Morgunblaðið - 01.10.1966, Qupperneq 23
Laugarda»ur 1 okt. 1968
MORGUNBLADIÐ
23
— Sjónvarpsviðfal
i * Framhald af bls. 1
uð þá. Ég tel að samkomulagið
um búvöruverðið og við sjó-
rnenn og útgerðarmenn um síld-
arverðið, gefi ástæðu til þess að
örvænta ekki fyrirfram, svo
vægt sé til orða tekið, um að
mnenn reynist fáanlegir til skyn-
samlegra samninga“.
Forsætisráðherra var mikið
spurður um ver'ðbólguvandamál-
ið og aðgerðir ríkisstjórnarinnar
í sambandi við það og vakti
íhann athygli á því, að tekizt
Ihefði að forða því, að verðbólg-
an stöðvaði' framþróunina í at-
vinnulífinu eða bættum lífskjör-
um. „Ég hygg að raunveruleg
fjármunamyndun í öllum at-
vinnuvegum landsmanna sé um
60% meiri en hún var í árslok
1958. Raunverulegar þjóðartekj-
iir á mann eru nú taldar þriðj-
•ungi hærri en 1960 og þetta hef-
ur jafnazt út til borgaranna í
lheild“.
l>á var forsætisráðherra
spur'ður að því hvað hæft væri
í orðrómi um það, að Alþbl.
yrði brátt aðili að ríkisstjórninni
og sagði hann að síðustu alþingis
kosningar hefðu kveðið á um
hverjir fara skyldu með stjórn
landsins. „Mér mundi vera það
*nikil ánægja, ef Alþbl. slæist í
hópinn, auðvitað að því áskildu,
oð það féllist á þá stefnu, sem
kjósendur ákvá’ðu 1963 að fylgt
skyldi“. Hann kvaðst hafa tak-
markaða trú á þjóðstjórn nema
alveg sérstaklega stæði á.
Um dvöl varnarliðsins hér á
landi sagði Bjarni Benediktsson
að því miður teldi hann ekki
hafa skapazt það ástand í heims-
málum, að óhætt væri að hafa
Xsland óvarið fremur en önnur
þjóðlönd. „En það er fslendinga
sjálfra að meta það á hverjum
tíma hvort svo er. Ef við treyst-
um okkur til þess að leysa varn-
ormálin með okkar eigin fram-
iagi er þáð fyllilega til athugun-
ar, en þá verðum við að vera
reiðubúnir til þess að taka á
okkur þær byrðar, sem því eru
samfara".
Aðspurður um Keflavíkursjón
varpið sagðist forsætisráðherra
ekki hafa talið þær hættur sam-
fara því, sem ýmsir hefðu ætlað.
„Ég hef hins vegar talið, að þeg-
ar íslenzkt sjónvarp kæmi, væri
eðlilegast að íslendingar horfðu
á sitt eigið sjónvarp og með öllu
væri óeðlilegt, þegar varnarliðið
af eigin hvötum hefur óskað eftir
að takmarka sendingar Kefla-
víkursjónvarpsins og gert grein
fyrir ástæðum þess, að það væri
beðið um að halda þeim áfram.
Ég hef heyrt að sumir telja þessa
ósk varnarliðsins komna frá ís-
lenzku ríkisstjórninni, en ég get
fullyrt, að það er misskilningur.
I>að má vel vera að varnarliðið
mundi láta undan óskum réttra
a'ðila um útsendingar en ég tel
•ð það sé ekki efni til þess að
beina slíkum óskum til þess nú,
þegar íslenzkt sjónvarp er haf-
ið“.
— Nazistar
Framhald af bls. 10
hafa greitt honum hálfa
milljón DM fyrir.
★
Eftir er þá í Spandau-fang-
elsi aðeins einn þeirra manna,
sem afplánað hafa faneglsis-
dóma, sem þeir hlutu í stríðs-
glæparéttarhöldunum í Núrn-
berg 1946. Þessi maður er
Rudolf Hess, einn nánasti sam
starfsmaður Hitlers. Hess, sem
nú er 72 ára, mun ekki vera
andlega heill á geðsmunum
og hefur ekki viljað taka á
móti heimsóknum ættingja í
fangelsið. Hann var dæmdur
í æfilangt fangelsi og kann
því vel svo að fara að hann
fái að dúsa þar mörg ár í við
bót. Yfirleitt hefur því verið
harðneitað að náða hina
dæmdu í Spandau, en ef þeir
hafa verið orðnir heilsuveilir,
þannig, að ekki var talið, að
þeir ættu langt eftir, hafa
þeir verið náðaðir og þeim
leyft að fara þaðan burt með
sérstökum skilyr«'<»~
— Nazistar
Framhald af bls. 1
nú hefur verið sleppt úr haldi,
höfðu eitt sinn mikið örlagavald
í málefnum Evrópu og raunar
heimsins alls. Albert Speer, sem
Hitler kallaði „sjení“, var arki-
tektinn sem gerði hinar stór-
mennskubrjálæðiskenndu hug-
myndir einræðisherrans í þeim
efnum að breyta Berlín í verð-
uga höfuðborg „þúsund ára ríkis
ins“ að veruleika. Flestar bygg-
ingar hans hrundu til grunna með
„þúsund ára ríkinu". Frá 1942 bar
Speer ábyrgð á því að stríðsvél
Þýzkalands héldi áfram að ganga.
Undir stjórn hans í embætti her-
gagnamálaráðherra þrefaldast
framleiðsla vopna, skotfæra og
flugvéla þrátt fyrir gífurlegar
loftárásir Bandamanna.
Er endirinn nálgaðist ráðgerði
Speer að drepa manninn, sem
hann hafði svo dyggilega þjón-
að, með því að leiða eiturgas inn
í neðanjarðarbyrgið í Berlín, þar
sem Hitler dvaldi síðustu daga
ævi sinnar.
Baldur von Schirach færði
hundstryggð sína við Hitler yfir
á heila kynslóð æskufólks sem
leiðtogi Hitlersæskunnar. Þeir,
sem gengu í þann skóla hans,
mynduðu kjarna hers þess, sem
eitt sinn réð lögum og lofum allt
til Pyreneafjalla og borgarhliða
Kaíró og Moskvu. í dag er Sc-
hirach hálfblindur og þjáist af
hjartasjúkdómi. Speer er hins-
vegar mikill hæfileikamaður og
forkur duglegur og er sagður
óþreyjufullur að geta hafizt
handa í sínu gamla starfi sem
arkitekt.
Er mennirnir tveir voru látnir
lausir á miðnætti höfðu þeir af-
plánað að fullu dóm þann, sem
þeir hlutu við stríðsglæparéttar-
höldin í Núrnberg.
Ljóst er, að þeir Speer og von
Schirach verða að vera í Berlín
með leynd nokkrar í klukkustund
ir, áður en þeir geta tekið sér flug
far til einhver staðar í V-Þýzka-
landi
Blöð í A-Þýzkalandi hörmuðu
í dag að þeir Speer og Schirach
Norska húsið, þar sem það rís af gruniti í Mosfellssveit.
Innflutt hús frá Noregi
rís af grunni
AÐ BJARKARHOLTI i Mos-
fellssveit reis í gær hús, sem
er innflutt frá Noregi. Hafizt
var hanða um að reisa húsið
skömmu eftir hádegi, kl.
12.30 og fjórum klukku-
stundum síðar, er blaðamað-
ur og ljósmyndari Mbl. komu
á staðinn stóð húsið þar og
átti einungis eftir að setja á
það þak, svo að það yrði fok-
helt.
Þegar við komum upp eftir
hittum við að máli feðgana
Aðalstein Eiríksson, fyrrum
skólastjóra í Reykjanesi við
ísafjarðardjúp og son hans
Þór Aðalsteinsson, verkfræð-
ing. Aðalsteinn er sá, er
byggir húsið og hann býst við
að flytja í húsið um eða eftir
miðjan október.
Þeir feðgar segja okkur, að
húsið hafi verið flutt upp
eftir í gærmorgun. Komið hafi
kranabifreið og upp úr hádeg-
inu hafi verið hafizt handa
um að reisa húsið. Áður hafði
verið steypt plata undir það.
Innflytjandi hússins er Ingv-
ar Pálmason.
Til landsins komu og norsk-
ir trésmiðir, sem setja húsið
saman og varla þarf að saga
eina einustu spýtu, húsið
fellur saman bg einungis
þarf að negla það.
Húsið er 110 fermetrar auk
bílaskýlis. Allir gluggakarm-
(Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.)
ar eru úr teek að utan, en
furu að innan. í húsinu eru
fimm herbergi, þar af tvær
samliggjandi stofur, eldhús
bað, þvottahús og geymsla.
Þeir feðgar áætla að húsið
kosti upp komið um 850-900
þúsund krónur. Er það þá til-
búið til notkunar og eru
teppi á gólfum eða parkett-
gólf.
Samkv'æmt upplýsingum
Þórs Aðalsteinssonar, verk-
fræðings, er einangrun mun
meiri en vanalegt er hér á
landi. Húsið er einangrað
með 10 cm lagi af steinull.
Þá gat Aðalsteinn þess að
umbúnaður um húsið á leið-
inni til íslands hafi ekki ver-
ið nógur. Brotnaði gler og
lyftitæki hefðu skemmt ann-
an gafl hússins töluvert.
Þetta er fyrsta innflutta
húsið, sem reist er hér sunn-
anlands af þessari tegund.
Áður hafa verið reist slík hús
við Mývatn, fyrir starfsfólk
Kísiliðjunnar þar.
skyldu látnir lausir. Stærsta mál- . lands, í því skyni að reyna að
kommúnista, I semía um frið að Þvi er sagt er’
gagn a-þýzkra
Neues- Deutchland, taldi í
að dómarnir yfir Speer og von
Schirach hafi verið of vægir.
Hess, sem 1941 flaug til Skot-
ATVINNA
Vélainnflytjandi oskar að ráða duglegan, reglusam-
an mann með áhuga fyrir vélum til sölu- og skrif-
stofustarfa. Reglusemi áskilin.
Tilboð, merkt: „Vélar — 4438“ sendist afgr. Mbl.
sem fyrst.
Sérstokt tækiiæri
, j og Hitler lýsti geðveikan, er enn
ag , ráðgáta. Lögfræðingur hans, Al-
fred Seidl, segir að Hess sé sál-
rænt séð óhæfur til þéss að taka
út allan dóminn, sem er lífstíðar
fangelsi, en fulltrúar Banda-
manna segja að hann sé andlega
heilbrigður. Embættismenn Vest
urveldanna telja að ástæðan til
þess, að Sovétríkin krefjast þess
að Hess afpláni allan dóminn sé
sú, að meðan hann' situr í
SPANDAU, geta Sovétríkin
eftir sem áður „haft annan fót-
inn“ innan borgarmarka V-
Berlínar. Að auki er talið, að
Sovétríkin vilji halda Hess í fang
elsinu sem lifandi tákni um sök
Þýzklands á styrjöldinni.
Getum útvegað nokkra japaitska 6-manna
PMC bíla með mjög hagstæðu verði.
Bílar þessir eru í framleiðslu hjá verk-
smiðjunni og verða með ýmsum endur-
bótum frá því sem áður var, svo sem
auknu rými, betri sætum o. fl. til þæginda.
Bílarnir eru með sterkri grind og háir frá
vegi og því sérstaklega hentugir fyrir ís-
lenzka staðhætti.
Nánari upplýsingar í síma 12650.
Rergur Lárussonhf.
Ármúla 14.
— Falklandseyjar
Framh. af bls. 1
sem með flugvélinni voru, og
áhöfn hennar.
í London er upplýst að Bretar
hafi samþykkt þá tillögu Argen
tínumanna að umrætt skip,
„Bahia Buen Suceso" ,sem er
3100 smálestir að stærð, skyldi
taka alla Argentínumennina um
borð og sigla með þá heim. Skip-
ið á að leggjast fyrir akkeri utan
landhelgi, og síðan á að flytja
fólkið til þess í smábátum.
Þjóðernissinnarnir, 19 karl-
menn og ein kona, geta búizt
við því að þeim verði misjafn-
lega tekið er heim kemur. Ann-
ars vegar hafa ákveðnir stjorn-
málaflokkar og ýmis blöð lýst
þeim sem hetjum fyrir að hafa
á svo eftirminnilegan hátt árétt-
að kröfur Argentínu um yfirráð
yfir eyjunum. Hins vegar hefur
Juan Carlos Ongania, forseti
verði dregnir fyrir dómstóla og
geti búizt við þyngstu refsingu,
sem lög leyfa.
Argentína hefur opinberlega
harmað árás þessa á brezkt
landssvæði og janframt sagt að
allt verði gert til þess að trýggja
öryggi hertogans af Edinborg,
sem nú er staddur í Buenos
Aires. Á miðvikudagskvöld var
skotið að brezka sendiráðinu
þar í borg. Spurzt hefur, að her-
toginn sé mjög gramur vegna
mótmælaaðgerða ýmissa afla i
Argentínu gegn Bretum.
Strangur vörður var um her-
togann er hann horfði á veðreið-
ar í dag, og er hann var stadd-
ur í hádegisverðarboði í brezka
verzlunarráðinu í Buenos
Aires, leitaði óeinkennisklædd-
ur lögreglumaður að vopnum á
sérhverjum þjóni sem kom inn
í salinn.
Vutnslögn til
Eyjn gengur vel
Vestmannaeyjum, 30. september
LAGNING vatnsveituröra frá
vatnsbólinu í Syðstu-Mörk undir
Eyjafjöllum sækist mjög vel, að
sögn Magnúsar Magnússonar,
bæjarstjóra. Er búið að leggja
18 km. af 22,3 km. og er þess
að vænta að verkinu verði lok-
ið á tilsectum tíma í október-
mánuði. Þá er eftir að virkja
sjálfa uppsprettulindina, en
ekki er vitað hve langan tíma
það tekur.
Hárgreiðsludömur
Hárgreiðslusvein vantar strax. Góð vinnuskilyrði
Gott kaup. Þær. sem kynnu að hafa áhuga, vin-
samlegast hringi í síma 40098, eftir kl. 7 á
kvöldin.