Morgunblaðið - 12.11.1966, Síða 1
32 siður
Gefur Brandt
«
kost á sér
— sem kanzlaraefni? Dregið fram skjal,
sem talið er sanna andstöðu Kiesingers
við nazistastjórnina
Oeimfararnir tveir um borð 1 Gemini 12, þeir James A. Lovell (t.v.) og Edwin E. Aldrin.
Síðasta Gemini geim-
ferðin hafin
Sarnbandslaust var við geimfarið um
stund eftir að því var skotið á loft
Kennedyhöfða og Houston,
11. nóv. — NTB — AP.
KL. 19:46 að ísl. tíma var geim-
farinu Gemini 12 með geimför-
unum James A. Lovell og Edwin
E. Aldrin skotið á loft frá
Kennedyhöfða. Nokkru áður,
eða kl. 18:08 hafði Agena-eld-
flaug verið skotið á braut um-
hverfis jörðu, en Agenaflaugin
gegnir mikilsverðu hiutverki í
þessari síðustu Geminitilraun
Bandaríkjamanna.
Agenaskotið tókst elns og
bezt varð á kosið. Geminiskotið
sjáift tókst í fyrstu nákvæmlega
eftir áætlun, en nokkru eftir að
geimfarið var lagt af stað, rofn-
aði radíósamband við það. Var
reynt að kalla til geimfaranna
um tíma, en nokkru síðar tókst
geimferðastöð á Madagaskar að
ná sambandi, og heyrðist þá
ágætlega til geimfaranna. Ekki
er vitað í gærkvöldi hvort bilun
liefði orðið í radiótækjum sjálfs
geimfarsins eða í fjarskiptastöð
á Uppstigningareyju.
Að' öðru leyti gekk ferð Gem-
ini 32 eítir áætlun er síðast
spurðist í gær. Skömmu eftir að
Titan-eldflauginni, sem flutti
geimfarið á loft, hafði verið
skotið, tilkynnti Geimferðastofn
un Bandaríkjanna að Gemini
væri komið á braut sína um-
hverfis jörðu.
45 sekúndum eftir að geimfar
inu hafði verið skotið á loft fór
Agenaeldflaugin yfir Kennedy-
höfða eftir fyrstu umferð sína
Bonn, 11. nóv. NTB — AP
Jafnaðarmenn í Vestur-Þýzka-
iándi gerðu í dag tilraunir í þá
átt að breyta afstöðu sinni í þýzk
um stjórnmálum með því að vera
stjórnarandstöðu við þá, að
vera stjórnarflokkur í sam-
steypustjórn. Willy Brandt, borg
arstjóri í V-Berlín og formaður
flokksins, lýsti því þá yfir, að
hann væri reiðubúinn að taka að
sér kanzlaraembættið í stað Lud
wig Erhards.
sem borgarstjóri
í viðfcali vfð útvarpið í Köiln
sagði Brandt, að gæti hann gert
landinu meira gagn sem leið-
Lyn^ til Moskvu
Osló, 11. nóv — NTB
JOHN Lyng, utanríkisráðherra
Noregs, heldur af stað til
Moskvu á sunnudag í opinbera
heimsókn, sem standa á í fimm
daga. Með ráðherranum fer kona
hans og ýmsir embættismenn.
Lyng mun tvívegis eiga viðræð-
ur við Andrei Gromyko, utan
ríkisráðherra, og að auki ræða
við ráðherra sovézkra utanríkis-
viðskipta, Patolitsjev.
kapphlaupið, þar sem Agena og
Gemini fara með 8 km. hraða
á sekúndu.
Ýmsir sendimenn erlendra
ríkja hjá Sameinuðu þjóðunum
voru viðstaddir geimskotið á
Kennedyhöfða, þar á meðal full-
trúar frá Póllandi og Rúmeníu,
og er þetta í fyrsta sinn, sem
fulltrúar kommúnistaríkja eru
vðistaddir Geminiskot.
Gemini 12 hafði í fyrstu braut
sem er 161 km. frá jörðu þá er
hún er næst, en 281 km. þá
Framhald á bls. .31
48 ár frá lokum
heimsstyrjaldar
í GÆR voru 48 ár liðin siðan
friður var saminn í fyrri heims-
styrjöldinni. í gær var einnig
haldinn hátíðlegur dagur herafla
Bandaríkjamanna, svo skipaður
af Dwight D. Eisenhower, fyrr-
verandi forseta Bandaríkjanna
árið 1958.
togi stjórnarinnar 1 Bonn en
sem borgarstjóri, væri hann
reiðubúinn að takast þá ábyrgð
herðar.
Samtímis gerði flokksforystan
ljóst, að hún muni ekki halda
að sér höndum og verða þannig
til þess að ryðja braut kanzl-
araefni Kristilegra demókrata,
Kurt Kiesinger. Samþykkti mið
stjórn jafnaðarmanna í dag að t
taka upp samband bæði vi‘ð
Kristilega demókrata og frjálsa
demókrata um stjórnmálaástand
ið í landinu.
Tilkynnt var eftir fund mið-
stjórnar jafnaðarmanna, að flokk
urinn myndi þó að svo stöddu
ekki formlega tilnefna kanzlara
efni.
f dag var 22 ára gamalt skjai
dregið fram í dagsljósið í Bonn,
i í því segir, að kanzlaraefni
Kristilegra demókrata, Kurt Kie
singer, hafi eitt sinn verið ávítt-
ur harðlega fyrir að hafa lagzt
gegn áróðursferð gegn Gyðing-
um er hann gegndi embætti í
útvarpsdeild utanríkisráðuneyt-
is Hitlers.
Kiesinger var á fimmtudag
kjörinn kanzlaraefni Kristilegra
demókrata og er ætlað að taka
vfð stöðu Erhards. Kiesinger,
sem er 62 ára gamali, hefur orð-
ið fyrir ákafri gagnrýni heima
og erlendis vegna starfa sinna í
Þriðja ríki Hitlers. «
Talsmaður Bonnstjórnarinna.r,
Karl Gunther von Hase, sagði á
blaðamannafundi í dag, að „þeir
sem vissu hvað Kiesinger hefði
gert fyrir fransk þýzka vin-
áttu og fyrir hinn frjálsa heim
myndi fátt finnast um mold-
viðri um fortíð hans“.
Skjalið, sem áður er minnst
á, er frá árinu 1944.
tveggja margsinnis án árangurs i um jörðu, og var þá hafið geim
Wilson ákveður að sækja
um aðild Breta að EBE
Brezki forsætisráðherrann tekur upp nýja stefnu
í málefnum Evrópu — leiðtogar EFTA-ríkja koma
U Thant endurtekur
Vietnam-tillögurnar
Segir Bandaríkjamenn eiga að hætta
árásum á N-Vietnam án skilyrða
og tímatalmarkana
New York, 11. nóv. — AP.
I! THANT, framkvæmdastjóri
Sameinuðu Þjóðanna, lýsti því
yfir í dag að hann teldi að
Bandarikin ættu að hætta loft-
árásum á N-Vietnam án nokk-
urra skilyrða og „timatakmark-
ana“, U Thant endurtók síöan
tillögu sina í þremur liðum
varðandi hversu koma skuli á
friðarsamningum um Vietnam.
Framhald á bls. 28
saman í London í desember
London, París,
11. nóvember — NTB
HAFT ER eftir áreiðanleg-
um heimildum í London í
dag, að leiðtogar þeirra sex
ríkja, sem aðild eiga að
EFTA, Fríverzlunarbanda-
laginu, með Bretum, muni
styðja tillögur Harold Wil-
sons, forsætisráðherra Breta;
þær stefna að því að opna
Bretum, og öðrum EFTA-
ríkjum, leið til aðildar að
Efnahagsbandalagi Evrópu.
Leiðtogar ríkja Fríverzlun
arsvæðisins koma saman til
fundar í London 5. desem-
ber, og er, skv. heimildum,
gert ráð fyrir því, að tillög-
ur Wilsons verði þá sam-
þykktar.
Ekki er gert ráð fyrir, að
opinberar viðræður fari fram
milli brezku stjórnarinnar og
einstakra EFTA-ríkja, en tal
ið er, að desemberfundurinn
verði * til þess að styrkja
brezku stjórnina í viðræðum
hennar við franska ráða-
menn.
Sömu heimildir herma, að
þau fimm ríki, önnur en
Frakkland, sem aðild eiga að
Efnahagsbandalaginu, muni
styðja Wilson í viðleitni hans.
Er kunnugt varð um nýja tii-
raun brezku stjórnarinnar til áð
Framhald á bls. 31
Rufu Rússar
tilraun^bannið?
-- málið í athugun
Washington, 11. nóv. — AP
BANDARÍSKA utanríkis-
ráðuneytið kvaddi í dag á
sinn fund sendiherra Sovét-
ríkjanna í Washington, og
óskaði eftir því, að hann varp
aði ljósi á kjarnorkutilraun
sovézkra vísindamanna 27.
október sl. Talið er, að
sprengja sú, sem var gerð
Framhald á bls. 31.