Morgunblaðið - 12.11.1966, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 12. nðv. 1966
Útgefandi: Hf. Árvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Ejarnason frá Vigur.
Matthías Joi'annessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
B.itstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Cuðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriitargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands.
J lausasölu kr. 7.00 eintakið.
FYRSTA SKREFIÐ
Ðíkisstjórnin hefur nú lagt
fram á Alþingi frumvarp
þess efnis, að togarar fái verð
jöfnunargjald á olíu endur-
greitt. Frumvarp þetta er lið
ur í viðleitni til þess að bæta
hag togaraútgerðarinnar í
landinu og skapa henni rekst
ursgrundvöll.
Verðjöfnun á olíu og ben-
zíni hefur verið framkvæmd
síðan á árinu 1953, en á þeim
tíma voru togarar gerðir út
frá mörgum stöðum í öllum
landshlutum. Á þessu hefur
nú orðið gjörbreyting. Tog-
araútgerð hefur lagst niður
allstaðar nema í Reykjavík,
Htfnarfirði og á Akureyri.
Þá hefur sú öfugþróun orð
ið í sambandi við verðjöfn-
unargjald á olíu, að það hef-
ur að undanförnu komið hin
um arðvænlegu síldarverk-
smiðjum á Austurlandi til
góða á þann hátt, að togararn
ir hafa raunverulega greitt
stórfé til þeirra með verðjöfn
unargjaldinu.
Forsætisráðherra, Bjarni
Benediktsson, hefur að und-
anförnu rætt ítarlega um
vandamál togaraútgerðar-
innar, og bent á raun-
hæfar leiðir til úrbóta á
beim. Ein af þeim var sú að
fella niður verðjöfnunargjald
á olíu til togaranna, og
sú ráðagerð er nú
að verða að veruleika með
framvarpi ríkisstjórnarinnar
um það efni Þessu fyrsta
skrefi ríkisstjórnarinnar til
þess að skapa togurunum að
nýju rekstursgrundvöll ber
vissulega að fagna og vænt-
anlega fylgja í kjölfar þess
aðrar raunhæfar ráðstafanir
til þess að þessi mikli atvinnu
tæki geti á ný þjónað því
mikilvæga hlutverki, sem
þau í áratugi hafa haft í ís-
lenzku atvinnulífi.
ur í utanríkisráðuneyti Ribb
entrops.
Fari svo að Kiesinger verði
eftirmaður Erhards sem
kanzlari Vestur-Þýzkalands
mun athygli manna beinast
að ákveðnum staðreyndum. í
fyrsta lagi, að hann er til-
tölulega lítið þekktur utan
Vestur-Þýzkalands og hefur
því ekki enn áunnið sér það
almenna traust, sem oft fylg
ir nöfnum þekktra stjórn-
málamanna. í öðru lagi hlýt-
ur sú staðreynd að vekja
athygli, að Kiesinger á kjör
sitt mjög að þakka Franz
Josef Strauss fyrrum varnar
málaráðherra, sem að margra
dómi er að verða hinn „sterki
maður“ Vestur-Þýzkalands.
Fari svo að Kiesinger verði
kanzlari og Strauss áhrifa-
mikill ráðherra í ríkisstjórn
hans, má búast við töluverðri
breytingu á utanríkisstefnu
Vestur-Þýzkalands. Strauss
hefur verið talinn helzti leið
togi „Gaullista“ í Vestur-
Þýzkalandi og komist hann
til aukinna áhrifa í Vestur-
þýzkum stjórnmálum, má
fastlega búast við því, að
sambandið milli Frakklands
og Þýzkalands batni á ný.
En engu skal um það spáð
hvaða áhrif það hefur á sam
vinnu Vestur-Þýzkalands
við aðrar Evrópuþjóðir.
Það fer ekki á milli mála,
að miklar breytingar eru í
vændum í Vestur-Þýzkalandi
og það hlýtur að vera von
allra lýðræðissinnaðra
manna, að þær breytingar
verði á þann veg, að styrkja
lýðræðið í landinu og treysta
stöðu ábyrgra stjórnmála-
manna þar í landi.
LOFTPÚÐASKIP
BREYTINGAR
í VÆNDUM
17" ristilegir demókratar í
Vestur-Þýzkalandi hafa
nú valið sér nýjan leiðtoga,
Kurt Georg Kiesinger for-
sætisráðherra í Baden Wúrt-
emberg. Kiesinger sigraði í
atkvæðagreiðslu innan þing-
flokks Kristilegra demókrata,
og hlaut mun fleiri atkvæði
en keppinautar hans Schröd-
er utanríkisráðherra og Barr
zel formaður þingflokksins.
Enn er að vísu ekki ljóst,
hvort Kiesinger tekst að
mynda meirihlutastjórn í
Vestur-Þýzkalandi. Líklegt
er að það reynist honum nokk
uð örðugt, sérstaklega vegna
pólitískrar fortíðar hans, en
hann var meðlimur í nazista
flokki Hitlers, og starfsmað-
^T'veir þingmenn Sjálfstæðis
■*• flokksins, þeir Guðlaug-
ur Gíslason og Sigurður Óli
Ólafsson, þingmenn Suður-
landskjördæmife hafa lagt
fram á Alþingi þingsályktun-
artillögu um að rannsakað
verði hvort svonefnd loft-
púðaskip henti íslenzkum að-
stæðum. í greinargerð tillögu
þeirra, kemur fram, að Vest-
mannaeyingar hafi fylgst
með framförum á þessu sviði,
og telja hugsanlegt að hér
geti verið um samgöngubót
milli lands og eyja að ræða,
en loftpúðaskipin þurfa eng-
in hafnarmannvirki til þess
að athafna sig við.
Loftpúðaskip þessi voru
upphaflega smíðuð í Bret-
landi, og hafa miklar fram-
farir orðið í smíði þeirra á
síðustu árum. Þau eru nú
komin í notkun víða um lönd,
Þannig fór um fjölbýlishús í Niigata í Japan í jarðskjálfta
fyrir nokkrum árum.
//í? YUf'avr *Ftua\
Verður hægt ai segja
fyrir um jariskjálfta ?
Laser-geislun beitt í merkum rannsóknum
í Kalifornlu
FLEST dauðsföll, er verða af
völdum jarðskjálfta, t. d. er
14 manns fórust í Perú nýlega
þegar kirkja hrundi yfir þá,
stafa af því, hversu óvænt og
fyrirvaralaust jarðskjálfta ber
að höndum. Væru tök á því,
að segja fyrir um jarðskjálfta
með nokkurra klukkustunda,
eða jafnvel nokkurra mín-
útna fyrirvara, myndi fólk
yfirleitt geta varið líf og limi
einfaldlega á þann hátt að
fara út úr húsum, þar sem
það er statt.
Á Strawberry-tindi í San
Bernadino-fjöllum í Kaliforn-
íu er nú unnið að nýjum til-
raunum varðandi jarðskjálfta-
spár. Komið hefur verið upp
þar tækjum, sem senda frá
sér tvo „laser“ geisla, þ.e.a.s.
tvo örgranna hátíðnigeisla,
annan sýnilegan, hinn infra-
rauðan, til spegils, sem stað-
settur er á öðru fjalli, Keller-
tindi, í 15 km fjarlægð.
Geislanum er endurvarpað
þaðan til hreyfanlegrar rann-
sóknarstöðvar og mæling
geislanna gefa til kynna
hreyfingar á speglinum. Las-
erkerfið hefur þegar sannað,
að það sýnir hreyfingu, sem
nemur aðeins % úr þumlungi,
og vonir standa til að með
endurbótum geti það sýnt
hreyfingar, sem nema aðeins
1/25 úr þumlungi.
Með því að fylgjast á
þennan hátt með örlitlum
hreyfingum jarðskorpunnar
er hugsanlegt að hægt verði
að segja fyrir um jarðskjálfta.
Ein jarðskjálftakenningin ger-
ir ráð fyrir því, að jarð-
skjálftar hefjist með örsmáum
hræringum í jarðskorpunni,
venjulega við sprungur, sem
síðan verki hvor á aðra og
aukizt. Slíkar smáhræringar
geti smátt og smátt byggt upp
gífurlegan þrýsting og spennu
í dýpri jarðlögum. Við til-
tekinn punkt kunni þrýsting-
urinn að valda skyndileg-
um efna- eða eðlisbreyting-
um í staðbundnum grjótlög-
um, þannig að þau skyndi-
lega sundrizt í smærri ein-
ingar. Slík sundrun gæti vald-
ið meiriháttar jarðskjálfta.
Ennþá er hér aðeins um
kenningu að ræða, og margt
er enn ólært varðandi orsakir
hinna mismunandi tegunda
jarðskjálfta. Sumir jarðskjálft
ar eiga upptök sín djúpt í
iðrum jarðar, aðrir eiga þau
miklu grynnra.
Helzta verkefni rannsókn-
anna í Kaliforníu er að leita
og finna einhverjar breyting-
ar, sem verða áður en til
jarðskjálftans sjálfs kemur,
mæla þær og rannsaka. Ein
aðferðin, sem beitt er, er
grundvölluð á þeirri kenn-
ingu, að þensla sú og þrýst-
ingur, sem byggist upp í
jarðskorpunni áður en til
jarðskjálftans kemur, kunni
að breyta rafmagnsviðnámi á
viðkomandi stað. Þannig gætu
mælitæki, sem sökkt væri
djúpt í jörðu, mælt þrýsting-
inn á hverjum stað beinfi Vís-
indamenn þeir, sem standa að
tilraunum í Kaliforníu vona
að þeim muni takast að kom-
ast að raun um þær eðlis-
hræringar í jarðskorpunni,
sem byggja upp þrýsting
þennan.
Bandarísk nefnd, skipuð af
forseta landsins, lagði nýlega
til, að 20 hlustunarstöðvar
skyldu settar á stofn á mesta
jarðskjálftasvæði Kaliforníu,
þ. e. við hina nær 700 km
löngu Andreas-sprungu. Ef
þessar hlustunarstöðvar hefðu
einnig á að skipa laser-mæli-
tækjum, gætu þær veitt upp-
lýsingar, sem öllu máli skiptu
1 viðleitninni til þess að segja
fyrir um jarðskjálfta og
bjarga þannig mannslífum.
(Observer — öll réttindi
áskilin).
og reynslan af þeim þykir
góð. Hið athyglisverðasta fyr
ir okkur íslendinga í sam-
bandi við þessi loftpúðaskip,
er það, að þau fara bæði um
sjó og land, og þurfa ekki
dýr hafnarmannvirki til þess
að athafna Sig á.
Tillaga fyrrnefndra þing-
manna Sjálfstæðisflokksins
er því vissulega hin athyglis-
verðasta, og full ástæða til að
rækilega verði athugað hvort
hér sé um að ræða samgöngu
bót, sem hentað geti íslenzk-
um aðstæðum.
Lýsisherzlu-
verksmiðja
VEGNA umræðna á Alþingi og
ummæla í dagblöðum vil ég
taka fram, að ég hef ekki lagt
til, að byggð verði lýsisherzlu-
verksmiðja með 50 tonna afköst-
um á sólarhring.
í álitsgerð minni notað i ég
stærð verksmiðju, sem unnið
gæti úr 50 tonnum af lýsi á
sólarhring sem grundvöll til að
reikna út hvort tímabært væri
að reisa lýsisherzluverksmiðju
á íslandi, en jafnframt tók ég
fram í álitsgerðinni að rann-
saka þyrfti, áður en lýsisherzlu
verksmiðja væri byggð, hve hag-
kvæmt væri að hafa afköst
hennar mikil.
Jón Gunnarsson.