Morgunblaðið - 02.12.1966, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 2. des. 1966
Vilja stofna hér
íshokkí-félag
Kunnáttumaður frá Kanada
boðar til fundar
ÁHUGAMENN nm íshokki hafa
ákveðið að gera tilraun til að
mynda félagsskap, sem hafi það
á stefnuskrá að sinni að læra og
iðka hina skemmtilegU og spenn-
andi íshokki-íþrótt. Það er
Kanadamaður að nafni Raymond
Goeres, starfsmaður Loftleiða
um nokkurt skeið, sem er drif
fjöðurin, en hann lék ísknattleik
hér er færi gafst í fyrravetur
og hefur nú fengið til liðs við sig
áhugamenn bæði frá Akureyri
og úr Reykjavík, og vilja þeir
stofna félag sem annist um málin
iðkendur.
Reymond Goeres hefur því
ákveðið að efna til fundar í dag
kl. 5 á Hótel Borg (veitingasal)
og væntir þess að hitta þar
menn sem áhuga hafa á iðkun
fþróttarinar eða taka þátt í upp-
bygginu félags eða klúbbs er
skapi aðstöðu fyrir hina yngrl
Er við hittum Raymond Goer-
es í gær barst talið að hinu fræga
liði „Falcons", sem vann gull-
Hondbolti í
kvöld og ó
sunnudng
REYKJAVÍKURMÓTINU 1
handknattleik verður haldið á-
fram föstudaginn 2. des. í Laug-
ardalshöllinni og hefst kl. 20.15
Leiikið verður í eftirtöldum flokk
um:
Mfl. kvenna:
Valur — Fram
Ármann — K.R.
2. flokkur karla
K.R. — Fram
Valur — Þxóttur
Víkingur — Í.R.
Sunnudaginn 4. des. í Laug-
ardalshöllinni verður leikið í
mfl. karla og hefjast leikirnir kl.
15 .-00.
K.R — Fram
Í.R. — Armann
Þróttur — Víkingur.
Staðan í mfl. karla er nú þessi.
Félög
Fram
Valru
kjk
Í.R.
Ármann
Víkingur
Þróttur
L
4
5
4
4
4
4
5
1* 3
0 5
mörk
74-43
80-61
61-52
66-67
45- 60
46- 58
48-79
H.K.R.R.
Pele visað
af velli
PELE, hinum fræga knatt-
spyrnukappa, var vísað af
velli í fyrsta leik bikarkeppn-
innar í Brasilíu. Leiknum
lauk með tapi liðs Pele,
Santos 2 mörk gegn 6. í hálf-
leik stóð 5-0.
Pele var vísað af velli seint
í síðari hálfleik er hann lenti
í áflogum við bakvörð mót-
herjanna sem var liðið Crusei
ho. Var þeim báðum vísað á
brott. Bakvörðurinn hafði stað
ið sig mjög vel og m.a. kom-
ið í veg fyrir að Pele gæti
sýnt sínar venjulegu listir.
verðlaun á Olympíuleikum 1920.
í íshokki, en sú sveit var ein-
göngu skipuð mönnum af ís-
lenzkum ættum. Fyrirliði „Fálk-
anna“ var Frank Fridriksson og
var hann fyrsti þjálfari Ray-
mond Goeres.
Vonandi fær Goeres duglega
samherja, svo að vetraríþróttum
bætist skemmtileg iþróttagrein
hér á landi, þó iðkun hennar
verði stundum stopul vegna
breytilegrar veðráttu. ísknatt-
leikur á hvarvetna miklum vin-
sældum að, fagna, þar ®em hann
er iðkaður og kapleikir í grein-
inni eru æsispennandi.
Glímukapparnir. Næst stendur Ingvi Guðmundsson, sem vann í þyngsta flokki.
Heildarsvipur Flokkaglímu
Rvíkur var nokkuð góður
FLOKKAGLfMA Reykjavíkur
1966 fór fram að Hálogalandi
27. nóvember sl.
Valdimar Óskarsson, form.
Ungmennafélagsins Víkverja,
setti mótið með stuttri en góðri
ræðu, síðan kynnti glímustjór-
inn, Skúli Þorleifsson, fyrrv.
glímukóngur íslands, keppend-
ur. Átján voru mættir til keppni.
Tólf frá KR, en sex frá Víkverja.
Þrír akráðir keppendur glímdu
ekki að læknisráði. Yfirdómari
var Ingimundur Guðmundsson
sem einnig hefur orðið glúnu-
kóngur. Ingimundur á mikið lof
skilið fyrir dómarastörf sín. en
hann hefur dsemt á opinberum
mótum 1 hátt á annan áratug.
Meðdómarar voru Sigurður Sigur
jónsson og Tryggvi Haraidsson
er voru báðir orku glímumenn
á sínum tima.
í Flokkaglímu Reykjavíkur
hlýtur sigurvegari hvers flokks
Reyk j avíkurmeistaratitil.
í fjrrsta flokki sigraði Ingvi
Guðmundsson U.V. Hann glímdi
aðeins eina glímu, er hann lagði
Hannes Þorkelsson U.V. á
leggjarbragði.
Lítið er hægt að dæma um
getu þeirra á þessari einu glímu,
en mér virtust þeir vera í góðri
æfingu.
í öðrum flokki sigraði Guð-
mundur Jónsson KR. Hann vann
Hilmar og Ágúst á vinstri fótar
klofbragði, en Garðar á hæl-
krók utanfótar með hægra fæti.
Guðmundur er geysisnöggur
glímumaður og fylginn sér.
Byltur þær, er hann gerði Hilm-
ari og Garðari, brjóta að mínu
áliti 15. gr. laga Glímusambands
ins, en þar stendur m.a.: Sigur-
vegari telst þó einn, sem gerir
viðfangsmanni sínum byltu án
þess að falla á hann ofan, ýta
honum niður eða hrekja hann
úr handvörn.
Annar varð Hitonar Bjarna-
son KR, hann vann Garðar á
vinstri fótar sniðglímu og Ágúst
á hælkrók hægri á vinstri. Hilm
ar tók fyrst þátt í glímumóti
fyrir tæpum tuttugu árum og
held ég að það sé einsdæmi að
sami glímumaðurinn sleppi skki
úr nokkru ári í svo langan tlma.
Hilmar tók faliegasta bragð
mótsins í glímunni við Ágúst.
Glímunni við Garðar fylgdi
hann nokkuð eftir og hefðu þeir
■ átt að glíma áfram. Þegar í byrj
un giímunnar við Guðmund
náði hann vinstri fótar ktof-
bragði og Guðmundur virtist
gjörsamlega varnarlaus, en það
ótrúlega skeði að Hilmar lét
tækifærið ganga sér úr greipum
og urðu hinir mörgu áhangend-
ur hans fyrir vonbrigðum.
Þriðji varð Garðar Erlendsson
KR. Hann vann Ágúst á vinstri
fótar klofbragði. Garðar var ó-
heppinn í glímum sínum við
Guðmund og Hilmar eins og áð-
ur er getið.
Ágúst Bjarnason UV er
skemmtilegur glímumaður og er
vel glíminn, hann stóð bezt að
glímunni í þessum flokki, en
vantaði reynslu á við hina kepp
endurna.
Þessi flokkur var lang sterk-
asti flokkur mótsins.
í þriðja flokki sigraði Ómar
Úlfarsson KR, hann vann Helga
og Elías á sniðglímu með vinstra
fæti á lofti. Ómar hefur tekið
framförum síðan í fyrra. Hann
þarf »ð slappa betur á vöðvun-
um milli bragða og hafa meiri
stiganda.
Annar varð Helgi Árnason
U.V., hann lagði Elías bróður
sinn á utanfótar hæl’krók með
vinstra fæti. Helgi þarf að
standa betur að glímunni og
horfa ekki á fætur viðfangs-
mannsins.
Elías Árnason KR, varð þriðji
að þessu sinni. Hann glímdi vel
að vanda, en er næstum æfingar
laus. Fyrir mótið hefði ég spáð
honum sigri, en máltækið sann-
ar að allt getúr gerst í íþróttum.
í unglingaflokki sigraði Einar
Kristinsson KR, hann vann Ólaf
og Sigurð á sniðglímu hægri
niðri. Einar hefur tekið framför
um frá því í fyrra, er léttur og
hefur góðan stíganda, en þarf
að varast, að gefa andstæðing-
um sínum færi á mótbrögðum
með því að sækja brögð af
langt.
Annar varð Ólafur Sigurgeirs
son KR, hann vann Sigurð á
hælkrók hægri á vinstri. Ólafur
er léttur og liðugur, og á án efa
ekki lögleg. Einar var kominn
•uinguijæ ipuepjequieaje
sú er Einar veitti honum var
Sjaui luunuiijg i jguej eu ge jijjs
18. gr. 3. málsgr. laganna. Ef
glímumaður sækir bragð með
því að láta fallast á hönd eða
hné, áður eða um leið og það er
tekið, Skulu keppendur glíma að
nýju.
Þriðji var Sigurður Hlöðvers-
son KR, hann er nýliði á glímu-
velli, glímdi létt og virðist gott
efni.
í drengjaflokki sigraði eins og
vænta mátti Hjátonur Sigurðs-
son UV, hann vann Sigurbjörn á
mjaðmahnykk, en Magnús á
klofbragði með vinstra fæti
Falleg brögð hvort tveggja.
Hjálmur hafði yfirburði í flokkn
um, en gaf Sigurbirni óþarfa
tækifæri í byrjun. Sigurbjörn
náði hnéhnykk, en vantaði að út
færa bragðið rétt, kiknaði und-
an Hjálmi, eftir þetta var um ein
stefnu Hjálms aðræða.
Annar varð Sigurbjörn Svav-
arsson KR, hann lagði Magnús
á hnéhnykk. Sigurbjöm er harð
ur og hefur gott keppnisskap.
Þriðji varð Magnús Ólafsson
UV, hann glímdi ágætlega og
hefur hæfileika til að vera góð-
ur glímumaður.
í sveinaflokki sigraði Jón Unn
dórsson KR, hann lagði Inga &
sniðglímu á lofti með vinstra
fæti, en Gunnar Viðar á klof-
bragði með sama fætL Hann
hafði eins og Hjálmur yfirburði
hvað getu og burð,i snerti, Jóa
er of daufur í glímunni, hana
þarf að stiga meira.
Annar varð Gunnar Viðar
Árnason KR, hann lagði Inga á
leggjarbragði. Gunnar Viðar
þarf að læra vörn við klofbragði
betur. Hann er bróðir Helga og
Eliasar Árnasona er glírndu J
þriðja flokki.
Þriðji varð Ingi Sverrisson
KR, hann glímdi vel, en Jón og
Gunnar Viðar hafa æft meira en
hann.
Heildarsvipur glímunnar var
nokkuð góður, en hún stóð ol
stutt yfir vegna þess að keppend
ur voru of fáir.
Að lokum afhenti Valdknar
Óskarsson form, Ungmennafé-
lagsins Víkverja, verðlaun og
sleit mótinu. Ungmennafélagið
Víkverji sá um Flokkaglímu
Reykjavíkur að þessu sinnL
Sigtryggur Sigurðsson.
1000kr. þátttöku
gjald í ísl.móti
ÞAÐ skal enginn halda að starf-
semi íþróttafélaga kosti ekki
skildinginn sinn. Fyrir dyrum
stendur nú íslandsmót i körfu-
knattleik og hefur KKÍ auglýst
eftir þátttökutilkynningum. Til
þess að leikirnir geti farið fram
í íþróttahöllinni, ákvað nýafstað
ið ársþing sambandsins að þátt-
tökugjald flokka í mótinu skuli
hækka verulega og er það 1000
kr. í meistaraflokki.
í tilkynningu KKÍ segir svo:
Þátttökutilkynningar fyrir ís-
landsmótið í körfuknattleik ár-
ið 1967, þurfa að hafa borizt
Körfuknattleikssambandi ís-
lands fyrir 15. desember n. k.
Ráðgert er, að mótið hefjist um
miðjan janúar n.k. Tekið skal
fram, að sama félagi er einung-
is heimilt að senda eitt lið til
þátttöku i hverjum ílokki. Þátt-
tökugjald ,eins og það var á-
kveðfð á naýfstöðnu þingi KKf,
skal greiða um leið og þátttöku-
tilkynningar eru lagðar fram
eða sendair. Þátttökugald er sem
hér sagir:
Mfl. karla kr. 1000,—
1,2 ffl. karla og Mfl. kvenna
kr. 250.—
3,4 ffl. karla og 2 ffl. kvenna
kr. 100,—
Þátttökutilkynningar skal
senda til:
Körfuknattleikssamlband íslands
íþróttamiðstöðinrú, Laugardal,
Reykjavík.
Olympíunefnd Finnlands
hefur ákveðið að senda 6
göngumenn, 4 stökkmenn og
alpagreinarmann ásamt 4
keppendum í skíðaskotfimi, 4
skautamenn og 3 skautakon-
ur til „prufuleikanna" í Gren
oble í janúar n.k. Vetrar OL.
verða í Grenoble 1968.