Morgunblaðið - 21.10.1966, Síða 10
!C
MORCUNBLAÐID
Fostudagur 21. okt. 1966
Leikarinn Clift-
on Webb látinn
Hann var frægastur fyrir Belvedere-
myndir sínar
Kviktnyndaleikarinn Clifton
Webb, „frægasta barnabía
heims“ eins og bann var stund
um nefndur, lézt sl. laugardag
af hjartaslagi á heimili sínu
í Beverly Hills í Kaliforníu.
Leikferili hans spannaði hálfa
öld, og hann kom m. a. fram
í óperum, söngleikjum og kvik
myndum. Webb var þrívegis
meðal þeirra, sem til greina
komu við úthlutun Oscars-
verðlauna.
Mesta frægð sína öðlaðist
Clifton Webb í hinum vin-
sælu „Mr. Belvedere“ kvik-
myndum, en hin fyrsta þeirra
var „Sitting Pretty“.
í einu atriði þeirrar mynd-
ar, sem mörgum mun minnis-
stætt, skvetti tveggja ára barn
hafragrautsspón á hina
ströngu og vii'ðulegu barna-
píu, leikna af Webb."
„Mr Belvedere" gerði sér
lítið fyrir og svaraði með því
að hella úr grautarskál sinni
yfir höfuð barnsins.
Á eftir þessari mynd komu
myndirnar „Mr. Belvedere
Goes To College“ ( sem raun
ar var sýnd í Keflavíkursjón-
varpinu sl. þriðjudagskvöld
og verður aftur sýnd á föstu-
dag) og „Mr. Belvedere Rings
The Bells“. Þessar þrjár mynd
Clifton Webb í kvikmyndinni
„Mr. Belvedere Goes To Coll
ege“.
ir öfluðu mikils fjár, en Webb
hætti að leika Belvedere engu
að síður til að snúa sér að
öðrum hlutum.
„Belvedere var stórkostleg
persóna, og ég er honum þakk
látur“, sagði Webb um það
leyti „En ég get ekki haldið
áfram að leika sama hlutverk
i’ð til æviloka“.
Einhvern veginn fór það
svo, að Clifton Webb erfði
það orð, sem fór af W. C.
Fields, að vera barnahatari.
Það kom því mörgum á ó-
vart er hann tók að sér aðal
hlutverk í myndinni „Cheap
er By The Dozen“, en hún
fjallaði um mann, sem átti 12
börn.
Webb, sem var maður ein-
hleypur alla ævi, ságði eftir
að kvikmynduninni var lokið,
að hann ætti ekki skilið hat-
ursbarnaorðsporið.
„Börnum og mér hefur á-
vallt komið vel saman, sagði
hann. „Ég umgengst þau sem
jafninga. Það versta, sem
hægt er að gera, er að vera
föðurlegur“.
Webb var fæddur í Indiana
polis, Indiana, og var raun-
verulegt nafn hans Webb
Parmelee Hollenbeck.
Hann hóf feril sinn sem
söngvari í barnæsku árið 1903.
Hann varð síðar meðlimur ó-
peruflokksins Alborn Opera
Company í Boston, og söng
þar mörg hlutverk í óperum,
m. a. í „Tosca“, „La Bohéme",
„Mignon“ og „Hans og Gréta".
En hann var ekki lakari
dansari en söngvari og kom
fram sem slíkur í ýmsum söng
leikjum á Brodway, m. a.
You Never Know“ og „A
Thousand Cheers“. Hann lék
og í gamanleikjum Noel Cow
ards „Blithe Spirit“ og „Pres-
ent Laughter", áður en hann
hélt til Hollywood.
Webb lék í fyrstu kvik-
mynd sinni 1944, og þá hlut-
verk hins orðhvassa gagnrýn
anda í „Laura“. Fyrir leik
sinn þar kom hann til greina
við úthlutun Oscars-verðlauna
fyrir beztan leik í aukahlut-
verki. Hann var aftur -tilnefnd
ur ti'l verðláuna sem bezti
aukaleikari 1946 fyrir leik
sinn * í myndinni „Razor’s
Edge“. 1948 kom hann tii
greina við Oscarsverðlaunaút
hlutun fyrir bezta aðalhlut-
verk ársins, en varð að víkja
fyrir Laurence Olivier og leik
hans í „Hamlet“.
I
LANDAMÆRI fsrael liggja á
590 mílna löngu svæði með-
fram Iandamærum Araba-
þjóðanna og hefur þar löng-
um verið róstusamt. Flest
hafa átökin átt sér stað á 47
mílna svæði, sem liggur með-
fram SV hluta Sýrlands, en
«þar hafa hermdarverkamenn
úr E1 Eatah hreyfingunni, sem
nýtur stuðnings sýrlenzku
stjórnarinnar æ ofan í æ Iæðsi
yfir til ísrael, komið þar fyrir
plastsprengjum og jarð-
sprengjum og síðan horfið til
baka. ísraelsmenn hafa jafn-
oft gripið til hefndaraðgerða
og síðan hefur annarhvor
aðilinn kært málið fyrir
öryggisráði S.Þ.
Spennan á þessum stöðv-
Bifreið israelsku landamæravarðanna eftir sprenginguna.
„Dúfurnar" fóru auðsjáanlega
með sigur af hólmi, því að
Eshkol ákvað að leggja málið
fyrir S.Þ.
öryggisráðið kom saman tfl
fundar í sl. viku, þrátt fyrir
mótmæli arabísku sendinefnd
arinnar, og hlýddi á ræðu
Abba Ebans, utanríkisráð-
herra ísrael, sem krafðist
þess að árásaraðgerðir Sýr-
lendinga yrðu einróma og
kröftuglega fordæmdar. Ekki
er búist við að ráðið taki
kröfur Ebans til greina, er
það kemur saman á ný í
næstu viku, en ísraelsmenn
virðast vona að umræðurnar
muni draga kjark úr hermd-
arverkamönnum til frekari
aðgerða, að minnsta kosti um
einhvern tíma.
Mikil spenna á landamær-
um fsraels og Sýrlands
um magnaðist skyndilega í sl.
viku, er fjórir ísraelskir
landamæraverðir biðu bana
er bifreið þeirra ók yfir jarð-
sprengju, sem hermdarverka-
menn höfðu komið fyrir.
Þetta er mesta manntjón sem
þarna hefur orðið, og um tíma
leit út fyrir að til alvarlegra
átaka kynni að koma milli
þjóðanna tveggja.
Levi Eshkol, forsætisráð-
herra ísrael, aðvaraði sýr-
lenzku stjórnina um að hún
yrði að halda E1 Eatah í skefj
um, eða að öðrum kosti
myndu ísraelsmenn grípa til
róttækra gagnaðgerða þegar
þeim bezt hentaði.
Sýrlenzki forsætisráðherr-
ann, Yussef Zayen svaraði um
hæl, að stjórn sín hefði alls
ekki í hyggju að hefta starf-
semi hreyfingarinnar, því að
Sýrlendingar væru engir
verðir um öryggi ísrael.
„Þvert á móti, sagði forsætis-
ráðherrann, mun Sýrland
styðja frelsisstyrjöld skæru-
liðanna gegn ísrael, og ef
ísrael grípur til gagnárása
munum við bera eld að svæð-
inu og gera það að gröf
ísraelskrar heimsvaldastefnu
og heimsvaldasinna."
Hér áður fyrr var litið á
glikar hótanir sem orðagjálf-
ur, en á seinni árum hafa frak
og Egyptaland styrkt hern-
aðarstöðu sína með stöðugum
mnflutningi sovézkra MIG-
þota og skriðdreka. Þessi
hernaðaraðstoð Rússa hefur
komið af stað mörgum orð-
rómi um fyrirætlanir þeirra,
m. a. að Sovétmenn hafa bein-
línis hvatt Sýrlendinga til að
ráðast á ísrael.
Leyniþjónustur á Vestur-
löndum hafa vísað þessum orð
rómi á bug, þrátt fyrir að
Rússar fara ekki dult með
stuðning sinn við Arabaríkin.
Sovézki sendiherrann í ísrael
sagði eftir atburðinn í síðustu
viku, að Sovétstjórnin myndi
líta hverskonar hefndarað-
gerðir alvarlegum augum.
Bandaríski sendiherrann
reyndi einnig að halda aftur
af ísraelsmönnum.
Þannig var málum háttað,
er Eshkol kallaði stjórn sína
saman til skyndifundar. Heim
ildir herma, að „Haukarnir“
hafi krafizt þungra hefndar-
aðgerða gegn Sýrlandi, en
Abba Eban, utanrikisráð-
herra ísrael.
Tilraun Ebans var vel þess
virði, því að meðan ástandið
í Mið-Austurlöndum er jafn
ótryggt og það er nú, er mjög
ólíklegt að hægt væri að ein-
skorða deilur ísrael og Sýr-
lands við þau lönd ein, því
að hætt er við að írak, Jór-
danía og Saudi Arabía fynd-
ust þau skuldbundin til að
sameinast i baráttunni gegn
ísraeL
Hussein Jórdaníukonungur
sagði í sl. viku „Ef til styrj-
aldar' kemur, mun Jórdanía
berjast gegn ísrael", en hann
bætti fljótlega við „Ég held
að þjóðir heims myndu grípa
til aðgerða til að koma í veg
fyrir slíka sprengmgu.“