Morgunblaðið - 21.01.1967, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1967.
Svíar urðu í 5. sæti
Júgóslavar í 7. sæti
IMæst síðasti dagur H1U
SVÍAR unnu „lakari betri hJutann“ í heimsmcistarakeppninni í
handknattleik. Liðin sem töpuðu í 8 liða úrslitum luku sínum leikj-
um í dag með baráttu um 5. sætið og baráttu um 7. sætið. Svíar
og V-Þjóðverjar hölðu unnið sér rétt til að berjast um 5. sætið. Þar
nnnu Svíar með 24—22. Júgóslavar og Ungverjar voru dæmdir til
að berjast um 7. sæti keppninnar. 1 þeim leik sigruðu Júgóslavar
— skoruðu 24 mörk gegn 20. Er þá röðin fengin neðan tH í 8 liða
úrslitakeppninni: Svíar hafa hlotið 5. sætið, V-Þjóðverjar 6., Júgó-
slavar 7, og Ungverjar 8. sæti.
höndinni þó Ungverjar berðust
eins og þeir eru frægir fyrir
í öllum greinusm íþrótta, og loka
tölur urðu 24—22.
Sviþjóð — Þýzkaland
Svíar voru aftur í þessum leik
ajálfurm sér Mkir, fullir baráttu-
vilja og ákveðnir í að gera sitt
bezta, en sá svipur" var ekki á
liði Svía í tveim síðustu leikj-
unum. Og með þessum vilja urðu
þeir eins og allar fréttastofur
segja á enskri tungu: „The best
of the rest“ eða beztir þeirra er
töpuðu í 8 liða úrslitum.
Júgóslavia — Ungverjaland.
Þarna varð einnig hörkukeppni
og mikið af mörkum. Framan af
mátti lengi vel ekki á milli sjá
Markhæstu
á HM
ÞAÐ er til fróðleiks fært að áð-
ur en úrslitaleikir HM í hand-
knattleik hefjast hafa 54.007
áhorfendur greitt aðgangseyri
að leikjum keppninnar en það
þýðir u.þ.b. 15®0 áhorfendur að
meðaltali á leik.
Leikmenn VJÞýzkalands
standa næst „fair play“-bikarn-
um. Leikmenn liðsins (hafa að-
eins hlotið 6 mínútna brottvikn-
ingu af leikvelli samanlagt.
Næstir koma Júgóslavar með 8
minútur og Svíar með 10 mín-
útna brottvikningu samanlagt.
V-Í>jóðverjinn Herbert Lúb-
king er markhæsti maður keppn
innar til þessa með 30 mörk,
Schmidt landi hans er næstUr
ásamt Milkovic frá Júgóslavíu
og hafa þeir skorað 36 mörk
hvor. 30 mörk hafa þeir skorað
Bruna frá Tékkóslóvakíu og
Fenyö frá Ungverjalandi. Ung-
verjinn Marosi hefur skorað 28
og Klimov frá Sovétrikjunum
hefur skorað 26. Duda, Tékkósló
vakíu hefur skorað 26 en Jan
Hodin Svíþjóð er hæstur Norður
landabúa með 23 mörk.
og í hálfleik stóð 9—9. Er á
leið tókst Júgóslövum að ná yfir
Nægnr snjór
í Skólafelli
NÚ er mikill snjór í Skálafelli
og gott skíðafæri. KR-ingar eru
í skála sínum um allar helgar
og eru ferðir þangað upp eftir
kl. 2 og 6 á laugardögum og
kl. 10 á sunnudagsmorgna. 1
skálanum geta allir fengið pyls
ur, gosdrykki og heitar súpur
og allir eru velkomnir í Skála-
fell. Hefur verið mikið um það
að menn kæmu þangað á einka-
bíluim, heilu fjölskyldurnar, og
allir haldið glaðir og ánægðir
heim.
Hondknattleik-
nr um helgina
Handknattleiksmóti Islands
verður haldið áfram um helgina.
Leiknir verða þessir leikir:
Sunnudaginn 22. janúar kl. 14
leika í Laugardalsthöllinni: Mfl.
kvenna 1. deild: Fram—Víkingur.
— Valur—KR og FH.—Ármann.
2. fl. karla A-riðill: ÍR—ÍA.
— Fram—KR.
2. fl. karla B-riðill: Valur—
Þróttur — Haukar—Víkingur.
Mánudaginn 23. janúar kl. 20,15
verður leikið að Hálogalandi, og
verða þá leiknir eftirtaldir leik-
ir: 2. fl. kvenna A-riðíll: FH.—
Breiðablik. — 2. fl. kvenna B-
riðill: KR—Ármann. — Mfl.
kvenna 2. deild: ÍBK—Grindavík
3. fl. karla B-riðill: iBK—
Árrnann. — 1. fl. karla A-riðill:
Ármann—KR. '
H.K.R.R.
Knattspymu-
myndir ó
Suðurnesjum
í DAG verða sýndar í Keflavík
ýmsar mjiög skemmtilegar oig
vel teknar knattspymumyndir.
Er sýningiin á vegum ÍBK. Með-
al myndanna eru svipmyndir frá
úrslitaleik ensku bikarkepppn-
innar, myndir frá HiM ásamt
öðrum ágætum knattsyrnumynd
um.
Þetta verðuir eina sýning mynd
anna á Súðurnesjum. Aðgangur
köstair 25 kr. fyrir fuillorðna en
10 kr. fjyrir börn.
í STUTTll MÁLI
AUSTUR-Þjóðverjar nnnu
Egypta í knattspyrnulands-
Ieik í Kairo á þriðjudag. Úr-
slitin urðu 2-1, en í hálfleik
stóð 2-0. A-þýzka landsliðið
leikur 3 leiki í Egyptalandi
í för sinnL
Á þriðjudaginn átti Cassius Clay 25 ára afmæli og hélt hann
upp á það í Houston í Texas þar sem hann æfir undir kapp-
leik við Ernie Terrell, en leik urinn fer fram í þeirri borg
6. feb, t afmælisgjöf fékk bann m. a. risastóra afmælistertu.
Vó tertan 578 og hálft pund. 1 benni voru 1500 egg, 150 pund
hveitis og 150 pund sykurs. Hér sézt meistarinn fá sér vænan
bita af tertu sinni.
FH meö 4 stiga
forystu í 1. deild
FH hefur nú náð þeirri forystu
í íslandsmótinu að lokinm fyrri
umferð að ekkert nema krafta-
verk getur rænt FH-inga titlin-
um í ár. Þeir hafa engum leik
tapað hlotið 10 stig og eru með
4 stig fram yfir Val sem þeir
sigruðu í gærkvöldi með 24
mörkum gegn 15.
FH hafði frá upphafi undir-
tökin í leiknum og reyndist er á
leið yfirburðalið. Komst FH í
byrjun í 8-2 forystu og þar með
var endir sögunnar ljós. í hálf-
leik stóð 12-6.
Haukar áttu ekki í erfiðleik-
um með Ármenninga og unnu
29-16 og nú er ljóst að Ármanr,
fellur í 2. deild.
Enska knattspyrnan
MARKAHÆSTU deikimennirmr í
Englandi eriu niú þesisir:
1. deild
Hurst (West Ham) 32. mfirk
Davies (Southampton) 27 —
Dougan (Leicester) 20 —
Lodhhead (Burnliey) 19 —
Tamfbling (Ohettsea) 19 —
CarnJey (Burnley) 16 —
Sæmilegt skíba-
færi í Hveradölum
ELDUR kom upp í díselrafstöð
skíðaskálans í Hveradölum fyrir
skömmu og urðu töluverðar
skemmdir í henni. Að því tilefni
náði Mbl. tali af Óla J. Ólasyni,
veitingamanni í Skíðaskálanum
og spurði hann, hvort lokið væri
viðgerð á rafstöðinni.
Óli kvað ekki enn vera búið
að gera við skemmdirnar, en
einhvern næstu daga myndi sett
upp rafstöð, sem notuð verður
til bráðabirgða. Þá mun Óli fá
lánaða dráttarvél til þess að
knýja skiðalyftuna og mun hún
komast í gang eftir svo sem þrjár
vikur.
Aðspurður sagði Óli, að sæmi-
legt skíðafæri væri nú í Hvera-
dölum, gott veður og ber tölu-
vert á því að fólk komi frá
Reykjavík og fari á skíði eða
í göngufirðir um nágrennið.
Sagði hann, að nú væri tilvalið
að nota snjóinn og sólskinið og
fara í heilnæmar gönguferðir
um Hveradalina.
LISSABON — Eusebio skcr-
aði 5 mörk er Benefica vann
2. deildarliðið Lusitano 8-0 )
portúgölsku bikarkeppninni á
miðvikudag. Torres skoraði
hin 3. Benefica sigraði ofan-
greint lið bæði á heimavelli
og útivelli og samanlógð
markatala var 11-1.
RÓM — Hinn gamalkunni
sænski landsliðsmaður í
knattspyrnu, Niels Liedholm.
hefur verið ráðinn þjálfari
ítalska liðsins Verona. Licd-
holm hefur irerið á Ítalíu í
14 ár; lék fyrst með Milano
og varð síðar þjáifari liðs
þess félags þar til nú.
Clarike (FuJibam) 16 —
Clark (W.B.A.) 16 —
Herd (Mandh. Utd) 16 —
2. deild
Sheffield (Norwioh) 22 mörk
Wagstaff (HuM) 19 mörk
Vowden (Birmingham) 17 —
Crawford (Ipswich) 16 —
Martin (Northampton) 16 •—
Goiuild (Coiventry) 15 —■
3. deild
Marsh (QPR) 13 —
Fairbrother (Peterlbor.) 17 —
Brale (Mansfield) 19 —
O’Rourke (Middlesbr.) 18 —
4. deíld
Pythian (Hartlepools) 18 —
Atkins (Halifax) 17 —
HoflJett (Chesterfield) 13 —
3. UMFERÐ ensku bikarkeppn
innar fer fram laugardaginn 28.
þ.m. Taka þá liðin úr I. og II.
deild þátt í keppninni í fyrsta
sinn. Alls fara fram 32 leikir
í þessari umferð og fara þessir
leikir fram:
Charlton — Sheffield U.
Hull — Portsmouth
Manchester U. — Stoke
Ipswich — Shrewsbury
Halifax — Bristol City
Huddersfield — Chelsea
Northampton — W.B.A.
Millwall — Tottenham
Norwich — Derby
Coventry — Newcastle
Barnsley — Cardiff
Sunderland — Brentford
Bedford — Peterborough
Nuneaton — Rotherhama
HM í dag
f DAG fara fram tveir síð-
ustu leikimir í II.VI í hand-
knattleik og báðir í Vester-
7as. Fyrst leika Rúmenar —
núverandi heimsmeistarar —
og Rússar um þriðja sætið í
keppninni en strax á eftir
mætast Danir og Tékkar í
baráttu um heimsmeistaratit-
ilinn.
Dómari i leiknum verður
Svíinn Torild Janerstam sem
dæmdi hér fyrir skömmu
(landsleikinn við V-Þjóð-
verja).
Bury — Walsall
Barrow — Southampton
West Ham — Swindon
Workington — Fulham
Oldham — W ol verhamton
Sheffield W. Q.P.R.
Bristol Rovers — Arsenal
Bolton — Crewe
Leeds — Crystal Falace
Burnley — Everton
N.Forest — Plymouth
Aldershot — Brighton
Mansfield — Middlesbróugh
Birmingham — Blackpool
Manchester City — Leicester
Preston — Aston Villa
Watford — Liverpool
Blackburn — Carlisle
Eins og sést á þessari upp-
talningu má reikna með mörg-
um skemmtilegum leikjuim.
Manchester U. leikur á heima-
velli gegn Stoke og Everton
heimsækir Burnley.
Báðir þessir leikir verða án
efa . skemmtilegir og spennandi.
Liverpool, Englandsmeistarar
1966, heimsækja III. deildarlið-
ið Watford og Miliwall fær
Tottenham i heimsókn. Báðir
þessir leikir geta orðið erfiðir
fyrir þessi frægu lið úr 1. deild.
Sérstaklega þó fyrir Tottenham,
því Miilwail er frægt orðið fyr-
ir að hafa leikið 59 leiki á heima
velli í röð án þess að tapa, en
fyrsta tapið í rúmiega 3 ár kom
laugardaginn 14. janúar si.
Atihyglí margra mun beinast
að leiknum milli Nuneaton og
Rotherham. Leikmenn Nuneaton
liðsins eru ekki nema að nokkru
leyti atvinnurnenn, en liðið hef-
ur átt góða leiki fyrr í keppn-
inni og allt getur skeð í bikar-
keppninni svo að margir reikna
með sigri þessa óþekkta liðs.