Morgunblaðið - 12.11.1966, Side 22
22
MORGU N BLAÐIÐ
Laugardagur 12. nóv. 1966
— Hugleiðingar
Framhald af bls. 21
Bandaríkjamanna í Víetnam.
Kann talaði 14. des. 1961 um „hið
hættulega ástand vegna tilrauna
N-Víetnams til að leggja S- Víet
nam undir sig“. Hann segir síð-
an, að ljóst sé orðið, að af á-
settu ráði sé stefnt að því í
hernaðaráætlun kommúnista að
framkvaema hana með morðum,
manndrápum og taumlausu of-
beldi. Enginn vafi geti leikið á
því, að þessari terror-a'ðferð sé
stjórnað að utan — frá Hanoi,
og þannig rjúfi stjórnin þar Gen
farsamninginn, sem hún skrifaði
sjálf undir 19,54. Kennedy minn-
ir á, að þótt Bandaríkin hafi ekki
verið aðili að samningnum, hafi
þau Jýst yfir því, er hann var
gerður, að þau mundu líta mjög
alvarlegum augum á endurnýj-
un ofbeldis- og árásaraðgerða.
Hann segir Bandaríkin vera
reiðubúin að verða við hjálpar-
beiðni S-Víetnama, þar sem far
ið sé fram á vernd og áðstoð við
að varðveita sjálfstæði þeirra.
2. ágúst 1961 lýsti Kennedy því
yfir, að „Bandaríkin væru ákveð
in í því að láta ekki skort á
stuðningi, sem Bandaríkin gætu
veitt, valda því, að S-Víetnam
félli í hendur kommúnistum“, og
í annað skipti sagði hann:
„Bandaríkin hafa ákveðið að
verða við hjálparbeiðni S-Víet-
nams, aðsto'ða við að varðveita
sjálfstæði þess, vernda þjóðina
fyrir morðingjum kommúnista
og búa henni betri lífsskilyrði
með því að stuðla að hagvexti
landsins".
Allar vonir um friðsamlega
sameiningu Víetnam-ríkjanna
urðu að engu, er Hanoi-stjórnin
jók stöðugt skæruhernað sinn í
S-Víetnam. Átta mánuðum eft-
ir að Kennedy tók við embætti,
25. sept. 1961, ávarpaði hann
Ailsherjarþing Sameinúðu þjóð-
anna og sagði þá: „S-Víetnam
hefur orðið fyrir árás, — stund
um eins morðingja, stundum
skæruliðaflokks, og nú upp á
síðkastið heilla herdeilda. . . .
Enginn getur kallað þetta „frels
isstríð" .... Þessar árásir eru
ekki síður raunverulegar, þótt
menn séu fremur stungnir til
bana á heimilum sínum en skotn
ir á vígvelli". Tveimur árum síð
ar, 12. sept. 1963, sagði Kennedy
á blaðamannafundi, að „stefna
Bandaríkjanna í Víetnammálinu
væri mjög einföld: Við viljum,
að stríðið vinnist, áð kommún-
istum sé haldið í skefjum, og að
Bandaríkjamenn þarna geti far-
ið heim. Þetta er stefna okkar,
og ég veit, að þetta er einnig
stefna fólksins í Víetnam".
Jafnvel Fullbright, sem ýms-
um er tamt að vitna til af ein-
hverjum ástæðum, hefur aldrei
ljeð máls á því, að bandaríski
herinn færi frá S-Víetnam, nema
N-Víetnam láti af árásum sín-
um.
★
Þegar árið 1954 (4. apríl) seg-
ir Eisenhower í einkabréfi til
Churchills, þar sem hann ræðir
um Indókína og ásókn kommún
ista:
„Ef mér leyfist aftur að vísa
til sögunnar, þá mistókst ókkur
á sínum tíma að stöðva Híró-
hító, Mússólíni og Hitler, vegna
þess að við unnum ekki samtím-
is og sameiginlega. Þesssi mis-
tök voru upphafið að margra
ára hræðilegum harmleik, hættu
legum og örvæntingarfullum.
Gæti ekki verið að þjóðir okk-
ar hefðu Jært eitthvað af þeirri
lexíu?“
Þetta er mergurinn málsins.
Það veltur á vörn S-Víetnama
og bandamanna þeirra, hvort út
þenslustefna kommúnista verð-
ur stöðvuð í Asíu, áður en hún
kveikir nýtt heimsófriðarbál.
Það er kynlegur útúrsnúning-
ur, þegar varnaraðilinn er tal-
inn valda hættu á heimsstyrjöld
með því að verja frelsi sitt.
Slíkur öfuguggaháttur í hugsun
er naumast ætlandi öíðrum en
svo sanntrúuðum kommúnistum,
að þeir geta ekki lengur hugsað
sjálfstætt eða rökrænt en láta
mata sig á hráum og grófum á-
róðri.
★
Sá er gæfumunur á styrjald-
araðiljum í Víetnam, að annar
drepur óbreytta borgara vitandi
vits, en hinn reynir eftir fremsta
megni að hlífa þeim. Bandarísk-
ir flugmenn hafa t.d. mjög ströng
fyrirmæli um að varpa ekki
sprengjum nema á hernaðarlega
mikilvæga staði, þar sem ó-
breyttra borgara sé ekki von,
og það er einmitt þess vegna,
sem sprengjum hefur hvorki ver
ið varpað á Hanoi né Haiphong,
þótt stríðsolíugeymar í nágrenni
Hanoi hafi veri'ð eyðilagðir. Með
loftárásum sínum á staði í N-
Víetnam eru Bandaríkjamenn
að veikja árásarmátt kommún-
ista, draga úr stríðs'krafti þeirra
og reyna að gera þeim skiljan-
legt, að hernaður þeirra borgi
sig ekki og sé vonlaus, þegar
fram í sæki.
Bandaríkjamenn og banda-
menn þeirra hafa margítrekað,
að þeir séu reiðubúnir að setj-
ast þegar í stað að samninga-
borðinu án nokkurra skilyrða.
Þeir hafa lýst því yfir, að þeir
séu til viðtals um hin svoköll-
uðu fjögur atriði Hanoi-stjórnar
innar. Tvívegis hafa þeir hætt
loftárásum á N-Víetnam (í
seinna skiptfð í 37 daga), með-
l.n beðið var eftir svari frá
Hanoi um það, hvort stjórnin
þar vildi hefja samningaumræð-
ur. Hún virðir friðarumleitanir
ekki svars. Reynt hefur verið
að ná sambandi við hana eftir
ýmsum leiðum, diplómatískum
og persónulegum, en allt kem-
ur fyrir ekki. Johnson hefur
sagt, að ekkert vanti nema borð
og stól, svo að hægt sé að fara
að semja. Enn virðist Hanoi-
stjórnin gera sér einhverjar von
ir um sigur, fyrst hún slær sí-
fellt á hina útréttu hönd eða
læzt ekki sjá hana. Pekingstjórn
inni er líka ósárt um líf þús-
unda Víetnam-manna, meðan
henni er naúðsyn að halda uppi
ófriði á landamærum sínum og
í útjaðraríkjum.
★
Víst er mál, að styrjöldinni
linni, en hvað á til bragðs að
taka, þegar annar aðilinn neit-
ar með öllu að setjast að samn-
ingaborðinu? Bandamenn S-Víet
nama geta ekki stokkið í burtu
og ofurselt S-Víetnam innrásar-
hernum úr norðri. Þarf ekki að
eyða orðum að því, hvert áfall
það yr'ði hinum frjálsa heimi,
ef Bandaríkjamenn svikju skuld
bindingar sínar. Þar með væri
flóðgáttin opnuð fyrir útþenslu-
stefnu Kínverja, en þeir hafa
lýst því opinberlega yfir, að
styrjöldin í Víetnam sé fyrsta
„þjóðfrelsisstríðið" af mörgum.
Þeir hafa ekki farið dult með
það, að Síam er næsta bráðin.
Um ieið væri allt valdajafnvægi
í heiminum úr sögunni, en það
hefur hingað til komið í veg
fyrir þriðju heimsstyrjöldina.
Hinn reyndi stjórnvitringur og
stjórnmálama'ður, Paul-Henri
Spaak, sem drjúgum hefur stuðl
að að samvinnu Evrópuríkja og
eflingu Atlanshafsbandalagsins,
sagði í marz sl.:
„Vissar staðreyndir verða ekki
vefengdar: Eftir að Genfarsamn
ingurinn var gerður árið 1954,
blönduðu Bandaríkin sér ekki í
mál Víetnams. Meðan þar ríkti
friður, gerðu Bandaríkjamenn
ekki annað en að senda fáein
hundruð rá'ðgjafa og tæknifræð
inga þangað .... Árið 1960 lýsti
kommúnistaflokkur N-Víetnams
því yfir opinberlega (á þingi),
að nauðsynlegt takmark N-Víet-
nams væri að vinna sigur á S-
Víetnam .... Þannig hófst þessi
barátta. . . . Smátt og smátt hóf
ust liðsflutningar frá N-Víetnam
til S-Víetnam. . . . Það var þá,
en ekki fyrr, sem Bandaríkja-
menn blönduðu sér í málið“.
í sömu ræðu lagi Spaak á-
herzlu á, hve mikilvægt það
væri fyrir NATO-þjóðirnar, að
Bandaríkjamenn stæðu við skuld
bindingar sínar, hvar sem væri
í heiminum, en hlypust ekki frá
þeim. Hann minnti á hættuna
af Sovétríkjunum í Evrópu, sem
náði hámarki skömmu eftir lok
síðari heimsstyrjaldarinnar. „Þá
fögnúðum við því nær öll, er
Bandaríkin komu okkur til hjálp
ar. . . . Treystist nokkur til að
halda því fram, að frjálsum þjóð
um Asíu sé ekki ógnað af heims
veldisstefnu Kínverja? Hvernig
getum við komizt hjá því að
gera okkur ljóst, að hlutverk
Bandaríkjanna í heiminum
krafðist þess, að þau tækju sömu
afstöðu nú til Asiu og þau tóku
áður tid Evrópu“.
Spaak lauk máli sínu með því
að segja, að hann vissi ekki,
hvers vegna sumurn virtist ekki
geta skilizt, að miklu meira
væri í húfi í baráttunni í Víet-
nam en sjálfstæði eða þrældóm-
ur fólksins í Víetnam, þótt það
væri nægilegt út af fyrir sig.
Ástæðulaust er me'ð öllu að
liggja hundflatur fyrir Banda-
ríkjamönnum og gleypa allt
hrátt, sem frá Washington kem-
ur, eða frá hinum fámenna en
háværa hluta þjóðarinnar, sem
bölsótast út í Johnson vegna Víet
namstríðsins. Bandarískt lýð-
ræði tryggir líka frjálsustu og
beztu fréttaþjónustu, sem heim-
urinn hefur þekkt, svo að auð-
velt er að vega og meta aðgerð-
ir bandarísku stjórnarinnar 1
ljósi hennar eigin skýringa og
gagnrýni ! andstæðinga hennar.
Ástæðulaust er einnig að kyngja
við öllu, sem frá Moskvu eða
Peking kemur, en það virðast
ólíklegustu menn gera me'ð beztu
lyst. Hins vegar mættu sumir
minnast þess,
að þátttaka Bandaríkjanna i
síðustu heimsstyrjöld réð úrslit-
um um það, hvort nazismanum
tækist að leggja undir sig alla
Evrópu og e.t.v. allan heiminn,
að bandarísk hjálp gerði það
kleift, að Vestur-Evrópa reis
hratt og örugglega úr rústum
eftir stríðið,
að Marshallaðstoðin kom í veg
fyrir kreppu og atvinnuleysi í
mörgum Evrópuríkjum eftir
stríðið,
að þessi aðsto'ð ásamt hern-
aðarbandalagi við Bandaríkin
tryggði frelsi V-Evrópu og stöðv
aði framsó'kn kommúnismans,
að valdajafnvægið í Evrópu
og að miklu leyti í heiminum
öllum er komið undir styrkleika
Bandaríkjanna,
að ekkert annað lýðræðisríki
er nógu öflugt til þess að geta
stemmt stigu við ofbeldisöflum,
sem vilja lýðræ'ðið feigt, er við
búum við,
að langmestur hluti þeirrar að
stoðar, sem vanþróuð og fátæk
lönd njóta, kemur frá Bandaríkj
unum,
að friðurinn í Víetnam var rof
inn af þeim aðilja, sem Banda-
rí'kjamenn berjast við,
að þessi aðili (Hanoi-Peking)
vill ekki samninga,
að þessi aðili vígbjóst á „hlut
lausa beltinu",
að styrjöldin í Víetnam er
prófsteinn á mátt útþenslustefnu
kommúnismans í Asíu,
að sigur kommúnista í Asíu
hlyti að leiða til aukins yfir-
gangs, skv. yfirlýstri stefnu Pek
ingstjórnarinnar, og líklega a'ð
lokum til 'heimsstyrjaldar.
Þessi upptalning er alls ek'ki
frumleg, og hún gæti líka verið
miklu lengri. Sannleikurinn er
sá, að Bandaríkin eru eina heims
aflið, sem við, er trúum á vest-
rænt lýðveldi, getum sett traust
okkar á gegn útþenslustefnu
kommúnismans. Þar með er alls
ekki sagt, að þau séu gallalaus,
enda mundu Bandaríkjamenn
játa það manna seinastir. Vegna
þess að Bandarikin eru lýðræð-
isríki, er jafnan höfð þar uppi
svo hávær gagnrýni á stjómend
urna, að andstæðingar þeirra
þurfa ekki lengur að leita púð-
ursins. f Bandaríkjunum sjálf-
um má heyra öll rök, sem hér
og annars staðar eru notuð me'ð
eða móti aðild þeirra að Víet-
namstríðinu.
★
Suður-Víetnamar berjast ekki
einir í landi sínu. Þeir eiga fjöl
mennasta herinn, en auk þess
hafa Bandaríkjamenn, Ástralíu-
menn, Nýsjálendingar, Suður-
Kóreumenn og Filipseyingar
þar herlið. Eru þetta allt innrás-
arherir? Auk 'þess að berjast
með Víetnömum, veita framan-
taldar þjóðir þeim margháttað-
an stuðning. Ber þar fyrst að
nefna Bandaríkjamenn, sem hafa
veitt þeim gífurlegan stuðning
til skólamála, landbúnaðarmála,
heilbrigðismála, tækniþróunar
o.s.frv. Þa'ð er staðreynd, sem
gleymist einkennilega oft, að
þrátt fyrir allar hörmungarnar
í S-Víetnam, hafa orðið þar mikl
ar og ótrúlega örar framfarir
síðan 1954.
Eftirtaldar þjóðir (auk fram-
angreindra) veita S-Víetnam ým
iss konar stuðning og sýna með
því í verki, hver afstaða þeirra
er til styrjaldarinnar: Thailend-
ingar, Malajsíumenn, Laosbúar,
Framhald á bls. 25
Eiginkona mín og móðir okkar,
LILJA SÓLVEIG PÁLSDÓTTIR
Heiðarbæ 2,
andaðist fimmtudaginn 10. nóvember á Farsóttarhús-
inu Reykjavík.
Jón Anton Ström og börn.
Hjartkær eiginmaður minn og faðir,
JÓIIANN TORFI STEINSSON
fyrrum yfirvélstjóri,
lézt hinn 11. nóvember síðastliðinn.
Esther Steinsson og börn hins látna.
Bróðir minn,
GUÐMUNDUR GUÐmJNDSSON
Vesturbraut 5, Keflavík,
andaðisl að heimili sínu 10. þ. m.
Jóhann Kr. Guðmundsson.
Jarðarför föðursystur okkar,
KRISTÍNAR DAVÍÐSDÓTTUR
fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 14. nóv. kl.
10,30 f.h. — Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu er vinsamlegast
bent á kristniboðið í Konsó.
Fyrir hönd vandamanna.
Helga Daníelsdóttir, Klara Guðmundsdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við fráfall
og jarðarför,
ARA MARONSSONAR
Fyrir hönd aðstandenda.
Helga G. Helgadóttir.
Hjartans þakkir færi ég börnum mínum, tengdaböm-
um og systkinum og öllum þeim, sem sýndu mér fá-
dæma góðvild með heimsóknum, skeytum og gjöfum á
70 ára afmælinu 2. nóv. si.
Amfríður Álfsdóttir,
ísafirði.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát
og jarðarför,
SIGURÐAR ÞORSTEINSSONAR
Skúlagötu 72.
Fyrir hönd vandamanna.
Anna Rísberg.
Hugheilar þakkir færi ég öllum þeim er sýndu mér
samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns,
STEINÞÓRS BJARNASONAR
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Þorbjörg Guðmundsdóttir.
Hjartans þakkir til allra nær og fjær fyrir auðsýnda
samúð og vináttu við andlát og jarðarför móður okkar,
INGIBJARGAR KRISTFRÍÐAR BJÖRNSDÓTTUR
Fyrir hönd aðstandenda.
Hólmfríður Magnúsdóttir.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu mér og fjöl-
skyldu minni samúð og vinarhug við andlát og jarðarför,
BÖÐVARS MAGNÚSSONAR
fyrrverandi hreppstjóra, Laugarvatni.
Hjartans þökk fyrir þá vinsemd og virðingu er minn-
ingu hins látna var sýnd.
Guð blessi ykkur öll.
Ingunn Eyjólfsdóttir og fjölskylda.
Þakka öllum fjær og nær fyrir hlý handtök og heilla-
skeyti á áttræðisafmæli mínu 26. fyrra mánaðar.
Kær kveðja til ykkar allra.
Guðmundur Jónsson,
, . . . Steinsholti.