Morgunblaðið - 21.01.1967, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1967.
13
Ólafur Sigurðsson skrifar um
Háskólabíó
Furðufuglinn
KVIKMYNDIR með Nonman
Wisdom koma hér með nokkuð
reglulegu millibili, en hafa aldrei
náð hér neinum sérstökum vin-
eældum. Þetta eru gamanmyndir
af þeirri tegund, sem menn fá
egg og tertur í andlitið, sem á
ensku nefnist' „slapstick" og
þekki ég ekki íslenzkt orð, sem
nær þeirri merkingu.
Eiginlega er ekkert merkilegt
við þessar kvikmyndir annað en
Norman Wisdom. Hann er lltill
náungi, fótfimur og lipur. Hann
er einn af þeim leikurum, sem
eru frekar persónuleikar en
leikarar í venjulegum skilningi.
Hann er fyndinn, en frekar fyrir
það sem hann er, en það sem hann
er að leika, frá einni mynd til ann
arrar er hann að miklu leyti sama
persónan. Hann er þarna í tnerk
um hópi, því þetta sama má
segja um Red Skelton, Ohaplin,
Danny Kaye, Bob Hope, Dirch
Passer og fleiri,
Meginuppistaðan I þessari
tegund af humor, er sigur yfir
erfiðleikum og vandraeðum, oft-
ast byggður á gæðum og óbil-
andi trú á því góða, þrátt fyrir
ótrúlegan klaufaskap óg ó-
heppni. Ein útgáfan enn af
Davíð og Golíat.
Nú verður að viðurkennast að
ekki nema lítill hluti þeirna
kvikmynda, sem þannig eru
byggðar upp, eru skemmtilegar.
Venjulega misheppnast þær
vegna þess, að hrúgað er upp
of miklu af sniðugiheitum, til að
hægt sé að meðtaka það á ein-
um og hálfum tíma. Þetta er
eins og með ræðumann, sem
ekkert segir nema brandara.
Hann heldur ekki lengi athygl-
inni.
í myndinni, sem hér um ræð-
ir, er Norman Wisdom mjólkur-
sendill, sem starfar Ihjá litlu
mjólkurbúi, sem á i samkeppni
við stórt mjólkurbú. Fjallar
myndin um þá baráttu, þar sem
beitt er öllum brögðum. Fyndn-
asti kafli myndarinnar er þegar
Norman Wisdom er dulbúinn
sem prestur og fer á golfvöllinn,
til að svna forstjóra stóra mjólk-
urbúsins fram á villu síns veg-
ar, frá siðferðislegu sjónarmiði.
Vafalaust myndi Norman Wis-
dom geta gert miklu merkari
myndir en þessa, en ég er ekki
viss um að það væri æskilegt.
Þessi mynd er að visu mun betri
en aðrar myndir hans, og verður
henni bezt lýst þannig, að hún
er hlýleg, góðlátleg og á köflum
fyndin.
Sendisveinar óskast
á afgreiðslu blaðsins.
Vinnutími fyrir hádegi.
TÆKIFÆRISKJÓLAR
TÆKIFÆRISBLÚSSUR.
Atviima - Félagsskapur
Miðaldra maður vanur verzlunarrekstri óskar eft_
ir atvinnu ásamt félagsskap um verzlunar- eða
iðnfyrirtæki. Bókhaldsþekking og góð málakunn-
átta. Tilboð, sem farið verður með sem einkamál
sendist Mbl. fyrir 25. þ.m. merkt: „8691.“
Tilkyiining
Athygli innflytjenda skál hér með vakin á því, að
samkvæmt auglýsingu viðskiptamálaráðuneytisins
dags. 11. jaruiar 1967, sem birtist í 7. tölublaði Lög-
birtingabiaðsins 1967, fer fyrsta úthlutun gjaldeyris-
og/eða innflutningsleyfa árið 1967 fyrir þeim inn-
flutningskvótum, sem taldir eru í auglýsingunni,
fram í febrúar 1967.
Umsóknir um þá úthlutun skulu hafa borizt Lands-
banka íslands eða Útvegsbanka íslands fyrir 10.
febrúar næstkomandi.
LANDSBANKI ÍSLANDS.
ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS.
Sovézkir leiðtog
ar í Fóilandi
Moskvu, 19. jan. (NTB)
SKÝRT var frá því í Moskvu
í kvöld, að þrír af leiðtogum
Sovétríkjanna hafi fyrir skömmu
átt leynilegar viðræður í Varsjá
við pólsk yfirvöld.
Tass fréttastofan segir að þeir
Leonid Brezhnev, flokksforingi,
Alexei Kasygin forsætisráðherra,
og Nikolai Podgorny forseti, hafi
dvalið I Póllandi dagana 17. og
18. jan. Ræddu þeir þar heims-
málin við pólsku leiðtogana, þá
Wladyslav Gomulka flokksleið-
toga, Jozef Syrankiewics forsætis
ráðherra og Edvard Ochab for-
seta. Algjör eining ríkti á fund-
unum varðandi afstöðuna til
Kína, og um boðun alþjóðaráð-
stefnu kommúnista, segir frétta
stofan.
1 Moskvufréttuim er sagt að
srvo virðist sem Kína og Vietnam
hatfi verið efst á baugi í viðræð-
unum,
FÉLAGSLÍF
KR-ingar, skiðafólk.
Farið verður I Skálafell
laugardag kl. 2 og 6 e.h. og
sunnudaginn kl. 10 f.h. Lyftan
verður í gangi, einnig verður
selt öl, pylsur og heitar súpur,
í skálanum. Skíðakennsla verð
ur um helgina.
NÝJUNG
frá Niðursuöuverksmiðju Borgarfjarðar.
BORGARNES
Sóxað kjöt í kryddsosu
(Spaghetti Meat Sauce).
AÐALLEGA NOTAÐ
MEÐ SPAGHETTI
Heildsölubirgðir:
O. Johnson & Kaaber hi
NÆTURSALA
Á Kópavogshálsi hefur verið opn ið verzlun, með tóbak, gos-
drykki, pylsur, brauð samlokur, saelgæti — og benzín og olíur.
VIÐ HÖFUM OPIÐ
ALLAN SÓLARHRINGINN
Nætursalan á Kópavogshálsi.
Vér viljum hér með tilkynna viðskiptavinum vorum, að skrif-
stofur félagsins eru fluttar í ný húsakynni að:
LAUGAVEGI 103
. ' 11 • • • k
Meðal nýjunga í tryggingum víijum vér benda bifreiðaeigend-
um á hinar hagkvæmu bifreiða tryggingar vorar, ábyrgðar- og
hvers konar kaskotryggingar.
Vér viljum um leið minna á, að þeir sem ætla að flytja ábyrgð-
artryggingar bifreiða sinna til vor, þurfa að tilkynna oss það
fyrir lok þessa mánaðar.
Brunabótafélag Islands
Laucravegi 103, Sími 24425.