Morgunblaðið - 05.11.1966, Page 12

Morgunblaðið - 05.11.1966, Page 12
12 MORGUN BLAÐIÐ Laugardagur 5. nóv. 1966 Nauðsyn miklu hagstjórnartækja Úr ræðu dr. Jóhannesar IMordals bankastióra á fundi iðnrekenda D .JÓHANNES NORDAL, Seðla bankastjóri flutti fyrir nokkrum dögum athyglisvert erindi á fundi Félagi ísi. iðnrekenda þar sem hann ræddi þá erfiðleika, sem framundan eru í efnahags- málum og benti á nauðsyn miklu sterkari og öflugri hagstjórnar- tækja en nú eru fyrir hendi. í því efni vakti hann athygli á þrennu: Að útgjöid opinberra aðila, ríkis- og sveitarfélaga eru eitt mikilvægasta tækið til þess að jafna hagsveiflur. Að veru- legar umbætur á sviði skatta- mála og innheimtu geta dregið dr hagsveiflum. Að komið verði upp skattfrjálsum sparnaðarform um sem bæði einstaklingar og fyrirtæki eigi aðgang að undir tilteknum kringumstæðum. Þá sagði Seðlabankastjórinn að á sl. 12 mánuðum hefði út- lánaaukning banka og spari- sjóða orðið meiri en nokkru sinni fyrr og numið 23% en útlán til iðnaðar á sama tíma aukizt um 23,5%. Dr. Jóhannes Nordal sagði, að í einföldustu mynd sinni mætti segja, að meginvandamál efna- hagsmálanna í dag væru fólgin í því, að verðlag og framleiðslu- kostnaður hefði hækkað hér á landi miklu örar á árinu 1965 og það sem af væri þessu ári heldur en mikill hluti at- vinnuveganna hefði þolað. Reynslan væri því miður sú, að rík tilhneiging hefði verið til verðbólguþróunar nú um þrjá áratugi, og kæmu þar tvímæla- laust til margvíslegar efnahags- legar og þjóðfélagslegar orsakir. Væri þar aukning útflutnings- tekna ein af orsökunum. Á hinn bóginn mætti segja, að helzti hemill á eftirspurnarþenslu hér á landi, hefði verið fólginn í áhrifum á afkomu útflutnings- atvinnuveganna og greiðslujöfn- uðinn. Þótt mörgum hefði verið ljós hin margvíslegu skaðvæn- legu áhrif verðbólgu á efnahags þróunina, hefði það eitt ekki nægt til þess að knýja fram nægilega öflugar* gagnráðstafan- ir. Hins vegar hefðu menn ekki komizt hjá því að spyrna við fótum, þegar verðbólguþróun hefði farið að stefna efnahag þjóðarinnar út á við og sam- keppnishæfni atvinnuveganna í hættu. Nú hefði það verið þannig um nokkur undanfarin ár, að verð- lag íslenzkra útflutningsafurða hefði farið síhækkandi jafnframt því sem síldveiðar hefðu stór- aukið útflutningsframleiðsluna og bætt afkomu þeirra, sem pær hefðu stundað. Á meðan þessu hefði haldið fram, gat verðbólgu þóunin haldið áfram, án þess að afleiðingar kæmu fram í stöðu þjóðarbúsins út á við. Hins veg- ar hlutu vandamál að skapast, jafnskjótt og breyting varð á verðþróun á útflutningsmörkuð- um okkar, en að því hlaut að reka fyrr eða síðar. Þetta hefði komið skýrt í ljós síðustu mánuði. Verðhækkanir hefðu ekki aðeins stöðvazt, held- ur hefðu átt sér stað verulegar lækkanir á verði ýmissa helztu útflutningsafurðanna, svo sem síldarmjöli og lýsi og freðfiski. Hefði þegar gjörbreytt afkomu- horfum sjávarútvegsins, jafn- framt því að hafa mikil áhrif til hins verra á greiðslujöfnuð við útlönd. Atvinnuvegirnir gætu því með engu móti þolað frek- •ri hækkanir framleiðslukostn- aðar, ef forðast ætti verulegan samdrátt í framleiðslu. Þessar staðreyndir og þörfin á verð- og kostnaðarstöðvun væru nú orðnar ljósar ekki einungis at- vinnurekendum, heldur öllum almenningi. Bankastjórinn sagði að fróð- legt væri að kanna orsakir og eðli þess vandamáls, sem við nú stæðum frammi fyrir. Síðan í ársbyrjun 1965 hefði risið hér sterk eftirspurnaralda, sem væri í ætt við þær hagsveiflur, sem þekktar væru úr efnahagssög- unni og enn ættu sér stað, þótt áhrif þeirra væru ekki eins al- varleg og áður fyrr. Áhrifin væru í fyrstu lítil á verðlagið, en eftir því sem eftirspurnarþrýstingur- inn ykist og breiddist út um hagkerfið ykist tilhneigingin til verðhækkana, einkum þar sem framleiðslugetan yrði ekki auk- in með skjótum hætti. Þegar svo vinnuafl og aðrir framleiðslu þættir væru fullnýttir ykust víxláhrif verðlags og launa og hreint verðbólguástand mynd- aðist. Jafnframt yrði vaxandi fjárfesting og hækkandi rekstr- arkostnaður valdur að aukinni eftirspurn lánsfjár, enda færi sparnaður minnkandi, þegar svo væri komið. Þegar slíkar sveiflur ættu sér stað hjá stórþjóðum endaði hún að lokum í alvarleg- um efnahagslegum afturkipp, en áhrif slíkrar þenslusveiflu hjá minni þjóðum kæmu fram í al- varlegum greiðsluhalla út á við, sem leiðrétta yrði með ströngu efnahagslegu aðhaldi. Fyrir því væri margvísleg og dýrkeypt reynsla í heiminum að slíkar hagsveiflur hefðu mikla efnahagslega sóun í för með sér, auk þess sem þær færðu allt verðlagskerfið og fjármál fyrir- tækja úr eðlilegum skorðum. Það væri því orðið eitt af megin markmiðum heilbrigðrar stefnu í efnahagsmálum að forðast slík- ar hagsveiflur og reyna að koma í veg fyrir að eftirspurnar- þróunin gæti náð svo langt, að hættulegt verðbólguástand mynd aðist. Bankastjórinn ræddi því næst um orsakir fyrir kapphlaupi verð lags og kaupgjalds og sagði að verðhækkanir hefðu að nokkru leyti þjónað þeim tilgangi, að gefa öllum stéttum hlutdeild í þeirri aukningu þjóðartekna, sem átt hefðu sér stað sérstak- lega innan síldariðnaðarins. Jafn framt hefði dregið úr vaxtar- hraða ýmissa framleiðslugreina, sem ekki væru samkeppnisfærar um afköst. Þótt þessi þróun hetði gegnt nokkru efnahagslegu hlut- verki hefði hún þegar á heildina væri litið skapað miklu fleiri og erfiðari vandamál en hún hefði leyst. í fyrsta lagi kæmu til á- hrif víxlhækkana, sem hefðu orð ið þess valdandi, að verðhækk- anir hefðu haldið áfram miklu lengur en hin upphaflega fram- leiðsluaukning hefði gefið til- efni til. Hefði þetta valdið al- mennri verðbólguþróun, sem væri orsök þeirar erfiðleika, sem nú blöstu við. Við þetta bættist svo sá eiginleiki verðlags- og launakerfisins, að það virtist hafa teygjanleik eingöngu upp á við. Þannig yrðu verðhækkan- ir auðveldlega til jafnvægis milli atvinnuvega, á meðarx útflutn- ingsverðlag og framleiðni væru hækkandi, en sama gilti ekki verðlag erlendis lækkaði á ný og atvinnuvegirnir hættu að geta | öflugri borgað hið háa kaupgjald. Þá þætti gott, ef hægt væri að ná verðstöðvun, er gæfi atvinnuveg unum nokkurt svigrúm til aðlög- unar að hinu nýja ástandi. Ný hagstjórnartæki. Dr. Jóhannes Nordal sagði, að nauðsyn væri að leita miklu sterkari og öflugri hagstjórnar- tækja, sem tryggðu það, að sveiflur innan einstakra atvinnu vega yrðu ekki til þess að setja allt efnahagskerfið úr skorðum. Benti hann síðan á nokkur at- riði sem dæmi um aðgerðir, sem gætu orðið til mikilla bóta. Dr. Jóhannes Nordal Vék hann fyrst að því að stefna í fjármálum og útgjöld- um opinberra aðila, ríkis- og sveitarfélaga, væii eitt mikil- vægasta tæki, sem nota mætti til þess að jafna hagsveiflur. Leitast ætti við að auka opinber útgjöld, þegar heildareftirspurn væri of lítil og ástæða væri til að örva efnahagsstarfsemina, en hins vegar bæri að draga úr ríkisútgjöldum og hækka skatta, þegar hætta væri á ofþenslu og verðbólgu. í mörgum löndum væri nú sterk viðleitni í þá átt, að hinn opinberi búskapur frek- ar drægi úr, en yki hagsveiflur. Þessu hefir ekki verið svo hátt- að hérlendis og hefði reyndar þótt nógu langt gengið, að íá því framfylgt, að ekki skuli reka búskap ríkis- og sveitarfélaga með halla í sæmilegu árferði. Reyndin hérlendis hefði fremur verið sú að starfsemi hins opin- bera hefði beinlínis haft áhrif í þá átt að auka hagsveiflur í stað þess að draga úr þeim. Stafaði þetta m.a. af því að þegar tekjuaukning og veltuaukn ing ætti sér stað í þjóðfélaginu hefðu tekjur ríkis- og sveitar- félaga tilhneigingu til þess að hækka mjög ört. Þá hefðu kröf- ur um framkvæmdir þessara að- ila og aukna þjónustu við borg- arana aukizt hröðum skrefum, og þá jafnvel stundum örar en tekjurnar. Ofan á eftirspurnar- þensluna, sem stafað hefði upp- haflega af velgengni atvinnuveg anna, hefði því venjulega verið hlaðið stóraukningu opinberra útgjalda og framkvæmda. Sér- staklega hefði þessi tilhneiging verið áberandi hjá sveitarfélög- um hér á landi undanfarin ár, enda mætti segja, að stjórnir sveitarfélaga væru algerlega rofnar úr samhengi við hina ai- mennu stefnu, sem rekin væri af ríkinu í efnahagsmálum hverju sinni. Við þetta bættist svo, hve þunglamalegt og seint í vöfum allt fjármálakerfi ríkis- og sveit- arfélaga væri, þar sem allt væri bundið í fjárhagsáætlunum, sem gerðar væru fyrirfram fyrir heilt ár í senn, en það í sjáifu sér torveldaði mjög allar að- gerðir í þá átt að aðhæfa stefnu þessara aðila þróun þjóðarbú- skaparins á hverjum tíma. Annað svið, þar sem gera mætti verulegar umbætur í því skyni að draga úr hagsveiflum væru skattamál og fyrirkomu- lagið á innheimtu skatta. Mikil- væg umbót í þessu efni væri fólgin í því að taka upp slað- greiðslukerfi beinna skatta hér á landi, en það mál hefði verið mikið kannað að undanförnu. Það mundi tvímælalaust vinna á móti óeðlilegum eftirspurnar- sveiflum, ef skattar væru lagðir á tekjur um leið og þeirra væri aflað, en ekki ári síðar eins og nú ætti sér stað. Ennþá mikil- vægara væri samt, ef hægt væi'i að koma á tekjujöfnunarskatt- lagningu í útflutningsframleiðsl unni, t.d. með einhvei's konar útflutningsgjaldi, er safnað væri saman, þegar tekjuaukningin væri ör, en greitt út að nýju, þegar samdráttur ætti sér stað. Þetta væri ekki ný hugmynd, og reyndar hefði hún verið við lýði í mörg ár. Aflatryggingasjóður, sem gegndi slíku hlutverki í smáum stíl. Með vaxandi sildar- útgerð væri sveifluhættan í út- flutningsatvinnuvegum okkar orðin miklu meiri en áður, og , því þeim mun meiri þörf á að- gerðum til tekjujöfnunar. Ef lit- ið væri til reynslu síðustu 5—6 ára mætti sjá, hve mikilvægu hlutverki slík tekjujöfnun gæti hafa gegnt. Með henni hefði ver- ið unnt að draga verulega úr þensluáhrifum hins mikla síld- arafla og háa verðlags undaniar inna tveggja ára, en jafnframt mundi verðlækkun sem orðið hefði síðustu mánuði, ekki hafa skapað þau vandamál, sem raun bæru vitni. Þá nefnid bankastjórinn til enn eitt tæki, sem hann sagði að komið gæti að verulegum not- um í því skyni að draga úr hag- sveiflum og væri ef til vill það aðgengilegasta, og framkvæman- legasta. Væri hér um að ræða að komið yrði upp skattfrjálsum sparnaðarformum, er bæði eín- staklingar og fyrirtæki ættu að- gang að undir tilteknum kring- umstæðum. Að þvi er varðaði fýrirtæki, gæti þetta verið í svipuðu formi og svonefnd „in- vestment kredit“, sem tíðkast hefði t.d. í Svíþjóð. Fælist í þvi, að fyrirtæki gæti, þegar ágoði væri óvenjulega mikill, lagt hluta af tekjum sínum til hliðar í skattfrjálsan sjóð. Sjóðurinn væi'i svo ávaxtaður á bundnum reikningi í Seðlabankanum og þá helzt með verðtryggingu, þangað til aðstæður leyfðu al- menna aukningu fjárfestingar, en þá mætti fyrirtækið taka inn- eign sína út og nota nana til framkvæmda. Með þessu væi'i fyrirtæki með skattfríðindum til þess að flytja fjárfestingu sína af þensluárunum -yfir á þau ár, þegar eftirspurn væri hófleg. Hliðstæð sparnaðarform, er hentugt launþegum, mætti einnig hugsa sér. Ástandið í peningamálum Að lokum sagði dr. Jóhannes Nordal: Margt af því, sem ég hef sagt hér um hagsveiflur, eðli þeirra og þau vandamal, sem þær skapa, er að mínum dómi nauðsynlegt til skilnings á þróuninni í peningamálum. Á- standið á lánsfjármarkaðinum nú og undanfarna mánuði er átakanlegt dæmi um það. hversu skaðlegt það er efnahagskerfinu og fjármálum fyrirtækja, þegar ofþensla og verðhækkunaröldur fá að rísa eins hátt og reynd hef- ur orðið hér undanfarin tvö ár. Þar liggur fyrst og fremst skýr- inging á því, að hér er nú me’ra kvartað undan lánsfjárskorti en um margra ára skeið, eftir mestu útlánaaukningu, sem um getur, undanfarna 12 mánuði. Á þessu tímabili hefur útlánaaukning banka og sparisjóða nurnið hvorki meira né minna en 1778 millj. kr. auk þess sem fjárfest- ingarlánastofnanir hafa lánað meir en nokkru sinni fyrr. Hlut- fallslega hefur útlánaaukning bankakerfisins numið 23%. Þess má geta, að í hlut iðnaðarins hefur fallið fyllilega eðhleg'ir hlutur þessarar aukningar, eða reyndar heldur betur, þar sem hluti af aukningu lána til sjávxir útvegsins stafar af óeðlilegri birgðasöfnun. Hafa útlán til iön- aðar á þessu tímabili hækkað um 221 millj. kr. eða 23,5%. Ég nefni þessar tölur hér ekki á neinn hátt í því skyni að guma af þeim fyrir hönd bank- anna eða Seðlabankans. Sann- leikurinn er sá, eins og öllum ætti að vera augljóst, sem nokkra nasasjón hafa af efna- hagsmálum, að 23% útlánaaukn- ing á einu ári er á engan hátt samrýmanleg efnahagslegu jafn- vægi eða heilbrigðri fjármála- stjórn. Þetta á ekki sízt við, þegar þess er gætt, að sífellt minnkandi hluti þessarar útlána aukningar hefur verið borinri uppi af raunverulegum sparnaði í formi innlánsaukningar í bönk unum. Þannig var útlánsaukn- ingin mánuðina júlí til septem- ber í ár 534 millj. kr., en inn- lánsaukningin aðeins 92 milij. eða 17%, og frá áramótum hafa bankarnir lánað út helmingi meira en nemur innlánsaukning- unni. Þótt endurkaup afurða- víxla vegna mikillar útflutnings framleiðslu eigi þátt í þessum mikla mismun útlána og inn- lána, er hér um mjög alvarlega þróun að ræða, sem þegar hei'ur orðið til þess að mest allt lausa- fé viðskiptabankanna er upp urið, og þeir komnir í verulegar skuldir við Seðlabankann. Ég held að þessar tölur og reynsla fyrirtækja í lánsfjár- málum sé í sjálfu sér góð vís- bending um það, að hóflaus aukn ing útlána er engin lausn þexrra vandamála, sem hér er við að etja. Séu íslenzkir atvinnuvegir nú komnir í lánsfjárerfiðleika, sem sízt er að efa, eftir 1778 millj. kr. útlánaaukningu á einu ári, stafar það augsýnilega ekki af eðlilegri aukningu rekstrar- 'fjárþarfar. Skýringuna er að finna í efnahagsþenslu, sem ýtt hefur undir óheilbrigða fjárfest ingu, spákaupmennsku og ógæti lega meðferð rekstrarfjár. Aukn- ing bankaútlána án þess að raunverulegur sparnaður sé lyrir hendi til þess að mæta þeim get- ur engan vanda leyst, þegar svo stendur á, heldur mundi hún þvert á móti viðhalda þensiunni, gera allar tilraunir til stóðvun- ar verðlags og kaupgjalds að engu og bitna þyngst á þeiin fyrirtækjum, sem mesta viö- leitni sýna til heilbrigðrar með ferð fjármuna .Hér eru engin ný sannindi á ferðinni. Af þess- ari reynslu hafa allar þjóðir mátt læra og þá ekki sízt íslend- ingar á undanförnum þenslu- skeiðum". Nauðungaruppboð sem auglýst var í 46., 47. og 48 tbl. Lögbirtingablaðsins 1966 á hluta í Ránargötu 11, hér í borg, þingl. eign Viktors A. Guðlaugssonar, fer fram eftir kröfu Axels Einarssonar hrl., og Hafþórs Guðmundssonar hdl. á eigninm sjálfri, þriðjudaginn 8. nóvember 1966, kl. 3Vz síðdegis. Borgarfógetaembættift í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.