Morgunblaðið - 02.12.1966, Síða 10
MORGUNBLADID
Fostudagur 2. des. 1966
HEIMA OG HEIMAN
tJr vemngasolum sést vel yfir flugvöllinn.
U ndanfarin ár hefur leið
þúsunda Islendinga legið um
Renfrew-flugvöllinn í Glas-
gow. Hefur mönnum otft kom-
ið saman um, að þetta hafi
verið ein hrörlegasta flug-
höfn, sem íslenzkar flugvélar
komu í erlendis. Voru það
einkum „transit“-farþegarnir,
sem fundu fyrir þvi, að lítið
var gert til þess að lappa
upp á húsakynni — og þjón-
ustan var oft ámóta lök.
Nú hefur orðið mikil breyt-
ing á. Snemma í sumar var
Renfrew flugvöllurinn lagður
niður og annar tekinn í notk-
un í hans stað og er bragur-
inn þar aliur annar. Nokkur
undanfarin ár hefur verið unn
ið að lagfæringum og endur-
bótum á herflugvellinum i
Abbotsinoh — og er aðstaðan
þar nú hin fullfeomnasta. Þeg
ar flugvöllurinn var svo tek-
inn í notkun við hátíðlega at-
höfn í sumar var hann skírð-
ur upp — og nefnist nú
„Glasgow Airporf".
M örg ár eru síðan þar-
lendum varð Ijóst, að Renfrew
flugvöllur væri að verða of
Mtill til þess að anna vaxandi
umferð og fullnægja breytt-
um kröfum. Miklar deilur
urðu um það hvort gera ætti
nýjan flugvöll við Glasgow
eða beina allri flugumferð til
og frá borginni að hinium
stóra flugvelii í Prestwicfe.
Vandamálið var ekki óMkt
því, sem hér ber stundum á
góma, þegar rætt er um að
leggja Reykjavíkurflugvöil
niður og flytja alla umtferð-
ina til Keflavíkurflugvallar,
eða gera nýjan flugvöll.
Fjarlægðin milli miðhluta
Glasgow og Prestwiok er tæp-
ir 50 kílómetrar og varð það
niðurstaða þeirra, sem fjöll-
uðu um málið, að allar flug-
samigöngur við borgina mundu
lamast stórlega, ef flutt yrði
þangað. Þessvegna var horfið
að því að endurbyggja um-
ræddan herflugvöll, en þang-
að tekur aksturinn frá hjarta
Glasgow-borgar 20 minútur
og verður skemmri, þegar
nýrri hraðbraut, sem ná. er
í smíðum, verður lokið innan
skamms.
Aðalflugbrautin er 6,720
fet að lengd en hana er hægt
að lengja upp í 9.000 fet, þeg-
ar þörf krefur. Þarna geta at-
hafnað sig allar smærri þotur,
sem fjúga á meðallöngum
vegaengdum — t.d. Oomet
IVb, Caravelle, BAC 111,
Boeing 727, DC-9 og aðrar
slíkar — og stærri þotur
geta einnig farið frá Glasgow
flugvelli, en þó með takmörk-
unum á hleðslu. Allur öryggis
útbúnaður fugvallarins er á
borð við það bezta og m.a.
hefur verið lokið öllum nauð-
synlegum undirbúningi varð-
andi blindlenlingartækin, sem
væntanlega verða tekin í notk
un eftir 2—3 ár. BEA hetfur
gert svipaðar ráðstatfanir af
sinni hálfu, því í Trident-þot-
um félagsins er gert ráð fyrir
þessum útbúnaði, sem mun
gera flugvélum fært að lenda
án þess að mannshöndin komi
þar nærri — og verður þá
ekki lengur talað um að flug-
völlur „lokist“ vegna þoku.
F lugleiðin milli Gasgow
og London er ein hin fjöl-
farnasta í Evrópu. Yfir hálf
milljón farþega fór þessa leið
á síðasta ári — og er hinn
nýi flugvöllur einkum mið-
aður við að fulnægja auknum
futningum á þessari leið, en
hins vegar er ennfremur
stefnt að því að skapa Evrópu
flugfélögum það góða aðstöðu
þarna, að þau hefji beinar
flugferðir til Glasgow svo að
farþegar þurfi ekki að fara
um London á leið til fjarlæg-
ari staða, eins og nú tíðkast
mjög. Á síðasta ári fóru 1,2
milljónir farþega um Ren-
frew — og þegar flugstöðvar-
húsið á nýja flugvellinum var
í byggingu var reiknað með,
að umferðin yrði komin upp
I 1,6 milljónir árið 1970. Nú
eru menn óðum að hækka
þessa áætlun — og hún er þeg
ar komin upp í tvær milljónir.
Hin bætta aðstaða, sem Glas-
gow hefur nú fengið, hetfur
aukið áhuga flugfélaganna
það mikið. Ný flugfélög bæt-
aet í hóp þeirra, sem áður
flugu til borgarinnar, og þau,
sem hingað til hafa flogið til
Prestwick, eru frðin óróleg.
Spánska félagið Iberia ætlar
að flytja sig yfir tii Glasgow
á næsta ári — og hin stærri,
m.a. SAS, BOAC, Pan Ame-
rican, Air Canada og KiT.M
eru sögð horfa þangað löng-
unaraugum.
msir vilja halda því
fram, að nú orðið skipti það
ekfei máli hvort flugtfarþegar
séu hálfan eða heilan tíma að
komast út á flugvöll. En þetta
skiptir einmitt máli nú, þegar
sjálí flugferðin styttist óðum
með auknum hraða í lotftinu.
Reynslan í Skotlandi sannar
það. Þótt reynslan sé ekki
löng hefur hún þó sýnt, að
þessi góða aðstaða eykur ekki
aðeins farþegaflutninga til
borgarinnar og hleypir nýju
fjöri í viðskipti við hótel,
veitingahús og aðra, sem ann-
ast þjónustustörf, heldur
greiðir hún fyrir auknum við-
skiptum á breiðari grundvelU,
skapar ný sambönd í verzlun
og milliríkjaviðskiptum. í>eg-
ar er ráðgert að reisa við flug
völlinn stórt og nýtízkulegt
hótel og fleiri hugsa til hreyf
ings í þeim máletfnum þar um
slóðir.
L angmest ber á BEA á
flugvellinum í Glasgow, en
auk þess halda f.tta önnur
flugfélög uppi reglubundnum
samgöngum til og frá hinum
nýja flugvelli. Frá Glasgow er
nú flogið til 35 borga í átta
löndum. Bæði íslenzku flug-
félögin hafa þar viðkomu eins
og kunnugt er. Flugfélagið á
leiðinni til og frá Kaupmanna-
hötfn og ennfremur í Færeyja
flugi, Lotftleiðir á flugleiðinni
til Amsterdam og London.
Flugfélagið er hið eina, sem
haft hefur beinar ferðir milli
Glasgow og Kaupmannahafn-
ar — og hefur það fengið
mikla flutninga á þeirri leið
undanfarin ár þótt SAS fljúgi
Mka á milli Skotlands og Dan
merkur. Skýringin: SAS flýg-
ur frá Prestwick. Flugfélags-
menn hafa ráðgert að fljúga
um Glasgow fái þeir leyfi til
að hefja ferðir til Franktfurt.
En þeir verði efcki einir um
hituna á þessari leið, því bæði
British United og British
Eagle hafa fengið leyfi til
ferða milli Glasgow og Frank
furt — og nú.er Lufthansa að
íhuga möguleikana á að hefja
ferðir til hins nýja Glasgow-
vallar. Ennfremur félög á
borð við Air France og
Alitalia.
V ið getum ekki lokið
þessu án þess að minnast á
hina glæsilegu flugvallarbygg
ingu, sem kostað hefur tvær
milljónir steringspunda. Hún
getur annað farþegastraumi
sem svarar til liðlega eitt þús
und á klufckustund, en gert er
ráð fyrir að stækka bygging-
una um helming, þegar þess
gerist þörf — og stórauka jafn
framt aðstöðu til afgreiðslu
flugvéla. Nú geta 17 flugvél-
ar staðið samtímis við flug-
stöðvarhúsið, en þegar allt
verður komið í kring verður
afgreiðsluaðstaða fyrir 32.
Hér er bragurinn annar en
á Renírew. Á þremur hæðum
er hægt að finna allt, sem
ferðamaður leitar að í flug-
stöð atf þessari stærð: verzl-
anir, bank-i, bílaleigur o.s.frv.
Á annarri hæðinni er veitinga
salur, „Lomond Grill“ og
„Sanderling“ barinn. Frá
„Blythswood" veitingasalnum
á þriðju hæð er útsýnið gott
yfir flugvöllinn — og veiting
arnar engu lakari — og þar
er ennfremiur „Highland Coc-
tail Bar“. Þeir, sem vilja kom
ast „hátt upp“ þurfa senni-
lega ekki að fara lengra.
Har. J. Hamar.
Nýja flugstöðvarbyggingin á Glasgow-flugvelii.
Sexfugur i dag:
Oskar Pétursson
SEXTUGUR er í dag, Óskar Pét-
ursson, fyrrverandi formaður og
núverandi varaformaður Knatt-
apyrnufélagsins Þróttar. óskar er
öUum Þrótturum og öðrum að
góðu kunnur fyrir sitt geysi-
mikla starf í þágu félagsins um
margra ára skeið eða aUt frá því
er hann gekk í félagið á bernsku
skeiði þess. Óskar hefur í þau
ár sem hann hefur verið í fé-
laginu ávallt staðið í fremstu
víglínu ef svo mætti að orði
komast, í stjórn félagsins hefur
hann verið í nær 13 ár samfleytt
og þar af lengst sem formaður.
Ætt Óskars og æviatriði er
ekki ælunin að rekja hér, enda
er þetta fyrst og fremst af-
mæliskveðja og örlítill þakk-
lætisvottur frá félaginu fyrir hið
mikla og fórnfúsa starf sem Ósk
ar hetfur innt af hendi fyrir
Þrótt.
Ég undirritaður kynntist Ósk-
ari ekki að ráði fyrr en ég hóf
að starfa í stjórn félagsins fyrir
nokkrum árum, en mér er ávallt
minnistætt hve áhugasamur
Óskar er um hag félagsins, og
í einu máli hefur hann að mín-
um dómi unnið hvað mest starf,
en þar á ég við félagssvæðið,
sem félaginu var úthlutað á 15
ára afmæli s'V’
Að enuingu vxi eg fyrir hönd
Knattspyrnufélagsins Þróttar
þafeka Óskari fyrir hans marg-
víslegu störf og óska honum
heilla á þessum merkisdegi.
Jón Björgvinsson.
ritari.
Ulpur
Mikið úrval af barna- og kvenúlpum.
Þér eigið alltaf leið um Laugaveginn.
LAUGAVEGI 31.
Blaðburðarfólk
vantar í Kópavog
Talið við afgreiðsluna i Kópavogi
Sími 40748