Morgunblaðið - 15.09.1966, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 15. sept. 1966
Lokið við malbikun
Reykjanesbraufar í gœr
IttalbEkunm olh umferðartruflun-
um — Gatðn aftur orðin greiðfær
UNNIÐ hefur verið að því
uiuianfarna daga að bera nýtt
“'slitlag á Reykjanesbraut, og
varð af þeim sökum að loka þess
ari fjölförnu götu. Þetta olli
talsverðum umferðatruflunum,
þar sem ökumenn sem voru á
leið úr Fossvogi, Kópavogi og
Hafnarfirði áttuðu sig ekki
strax á að fara næstu hliðar-
götur í Fossvoginum, en reyndu
I í stað þess að aka Reykjanes-
brautina eftir sem áður. Þurfti
vélhjólamenn umferðalögregl-
unnar því alloft að leysa úr um
ferðahnútum, sem þarna höfðu
myndazt, fram eftir hádegi, en
| síðari hluta dags í gær, höfðu
| allflestir áttað sig á ástandinu
á Reykjanesbrautinni, og urðu
| þá minni brögð að því, að þar
1 sköpuðust vandræði.
Lokið var endanlega við mal
bikunina á Reykjanesbraut síð-
ari hluta dags í gær, og í gær-
kveldi var lokið við að mála
götuna. Er því öllum fram-
kvæmdum við götuna lokið, og
ekki hljótast meiri vandræði af
völdum umferðar þar. 1 dag er
unnið að því að malbika Lang-
holtsveginn, en því næst verð-
ur tekið til við Laugaveginn
á kaflanum milli Hallarmúla og
Höfðatúns.
Kvöldvaka
Kosningar til ASI
hefjast nk. laugardag
— Kosnir verða um 370 fulltrúar
KOSNINGAR ‘til Alþýðusam-
bandsþings hefjast næstkomandi
laugardag 17. þ.m. og ljúka á mið
nætti sunnudaginn 9. okt. Kosnir
verða um 370 fulltrúar frá 136
félögum viðs vegar að af land-
inu, þar af frá 35 félögum í
Reykjavík. — Á síðasta þingi
sátu 369 fulltrúar, svo að full-
trúatalan nú verður svipuð og
þá. Fulltrúakosningin fer fram
með tvennu móti, ýmist með
allsherjaratkvæðagreiðslu sem
stendur yfir í tvo daga, minnst
8 klukkustund’.r hvorn dag, eða
með fundarkosningu.
Aðalreglan sem gildir um kjör
fulltrúanna, er að 1 fulltrúi er
kosinn fyrir hverja 100 meðlimi,
en hvert félag innan Alþýðusam-
bandsins fær þó fulltrúa á þingið,
þótt það nái ekki áðurgreindrl
méðlimatölu.
V Stærstu samtökin sem kjósa
fulltrúa á þingið eru Landssam-
band íslenzkra verzlunarmanna,
Verkamannafélagið Dagsbrún,
Sjómannasamband fslands, Iðja,
félag verksmiðjufólks í Reykja-
vík og Verkakvennafélagið Fram
sókn, og utan Reykjavíkur Iðja
á Akureyri, Verkamannafélagið
Eining á Akureyri, Verkakvenna
félagið Framtíðin í Hafnarfirði
og Verkamannafélagið Hlíf í
Hafnarfirði.
Tvö verkalýðsfélög í Reykja-
vík, Iðja og Félag járniðnaðar-
DJÚP lægð fyrir sunnan land
ið olli fárviðri á Stórhöfða í
fyrrinótt, en með morgninum
lægði mjög á þeim slóðum, þó
að sunnan við lægðina væri
ennþá rokhvasst. Lægðin átti
að halda áfram austur, en ný
lægð var fyrir vestan Græn-
land og færðist hún heldur
nær.
Heldur var kalt á landinu
í gærmorgun, snjór í Esju, og
á Hveravöllum var frost, þótt
strekkingsvindur væri.
Veðurhofur í gærkvöldi:
Búast má við næturfrosti um
allt land. Suðvesturland til
manna auglýstu eftir framboðs-
listum til fulltrúakjörs s.I. sunnu
dag og var framboðsfrestur hjá
báðum aðilum útrunnin s. 1.
þriðjudag. Kom aðeins einn listi
fram, listi stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs og verður því sjálf-
kjörið. Iðja kýs 18 fulltrúa á
þingið og Fél. járniðnaðarmanna
5 fulltrúa.
í Alþýðusambandinu munu nú
vera um 35 þús. meðlimir.
OLÍUFÉLÖOIN þrjú auglýsa í
dagblöðunum í dag, að nýjar
reglur hafi verið settar varðandi
söluskilmála oliuíélaganna. Seg-
ir í auglýsingunni m. a., að öll
smásala frá olíustöðvunum skuli
í framtiðinni fara frarn gegn stað
greiðslu.
Sé um félög eða fyrirtæki að
ræða, sem hafi mmnzt fimm bif-
reiðar eða tæki, er heimilt að
selja gegn mánaðarviðskiptum.
enda sé greitt aukagjald, sem
nemi kr. 25.00 fyrir hverja af-
greiðslu, vegna vinnu við inn-
heimtu og bókhald. Ennfremur
segir að ö)I sala til búsakynding-
Vestfjarða og miðin: NV-
eða N-gola og léttskýjað til
fyrramáls þykkna upp með
sunnankalda síðdegis. Norð-
urland til Austfjarða, N-mið
og NA-mið: gola eða kaldi
og víða skýjað í nótt, hæg-
viðri og léttskýjað á morgun.
Austfjarðamið: NA-kaldi,
skýjað, en úrkomulítið. Suð-
austurland og miðin: N- og
NV-kaldi léttskýjað.
Horfur á föstudag: S- og
SV-átt, bjartviðri en Norð-
anlads og austan, þokuloft og
dálítil rigning á suður og
Vesturlandi.
Isl.-omeríska
félogsins
í KVÖLD kl. 20.30 heldur fs-
lenzk-ameríska félagið og Ameri
can Field Serivce á íslandi kýnn
ingarkvöld í Tjarnarbúð. Ungl-
ingar, sem dvöldust á vegum
AFS í Bandaríkjunum munu þar
segja frá dvöl sinm og sýna lit-
skuggamyr.dir. Síðan verður
kaffidrykkja. Aðgangur er heim-
ill öllum félögum í AFS og ís-
lenzk-ameriska félaginu og er
þeim heimiit að taka með sér
gesti. Er þetta fyrsti fundur á
vetrardagskrá félagsins.
Stolið sælgæti
í FYRRINÓTT var framið inn-
brot í Tónabíó, brotizt inn við
aðalinnganginn. Var þar stolið
sælgæti fyrir 1500—2000 kr.
ar skuli fa’-a fram gegn stað-
greiðslu, e.l ef viðskiptamaður-
inn greiðir ekki við afhendingu
vörunnar af einhverjum ástæð-
um skuli reikna sérstakt auka-
gjald kr. 100 00 fyrir hverja af-
hendingu, af sömu ástæðu og í
fyrra tilfollinu að því er segir
í auglýsingunni.
Ástæðan fyrir þessum nýju
reglum er, að álagnmgin á þær
vörur sem olíufélögin selja hafi
verið þannig að hún hafi tæp-
lega staðið undir kostnaði við
innflutning og dreifingu. Hafi
leitt til þess að olíufélögin hafi
stöðugt orðið að leita til við-
skiptabanka sinna um aukin lán
til þess að standa undir aukn-
um innflutningi og hækkandi
kostnaði. Þessa þróun hafi við-
skiptabankainir talið óæskilega
og hættulcga. og þvi er gripið til
þessa ráða.
Starlighterilug-
banni aflétt
Bonn, 14. sept. — NTB.
t HINN nýi yfirmaður flug-
hers V-Þýzkalands, Johannes
Steinhoff, hefur aflétt banni á
lágflugi og náttflugi Starfighter-
þotanna, að því er landvania-
ráðuneytið v-þýzka tilkynnti i
dag. Bann þetta setti Kai Uwe
von Hassel, landvarnaráðherra, i
júlí sl. vegna hinna tíðu slysa
er urðu með flugvélum þessarar
gerðar. Alls hafa 61 Starfighter
vél hrapað frá því 1961 og 36
flugmenn hafa týnt lífi.
Talsmaður flughersins lét svo
um mælt í dag, að Steinhoff,
hershöfðingi, hefði ákveðið að
aflétta banninu sökum þess, að
flugmenn Starfighter-véla þyrftu
á að halda þjálfun vi'ð hvers
konar skilyrði, til bess að fá
staðizt kröfur Atlantshafsbanda
lagsins.
Olíufélögin taha upp
staðgreiðsluviðshipti
Mólverhasýning
ó Dalvíh
GARÐAR Iyiftsson opnaði mál-
verkasýningu hinn 10. þ.m. í
Barnaskólahúsinu á Dalvík. Á
sýningunni er mikill fjöldi
mynda víðs vegar að af landinu
og málaðar á alllöngu árabili.
Á þriðja liundrað manns hafa
skoðað sýninguna og yfir 20
myndir hafa selzt. Sýningm
verður op:n til sunnudagskvölds
18. september k). 14—22 dag
hvern. — Sv. P.
Jökulgilskvíslin brúuð
við Landmannalaugar
HELZTI farartálminn á Fjalla-
baksleið nyrðri er Jökulgilkvlsl-
in við Landmannalaugar, sem
getur verið æði viðsjál. í sumar
hefur verið komið á hana brú.
Er sjálfri brúarsmíðinni lokið, en
óvíst hvort búið er að fylla upp
að brúarendum og opna hana.
Brúin er 37 m. á lengd og
liggur yfir á klettahafti, rétt neð
an við hraunnefið, þar sem venju
lega er farið á vaði yfir að sælu-
húsinu í Landmannalaugum.
Mbl. fékk þær upplýsingar hjá
Helga Hallgrímssyni, verkfræð-
ingi hjá Vegagerðinni, að þetta
sé stálbitarbrú, sem flutt var
austur í þrennu lagi. Stálbitarnir
voru smíðaðir í bænum, en brúin
sett saman á staðnum og dregin
yfir. Var brúarflokkur í Land-
mannalaugum og lauk smíði
sjálfrar brúarinnar fyrir hálfum
mánuði.
Fjallabaksleið nyrðri er talin
hugsanleg varaleið í Skaftafells-
sýslurnar, ef Katla yrði illvíg
og lokaði venjulegri leið. Gæti
Jökulgilkvíslin þá orðið erfið,
þar sem botn er mjög ótryggur,
og hefur hún því verið brúuð.
Auk þess er þetta mjög vinsæl
ferðamannaleið, bæði að sælu-
húsi Ferðafélagsins í Landmanna
laugum, þangað sem ferðafólk
hefur oft orðið að ganga utan
í erfiðum sneiðingi með farangur
sinn vegna árinnar, og eins ef
farið er lengra, í Eldgjá.
För Gemini 11 gengur veS:
Náöu mestu jarðfirrð
mannaðs geimfars
Kennedyhöfða, 14. sept NTB-AP
Geimför Gemini 11 hefnr
gengið að óskum og var líð-
an geimfaranna Pete Con-
rads og Richards Gordons
ágæt, er síðast fréttist. í dag
stýrðu þeir geimfarinu í
mestu jarðfirrð, sem nokkurt
mannað geimfar hefur náð
til þessa, eða 1367 km. Er
það næstum tvöfalt fyrra
metið, sem var 790 km. Geim
fararnir létu í ljós mikla
hrifningu yfir útsýninu úr
þessari miklu hæð.
Þegar geimfarið var aftur
komið niður í 296 km. hæð opn-
aði Gordon það, stakk höfði og
herðum út og tók litmyndir af
himni og jörð, skýjamyndunum
og stjörnuþyrpingum. Eftir að
Gemini 11 hafði farið gegnum
hið svonefnda Van Allen geisla-
belti, tilkynnti Conrad, að geisl
unin þar væri miklu minni en
talið hafði verið — og geim-
farinn John Young, sem tók við
upplýsingum frá Conrad lét svo
um mælt, að helzt væri á Con-
rad að heyra, að það væri hættu
minna en venjuleg gegnumlýs-
ing.
Líðan geimfarana var ágæt í
dag og allt virtist í bezta lagi —
utan hvað Conrad kvartaði um,
að svo virtist sem fitu- eða ryk-
lag væri á rúðunni og sæi hann
því heldur illa út úr geimfarinu.
Gordon ætlaði að reyna að
þurrka af rúðunni, þegar hann
fór út til að mynda — en taug-
in, sem hann var bundin með,
reyndist of stutt.
Geimförinni lýkur á morgun.
fimmtudag.
Gursel Iótinn
Ankara, 14. sept. — AP
GEMAL Gursel, fyrrum forseti
Tyrklands, lézt í dag í Ankara
eftir langvarandi veikindi. Hann
var sjötugur að aldri.
Gursel fék slag í upphafi þessa
árs og var í byrjun febrúar sl.
fluttur rænulaus til Washington
þar sem hann lá um skeið í
Walter Reed herspítalanum.
Komst hann aldrei til meðvitund
ar. Þegar ljóst var að honum
yrði ekki hugað líf var annar
herforingi, Cemdet Sunay, skip-
aður forseti Tyrklands.
Gursel komst til valda í Tyrk
landi eftir byltinguna 1960 og
varð þá leiðtogi herforingjaráðs
ins, sem fór með völd í landinu
um hríð. í kosningum, sem fram
fóru í október 1961, var nann
kjörinn forseti.