgarstjórn Berlinar á meðal heimskunnir stjóm- málamenn og konungborið fólk. í>að varð því uppi fótur og fit þegar árið 1964 uppgötvað ist, að Gúnther var maður próflaus og hafði aldrei stundað háskólanám og var ofan á allt fyrrverandi for- ingi í Hitlersjugend — æsku- lýðshreyfingu nazista. Gúnther varð til þess sjálf- ur að koma upp um allt sam- an er hann sótti um eftirlaun sem fyrrverandi hermaður. Sjálfur segist hann hafa gert sér fyllilega ljóst, að hann starfaði andstætt lögum, — en kveðst ekki hafa haft sam- vizkubit og ekki hafa enn, því að sér vitanlega hafi sér aldrei orðið á mistök í starfi. Mun það einsdæmi, að maður nái svo góðum árangri og almennri og alþjóðlegri viðurkenningu sem Gúnther, undir slíkum kringumstæð- um. Hann hefur þótt prýddur öllum kostum góðs læknis — nema prófinu. Walther Gúnther segir sögu sína á þessa leið: „Ég óit upp í mikilli fá- tækt og var ungur að árum, er foreldrar mínir skildu. Móðir mín varð að vinna fyr- ir heimilinu en frænka mín og amma sáu um mig. Við bjuggum í Erzgebirge í nám- unda við iandamæri Tékkó- slóvakíu. Gagnfræðanám stundaði ég í nágrenni tékkn- eska bæjarins Bilin, þar til 1939, er Hitler gerði innrás í Prag. Þeir fullorðu, sem ég umgekkst voru mjög ánægðir og mér þótti sjálfsagt að vera það líka. Við fengum nú allt í einu nóg að borða og gát- um auk þess keypt okkur út- varp. Mér fannst sjálfsagt að ganga í Hitlersjugend og varð þar æskulýðsforingi, áður en langt um leið. Árið 1941 var ég sendur með hersveitum til Frakk- lands og síðan til Rússlands, þar sem ég var, þar til fætur mína kól. Missti ég hægri fót- inn alveg og þann vinstri upp að kné. Mánuðum saman lá ég á herspítala, áður en ég gat farið að hökta um á hækjum. Var ég þá aftur sendur til starfa í æskulýðs- hreyfingunni. Um það bil er stríðinu lauk, var ég í Karlsbad. Og þegar Rússarnir komu, hófst æfin- Sjúkrahúsið, sem Walther Gúnther lét reisa Fullkomnasta sjúkrahús, sem reist hefur verið fólk. í Neuköln. fyrir aldrað Hjónin Erika Brúning og Walther Gúnther týramennska mín. Ég var fangelsaður og sætti pynding- um og misþyrmingum, eins og samfangar mínir. En þegar færi gafzt reyndi ég að binda sár okkar og gera að meiðsl- um. Síðar var ég fluttur i aðrar fangabúðir og þá kom æ meira í minn hlut að starfa sem fangelsislæknir, því skki var annars völ. Ýmislegt hafði ég líka lært af því, sem ég sá, meðan ég lá á hersjúkra- húsinu. í fangabúðunum eignaðist ég kunningja, sem sagði við við mig. „Þegar þú kemst héðan skaltu snúa þér til fjölskyldunnar Sanders í Gohfeld í Norðvestur-Þýzka- landi. Það gerði ég og fékk þá — sem fyrrverandi lækn- ir í herbúðum — starf hjá dr. Stempel nokkrum, sem rak fæðingarspítala í Goh- feld. Þar var ég viðstaddur 270 fæðingar og gerði ýmsa uppskurði og aðgerðir, fyrst með dr. Stempel eða un^ir hans eftirliti en síðan einn. Síðan gekk allt eins og í sögu. Næst fékk ég stöðu við héraðssjúkrahúsið í Olden- borg — en aðeins um hr>ð, því að ég hafði engin skír- teini. Þar lærði ég þó margt, og notaði hverja stund, er gafst til að lesa læknisfræði- rit og tímarit. Möhwald yfirlæknir varð góður vinur minn og ég skýrði honum frá því, að ég hefði engin skírteini sem læknir. Svo vildi til, að hann hafði verið á herspítalanum í Prag um svipað leyti og ég lá þar og minntist þess oð hafa hitt þar læknisfræði- stúdent að nafni Gúnther. Hélt hann að ég væri sá og útvegaði mér skírteini hans. Ég vissi auðvitað sjálfur, að þetta var ekki rétt, en lét sem ekkert væri. Nokkuð þótti mér þó langt gengið árið 1948, þegar skólalæknir- inn í Frankfurt an der Oder var handtekinn, af því að hann hafði ekki lækninga- leyfi, og ég var skipaður i staðinn. í nóvember 1950 flýði ég til Vestur-Berlínar og varð árið 1951 yfirlæknir í sjúkra- húsinu í Neuköln“. Þar hefur Gúnther starfað síðan. Og ekki nóg með það. Hann hefur látið reisa nýtt og veglegt sjúkrahús, sem var vígt 1. desember 1964, skömmu áður en upp komst um Gúnther. Þykir sjúkrahús ið til fyrirmyndar um flesta hluti, er lúta að meðferð og hjúkrun aldraðs fólks. Sem fyr segir, var Gúnt- her kunnur maður. Er haft eftir danska yfirlækninum Torben Geill, sem er sér- fræðingur í meðferð aldr- aðra, að Gúnther sé vingjarn legur maður og aðlaðandi og mjög áhugasamur um starf sitt. Geill hafði heyrt Gúnt- her halda fyrirlestur á lækna þingi fyrir nokkrum árum — mjög merkilegan fyrirlestur um endurhæfingu aldraðra. Vakti fyrirlesturinn almenna athygli en Geill yfirlæknir minnist þess, að hann hafði verið þess eðlis, að vel lærð- ur þjálfari hefði getað samið hann. Kvaðst Geill furðu lostinn yfir því, að maðurinn skyldi geta stundað lækning- ar öll þessi ár, próflaus. Og fleiri munu hafa orðið undrandi en Geill. Kona Gúnthers — söngkonan Erika Brúning — átti sér einskis ills von, hún hafði ekki hug- mynd um stöðu manns síns. Hún hefur hinsvegar staðið við hlið hans og lýst því yfir að hún hafi ekki gifzt embættisprófi, heldur góð- um manni, er hún meti mik- ils. Möðruvallamálið í Morgunblaðinu frá 6. þ.m. er birt grein undirrituð af þeim Steini Snorrasyni og Eggert Davíðssyni, sem ber yfirskrift- ina: „Um lýðræði í prestkosn- ingum og Möðruvallamál hin nýju“. Virðist grein þessi eiga að vera einskonar svar við grein er ég reit í Dag 9. júlí sl. og nokkru síðar var endur- prentuð í Tímanum. Þeir hefja mál sitt á því, að enginn (og þá auðvitað ekki þeir sjálfir) muni efast um að mér gangi gott eit til að reyna að bera í bætifláka fyrir séra Ágústi Sigurðssyni. Ég þakka þetta hrós. En úr þvi mér geng ur gott eitt til, hvað gengur þeim þá til? Varla það sama og mér, svo ólík sem sjónar- mið mín og þeirra eru í í þessu máli. Þeir segja að mér muni málavextir naumast svo kunn- ir, að ég geti um þetta mál dæmt af skynsemi og því séu vangaveltur mínar um lýðræði í þessu sambandi út í hött. Bæði af þessum orðum þeirra og eins af hinni stóru fyrirsögn grein- ar þeirra skyldi maður ætla, að þeir hefðu þá einhverja nýja fræðslu um lýðræði að flytja. Svo er þó ekki, heldur ganga þeir framhjá því atriði í grein- inni. Ég er enn þeirrar skoðunar, sem ég lét í ljós í grein minni í Degi, að lýðræði sé það að meirhlutinn ráði og það er ó- mótmælanleg staðreynd, að meirihluti greiddra atkvæða féllu á séra Ágúst í prestskosn- ingunum og að hann var kos- inn löglegri kosningu. Tvimenn- ingarnir segja að ég slái þessu föstu í Dagsgreininni og draga í efa að rétt sé. Ég hafði þetta aðeins eftir blöðum og útvarpi og þeir aðilar beint frá herra biskupinum eða a.m.k. skrif- stofu hans. Ég hygg að slíku megi treysta. Ég nenni ekki að fást við smá vegis sparðatíning í Morgun- blaðsgrein þeira Steins og Egg- erts, eins og það að mér muni finnast það ofsókn á séra Agúst að maður sótti á móti honum. Það er einmitt eðli lýðræðis- ins að hver sá sem rétt hefir til má bjóða sig fram til starfa og kjósendur kjósa hvern fram- bjóðanda sem þeir vilja. En róg burður og ærumeiðingar um frambjóðanda eru bæði óleyfileg ur kosningaáróður og ofsóknir, að ég nú ekki tali um þegar baráttan gegn honum er líka látin bitna á nánustu vanda- mönnum hans. Það er nokkuð margir sem telja að séra Agúst hafi orðið fyrir ofsóknum í sam bandi við prestkosninguna: 207 kjósendur í prestakallinu hafa skriflega lýst yfir undrun sinni og hryggð yfir þeim ofsóknum sem séra Ágúst hefur orðið fyr- ir og fjölskylda hans. Margir þeirra sem þetta segja eru kunn ugir málavöxtum. Þeir Steinn og Eggert hyggj- ast afsanna orð mín um, að það sem ég hafi heyrt um efni kærunnar væri hégóminn ein- ber með því að segja: „Þar sem saksóknari ríkisins eða fulltrúi hans hefir nú fyrirskipað rann- sókn í málinu, virðist hann ekki vera eins viss um þetta og Bern harð, annars hefði hann látið málið niður falla.“. Þeir ættu þó að vitað, að þó kæra sé tekin til rannsóknar felst alls enginn dómur um sekt eða sýknun í því. f réttarríkjum kveða dóm arar engan dóm upp fyrr en rannsókn er lokið og ekki heldur úrskurð um það hvort mál skuli Framhald á bls. 21

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.