Morgunblaðið - 04.03.1967, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 04.03.1967, Qupperneq 1
32 SÍÐLR 54. árg. — 52. tbl. LAUGARDAGUR 4. MARZ 1967 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sovézka fréttastofan Novoskl sendi þessa mynd frá sér 1. marz, sem er af sovézkri demants- leitarvél að störfum í heimskautabaugsísnum við borgina Mirny Yakutia í Rússlandi, en þar eru að sögn sovézkra vísindamanna einar auðugustu demantsnámur í heimi. Má að myndinni sjá, að hér er ekkert smáverkfæri að störfum. Papandreou neitar að mæta fyrir rétti — segir Aspida-málinu hafa verið stefnt sér til höfuðs Aþenu, 3. marz, — AP-NTB GEORGE Papandreou, fyrrum forsætisráðherra Grikkja, neit- aði í dag að bera vitni fyrir her- rétti þeim er fjallar um Aspida- málið svonefnda og sagði að málinu hefði þegar í upphafi verið sefnt sér til höfuðs og stjórn sinni. Honum verður ekki þröngvað til að bera vitni í mál- inu sakir þinghelgi hans. Eins og kom fram í fréttum á sínum tima, svipti Konstantín Grikkjakonungur Papandreou forsætisráðherraembættinu í júlí mánuði 1965 vegna ágreinings þeirra um hversu skyldi fara með Aspida-málið. Mál þetta er til komið vegna meints samsæris 28 yfirmanna úr griska hernum um að steypa konungi af stóli og hefur Andreas, sonur Papan- dreous verið sakaður um aðild að samrærinu og jafnvel um að vera leiðtogi samsærismannanna. Hefur saksóknari farið þess á leit að ahnn verði sviptur þing- helgi svo honum verði stefnt fyr ir réttinn. Papandreou ritaði dómsforseta bréf í dag og greindi ástæður sínar fyrir að neita að bera vitni í málinu og sagði þar m.a. að ,.myrk öfl“ hefðu sett Aspida- málið á svið til þess að neyða hann og stjórn hans til að segia af sér. ★ í dag kom til óeirða í Aþenu er saman lenti stúdentum og lög reglu. Voru stúdentarnir að mót mæla breytingum á kennslumála löggjöf landsins. Fjörutíu særð- ust af stúdentum og urðu tíu að leggjast inn á sjúkrafhús vegna meiðsla. Ræða Róberts Kennedys, öldtingadeildarþingm.: Aukin spenna milli Banda- ríkjaforseta og R. Kennedys Wasbington, 3. marz — AP-NTB RÓBERT Kennedy, öldunga- deildarþingmaður, flutti í dag langa og ýtarlega ræðu, í öld- ungadeildinni og bar fram til- lögu í þremur atriðum um frið- arviðræður í Vietnam. Hefnr ræðan vakið mikla athygli í Bandaríkjunum og víðar. Lagði Kennedy til að sprengjuárásum á N-Vietnam yrði hætt í eina viku og þannig kannaður vilji N-Vietnammanna og stuðnings- manna þeirra til friðarviðræðna. Sagði Kennedy að jafnframt bví að Bandarikin hættu loftárásum verði að tilkynna að þau séu reiðubúin til friðarviðræðna inn an þessarar viku. Einnág verði Bandaríkjamenn að gera það ljóst, að viðræð- urnar geti ekki staðið til lang- frama án samkomulags beggja aðila um að þeir muni ekki auka hernaðaraðgerðir sínar á meðan. í öðru lagi lagði þingmaðurinn til að komið yrði á fót aliþjóð- legri eftirlitsnefnd, sem hefði etfirlit með landamærunum og hafnarborgum í Vietnam. í þriðja lagi að gæzlusveitir Sameinuðu þjóðanna tækju við af Bandaríkjamönnum í Viet- nam. Stjórnmálafréttaritarar í Was hington segja að ræða Kennedys hafi verið bein áskorun t’l Jöhnisons, Bandaríkjaforseta. sem vísaði tillögum Kennedys á bug áður en hann hóf að flyíja ræðu sína. Segja fréttaritararnir að ræða þessi hafi mjög breikk- að bilið milli Johnsons og Kennedys, en í bréfi, sem dreift var í öldungadeildinni áður en Kennedy hóf mál sitt, sagði John son að sprengjuárásum yrði ekki hætt, fyrr en N-Vietnam- menn drægju úr hernaðaraðgerð um sínum og sýndu að þeir væ~u reiðubúnir til að setjast við samningaborðið. Segja stjórnmálafréttaritararn ir einnig, að með dreifingu áð- urnefnds bréfs hafi Jöhnson for- seti viljað leggja áherzlu á óá- nægju sína með afstöðu .Kenne- dys gagnvart stefnu forsetans í Vietnam. Mikil spenna hefur ríkt milli Johnsons og Kennedys undanfarið, þó að báðir hafi lagí sig fram um að láta líta Framhald á bls. 31. Kína: Wilson ávítar flokksbræöur sína London, 3. marz — NTB-AP WILSON, forsætisráðherra Breta sagði á fundi með þing- mönnum Verkamannaflokksins í gær, að þingmenn þeir, er ekki treystu sér tii að styðja stefnu stjórnarinnar ættu að segja sig úr flokknum. Var forsætisráð- herrann mjög hvassyrtur í garð þeirra 60 þingmanna, er sátu hjá við atkvæðagreiðsluna um varn- armálafrumvarp stjórnarinnar sl. þriðjudag .Sagði hann ma: „Hverjum hundi leyfist að bíta einu sinni, en öðru máli gegnir um hund, sem er síbítandi“ Telja Stjómmálafréttaritarar að með þessu hafi Wilson verið að gefa þingmönnunum í skyn, að þeir muni ekki njóta stuðnings Verkamannaflokksins við næstu þingkosningar í Bretlandi. Fregnir herma að Wilson hafi skýrt frá því á lokuðum flokks- fundi, að ef andspyrnan innan Verkamannaflokksins héldi áfram að vaxa, ætti hann ekki annars úrkosta en að efna til nýrra þingkosninga. Auðséð er af þessum aðgerðum Wilsons, að 'hann er staðráðinn í að hafa fullt vald á flokknum, er um- ræðurnar um hin umdeildu verð stöðvunarlög ríkisstjórnarinnar hefjast á nýjan leik. Að öllu jöfnu hefur stjórnin fengið um 100 atkvæða meiri- hluta við atkvæðagreiðslur 1 neðri málstofunni, en við at- kvæðagreiðsluna sl. þriðjudag fékk hún aðeins 39 atkvæða meirihluta. Ríkisstjórnin hefur viðurkennt, að 43 þingjnenn Verkamannaflokksins hafi setið 1 hjá, en aðrar heimildir herma að þeir hafi verið 63. Enn ein mis- fök í Vietnam Chou En-lai eflist að völdum Lin Piao lætur til sín heyra Saigon og Washington, 3. marz NTB-AP RÚMLEGA 100 S-Vietnam búar fórust og 175 særðust, þegar tvær óiþekktar sprengjuflugvél- ar vörpuðu sprengjum á þorpið Lang Vei í S-Vietnam, skammt fá landamærum Laos. Um tvö þúsund íbúa voru í þorpinu og var fjöldi þeiira flóttamenn, sem höfðu talið þorpið öruggt hæli gegn Viet Cong og styrj- öldinni. Flugvélarnar tvær, sem voru af Deltagerð vörpuðu sprengjum og skutu á þorpið úr vélbyssum í 25 mínútur, eru álitn ar vera bandariskar eða s-viet- namískar. Bandariskar þyrlur fóru þeg- ar á staðinn og fluttu hina særðu í sjúkrahús í nærliggjandi borg. Bandariska herstjórnin rannsak ar nú orsakir þessaa mistaka, sem er hörmulegasti atburður- inn af þessari gerð í styrjöld- inni, en slík mistök hafa nokkr- um sinnum áður átt sér stað, en ekki með eins alvarlegum afleið ingum og nú. Bandarískar orustuflugvétar gerðu í dag í þriðja skipti á einni viku árásir á rafstöð ná- lægt Haiphong í N-Vietnam. Auk þess sökktu flugvélarnar 39 Framhald á bls. 31. Peking og Tókíó, 3. marz. AP — NTB AF FRÉTTUM fréttastofunn- ar „Nýja Kína“ í dag virtist mega ráða að Chou En-lai for sætisráðherra hefði enn eflzt að völdum og verið skipaður félagi eða jafnvel varafor- maður í hermálanefnd mið- stjórnar kínverska kommún- istaflokksins, sem fer með æðsta vald í hermálum ríkis- ins. Mao Tse Tung er formað- ur nefndar þessarar í orði kveðnu en Lin Piao varnar- málaróðherra er varaformað- ur hennar og raunverulegur yfirmaður. í frétt „Nýa Kfna“ sagði frá fjölmennum útifundi rauðra varð liða í Peking 22. febrúar sl. þar sem Chou en-lai var sagður hafa ávarpað samkunduna, er taldi um 10.000 manns, „fyrir hönd Maos formanns og náins vopna- bróður hans Lin Piaos og fyrir hönd miðstjórnar flokksins, rík- isráðsins, hernefndar miðstjórn- arinnar og menningarbyltingar- nefndar miðstjórnarinnar.“ Áður höfðu menn velt yfir því vöngum hvort Chou En-lai myndi ekki hafa verið skipaður varaformaður nefndar þessarar, því ólíklegt þótti að ekki lægi eitthvað því að baki er Ohou nýverið gaf Kínaher fyrirskipan- ir um að verja málstað Mao Tse Tungs í Honanfylki. Sem for- sætisráðherra átti Chou hvorki sæti í hermálanefndinni né í þjóðvarnarráðinu, sem fyrir réði erkifjandi Maos, Liu Shao Chi forseti. en sennilegt þykir að hann hafi nú í fjarveru Lin Piaos og ónáð Lius hlotið skipan tU annars eða beggja. Enda þótt Chou sé fyrst og fremst stjórnmálamaður og Framhald á bls. 31. *. *

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.