Morgunblaðið - 11.10.1966, Page 28

Morgunblaðið - 11.10.1966, Page 28
28 MORGUNBLADID ÞriSjudagiu 11. okt. 1966 Bob Thomas: — Mér er alvara, Tony, ég fer ekki neitt. — Æ, þú getur stundum verið svo leiðinleg, Maggie — eða Edie .... ég man aldrei hvor er. Jú, það hlýtur að vera Edith. Þessi elskulega Edith. Það gæti ekki verið hin skemmtanafúsa Maggie, hún mundi vera alveg æst í að fara. Nei, það hlýtur að vera þessi músgráa Edith, sem er hrifnust af gömlum mönn- um. — Hættu þessu! æpti hún. — Hvað gengur að, elskan? Viltu ekki heyra sannleikann um sjálfa þig? Sama er mér, þó ég heyri hann um mig. Ég veit alveg, hvað ég er — svo oft hef ég verið fræddur á því. Ég er skítmenni. Það eina, sem ég svík ekki á, er golf, og það stafar ekki af neinum siðareglum. Ég er bara hræddur um, að það komist upp. Víst- er ég skepna. En hitt verð ég að segja, að ég er elskuleg skepna. Jæja, nú hvað þig snertir Edith .... — Ég kæri mig ekki um að heyra meira. Skilurðu það? — Taktu ekki fram í fyrir mér. Ég er að tala um þig. Já, ég veit meira en þú heldur. Edith ætlaði að fara út, en Tony þreif í hana og dró hana til baka og sneri henni að sér. — Finnst þér þetta ekki for- vitnilegt, Edie? Mér finnst það. Ég er viss um, að þú hefur aldrei vitað, að ég er frístunda-sál- fræðingur. En það er ég nú. Ég finn, að ég hef gagn af því í starfi mínu, bæði á golfvellin- um og annarsstaðar. — Þegiðu, þegiðu! Ég þoli ekki meira. Ég treysti mér ekki til þess. Ég ætla að fara til lög- reglunnar. Mér er orðið sama um allt! Háðshreimurinn hvarf úr rödd Tonys. — Hlustaðu nú á mig, tvíburasystir, og hlustaðu vel, sagði hann ógnandi. — Reyndu nú að komast yfir þetta taugaáfall þitt. Þú hættir þess- um uppþotum og hlustar á það sem málið varðar. Við förum til Evrópu og skemmtum okkur vel. Þú verður síbrosandi, af því að ég skipa þér það. Þú ert komin í gildru, sem þú sleppur ekki ur — nema þig langi í gasklefann? Edith grét ákaft. — Mér er bara orðið alveg sama um þetta allt! sagði hún. Hann greip hana og hristi hana: — Ef þú sleppir þér svona fer allt í háaloft. Þig kann að langa í gasklefann, en það lang- ar mig bara ekki. — Mér er sama! stundi hún. — Sama um allt! — Þér skal hætta að standa á sama, sagði hann og gaf henni löðrung svo að hún var næstum rokin um koll. — Þér skal ekki vera sama, Maggie! Hann sló hana á hina kinnina. — Þér skal ekki vera sama, hvað sem þú heitir! Hönd hans lenti nú á munnin- um á henni, svo að hún hörfaði aftur á bak og rakst á hurðina að svefnherbergi Franks. Hún var ringluð og blóðug og blóðið draup á sloppinn hennar. Rétt sem snöggvast missti hún með- vitundina. Hún stóð upp, en heyrði ekkert og gat ekki greint BIFFiEIÐAEIGENDUR Anhast viðgerðir á rafkerfi bifreiða, gang- og tnótorstillingar, góð niælitæki. — Reynið viðskiptin. Rafstilling Suðurlandsbraut 64 — Simi 32385. (Múlahverfi). Iðnskólinn í Reykjavík mun starfreekja námskeið fyrir starfsfólk á teiknistofum ef næg þátttaka fæst. A. Dagnámskeið fyrir fólk þcgar starfandi á teiknistofum. Kennt verður tvisvar í viku. B. Kvöldnámskeið fyrir þá er hyggja á slík störf. Kennt verður þrisvar í viku. Innritun fer fram í skrifstofu skólans og eru þar veittar nánari upplýsingar. Innritur iýkur fimmtu- daginn 13. þ.m. Kennsla hefst mánudaginn 17. okt. Skólastjóri. Raðhus Til sölu raðhús í smíðum, við H’’nuntungu í Kópavogi. — Húsið stendur á mjög faJjegum stað. Skip og fasteignir Austurstræti 18 — Simi 21735 neitt, sem hún sá. En þá heyrði hún klór og ýlfur hinumegin hurðarinnar. Sjónin lagaðist og hún gat séð Tony, sem kom til hennar, með hörkusvip og kreppta hnefana. Ýlfrið færðist í aukana og eitt- hvað skelltist á hurðina. Hún seildist til og opnaði. Þegar Tony nálgaðist hana, rykkti hún upp hurðinni. Græn- landshundurinn kom í loftköst- um inn í herbergið, stökk á Tony og varpaði honum til jarð- ar.( Edith heyrði grimmilegt urr og sá tennur hundsins læsast að hálsinum á Tony. — Láttu hann hætta þessu! öskraði Tony. Edith reyndi að hreyfa sig, en hún var algjörlega máttlaus af skelfingu. Hún reyndi að æpa upp, en ekkert hljóð kom úr hálsi hennar. Hún gat aðeins horft á hundinn halda áfram að misþyrma Tony, sem var gjör- samlega máttlaus. Loksins kom hún upp orði: — Hættu, Duke! Ópið varð að öskri. Hjálp! Henry. Einhver! Komið og hjálp ið mér! 25. — Einkennilegt mál, sagði Johnson höfuðsmaður. — Fjand- ans undarlegt mál! Hann sat í skrifstofunni í Morðdeildinni, og Jim Hobbson sat andspænis honum við borðið. Jim var mjög órólegur og hlust- aði varla á húgleiðingar John- sons um það, sem gerzt hafði í Lorcahöllinni. — Fyrst missir frúin mannirn sinn, sagði Johnfeon. — Svo frernur systir hennar sjálfsmorð. Svo er þessi golfmaður, sem hef- ur sýnilega verið viðhaldið hennar og lætur hund drepa sig. Óhugnanlegt! Manstu mörg dæmi þess, að hundar drepi full- orðið fólk? Ertu að hlusta á mig Jim? — Hvað? Já, auðvitað, sagði Jim, viðutan. — Það litur ekki út fyrir, að þú sért að hlusta. — Afsakaðu, Chuck. Ég er bara dálítið utan við mig. Ég hef unnið frameftir öllu, síðustu vikurnar. Hvað varstu að segja? - Ég var að segja, að þetta væri allt óhugnanlegt mál. En við getum víst ekkert gert annað en úrskurða það dauða af slys- förum. Við höfum enga mögu- leika á að sanna, hún hafi sigað á hann hundinum. Jafnvel þótt svo væri, gæti það verið rétt- lætanlegt. Það sá á henni eftir barsmíð. Þjónustufólkið segir. að hann hafi verið þarna að flækjast og valda vandræðum. Hann átti sér enga glæpaskrá, að undanteknum einhverjum bernskubrekum þarna í San Pedro. Hann varðist vandræð- um, enda þótt ýmsa eiginmenn hafi sennilega langað til að kála honum. Hann hlýtur að hafa haft eitthvað við sig, eða hvað Jim? — Jú, líklega. — Og að minnsta kosti hefur frú de Lorca verið eitthvað hrifin af honum. Hvað gizkarðu á, að þessir skartgripir hafi verið mikils virði? — Það getur nú verið erfitt að meta þá til söluverðs eða endur- kaupsverðs. En að minnsta kosti hefur það hlaupið á þúsundum. — Og hann virðist hafa átt skartgripina? — Já, ég spuiði hana að því, hvort hún hefði gefið honum þá. Hún kvað svo vera. Vitanlega var hann þarna viðstaddur, og hún getur hafa verið hrædd við hann. En hún sýndi þess engin merki, að hann hefði pínt grip- ina út úr henni. — Svo að þá getur ekki verið um neina ákæru að ræða, sagði Johnson ákveðið. — Ég veit ekki, Chuck, svar- aði Jim, eins og í vafa. Johnson leit á hann meðaumk- unaraugum. — Ég veit, hverju þú hefir orðið fyrir, Jim. Þú getur ekki vanizt þeirri hugsun, að Edie sé dáin. Þessi frú de Lorca minnir þig svo á hana, og er að gera þig vitlausan. Hættu að hugsa um það. Jim. Þú hefur ekki neitt gott af því. Og heldur ekki deildin. Þú getur ekki haft fulla dómgreind gagnvart máli, sem þú ert svona nákominn. — Gott og vel, en gerðu bá nokkuð fyrir mig. Ég sagði þér frá arseníkinu, sem fannst í íbúð inni hans Collins. Ég fylgdi mál- inu eftir og það stóð heima, að vallarvörðurinn sagði, að Coll- ins hefði fengið eitthvað af því. En hefurðu ekki sagt mér sjálf- ur, að það liggi margir eigin- menn í gröf sinrn fyrir arseník- eitrun, þegar dánarvoþtorðið hljóðar upp á hjartabilun? Og hvað segirðu um það, að Collins þaut af stað til Evrópu daginn fyrir jarðarförina? Er það ein- hver tilviljun? — Ég skal játa, að það lítur tortryggilega út. — Já, það gerir það svei mér. Ég sting upp á, að þú látir grafa hann upp þegar í stað. — Gott og vel, Jim. Við skul- um gera okkar bezta. 18 26. Edith hreyfði sig varla þegar Henry opnaði dyrnar í hálf- dimmu herberginu og gekk hljóð lega þangað sem hún sat. Hún hafði haldið sig í herberginu síð- an lögreglan og blaðamennirnir komu, daginn áður. Hún talaði við engan, hitti engan og hafðist ekki annað að en sitja í stólnum og horfa út í myrkrið í herberg- inu. Henry leit á ósnertan matar- bakkann og ræskti sig. — . Frú, sagði hann lágt, — Hobbson lið- þjálfi er niðri. Hann heimtar að fá að tala við yður. Edith svarði engu. — Hobbson liðþjálfi er hér að spyrja eftir yður, endurtók Henry. — Hann segir, að það sé áríðandi. Edith rótaði sér eitthvað. — Jim? spurði hún. — Hobbson liðþjálfri, frú. — Segðu honum, að ég skuli tala við hann. —• Já, frú, sagði Henry og fór. Edith reis seint á fætur og gekk út að glugganum. Hún dró tjöldin frá og fékk strax glýju í augun af síðdegissólinni. Hún deplaði augunum og gekk að snyrtiborðinu, þar sem hún tók að greiða sér eins og Margaret hafði gert. Síðan gekk hún inn í fataherbergið og tók fram tvo eða þrjá kjóla af Margaret, og valdi sér einn úr rauðu silki. Hún gekk aftur inn í svefnher- bergið, setti á sig spennu með gimsteinum á, setti á sig svo- lítið ilmvatn og leit svo í spegil- inn áður en hún gekk út. — Góðan daginn, Hobbson liðþjálfi, sagði hún er hún kom inn í bókastofuna. — Jim stóð upp og horfði nokkra stund á hana, áður en hann svaraði: — Góðan daginn. — Henry sagði mér, að bér ættuð eitthvert erindi við mig. — Já, frú de Lorca, ég þyrfti að tala við yður um þessa skart- gripi. — Ég hélt, að þeir hefðu verið úttalað mál, sagði hún kulda- lega. — Já, að vísu, en ég þurfti bara að vita, hvort þér hefðuð einhverju gleymt eða þyrftuð að breyta einhverju. — Ég hef engu ^ð breyta. Ég sagði yður allt, sem máli skipti. — Ur því að skartgripirnir voru í hans vörzlu þegar hann dó, verða þeir að ganga til erf- ingja hans, ef þér gerið enga kröfu til þeirra. — Ég skil. Var það nokkuð fleira? — Ég ........ Jim stamaði og það var auðséð. að hann var í mestu vandræðum. — Ég vil ekki vera persónulegur, en eg get ekki að því gert. Við systir yðar ....... — Ég var að spyrja, hvort þér ættuð nokkurt frekara erindi? greip Edith fram í fyrir honum. — Jú, það á ég Collins sagði að þér hefðuð gefið honum skartgripina „fyrir auðsýnda þjónustu". Nú varð hún hörð á svipinn eins og Margaret. — Ég fæ ekki séð, hvað það kemur við rann- sókn yðar á málinu. En ég get vel sagt yður það samt. Tony var elskhugi minn. Ég var nógu raunsæ til þess að sjá að eini vegurinn til að halda í hann. var að útvega honum nóga peninga. En.þar sem ég gat ekki snert við búi mannsins míns sáluga, var eina ráðið að gefa honum þessa skartgripi. Ég gekk út frá. að hann hefði einhver ráð með að selja þá. Jim starði á hana, móðgaður og tortrygginn. — Ég vænti, að hann hafi ekki verið að kúga fé af yður? Hún hló kuldalega. — Til hvers hefði það átt að vera. Samband okkar var á allra vit- orði. — Og áður en maðurinn yðar dó? Hún -hikaði ofurlítið en svar- aði síðan: — Já, áður en hann dó. Jim þagði, án þess að geta komið fram með raunverulegu ástæðuna til þangaðkomu sinn- ar. Edith horfði á hann með óþolinmæði. — Var það nokkuð fleira? spurði hún. — Já, .frú. — Hvað var það? — ' Lík mannsins yðar var grafið upp í morgun . — En hversvegna? Hvaða hugsanlega ástæða var til þess?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.