Morgunblaðið - 29.11.1966, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur' 29. nóv. 1966
AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í Reykja-
vík var haldinn í Sjálfstæðishús-
inu í gær. Fundarstjóri var Geír
Hallgrímsson borgarstjóri og
fundarritari Björgólfur Guð-
mundsson, verzlunarmaður. For-
maður Fulltrúaráðsins Baldvin
Tryggvason, framkvstj. flutti
skýrslu stjórnar um starfsem-
Keflsvík
Sjálfstæðiskvennafélagið „Sókn“
heldur bazar í Sjálfstæðishús-
inu fimmtudaginn 1. des. kl. 5.
Margt ágætra muna. Allur ágóði
rennur til góðgerðastarfsemi fyr
|r jólin.
ina á sl. starfsári en síðan
urðu allmennar umræðu og
tóku tií máls Bggert Hauksson,
Grímur Bjarnason og Sigurjón
Bjarnason.
Stjórn Fulltrúaráðsins var
endurkjörin, en hana skipa Bald-
vin Tryggvason, Höskuldur Ól-
afsson, Gróa Pétursdóttir og
varastjórn, Jóhann Hafstein,
Gunnar Helgason og Ágúst Haf-
berg.
Þá flutti Jóhann Hafstein
dómsmálaráðherra ræðu en
henni var ekki lokið er blaðið
fór í prentun. f lok fundarins
var kjörin kjörnefnd Sjálfstæðis
flokksins í Reykjavík fyrir Al-
þingiskosningarnar næsta vor.
Margt fágætra bóka
‘á uppboði í dag
um 200 bækur úr sðfni
þekkts bókðsafnara
KL. 4.30 í dag hefst í Þjóðleik-
húskjallaranum bókauppboð hjá
Sigurði Benediktssyni. Seldar
verða bækur úr safni þekkts
bókasafnara og verða þarna
margar mjög fágætar bækur
boðnar upp. Auk þess sem bæk-
urnar eru fágætar er athyglis-
vert hversu vel með farnar þær
eru og yfirleitt í mjög góðu
bandi. Ekki viidi Sigurður Bene-
diktsson gefa upp hver bækurn-
ar hefði átt, en sagði að von væri
á fleiri bókum frá sama safnara
og yrðu þær væntanlega seldar á
uppboði um miðjan desember. Á
því uppboði mundi verða m. a. 5
Skálholtsbækur og rif Lærdóms-
listarfélagsins, en það er nær
einsdæmi að þær bækur séu fal-
ar til kaups.
Af merkum bókum sem seldar
verða í dag má nefna eftirtaldar,
en alls eru 167 númer á uppboðs-
skránni:
Om Nordens gamle Digtebonst
eftir Jón ólafsson, prentuð í
Kaupmannahöfn 1786 og er bók-
in með áritun séra Arnljóts Ól-
afssonar; Series regum Daniae
eftir Þormóð Torfason, prentuð
í Khöfn 1702 og árituð af Bg-gert
Ólafssyni lögmanni; Feðgaævir
Boga Benediktssonar prentuð í
Viðey 1823; Dissertatio de VSV
Lingave eftir Odd H. Vídalín,
prentuð í Khöfn 1786; Njálssaga,
prentuð í Viðey 1844; Robert
Browning eftir Jón Stefánsson
prentuð í Khöfn 1801; Livser-
indringer Bardenfleths, prentuð
í Khöfn 1890; Norsk Litteraatur
eftir Francis Bull og fl., prentuð
í Osló 1937; Bækur ólafs Ólafs-
sonar (Olavius) Ökonomisk Reise
igjennem Island, Khöfn 1780,
sama bók á latínu og Dresden
og Leipzig 1787. Heimskringla
Snorra Sturlusonar prentuð í
Leirárgörðum 1804; Eftirtaldar
bækur Magnúsar Stephensen:
Eftirmæli 18. aldar, Leiárgörð-
um 1806; Ljóðmæli og Graf-
minningar, Viðey 1:842, Vinagleði,
Leirárgörðum 1787, Island i det
18. Aarhundrede, Kaupmanna-
höfn 1808 og Ræður Hjálmars á
Bjargi, Viðey 1820. Ljóðmæli og
leikrit Sigurðar Péturssonar I-II,
prentuð í Reykjavík 1844—1846,
Bækur R. K. Rasks Undersögelse
og Anvisning til Islandskan;
Förelasningar Finns Magnússon-
ar prentuð í Stokkhólmi 1822;
Kongs Skugg-Sio prentuð í Soröe
1768, Islansk Lexicon Björns
Halldórssonar í Sauðlauksdal
prentuð 1814; Det norske folks
Historie 8 bindi, prentuð 1852—
1659, og Homiliubók eftir elzta
íslenzka handritinu, prentuð í
Lundi 1872.
Af merkum tímaritum er seld
verða má nefna: Norðurfara
1848—.1849 í skinnbandi, Sunnan-
fara 1—XII gefinn ú í Kaup-
mannahöfn og Reykjavík 1891—
1914, Tímarit Jóns Péturssonar
I—IV frá 1869—'1873, en það mun
vera sérstaklega fágætt, Tímarit
um uppeldis- og menntamál gefið
út í Reykjavík 1888—92 og Ný
Sumargjöf 1860—1862 og 1865 og
er það bundið í skinnband.
Eins og áður segir verður upp-
boðið í Þjóðleikhúsfcjallaranum
og hefst hálfri klukkustund fyrr
en venjulega, eða kl. 4.30.
DJÚPA lægðin milli íslands gangur.
og Noregs olli stórhríð um Á Grænlandshafinu var að
norðan- og austanvert landið myndast ný lægð og búizt viö
um helgina, en í gær var orðið að hún færi ört dýpkandi og
bjart veður um allt land. Á hreyfðist austur yfir landið í
miðunum austur af landinu dag.
var þó ennþá stormur og élja
Hinn nýi ambassador Tékkóslóvakíu, herra Frantisek Malik, af-
henti í dag forseta íslands trúnaðarbréf sitt við hátíðlega athöfn
á Bessastöðum, að viðstöddum u tanríkisráðherra.
Eldgos og hagnýt
notkun jarðhita
aðalefni í ísl. deildinni í Montreal
fjórir ldtnir
BRENNIPUNKTURINN á ís-
lenzku sýningardeildinni í Norð-
urlandaskálanum á heimssýn-
ingunni í Montreal verður starf-
semi eldgosa og hagnýt notkun
jarðhita. Fréttadeild kanadísku
heimssýningarnefndarinnar í
Montreal hefur þetta eftir Gunn-
ari J. Friðrikssyni, framkvæmda
stjóra íslenzku sýningarinnar, í
viðtali er hann átti fyrir vestan.
Segir Gunnar að ísland sé harð-
býlt land, en þjóðin hafi komið
sér þar vel fyrir og lifi menn-
ingarlífi. íslenzka deildin muni
lýsa þjóðinni, lífsbaráttu hennar,
lifnaðarháttum og tækniþróun-
inni í landinu. Eldfjallalandið og
notkun jarðhitans, verði aðal-
aðdráttarafl íslenzku sýningarinn
ar, en í ísl. deildinni verði sögð
saga þjóðarinnar og lýst menn-
ingu hennar og atvinnuvegum.
Arkitekt íslenzku sýningarinn
ar, Skarphéðinn Jóhannesson,
sem byggir hugmyndir sínar á
efnivið frá jarðfræðingi og hita-
veitu verkfræðingi, notað við
uppsetningu deildarinnar teikn-
ingar, þverskurðarlíkan, ljós-
myndir og hraunleirmuni, segir
ennfremur í fréttinni. Lýsa teikn
ingar á veggjum sögu landsins
eftir komu víkinganna, þar á
meðal ferðum Leifs heppna, vest
ur um haf og síðan eldgosum,
harðindum og hungri seinni alda
með land í sköpun í bakgrunni.
Notkun jarðhitans verður síðan
lýst með þverskurðar líkönum,
sem sýna jarðfræðilegar myndan
ir neðanjarðar og tæknilegan út-
búnað ofanjarðar, svo sem hita-
veitukerfið og gróðurhúsarækt-
ur. Er þess getið að notkun jarð-
hita á íslandi sé 800 ára gamalt
fyrirbrigði, þar sem sagnaritarinn
Snorri Sturluson hafi gert sér
laug, sem enn sé til. En það sem
sennilega hafa mest aðdráttarafl
á íslenzku sýningunni fyrir gesti
segir í fréttinni verður nýjasta
eldgosið og myndun Surtseyjar.
Ásamt öðrum Norðurlanda-
þjóðum hafa íslendingar að auki
sameiginlega sýningu í neðri
hæð skálans, ásamt kynningu á
matföngum í veitingasölum.
Pittsburg, 28. nóv. — NTB
22 ÁRA gömul kona, frú
Patti Arenson, fæddi fimm-
bura í sjúkrahúsi í Pittsburg
á laugardag. Fimmburarnir,
sem fæddust 2% mánuði fyr-
ir tímann, voru frá 650 til 800
grömm að þyngd, allt stúlkur.
Þrjú barnanna létust af önd-
unarerfiðleikum á sunnudag
og í dag lézt fjórða barnið af
sömu orsökum. — Ein stúlkan
lifir, og telja læknar góðar
horfur á að takast muni að
bjarga henni. Hún var fyrsta
barnið, sem fæddist, og jafn-
framt hið stærsta, vó 804
grömm. — Læknar segja, að
’ lungu stúlknanna fimm, hafi
ekki verið orðin nægilega
þroskuð.
New York — NTB.
ALLS týndu 729 Bandaríkja
menn lífi í umferðarslysum
um Þakkargjörðarhelgina
(Thanksgiving). Aldrei hafa
jafn margir beðið bana um
eina helgi í Bandaríkjunum.
Um s.l. jól fórust 720 Banda-
ríkjamenn í bílslysum.
Varð iyrir
reið iimanhúss
SÍÐDEGIS á sunnudag varð það
slys í húsakynnum Bílaþjónust-
unnar að Auðbrekku 53 í Kópa-
vogi, að bifreið fór á stað og
klemmdi mann upp að vegg með
þeim afleiðingum, að hann slas-
aðist, m. a. fótbrotnaði.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar í Kópavogi voru
tveir bræður að vinna við bíl
sinn á umræddum stað, og var
benzíngjöíin frosin. Bifreiðin
var af Daf-gerð, en gangstigum
á þeirri gerð bifreiða er þannig
að einungis er um afturábak- og
framgangstig að ræða, auk þess,
sem að sjálfsögðu er unnt að
hafa bifreiðina í hlutlausu.
Er þeir bræður voru að þíða
benzíngjöfina fór annar þeirra
inn í bifreiðina og ræsti vélina,
en um leið gætti hann þess ekki,
að bifreiðin var í framgangsstig-
inu. Fór bifreiðin samstundis á
stað og tókst bróðurnum, sem
var fyrir framan bifreiðina ekki
að forða sér og klemmdist hann
milli veggjar og bifreiðar með
þeim afleiðingum að hann m. a.
fótbrotnaði. Var hann fluttur í
Slysavarðstofuna og síðan á
sjúkrahús, að því er lögreglan
tjáði Mbl.
Koblenz — NTB.
V.-ÞÝZKI flugherinn missti
á mánudag enn eina Starfight-
er-þotu sína, hina 65. í röð-
inni. Flugvélin steyptist nið-
ur á Búchelflugvöll í Eifel-
héraði, og fórst flugmaðurinn.
Alls hafa 35 flugmenn farizt
í Starfighter-slysunum í
Þýzkalandi.
Skaftárhlaupið fer minnkandi
Kirkjubæjarklaustri, 28. nóv.
HLAUP kom í Skaftá á laugar-
dagsmorgun og fylgdi því mikil
brennisteinsfýla. Þetta mun
vera með mestu hlaupum í
Skaftá.
Brúin á Eldvatni hjá Ásum í
Skaftártungu laskaðist og er nú
ófær öllum 'bílum og samkv.
upplýsingum Vegagerðarinnar
mun ekki verða gert við brúna
að svo stöddu. Brúarstöpull und
ir miðri brú, sem stóð á skeri í
ánni hefir sópazt burtu og
undirstaðan líka. Þetta er ný
brú, byggð 1965 og er mikið
mannvirki, steypt járnbitabrú.
Skerið, sem stöpullinn stóð á
hefir staðið allt af sér síðan áin
kom í þennan farveg eftir Skaft
áreld. En er nýja brúin var
byggð var Ásakvislum sem einn
ig eru kvíslar úr Skaftár, veitt í
Eldvatnið, þrátt fyrir aðvaranir
og ótrú kunnugustu manna á
fyrirtækinu, og átti að verða
sparnaður að þessu. Skerið hefir
ekki þolað hinn mikla vatns-
flaum og var þó enginn ís á
Skaftá. Brúin hangir enn uppi,
en þegar fréttamaður kom þar
að á sunnudag rólaði þessi mikla
brú til undan storminum, enda
hefir hún að sjálfsögðu sigið og
gólfið brotnað frá endastöplin-
um.
Leiðin um gömlu brúna í
Stóra-Hvamm er líka ófær,
vegna vatns, sem þar rennur
víða yfir veginn, endá var illu
heilli búið að taka burt smá-
brýr þar í hrauninu, mun Vega
gerðin lagfæra þá leið strax og
flóðin sjatna og unnt verður að
hefjast handa.
Samfara þessu hlaupi fylgdi
hin gamalkunna jökulafýla, sern
svo er nefnd. Berast þá efni i
Ioftinu og setjast á járn og ljósa
fleti og verða t.d. ljósmáluð hús
brúnleit á litinn.
— Siggeir.
Blaðið hafði í gærmorgun
samband við Skaftárdal og fékk
þaðan þær fréttir að hlaupið
væri í rénun og vonaði fólk þar
að það versta væri búið. Hins-
vegar 'hefir jökulleðjan nú runn
ið yfir allar fitjar og harðfrosið
þar því gaddur fylgdi hlaupinu.
Má því heita allt sé haglaust með
ánni. í fyrrinótt lækkaði hlaup-
ið, þótt enn sé það talsvert mik-
ið. Áin er kolmórauð og mikill
jökull í henni og fylgdi vond
lykt.