Morgunblaðið - 15.09.1966, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.09.1966, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ' Fímmtudagur 15. sept. 1961 Nýir söluskilmálar olíufélaganna í meira en tvo áratugi hefur álagning á vörur þær, sem olíufélögin selja verið áltveðin af verð- lagsyfirvöldum. Segja má, að allan þann tíma hafi álagning á fuelolíu, gasolíu og bílabenzín verið þannig ákveðin, að hún hafi tæplega staðið undir kostnaði við innflutning og dreifingu á þessum vörum, hvað þá, að sala þeirra skilaði eðlilegum hagnaði. Fjármagnsþörf olíufélag- anna, til þess að standa undir aukinni sölu og vegna þynningar gialdmiðilsins hcfur hins veg- ar, svo sem augljóst má vera. aukizt ár frá ári. Stcfna verðlagsyfirvalda hefur því óhjákvæmilega leitt til þess, að olíufélögin hafa stöðugt orðið að leita til viðskiptabanka sinna um aukin lán til þess að standa undir auknum innflutningi og hækkandi kostnaði. Viðskiptabankarnir hafa eðiilega talið þessa þróun bæði óæskilega og hættu- lega. Af þessum ástæðum var svo komið í júlímánuði sl., að viðskiptabankar olíufélaganna synjuðu um opnun ábyrgða fyrir olíuförmum frá Rússlandi, og hélzt það ástand fram yfir miðian ágústmán- uð, en á því tímabili höfðu útflytjendur í Rússlandi sent þrjá olíufarma til félaganna, án þess að ábyrgðir væru opnaðar fyrir þeim samkvæmt gildandi samningum við Rússa, sem olíufélögin hafa tekið að sér að framkvæma í umboði ríkisst jórnarinnar sein samningsaðila gagnvart hinum rússnesku útflytjendum. Til þess að koma í veg fyrir að olíuinnflutningur stöðvaðist, féllust bankarnir loks á, að opna nauð synlegar ábyrgðir, gegn því skilyrði, að olíufélögin tækju upp nýja hætti, að því er varðar útlán og innheimtu. I samræmi við þetta hefur nú ver ið ákveðið, að taka upp í allri ohusölu staðgreiðsu viðskipti, að svo miklu leyti sem mögulegt er. Til þess að hvetja til staðgreiðsluviðskipta hafa verðlagsyfirvöld heimilað olíufélögunum að taka sérstakt aukagjald, ef viðskipti eru ekki stað- greidd. Samkvæmt þessu gilda eftirfarandi reglur frá 1. október nk.: 1. Öll smásala frá benzínstöðvum skal fara fram gegn staðgreiðslu. Ef um félög eða firmu er að ræða, sem hafa minnst 5 bíla eða tæki, er heimilt að selia gegn mánaðarviðskipt- um, enda sé greitt aukagjald, kr. 25,00 fyrir hverja afgreiðslu, vegna vinnu við bókhald og innheimtu. 2. Öll sala til húsakyndinga skal fara fram gegn staðgreiðslu. Ef viðskiptamaður af ein- hverjum ástæðum greiðir ekkí við afhendingu vörunnar skal reikna sérstakt aukagjald, kr. 100,00, fyrir hverja afhenaingu, vegna vinnu við bókhald og innheimtu. 3. Önnur vörusala olíufélaganna beint til notenda skal að jafnaði vera gegn staðgreiðslu. Þó skal olíufélögunum heimilt að semja við stóra viðskiptamenn um mánaðarviðskipti, enda greiði þeir sömu aukagjöld og um getur í 1. og 2. grein. Skulu þeir greiða úttektir sinar fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir úttektarmánuð. 4. Hafi mánaðarviðskiptamaður ekki greitt skuld sína að fullu fyrir lok greiðslumánaðar, skal reikna honum dráttarvexti, 0.83% á mánuði, miðað við skuld í lok úttektarmánað- ar að frádregnum innborgunum í greiðsl umánuði. Jafnframt skal stöðva reikningsvið- skipti og hefja venjulegar irxnheimtuaðgerðir. Reykjavík, 13. september 1966. Olíufélagið Olíuverzlun Olíufélagið h.f. JT Islands h.f. Skeljungur h.ff.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.