Morgunblaðið - 12.11.1966, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 12.11.1966, Qupperneq 32
Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað 260. tbl. — Laugardagur 12. nóvember 1966 Lang stærsta og fjölbreyttasta blað landsins Breyttur tími á barna- heimilum eftir verkfall Nú opin kl. 8-5 í stað 9-6 Konan sem lézt af afleiðing- um bílslyss í Kópavogi, er hún féll út úr bílnum, hét Auður Gréta Valdimarsdóttir, fædd 13.2 1937 og því 29 ára að aldri, er hún lézt. í GÆRMORGUN voru samning- ar sáttanefnda í vinnudeilu að- stoðarfólks á barnaheimilum samþykkt.ir af viðkomandi fé- lögum, og tók varnaheimilin í Reykjavík til starfa aftur kl. 1 eftir hádegi. í kjölfar þessara samninga fylgir breyttur vinnu- tími á barnaheimilunum, þannig að þau verða opin kl. 8 á morgn- ana til kl. 5 síðdegis, í stað kl. 9—6 áður. Margar konur, sem vinna úti, þurfa að hafa börn sín á barnaheimilum og getur þessi breytti tími barnaheimil- anna skipt máli fyrir þær. Hann ætti t. d. að koma til góða fyrir verksmiðjustúlkur, sem byrja vinnu kl. 8, en kemur sér aftur | á móti illa fyrir konur, sem I starfa í verzlunum, er loka kl. 6. Mbl. fékk nánari upplýsingar um þetta hjá Boga Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Sumargjafar. Hann sagði, að meðan breyting- in væri að komast á, eða næsta hálfa mánuðinn að minnsta kosti, yrði komið til móts við þá sem verst eru settir, þannig að möguleikar yrðu á að sækja börnin eitthvað seinna, en síðan væri reiknað með að fólk lag- aði sig eftir þessu um breyttan tíma. Konur vinna úti á ýmsum tímum, og víðast er hætt kl. 5, þó ekki alls staðar. Sagði Bogi, að raunar hefði áður verið rætt um að stytta gæzlutíma barn- anna síðdegis, því það þætti nokkuð mikið fyrir litlu börnin að vera á barnaheimilunum frá kl. 1—6. Áhugi rœkt FUNDUR var haldinn i Félagi áhugamanna um fiskrækt, þriðju daginn 7. nóv. s.I. Á fundinum urðu fjörugar umræður um fiski rækt fslendinga og um það sem ábótavant er í þeim málum, og hvað gera þarf til að fiskrækt landsmanna geti haldið áfram að Handtekinn fyrir smygl LÖGREGLAN hér í borginni varð í fyrrinótt vör við það, að maður var að handlanga ein- hvern varning úr þýzka skipinu Meerkatze út í bifreið, sem stóð þar skammt frá. Lögreglan veitti bifreiðinni eftirför er hún ók á brott og stöðvaði bifreið- ina á Hverfisgötu. Við leit í bíln um fundust 24 flöskur af 75% vodka. Maðurinn sem átti vínið reyndist vera Þjóðverji aí hinu þýzka skipi og játaði hann á sig að hafa ætlað að smygla vín- inu í land. á tisk- eykst vaxa; enda hér um mikilvægt verkefni að ræða. Formaður félagsins, Bragi Ei- ríksson, tók fyrstur til máls, setti fundinn og bauð gesti velkomna. Benti hann á það, að fundurinn væri haldinn í samræmi við megintilgang félagsins, þann að efla þekkingu á fiskræktarmál- um. Þá kom einnig fram í setning arávarpi formanns félagsins, að félagið hefur á stefnuskrá sinni að hafa áhrif á löggjöf varðandi fiskrækt og fiskvernd. Þór Guðjónsson, veiðimála- stjóri, var meðal gesta fundar- ins, og flutti hann ræðu og sýndi skuggamyndir. Skýrði hann í megindráttum frá sögu fiskrækt- ar í heiminum, en drap lítillega í lok máls síns á fiskræktarmál Islendinga, og sagði, að þau mál væru á byrjunarstigi, og ætti fisk ræktin hér á landi við að stríða fjármagnsskort, vöntun á ' sér- menntuðum mönnum, og einnig reynsluleysi. Jakob Hafstein forstjóri tók næstur til máls og ræddi fisk- Framhald á bls. 31 Sagði Bogi, að gengið hefði verið að því skilyrði fulltrúa starfsstúlknanna að greiða 33% álag á vinnutímann eftir kl. 5, en það var ein aðalkrafan af þeirra hálfu. En aftur á móti var fall- ist á tilboð um önnur atriði, eins og vinnuveitendur buðu þau. En kröfurnar, sem fram voru settar voru auk 33% álagsins eftir kl. 5, um kaup matráðskvenna, 7% álag fyrir stúlkur sem vinna hálfan daginn, og álag til stúlkna, sem settar eru yfir deild. Það væri rangt að þetta væru ekki nýjar kröfur, sagði Bogi. Fundurvegna Búrfellsdeilu SÁTTASEMJARI boðaði deilu- aðila í Búrfells-kjaradeilunni á fund kl. 10 í gærmorgun og lauk þeim fundi á hádegi. Aftur hófst fundur með sömu aðilum kl. 8,30 í gærkvöldi og stóð enn er blað ið fór í prentun. Fundur hjá Hvöt Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt heldur fund á mánudagskvöld- ið 14. nóv. kl. 8.30 í Sjálfstæðis- húsinu. A fundinum talar Magn ús Jónsson, fjármálaráðherra. Og á eftir verða skemmtiatriði og kaffidrykkja. Eru Sjálfstæðiskonur hvattar til að fjölmenna og taka með sér gesti, og beðnar um að mæta stunavíslega, svo fundur geti hafizt á réttum tíma. Hlífðarútbúnaður á drátt arvélum lífsnauðsyn , - segir Henry Hálfdánarson form. SVFI BANASLYSlö sem varð í Reykholtsdal sl. miövikudag er 16 ára drengur frá Bolung- arvík varð undir dráttarvél, sem hann ók sjálfur, er 5. banaslysið af þessu tagi í ár. Alls hafa í ár orðið 22 bif- reiða- og dráttarvélabanaslys, skv. upplýsingum Henrys Hálfdánarsonar, form. SVFÍ. Henry sagði, að banaslysum við dráttarvélaakstur færi fjölgandi. í fyrra urðu 3 dauða slys þanníg og 1964 voru þau 2. Henry sagði, að athyglis- vert væri, að í ár hefðu ungl- ingar á aldrinum lð—16 ára látizt af völdum þessara slysa, sá yngsti var 14 ára. Áður hefðu þeir veri'ð yngri, á aldr- inum 10—12 ára. Vant væri að sjá hvað þessu ylli, ef til vill óaðgæzla unglinganna, ef til vill það, að þeir væru látn- ir beita dráttarvélunum á erf- iðu landi. Þá gat Henry þess, að flest eða öll banaslysin hefðu orðið á dráttarvélum, sem hvorki hefðu hús eða grind til hlífð- ar. Nú væri búið að lögfesta, að bændur mættu ekki kaupa dráttarvélar nema með húsi eða grind, en grindin veitti þó ekki eins mikla hlífð og húsið. Kvað Henry slíkan hlífðarbúnað á dráttarvélum lífsnauðsyn. Fundur í Félagi áhugamanna um fiskrækt Þau gátu aftur farið á barnaheimilið sitt, í Laugaborg, þessl tvö í gær. Þau heita Andri og Hanna, og eru tveggja og fjögurra ára gömul. Mamma þeirra vinnur í húð frá hádegi og fer með þau. en amma þeirra sækir þau og sést þarna vera að hjálpa þeim að búa sig til heimferðar. ísland sigraði Danmörk 3-1 Friðrik sigraði Larsen — íslendingor eru nú í 9.-10. sæti í SJÖTTU urnferð skákmótsins á Kúbu tefldu Islandingar við Dani. Friðrik sigraði Bent Lar- sen glæsilega í 45 leikjum og var skákin sýnd á 10 fermetra stóru sýningarborði, sem komið hafði verið upp á framhlið bygg ingar við eitt aðaltorg Havana. Fylgdist mikill mannfjöldi með skákinni og klöppuðu áhorfend- ur Friðriki lof í lófa, er Larsen gaf skákina. Aðrar skákir í viðureign Dana og íslendinga fóru þannig að Guðmundur Pálmason vann Andersen, Freysteinn tapaði fyr ir Petersen, og Ingi vann Bnnk- Clausen. ísland 3 — Danmörk 1. Viðureign annarra landa iauk þannig, að Bandaríkin og Ung- verjaland skildu jöfn 114 vinn ing hvort, en ein skák fór í bið. Tékkóslóvakía vann Noreg með 3 vinningum gegn 1. Argentína tapaði fyrir Rúmeníu með 2Vi gegn IV2. Rússland vann Spán með 3% gegn 14. Kúba hlaut 1 Vt vinning í skákum sínum gegn A-Þýzkalandi, sem hlaut 214 vinning. Júgóslavía hlaut 214 vinning gegn Búlgaríu, sem hlaut 114 vinning. Deila Sovétríkjanna og Banda ríkjanna er nú til lykta leidd. Eins og getið hefur verið í frétt* um báðu Bandaríkjamenn um frestun á skák milli heimsmeist arans Petrosjans og Roberts Fischer, þar eð Fischer hafði þá nýtekið Gyðingatrú og gat því ekki trúar sinnar vegna teflt fyrr en eftir kl. 18 á laugardag. Skákirnar hefjast hins vegar tveimur tímum fyrr og neituðu Sovétmenn Fischer um frestun á skákinni. Þessu mótmæitu síðan Bandaríkjamenn með þvl að mæta ekki til leiks og var Sovétmönnum þvi dæmdur vinn ingur í öllum fjórum skákunum. Bandaríkin kærðu þennan úr skurð (4—0) og í fyrrakvöld kom úrskurður um að viður- eign Sovétmanna og Bandarikja manna skyldi fara fram síðar og sættu Sovétmenn sig við það. Sagði talsmaður Sovétsveitarinn ar að sveitin vildi ekki svipta áhorfendum mótsins ánægjunni Framhald á bls. 31 Leikoror væntonlegir í sjónvnrpið FRAM að þessu hafa leikarar ekki starfað fyrir íslenzka sjón varpið, þar sem ekki er búið að ganga frá samningum milli þess ara aðila. Hafa samningar staðið yfir, og verið skipzt á tilboðum, og sgði Pétur Guðfinnsson, sjón varpsstjóri, að þeir væru nú langt komnir og líkur til að skrif að verði undir næstu daga. Úr því getur maður átt von á að leikarar fari að sjást á sjónvarps skerminum. Látni maðurinn Maðurinn sem fannst látinn í fyrradag í gamla kirkjugarð- inum og greint var frá í blaðinu í gær, hét Þorsteinn A. Jóns- son 52 ára að aldri til heimilig eð Ásgarði 125.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.