Morgunblaðið - 12.11.1966, Side 2
* 2
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 12. nóv. 1966
VKERO Á USTAVERKUM
aÚRENS TEKOR UM 20 ÁR
Nelson Rockefeller, ríkisstjóra í New York, bregður hér heldur
betur í brún, er einn aðdáenda og stuðningsmanna hans reynir
að koma á hann kossi! — Myndin var tekin í Albany í New
York s.I. mánudag, er Rockefeller hafði þar viðkomu í kosninga
Ieiðangri, en á þriðjudag var hann endurkjörinn ríkisstjóri í
New York.
Ekki mistök þuls
í FRÁSÖGN hér í blaðinu í gær
undir fyrirsögninni: „Víxlaði tölu
á hæsta vinningi“, var komízt
þannig að orði, að fréttaþulur
í útvarpinu, hafi víxlað töluröð
er hann las frétt af hæsta vinn-
ingi í 11. flokki háskólahapp-
drættisins, en ekki áttað sig á
mistökunum fyrr en nokkru síð-
ar. Fréttaþulur sá, sem hér um
0 ræðir bað Mbl. í gær, að leið-
rétta það ranghermi að hann
hefði víxlað töluröðinni, þar eð
þau mistök hefðu átt sér stað
í fréttastofunni.
Kosið í
Öryggisróðið
New York, 11. nóv. — NTB.
ALLSHERJARMNG Sameinuðu
þjóðanna kaus í dag fulltrúa
fimm ríkja til setu í Öryggis-
ráðinu næstu 3 ár, frá 1. janúar
n.k. að telja. Það voru fulltrúar
Danmerkur, Kanada, Brazilíu,
Eþíópíu og Indlands, sem kosnir
voru.
f>að eru fulltrúar Hollands,
Nýja-Sjálands, Urugay, Uganda
og Jórdaníu, sem víkja úr örygg
isráðinu nú.
Volvo 144.
Volvo 144 í Húskólabíó í dag
Rómaborg, 10. nóv. AP-NTB
HALDIÐ er áfram björgunar-
starfi á Ítalíu, en miðar víða
hægt, að því er fréttamaður AP
i Flórens segir. Þessi mikla lista-
verkaborg er enn næsta lömuð
eftir flóðin á dögunum. Um tíu
þúsund hermenn aðstoða við
björgunarstarfið i Flórens-hér-
aði, en að sögn borgaryfirvaid
anna veitti ekki af því, að þeir
væru allir í borginni sjálfri.
Hjúkrunargögn, teppi, tjöld
og fégjafir berast enn víða að.
Þess er t.d. getið, að Rauða kross
deildir í Evrópu, Bandaríkjun-
um, Kanada og Ástralíu hafi
sent gjafir, að verðmæti nær líu
milljónir ísl. kr.
Á nokkrum stöðum í Firenze
hefur rafmagni aftur verið kom-
ið á og samgöngur út úr borg-
inni eru orðnar sæmilegar 1
henni sjálfri verður vart þver-
fótað fyrir leðju, rotnandi braki,
sundurtættum skolpleiðslum,
skrokkum dauðra dýra og öðr-
um óþverra. Af öllu þessu ligg-
ur ónotalegur óþefur yfir borg-
inni og uggur manna um að upp
komi farsóttir fer vaxandi. Bólu
efni gegn taugaveiki hefur ver-
ið sent til Firenze og annarra
borga og bæja, sem illa urðu úti
í flóðunum.
f dag var unnið að því að
grafa þúsundir dýraskrokka sem
komu í ljós, jafnóðum og flóðið
sjatnaði. í Firenze einni voru
grafin 2000 dýr og sömuleiðis
200 lestir af rotnuðum matvæl-
um, sem legið höfðu eins og hrá
viði um markaðstorg borgarinn-
ar.
Jafnframt er stöðugt unnið að
því að greiða úr listafjársjóðum
borgarinnar, sem hafa orðið
hörmulega úti. Yfirumsjónar-
maður listasafnanna í Firenze,
dr. Ugo Procacci upplýsti í dag,
að um 1300 listaverk hefðu
skemmzt. „Þetta er hörmulegt,"
sagði hann, „flest listaverkin,
sem við höfum grafið upp, eru
með um 5 cm þykku lagi af
leðju og öðrum óþverra — og
af mörgum hefur málningin ét-
izt upp, af vatninu. Þannig hafði
til dæmis farið fyrir málverkinu
„Krossfestingin“ eftir Cimabue,
sem hann taldi ,eitt dýrmætasta
listaverkið er skemmzt hefði, —
væri það eitt af 20—30 dýrmæt-
ustu listaverkum í Ítalíu allri.
Dr. Procacci taldi, að taka
mundi um tvo áratugi að hreirsa
listaverkin, sem orðið hafa fyrir
skemmdum.
Meðal annarra málverka, sem
skemmdust mikið eru „María
mey með barnið“ eftir Cranach,
og „Hercules og Davíð“ eftir
Beccafumi. Margar lágmyndir á
kirkjuveggjum skemmdust og
sömuleiðis undirstöður að
kirkjuturnum og fornum kirkju
byggingum.
Þá er haldið áfram að bja”ga
bókum og handritum og hafa
þúsundir þeirra verið þurrkuð
og flutt í klaustur, þar sem
munkar munu vinna að viðgerð
þeirra. Einnig eru komnir til
Firenze fjölmargir bandarískir
listasérfræðingar, sem aðstoða
við viðgerð handrita og lista-
verka.
Loks er þess getið í fréttum*
frá Firenze, að af um það bil
hundrað föngum, sem sluppu úr
fangelsum í flóðinu, höfðu í dag
verið handteknir 61, — hinir
eru ófundnir. Einn hinna hand-
teknu var kominn til Júgósla-
víu, en lögreglan þþr tók hann
og sendi yfirvöldunum á ítaliu.
Washington. — NTB.
BANDARÍSKIR vísindamenn
sprengdu kjarnorkusprengju með
anjarðar í Nevadaeyðimörkinni á
föstudag, að því er tilkynnt hef-
ur verið. Sprengjan var lítil.
Bjarni Benediktsson tnlar ó
klúbbfundi Heimdallar í dog
FYRSTI klúbbfundur Heim-
dallar á haustinu verður hald-
inn í dag laugardag. Dr. Bjarni
Benediktsson, forsætisráðherra
er gestur fundarins og flytur
ræðu, sem hann nefnir „Breyt-
ing á stjórnmálabaráttu".
Klúbbfundurinn hefst kL
12.30 í Tjarnarbúð (niðri).
Heimdallarfélagar eru hvatt-
ir ti' að fjölmenna á klúbb-
fundinn, sem án efa verður
stórfróðlegur.
25 ára starfsafmæli:
Zontaklúbbur
Reykfavíkur
— Heldur skemmtun til fjáröflunar
fyrir heyrnardaufa
í DAG verður bifreiðasýning í
Háskólabíó milli kl. 13.30 og
16.00 og þar kynntar Volvobif-
reiðir. Fyrsta bifreiðin af gerð-
inni Volvo 144 kom til lands-
ins sl. fimmtudag. Bifreið þessi
vakti geysimikla athygli, er hún
var kynnt á Norðurlöndum í
sumar og hafa erlend bifreiða-
blöð lokið miklu lofsorði á hana.
m Volvoumboðið á fslandi Gunn-
ar Ásgeirsson h/f bauð frétta-
mönnum í gær að skoða bifreið-
ina. Var þar samankomin fjöldi
manna, sem létu í ljós aðdáun
sína á glæsileika hennar og frá-
gangi. Svo virðist, sem Volvo-
verksmiðjurnar hafi við smíði
bifreiðarinnar, sem tók 3 ár, lagt
mesta áherzlu á öryggi og ör-
yggisútbúnað. M. a. eru þykk
gúmmírönd á báðum stuðurum,
stýrisstöngin gengur i sundur
við árekstur og ef högg kemur
aftan til á bifreiðina hallast
stólbakið aftur.
Fréttamönnum var sýnd kvik-
mynd, sem sýndi smíði bifreið-
arinnar frá því fyrsta þar til
hún var tilbúin, og sást þar m.a.
er tveim slíkum bifreiðum var
ekið á vegg með 50 km hraða
og var undravert hve vel þær
stóðust höggið.
Forráðamenn fyrirtækisins
sögðu fréttamönnum að fyrsta
sendingin væri nær öll seld og
ekki vitað hvenær von væri á
næstu sendingu.
Verð bifreiðanna ei sem hér
segir: Volvo 144 4ra gíra, 4ra
dyra 85 ha vél 276.000,00 kr.
Volvo 144 4ra gíra, 4ra dyra
með yfirgír 115 ha vél kr.
281.000,00 kr. Volvo 144 sjálf-
skiptur 4ra dyra 85 ha vél
420.500,00 kr.
MIÐVIKUDAGINN, 16. nóvem-
ber n.k. heldur Zontaklúbbur-
inn í Reykjavík hátíðlegt 25 ára
afmæli sitt. Af því tilefni gengst
klúbburinn fyrir skemmtun í
Súlnasal Hótel Sögu á miðviku-
dagskvöldið til fjáröflunar fyrir
starf hans, sem eingöngu miðar
að því að hjálpa heyrnardaufum
Þar verður ýmislegt til skemmt
unar, m.a. tizkusýning frá París-
I artízkunni, einsöngur — Guð-
1 mundur Jónsson, óperusöngvari
! syngur nokkur lög við undirleik
Olafs Vignis Albertssonar og sið
an verður happdrætti, þar sem
um marga góða vinninga verð-
ur að tefla.
Zonta-hreyfingin er upprunn-
. in í Bandaríkjunum upp úr
I heimsstyrjöldinni fyrri. Þá voru
konur kallaðar í auknum jnæli
til ýmissa starfa í þjóðfélaginu
og tóku að mynda samtök sín
í milli. Klúbbfélagar eru yfir-
I leitt konur sem starfa í ýmsum
' greinum þjóðfélagsins.
| Zontaklúbbur Reykjavíkur
■ var stofnaður árið 1941 og voru
stofr.-endur 15 talsins. Fyrstu
stjórn hans skipuðu Helga Sig-
urðsson, form., Ellen Hallgríms-
son, Jóhanna Magnúsdóttir,
Anna Friðrikssen, Emilia Borg
og Margrét Árnadóttir. Nú eru
í klúbbnum 36 konur úr jafn-
mörgum starfsgreinum og skipa
stjórn hans nú Rúna Guðmunds
dóttir, form., Vigdís Jónsdóttir
Sigríður Gísladóttir, Jakobína
Pálmadóttir, Guðrún Helgadóttir
og Emma Cortes.
Klúbburinn setti árið 1944 það
markmið að hjálpa mál- og
heyrnarlausu fólki, styrkja það
til starfa eða náms, eða á annan
liátt. Arið 1959 var farið að
leggja meiri áherzlu á aðstoð
við heyrnardauf börn og jafn-
framt á að finna heyrnardeyfu
í tæka tíð svo að unnt væri að
hjáipa börnum betur en ella. í
því skyni hefur klúbburinn lagt
fram fé til kaupa á tækjum og
til þjálfunar starfsfólks, fóstru
og kennara, sem leiddi til þess
að komið var á fót heyrnarstöð
í samvinnu við stjórn Heilsu-
verndarstóðvar Reykjavíkur.
Með skemmtuninni á miðviku-
dagskvöldið vonast Zontaklúbb-
urinn til að geta aflað fjár til
aukinnar aðstoðar við þessa
heyrnarstöð.
(Frá Zontaklúbb Reykjavíkur)
; Kl. 14 var alhvasst á sunn-
I an og skúraveður um sunn-
: anvert landið, en norðan
Z lands var gola eða kaldi og
■ bjartviðri. Hiti var 4 til 7
: stig á láglendi, við frostmark
• a Kli.
Djúpa lægðin við vestur-
ströndina hægði talsvert á
sér þar í gær, en gert var ráð
fyrir, að hún yrði komin aust
ur fyrir land í dag og valda
þá norðlægri átt og frosti.