Morgunblaðið - 11.10.1966, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 11.10.1966, Blaðsíða 21
Þriðjudagur 11. oM. 1986 MORCUNBLAÐIÐ 21 SVEINN KRISTINSSON SKRIFAR UM KVIKMYNDIR Tónabíó Djöflaveiran Bandarisk mynd Framleiöandi og leikstjóri: John Sturges Aðalleikendur George Maharis Richart Basehart Anne Francis Ef „djöflaveiran" slyppi laus I Bandaríkjunum, þá mundi hún eyða öllum þarlendum mönnum é vikutíma. Á tveimur mánuð- um mundi hún drepa hvert mannsbarn á jörðinni. Eitthvað seinvirkari að vísu en vetnis- sprengjur, en kannski jafnvel enn vissari með að skilja hvergi eftir nokkra mannlega veru með lífi. Bandarískum vísindamönnum hefur tekizt a'ð framleiða slíka veiru eftir margbrotnar tilraun ir í tilraunastöð einni á afskekkt um stað, sem er vel afgirtur og vandlega gætt af varðmönnum. Þarna eru ýmsar fleiri veirur samankomnar, kyrfilega innilok- aðar í glösum þó að sjálfsögðu. Þar er meðal annars lömunar- veikisveira svo hraðvirk, að hún drepur menn á örskammri stund. Hins vegar er hún að því leyti hætturr.inni en djöflaveir- an, að hún þolir ekki hreint loft til lengdar og gefur því sjálf upp andann innan tíðar, sé henni sleppt út. Djöflaveirunni er hins vegar fyrirhugað eilíft líf. Nú gerist það, að brotizt er inn í vísindastöð þessa, tveir menn myrtir þar og það, sem var ískyggilegast af öllu: djöfla- veirunni stolið, ásamt öðrum veirum meinlausari. Eftir allmiklar eftirgrennslanir kemur í ljós, að það er einn snarbrjálaður, en þó hugmynda- ríkur milljóneri, sem hefur stað ið að baki veirustuldinum. Hann hefur í fyrstu að yfirskini, að hann vilji með því forða mann- kyninu frá vígbúnaðarkapp- hlaupinu og yfirvofandi heims- styrjöld og ætli hann að þvinga Bandaríkjastjórn til að hætta við ákveðnar vígbúnaðarráð- stafanir, ella sleppi hann djöfla- veirunni lausri á Los Angeles. En skjótlega kemur þó í ljós, að þrjóturinn hefur öllu skugga legra markmið. Heimsyfirráð. Dugir ekki minna. Nú hefst barátta mikil. Banda riska leyniþjónustunni er ljóst, að hér vertSur hún að beita ýtr- ustu varfærni og þó fullu kappi, til að ná hinu banvæna vopni úr höndum hins valdagráðuga manns. Það kemur mest í hluta ungra hjóna — leikin af George Mahar is og Önnu Francis — að elt- ast við glæpamanninn og hand- langara hans, og verður sú saga ekki rakin hér. Aðeins má geta þess, að sú barátta er öll mjög spennandi og lengi vandséð, hvorir munu fara með sigur af hólmi. En hafi glæpamanninum heppnast áform sitt, þá ættu afleiðingar þess sem sagt fljót- lega að koma í Ijós, eða ekki síðar en í endaðan nóvember. Vegna hinnar miklu spennu, sem mynd þessi býr yfir, þá mun aðsókn að henni hafa ver- ið mjög gó'ð undanfarið. I pró- grammi myndarinnar heldur leikstjórinn, John Sturgess, því fram, að efniviðurinn eða hug- myndin, sem myndin er byggð utan um, sé ekki eins fjarstæðu kennd og sumum kunni að virð- ast. Hann segir, að það sé vitað, að helztu stórveldi heims vinni að framleiðslu sýkilvopna, til að grípa til, ef annað þryti í hugs- anlegri styrjöld. Síðan segir hann orðrétt: „Og þegar þessar staðreyndir eru athuga'ðar — því skyldi þá ekki geta gerzt, þrátt fyrir all- ar hugsanlegar varúðarráðstaf- amr, að valdafíknir, kennski hálfbrjálaðir, en snjallir sam- særismenn, kæmust yfir slík vopn — og hvað þá?“ Við þetta mætti svo kannski bæta, að ekki hafa sýklar á- vallt þurft á mikilli hvatningu að halda, til að herja lönd og skilja eftir „sviðna jörð“ að baki sér. Og er það útilokað, að upprísi af sjálfsdáðum sýklar eða veirur, sem gefi ekkert eft- ir þeim sóttkveikjum, sem vís- indamenn kunna að vera að magna á mannkynfð? Hvað sem því líður, þá er það óhugnanleg staðreynd, að milljónir manna víðsyegar um heim skuli vinna að því beint eða óbeint að smíða sem full- komnust tortímingartæki — að sjálfsögðu þó alltaf í varnar- skyni. Allar styrjaldir á þessari öld hafa víst verið háðar í varn arskyni í orði kveðnu af öllum aðilum. Og tækist einhverjum hálf- brjáluðum „snillingi,, að eyða mannkyninu, að sjálfum sér frádregnum, þá mundi hann vafalaust hugga sig við það í einmanaleik sínum, að hann hafi aðeins verið að frmkvæma óhjákvæmilegar varnarráðstaf- anir. ^Clœönmg Uj. AUGLYSIR te §p| itmZrnMm aac ? Merkipennarnir heimsfrægu skrifa « hvaða flöt sem er: gler, m?im stein. plast, tré, alumimum, vaxpappír o. s. frv. Biekið pornai strax á fletinun. De Luxe merkipennarnir skrifa Iwort heldur sem er fínar, b"e’ðar eða meðal- breiðar bnur. Það fer að- eins ef.n því, hvernig þér beitið pr nnanum :i «*•»« D«Lux« s**,tfes.**!*k Niw.Kft 'Ú'-X- <• v **))*¥»:«<* ? ÞriArtbiE meikipennarmr eru t.ieð mjoum oddi. bieaic 1 SANuoríD penn- unun. þoin klor og suðu. Klæðning hf. rugavegi r46 — S. 21444. James Resfan Framh. af bls. 16 anna, Andrei Gromyko, á Wald orf hótelinu í vikunni er leið. Sendiherrar Kina og Banda- j rikjanna í Fóllandi hafa velt vöngum yfir málinu í Varsjá í fleiri mánuði og vafalaust munu yfir 100 sendimenn margra landa hafa eitthvað til málanna að leggja í New York næstu vikurnar. Það get * meira en verið, að eitthvao komi út úr allri þessari flækju þegar fulltru- arnir á AHsherjarþinginu taka til meðferðar aðalmál þings- ins. Þetta mál er hvort jafn- væginu í Suð-A'ustur Asiu eigi að verða breytt með herat'li eður eigi. Viðræð'urnar í Alls- herjarþinginu munu gefa Bandaríkjunum tækifæri til þess að gera heiminum það ljóst, að þau eru hvorki reiðu- búin til að leyfa Moskvu, Pek- ing eða Hanoi að raska jafnvæginu þar né viljug til að viðurkenna, að Bandaríkja- menn séu að reyna að raska því með hersetu sinni þar. Fulltrúarnir á Allsherjar- þinginu, svo framarlega sem þeir fylgja einu grundvallar- atriði sáttmála Sameinuðu þjóðanna — að með hernaði skal ei leysa stjórnmálaleg vandamál — ættu að geta kom izt að samkomulagi sem styðst við þessa reglu. Grundvallarvandamálið í þessum deilum er það, að Moskva, Peking og Hanoi trúa ekki Bandaríkjastjórn þegar hún segist ekki vilja halda sín um herafla og herstöðvum í Víetnam. Þeir geta bersýnilega j ekki enn gert sér grein fyrir i því að Bandaríkjamenn skuli verja 2 milljörðum dollara á mánuði til að berjast í Víet- nam og verða siðan fúsir til þess að draga sig í hlé þegar ófriðnum lýkur og láta lands búa um að ákveða sína eigin stjórnmálaframtið. Samt viðurkenna ailir gagn- rýnendur Johnsons í Banda- rikjunum nú, að sá sé ein- mitt vilji forsetans. Hann er að reyna að binda enda á ófrið inn og komast á brott, og hann þarfnast hjálpar Sameinuðu þjóðanna til að geta gert það. Eins og málin standa núna, getur hann ekki komið' Hanoi, Peking og Moskvu i skilning um að þetta sé einmitt stefna hans, en kannski getur hann sannað fyrir þeim vilja sinn með þvi að gefa Sameinuðu þjóðunum vald til þess að hafa yfirumsjón með striðslokum og | skipulögðum brottflutningi allra herja úr landinu og ásamt afnámi allra herbæki- stöðva þar. Ófriðurinn í Víetam hefur ekki staðið vegna þess að sam búð austurs og vesturs hafi versnað svo mjög, eða vegna þess að stórveldin hafi ckki umræður sin á milli, heldur vegna þess, að báðar hliðar halda að hvor um sig sé að reyna að raska jafnvægi lands svæðisins með herafli. Bandaríkjastjórn er reiðubú in að koma á friði og flytja á brott herafla sinn samkvæmt ákveðnum tíma, og hún rnuu Yylgjast af miklum áhuga hvort Sameiuðu þjóðirnar eru tilbúnar að reyna það, hjáipa við friðarsamninga, og setja hinum aðilanum sömu kosii. Ef svo verður, þá hefur Alls- herjarþingið að minnsta kosti ávaxta þær „þýðingarmiklu viðræður", sem eru ósk U Thants framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. — Utan úr heimi Framhald af bls. 16 tæki, en hinr fyrir tæki, sem ekki þarf að líta stöðugt eftir, og eru fjarstvrð. í náirini framtíð munu vís- indastoínanir okkar ráða yfir j nýjum tækjum. Þegar hefur verið afráðið um smíði nokk urra slíkra. (Sovézka Rossija, '23 iúni 1&>8). FACIT sjálfvirki kafkúlatorinn er bezti þjónninn á skrifstofunni enda í notkun á miklum fjölda af skrifstofum í landinu. ALGJÖRLEGA SJÁLFVIRKUR. MJÖG EINFALDUR í NOTKUN. LEGGUR SAMAN, DREGUR FRÁ, MARGFALDAR OG DEILIR MEÐ AÐEINS 10 LYKLUM. SÆNSKT TÆKNI OG SÆNSKT STÁL TRYGGIR ÁRALANGA ÖRUGGA NOTKUN. Góðfúslega leitið upplýsinga hjá oss. Vesturgötu 45 — Símar 12747 og 16647. SÖLUMADUR Duglegur og áreiðanlegur sölumaður óskast til starfa við fasteignaskrifstofu, sem fyrst. — Æskilegt að viðkomandi hafi bifreið til afnota. — Þeir, sem á huga hafa á starfi þessu, sendi nöfn sín og heimilis- fang, ásamt upplýsingum um fyrri störf, í lokuðu um slagi, merktu: „Duglegur — 4240‘ til afgr. Mbl. fyrir 14. þ. m. L . ■ ; ;. Rafveitur — Rafvirkfar Iföfum fyrirliggjandi plast-einangraðan jarðstreng NYCY lx!6-f-I6 og 2xl0-|-10 qmm. Útvegum alla gildlcika á hagstæðu verði. yfirleitt nieð mjög stultum afgreiðslufresti. — Talið við okkur, sem fyrst, ef yður vanlar jarðstreng. G. Hfarleins«»on hf. Heildverzlun. — Bankastræii 10. Símar 12852 og 21039. SÖNGFÓLK Kirkjukór Laugarnessóknar óskai- 'ftir söngfólki. í ráði er að veita ókeypis söngkennslu. — Upplýsingar gefa Magnús Einarsson, sími 30911 og Gústaf Jóhannesson, sími 11978 miiii kl. 7 og 8. Húseign til leigu Húseignin Lindargata 39 er til leigu. — Til sýnis næstu daga milli kl. 5 og 7 e.h. Leigutilboðum sé skilað á sama stað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.