Morgunblaðið - 25.08.1966, Blaðsíða 26
•r> vnwwlvwibMi/atr
x-iiiijjituuagm z.o. agust ii*öt>
Veður spillti al-
þjdöiega mdtinu
ÞÁTTTAKENDUR frá þremur
löndum voru á „aukamóti“ í
frjálsum íþróttum í Laugardal í
fyrrakvöld. Veðurguðirnir lögðu
siður en svo blessun sína yfir
þetta „alþjóðlega" mót, eins og
mót með slíkri þátttöku yrði t. d.
kallað á Norðurlöndum.
Veðurskilyrði settu sinn svip
á mótið en þrátt fyrir þau náðist
dágóður árangur í ýmsum rgein-
am.
Hlaupararnir urðu mest að
gjalda veðursins. Kanada-
maðurinn Van der Waal setti
kanadískt met í 1500 m hindrun-
arhlaupi á 4:17.4 og var fyrir-
fram öruggt um met þar sem
vegalengdin hefur ekki verið
hlaupin af þarlendum mönnum.
Halldóri Guðbjörnssyni tókst
ekki að veita honum neina
keppni, fékk 4:20.8.
Þorsteinn Þorsteinsson KR náði
51.6 í 400 m hlaupi. í 100 m
hlaupi sigraði Halldóra Helga-
dóttir á 14.1 en Barbara Hemm-
elskamp frá A-Þýzkalandi hljóp
á 14.9.
Snorri Ásgeirsson ÍR sigraði í
tveim hlaupargeinum sveina,
vann 100 m á 13.0 og 200 m á
26.4 sek.
Hástökkið var „aðalgrein“
mótsirxs Því þar mættust Austur-
Þjóðverjinn J. Kirst sem á bezt
2.09 m og Jón Þ. Ólafsson. Þjóð-
verjinn gat lítið aðhafst við veð-
uraðstæðurnar og fór ekki
hærra en 1.90. Jón Þ. ólafsson ÍR
vann því létt og auðveldlega og
notaði gamla lagið — „saxstílinn"
— og stökk þannig 2 m.
í köstunum var árangur góður
á isl mælikvarða. Þorsteinn Al-
freðsson frá Breiðabliki vann
með 49,18 en annar varð Þor-
steinn Löwe með 47,02 og Jón Þ.
Ólafsson þriðji með 45,96.
í kúluvarpi sigraði Guðmund-
ur Hermannsson, varpaði 16,22.
Langstökkið varð jafnasta
keppnin. Þar sigraði Úlfar Teits-
son KR með 6,85 m, 2. ólafur
Guðmundsson 6,72 og 3. Kjartan
Guðjónsson ÍR 6,64.
• ~ "i" ii» — i
Systurnar
verða aí
gullunum
Sovézku systurnar frægu
Tamara og Irena Press verða
ekki meðal þátttakenda á EM
í frjálsíþróttum, sem hefst í
Budapest í næstu viku. Hafa
þær forfallazt á siðustu stund
Tamara Press á heimsmet-
in í kringlukasti og kúluvarpi
var talin örugg um Evrópu-
meistaratitil í þeim greinum
og systir hennar Irena, sem
á heimsmetin í 80 m. grinda-
hlaupi og fimmtarþraut, var
talin viss um sigur í þeim
greinum.
Þriðja sovézka stúlkan T.
Schelkanova, fyrrum heims-
methafi í langstökki, verður
heldur ekki með vegna
meiðsla á fætL
Dágóður árangur samt
KR getur unnið 1.
deild á 12 stigum
Íróttasíðunni barst eftirfarandi
bréf í gær:
Herra ritstjóri.
Á Íþróttasíðunni í dag, mið-
vikudag, er sagt, að „KR, Akur-
nesingar og Þróttarar reki lest-
ina og hafi misst af sigurmögu-
leiknum“ í 1. deild íslandsmóts-
ins í knattspyrnu.
Það er rétt, Þróttur hefur
misst af strætisvagninum og litl
ar líkur til að KR og Akranesi
takist að sigra, en það er alls
ekki útilokað — og „allt getur
gerzt í knattspyrnu“.
Sá hugsanlegi möguleiki er
enn fyrir hendi, að 5 félög verði
jöfn með 11 stig, eða þá að 4
félög verði jöfn með 12 stig. Og
til að kóróna allt saman getur
KR hreinlega sigrað í mótinu
með 12 stigum.
Segja má að heldur ólíklegt sé
að slík ,,taflstaða“ komi upp í
lokin, en knattspyrnan er óút-
reiknanleg og einmitt það á svo
mikinn þátt í því að gera hana
skemmtilega. (Innan sviga má
t.d. benda á, að Fram, sem vann
Víking samanlagt 20:0 í tveimur
leikum, tapaði þeim þriðja 0:1).
★
Við þökkum bréfritaranum
bréíið og leiðréttum fúslega mis
tökin. Gleðjumst aðeins yfir að
við búum við svo jafnt íslands-
mót að félag sem er í 4. sæti
þegar 2 umferðum er ólokið geti
sigrað. Möguleikarnir eru sem
sagt enn fleiri en við reiknuð-
um með í gær.
heimsmet
um 17 sek.
MIKE Burton, 19 ára gamall
skólanemi bandarískur, kem-
ur hér að marki eftir 1500 m.
skriðsund sl. sunnudag, en
þar bætti hann gildandi
heimsmet um heilar 17 sek-
úndur. Hann er einn í hópi
þeirra er slegið hafa neims-
metin á bandaríska sund-
meistaramótinu. Tími Burt-
ons var 16.41.6 — og hafa
framfarirnar á þessari vega-
lengd verið ótrúlega stórstíg-
ar. Fyrrum methafi var annar
í sundinu — en hann varð að
sjá af mettitliuum þótt hann
synti á 7 min. skemmri tima
en heimsmetstimi hans var.
I
Sænska knattspyrnusam-
bandið hefur ákveðið að u.a
þátt í Evrópukeppni ungh..áa
í knattspyrnu, sem háð Vci u ur
i Tyrklandi 5—13 maí 1967.
Þorsteinn Alfreðsson kastar
kringlunni.
Ensko
knnttspyrnan
ÚRSLIT í 1. deild ensku
deildarkeppninnar á mánudag
og þriðjudag:
Aston Villa — Sheffield W. 0-1
Blackpool — Leicester City 1-1
Arsenal — West Ham Utd. 2-1
Burnley — Fulham 3-0
Everton — Manchester Utd. 1-2
Sheffield U. — Newcastle 0-1
2. deild
Bristol C. —Crystal Palace 0-1
Carlisle Utd. Derby C. 0-0
Ipswich — Huddersfield Tn. 3-0
SYIMDIÐ
200metrana
Halldóra Helgadóttir sigrar þá austur-þýzku í 100 m. hlaupi.
Góður árangur á
móti UMSE og HSÞ
TVÖ AF stærstu og öflugustu
héraðssamböndum Norðurlands
UMS Eyjafjarðar og Héraðssamb.
Suður-Þingeyinga háðu keppni
í frjálsum íþróttum á leikvangin-
um að Laugalandi s.l. laugardag.
Sá UMSE um mótið en móts-
stjóri var Halldór Gunnarsson.
Góður árangur náðist í ýmsum
greinum m.a. stókk Sigrún
Sæmundsdóttir HSÞ 1.48 i há-
stökki. Sigurvegarar urðu.
KARLAGREINAR:
100 m. hlaup. Haukur Ingi-
bergsson HSÞ 11,2 sek.
400 m. hlaup, Gunnar Krist-
insson HSÞ 53,3 sek.
1500 m. hlaup. Gunnar Krist-
insson HSÞ 4.28.8 min.
4x100 m. boðhlaup. Sveit
UMSE 46,5 sek.
Kúluvarp. Guðmundur Hall-
grímsson HSÞ 13,82 m.
Kringlukast. Guðmundur Hall-
grímsson HSÞ 42,15 m.
Spjótkast. Jóhann Jónsson
UMSE 41.16 m.
Langstökk. Friðrik Friðbjörns-
son, UMSE 6,27 m.
Stangarstökk. Sigurður Friðr-
iksson HSÞ 3.00 m.
Þristökk. Sigurður Sigmuisds-
son UMSE 13,20 m.
Hástökk. Haukur Ingibergsson
HSÞ 1,70 m.
KVENNAGREINAR:
100 m. hlaup. Lilja Sigurðar-
dóttir HSÞ 13.2 sek.
i'ramh&ld a bis. 27