Morgunblaðið - 16.09.1966, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.09.1966, Blaðsíða 4
4 UORG U N B LAÐIÐ Föstudagur 16. sept. 1966 BjLALEIGAN FERÐ Daggjald kr. 400. Kr. 3,50 per km. SÍMI 34406 SENDUM IMAGIMÚSAR SKIPHOLTI 21 SÍMAR 21190 eftir lokun simi 40381 síH'1-44-44 VWUBBIR Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31160. LITLA bíloleigon Ingólfsstræti 11. Volks’jvagen 1200 og 1300. Sími 14970 Bifreiðaleigan Vegferð SÍMI - 23900 BÍLALEIGAN VAKUR Sundlaugaveg 12. Simi 35135. BOSCH Þurrkumótorar 24 volt 12 volt 0 volt Brœðurnir Ormsson Lágmúla 9. — Sími 38820. Rafmagnslaust Einn af jólasveinunum skrifar: „Velvakandi góður. Er það verjandi, að Raf- magnsveita Reykjavíkur Iokí fyrir rafmagn í heimahúsum án þess að tilkynna lokunina fyrirfram? Er það verjandi, að Rafmagnsveitan ioki fyrir raf- magn þegar ijóst er, að ekki verður hægt að opna aftur fyrr en þremur dögum síðar? Vitanlega var það vegna vangoldinna skulda, sem lokað var. Ég gleymdi hreinlega að borga og síðan var lokað fyrir sl. föstudag án viðvörunar — og var allt rafmagnslaust, þeg ar heim var komið að kveldi. Morguninn eftir, laugardag, ætlaði ég að greiða skuldina, kr. 354.— að viðbættu fasta- gjaldi, en kom að lokaðri skrif- stofu. Yfirinnheimtumaðurinn reyndist ekki vera í bænum og undirmaður hans má ekkert gera, aðeins að hugga mann með því, að þetta þurfi að gera við flesta Reykvíkinga (sem ég efast stórlega um). Hvernig væri að senda út lokunartiikynningu þó ekki væri nema til að minna á skuldina? Það er í sjálfu sér tilbreyt- ing að notast við kertaljós eina helgi og snarla kaldan mat. En þetta hlýtur að koma sér illa fyrir einhvern. Getum við ekki farið fram á betri þjónustu? Hvað segja Neytendasamtökin? — Kertasnikir.“ Aður hefur verið rætt um hliðstæð mál hér í dálkunum. Auðvitað verða fyrirtækin að hafa einhverjar aðferðir til þess að tryggja, að reikningar verði borgaðir. En hin opinberu fyrirtæki eiga það mjög sam- eiginlegt að neita algerlega að viðurkenna, að viðskiptavinir þeirra séu menn — og að þess- ir menn geti stundum gerzt sekir um ýmis afglöp, sem við teljum öll mannleg — m.a. að gleyma. ■jf Gengið um á Iðnsýningu Lesandi skrifar: „Iðnsýningin í Laugardaln- um á svo mikil ítök í hugum manna þessa síðsumarsdaga, að mér finnst ekki goðgá að bæta nokkru við það, sem þegar hefur verið ritað um hana. Hún er glæsileg í öllum frá- gangi og nýtur" sín vel í hinni nýju, stórbrotnu og sérkenni- legu íþrótta- og sýningarhöll, sem með sinni tilkomu auð- veldar að hafa slíkar sýningar sem þessa (og ennþá betri) með styttra millibili en hingað til. Ekki verður hjá því komizt að reka augun í ýmislegt, sem ekki á þar heima, ef um iðn- sýningu, sem hún er kölluð, er að ræða. Járniðnaðurinn, sem er raun- verulega undirstaða alls ann- ars iðnaðar og atvinnureksturs í landinu, virtist mér full fyrirferðarlitill. Mörg fyrir- tæki, sem þó hafa tekið virkan þátt í framleiðslu ýmissa nyt- samra hluta og eru gamalgróin eru ekki með. Hins vegar er þarna amerískur jeppi og sundurskornir benzínmótorar, sem lulla í hægum gangi fyrir íslenzkum rafstraumi. Jeppa- húsið átti þarna heima — en sjálfur bíllinn er ekki íslenzk- ur iðnaður. Sundurskornir mótorar eru ákaflega skemmti- leg kennslutæki fyrir vél- og tækniskóla, en það orkar tví- mælis, hvort þeir hafa erindi á iðnsýningu. Mér fannst eins og fyrr segir, of lítil þátttaka í þungaiðnað- inum. Þar er engin skipa- smíðastöð. Tuttugu ára módel af vélbátum, sem á sínum tíma stóð til að byggja í nokk- uð stórum stíl (á þeirra tíma mælikvarða), en horfið var frá, er einasta táknið, sem ég man eftir að minnti á þessa göfugu og þörfu iðngrein Is- lendinga, skipasmíði. Þá er óþægilegt að fá í hend- ur erlendar söluauglýsingar (á íslenzkri iðnsýningu), sem greinilega tilheyra aðeins aukalið þessarar sýningar, þ.e. kaupstefnu, Á þessari sýningu kemst eng- inn hjá því að verða var við erlend (og algerlega óíslenzk- uð) nöfn, bæði á framleiðslu- vörum, sem þó að mestu eða öllu leyti eru fyrir innlendan markað, og jafnframt firma- nöfnin sjálf. Þetta minnir óþægilega á gamla tímann, þeg- ar allt þótti fínast, sem var danskt eða útlent og kaupmenn skreyttu verzlanir sínar með er- lendum nöfnum og kappkost- uðu að hafa danska eða hálf- danska afgreiðslumenn í sinni þjónustu. Ég hélt, að þetta væri liðinn tími (eða ætti að vera það), en það leiðinlegasta er að þetta er áþreifanlega lifandi „báktería“ í landinu og kemur fram alltof víða á Iðn- sýningunni 1966. Blóm eru alltaf til skrauts og fagnaðar, þótt bráðsmitandi faraldur hafi komið þeirri hefð á að „afbiðja“ þau í tíma og ótíma. Þau eru vissulega augnayndi og geta lífgað upp sýningarklefa, ef þau eru hóf- lega notuð, en ekki verður séð, hvaða erindi blómasalar eiga á iðnsýningu með framleiðslu sína. Þar sem sýningarreitir eru afmarkaðir með viðarkubbum hefði vissulega verið skemmti- legra og smekklegra að nota íslenzkt birki en fúnar spírur frá Finnlandi. Annars er sýningin yfirleitt smekklega sett upp og til sóma þeim, sem þar voru að verki. Aðgöngugjaldi mjög í hóf stillt, og ætti enginn, sem nokkuð vill fylgjast með ís- lenzkum iðnaði, að láta undir höfuð leggjast að sjá hana. G. Þ.*4 Þvottohús Vesturbæjar Ægisgötu 10 — auglýsir: Tökum að okkur frágangsþvott, stykkjaþvott og blautþvott. — Sækjum — senduin. Þvottahús Vesturhæjar Ægisgötu 10. — Sími 15122. Atvinna óskast Ungur maður, algjörlega reglusamur, með Samvinnu skólamenntun og góða enskukunnáttu, óskar eftir starfi nú þegar. — Margt kemur til greina. — Tilboð sendist afgr. Mbl., merkt: „2621 — 4180“. Kaupið skóna hjá skósmið Skóverzlun og vinnustofa SIGURBJÖRNS ÞORÍIEIRSSONAR Miðbse við Háaleitisbraut. — Góð bílastæði. Viðskiptavinir athugið! Hárgreiðslustofan VENUS er flutt að Túngötu 14 Gengið inn frá Öldugötu. — Siml 21777. ATVINNA Okkur vantar vaktmann til aksturs og. hreinsunar á bifreiðum, nú þegar. — Þarf að hafa réttindi til aksturs sérleyfisbifreiða. — Upp'vsingar í símum 13792 og 20720. Landleiðir hf. BlaiburSarfólk vantar í eftirtalin Þingholtsstræti Aðalstræti Meistaravelli Tjarnargötu Barónsstígur Laufásveg 2—57 Lynghagi Freyjugata Laugarásveg Vesturgata 2—44 Snorrabraut hverfi: Bergstaðas træti Hverfisg. frá 4—62 Karlagata MávahHð Hringbraut 92—121 Rauðagerði Hávallagata Nesvegur Háaleitisbraut 14—156 Víðimelur Efstasund Talið við afgreiðsluna sími 22480.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.