Morgunblaðið - 04.03.1967, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.03.1967, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MARZ 1967. 4 v : j ú'í «3 ( Cuðlaugur Císlason í bingrœðu: Togveiðar minni innan landhelgi — eiga rétt á sér — vernda þarf hrygningarsvæðm Guðlaufur Gíslasen sagði í rseðu á Alþingi sl. fimmtudag, að hann væri sannfærður um að togveiðar innan fiskveiðilögsög- nnnar ætti rétt á sér, ef viss- um skilyrðum væri fullnægt. Að vísu eru skiptir skoðanir um það, en ég er sannfærður um að Alþingi mun fyrr eða síðar sam þykkja að bátar innan tiltekinn ar stærðar fái auknar veiðiheim iidir í landhelgi sagði þingmað- urinn. Guðlaugur Gíslason lagði áherzlu á, að hér væri ekki ein- ungis um að ræða mál útgerðar- manna heldur allra íbúa í sjávar plássum. Jafnframt því að nýta ætti betur ýmis svæði innan fiskveiðitakmarkanna þyrfti að gera ýmsar ráðstafanir til þess að vernda hrygningarsvæðin. Björn Pálsson f F) talaði fyrir frv. sínu um auknar veiðiheim- ildir báta af tiltekinni stærð inn an fiskveiðitakmarkanna og sagði að togveiðar hefðu nokk- uð verið stundaðar en fiskveiði- lögsagan var færð út 1958, en xnikið hefði dregið úr henni síð an, og hefði hún algjörlega lagst niður norðanlands. Sunnanlands væri hún enn nokkuð stunduð, en mikil brögð væru að því að fiskveiðilögsagan væri ekki virt sem skyldi. Sagði Bjöm að það væri ekki eðlilegt, að líða viss- um bátum fiskveiðar í landhelgi, þegar öðrum samskonar væri meinað það. Ræðumaður ræddi nokkuð um álit fiskifræðinga á togveiðum innan landhelgi og kvað hann þá vera á þeiiri skoðun að auknar togveiðar væru ekki hættuleg- Lánasjóð fyrir tækninýjungar Sveinn Guðmundsson hefur lagt fram á Alþingi þingsálykt- unartillögu um lánasjóð fyrir tækninýjungar í iðnaði. Er efni tillögunnar, að ríkisstjórnin láti fara fram athugun á því hvort tímabært sé að stofnaður verði lánasjóður til örvunar á fram- leiðslunýjungum til stuðnings íslenzkum iðnaði. Verði niður- staðan sú, skuli leggja fyrir næsta Alþingi frv. til laga um stofnun sliks lánasjóðs er hafi það markmið að styðja með lán- um og framkvæmd hugmynda er hafi raunhæfa þýðingu til örv unar nýjungum í iðnaðarfram- leiðslu landsmanna. f greinargerð segir flutnings- maður: Undanfarin ár hefur það marg sýnt sig, að tækniframfarir á mörgum sviðum hafa gjörbreytt atvinnuháttum okkar íslendinga. Margar góðar hugmyndir hafa komið fram hjá hugvitssömum mönnum eða þróazt hjá vinn- ar fyrir fiskistofnana. Hins veg- ar yrði að stunda veiðarnar £tf varkámi og hlýða fyrirmælum fiskifræðingana. í Ef leyft væri að stunda tog- veiðar að vissu marki innan land helgi myndi það bæta mjög hag manna í sjávarþorpum, og átti ræðumaður þar ekki sízt við þorp á Norðurlandi vestra. Guðlaugur Gíslason (S) sagði, að hann hefði flutt frv. um breytingu á þessum lögum, enda væri hann sannfærður um að togveiðar ættu fullan rétt á sér innan fiskveiðilögsögunnar, ef vissum skilyrðum væri fullnægt >að væri að vísu mjög skiptar skoðanir um það, hvort leyfa ætti togveiðar í landhelgi, en hann væri sannfærður um að Alþingi mundi fyrr eða síðar samþykkja að bátar af tiltek- inni stærð fengu auknar veiði- heimildir í landhelgi. Guðlaugur sagði að það bæri að nýta betur ýmis svæði inn- an fiskveiðimarkanna, en gera yrði jafnframt ráðstaíanir til að vernda hrygningarsvæði, er hætta væri á að eyðilegðust vegna ofveiði. Taka þyrfti bæði þessi sjónarmið til greina en styðjast ekki um of við annað þeirra. Guðlaugur lagði á það ríka áherzlu, að hér væri ekki ein ungis um að ræða mál útgerðar manna, heldur og íbúa sjávar- þorpanna. Og það væri ekki síð ur fjárhagsmál verkamanna en útvegsmanna. Víða myndi at- vinnuástand stórbatna, ef tog- veiðar væru leyfðar og ætti það ekki sízt við á þeim stöðum, andi mönnum við dagleg störf. Getur oft verið það kostnaðar- samt að gera góðar hugmyndir raunhæfar, að það tefji fyrir eða stöðvi eðlilegan framgang þeirra. Nágrannaþjóðir okkar, t.d. Norðmenn, hafa því efnt til sjóðs stofnunar, er hefur það mark- mið, að hugmyndir, sem geti haft raunhæft gildi fyrir norsk- an iðnað, komist til fram- kvæmda. Ekki er ólíklegt, að við íslendingar getum haft reynslu Norðmanna í þessum efnum okk ur til fyrirmyndar, en hér á landi er slíkur sjóður til efling- ar tækninýjungum í iðnaði ekki fyrir hendi. Þingsályktunartil- laga þessi gerir ráð fyrir, að kannað sér til hlítar hvort ekki sé tímabært, að slíkum sjóði sé komið á stofn, t.d. að fyrirmynd Norðmanna. Gert er ráð fyrir, að iðnaðarmálaráðherra sjái um, að slík athugun sé gerð í sam- ráði við leiðandi samtök iðn- aðarins. báta er fyrst og fremst byggðu af- komu sína á sjófangi. Þá vék Guðlaugur að því, að kanna þyrfti gaumgæfilega hvaða leiðir ætti að fara, ef A1 þingi samþykkti að veita aukn- ar heimildir til togveiða. Benti hann á, að þar ættu ekki við alls staðar og samhliða auknum veiðiheimildum þyrfti að tryggja að hrygningarsvæðin verði ekki of nýtt. Hann hefði flutt þingsályktun artillögu um rannsókn á því, hvort hætta væri á því að sum hrygningarsvæðin væri að skemmast vegna ofveiði Hefði hún verið samþykkt að efni til og þá hefðu fiskifræðingar ekki talið hættu á að togveiðar sköð- uðu fiskimiðin. En nú væru lið- in sjö ár frá þeirri rannsókn og þyrfti nauðsynlega að fá á ný álit fiskifræðinga um þetta atriðL Frumvarpið var samþykkt til annarrar umræðu og sjávarút- vegsnefndar. Nokkrar umræður urðu í neðri deild við þriðju umræðu frv. um breytingu á lögum um tekju stofna sveitarfélaga á síðast iið- inn fimmtudag. Var til umræðu breytingartillaga Þórarins Þór- arinssonar (F) um að elli og fjölskyldubætur væru algjörlega undanþegnar útsvari og tekju- skattl. Guðlaugur Gíslason (S) og Magnús Jónsson fjármálaráð- herra bentu á, að þessi breyt- ing yrði ekki eins til góða tekju minni einstaklingum og flutn- ingsmaður vildi vera láta og gera þyrfti mjög ýtarlegar rann sóknir á hag sveitarfélaganna áð ur en slík tillaga yrði samþykkt. Bentu þeir einnig á, að stjóm Sambands ísl. sveitarfélaga væri fótfallið þessari breytingu og teldi hana skerða um of rétt ein stakra sveitarfélaga. Guölaugur Gíslason, framsögu maður fjárhagsnefndar, flutti nefndarálit um breytingartillög- una. Var hún send stjóm SÍFS. og Hjálmari VilhjáLmssyni ráðu neytisstjóra til umsagnar og lögðust báir aðilar heldur gegn Washington 2. marz AP. FULLTRÚADEILD Bandarikja- þings samþykkti við atkvæða- greiðslu í gær, að svifta þing- manninn Adam Clayton Pwvell sæti sínu í þinginu, vegna fjár- svika og annara misferla. Powell, sem er blökkumaður, hefur verið þingmaður blökku- mannalhverfisins Harlem í New York í 22 ár. Er hann þriðji bandaríski þingmaðurinn á þess ari öld, sem sviftur er sæti sínu. Hinir voru Victor Berger sósía- listi, sem sakaður var um að hafa stofnað til æsinga í Banda- ríkjunum meðan á heimsstyrjöld inni fyrri stóð og Brigham Ro- berts, mormóni, sem var fundinn sekur um fjölkvæni hannessen, Eins og þér sáið og Jón gamli (hafa nú verið sýndir 16 sinnuim á litla sviðinu í Lind- arbæ við ágæta aðsókn. Næsta sýning verður á sunnudagskvöld GAMLA BIÓ: PÓKKRSPILARINN >AÐ sem manni fyrst kemur í hug, þegar horft er á þessa mynd, er kvikmyndin The Hustler, sem sýnd var hér fyrir nokkru, mjög góð mynd, Fjallaði hún um menn, sem leika billiard að atvinnu. >essi fjallar aftur á henni, m.a. benti Hjálmar á, að þessi breyting yrði fyrst og fremst tekjuhærri mönnum til góða. Magnús Jónsson, fjármálaráð- herra, sagði að viss rök mæltu með vissri ívilnun í þessu sam- andi og væru þau rök tekjn til greina í lögum um tekjustofna sveitarfélaga. En kanna þyrfti hag sveitarfélaganna áður en svo róttæk breyting yrði gerð og hér væri rætt um. >á benti ráðherra á, að unn- ið væri að kappi að rannsókn á skattkerfinu í sambandi við þær hugmyndir að koma á stað- greiðslukerfi skatta og væri að vænta nefndarálits innan skamms. Yrði það lagt fyrir þing ið til umræðu á þessu þingi. >ví væri ekki heppilegt að gera smábreytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga nú, þótt ýmsum þingmönnum þætti réttilega að gera þyrfti breyt- ingar. Einnig tóku til máls >órar- inn Oórarinsson (F) og Benedikt Gröndal (A). Umræðu var frest að. Á undan atkvæðagreiðslunni um brottvikningu Powells voru greidd atkvæði um miðlunartil- lögu, þar sem lagt var til að Powell yrði sektaður um 40000 dalL en leyft að halda sæti sínu. Tillaga þessi var felld með 222 atkvæðum gegn 202. Varaþing- manni kjördæmisins Abe Detla- ring hefur tekið sæti Powells, en efnt verður til aukakosninga um þingsætið síðar á þessu ári. Kunnugir telja líklegt að Po- well muni bjóða sig fram aftur og fara auðveldlega með sigur af hólmL þannig að ekki líði á löngu þar til fulltrúadeildin standi aftur andspænis þessu sama vandamálL aðalhlutverkið í báðum þáttun- um og er myndin af honum I hlutverki sínu í Jóni gamla og af Lárusi Pálssyni í hlutverki sínu. móti um menn, sem lifa á að spila poker. Billiard er auðveldari að kvik- mynda en poker, þar sem bill- iard er líkamleg íþrótt, en pok- er andleg. Myndin fjallar um ungan mann, sem er frábær pokerspilari (Steve McQueen) og viðureign hans við hinn ó- krýnda konung pokerspilaranna (Edvard G. Robinsson). í byrjun myndarinnar er blandað inn í þetta ástamálum. McQueen býr með ungri stúlku, sem leikin er af Tueoday Weld. Sú unga stúlka hefur verið eitt af vandræðabörnum kvikmynda iðnaðarins og hegðun hennar í mörgu ábótavant. Hún virðist hafa tekið sér til fyrirmyndar leikstíl Lönu Turner, yfirbug- andi tilfinningasemi og væmnL og er því til lítillar prýðL Ann Margaret leikur unga konu Karl Malden, sem sem verður að svindla í öllu, eins og sagt er í myndinni, og fer meðal annars á fjörurnar við McQueen. Hún er lagleg og snyrtileg ung stúlka, en hefur ekki til að bera þann kynþokka, sem hlutverkið krefst, þó hún sé að staðaldri sýnd með barminn nærri út úr kjólnum og pilsin upp á miðjum lærum. >egar losnað er við þær tvær verður myndin góð. Myndin umgengst með skiln- ingi og fínleika það rökkurand- rúmsloft, sem fylgir mönnum, sem lifa á valdi fallvaltrar lukku. Öll aðalhlutverkin eru vel leikin. McQueen er maðurinn á uppleið, svalur og öruggur í framkomu, en innra með sér hlýlegur og þarfnast ástúðar. Edward G. Robinson er gamal- kunnugt nafn og í uppáhaldi hjá þeim, sem hafa aldur til, að þekkja hans feril. Hann leikur gamlan mann, þreyttan, góðlát- legan og ákaflega færan og ör- uggan, sem enn heldur titli hins ókrýnda konungs, þó aðrir hafi komið og farið aftur til gleymsk unnar. Karl Malden leikur einn þeirra, sem komu og hurfu aft- ur. Hann leikur enn poker og lifir á því, en hefur náð eins langt og hann getur náð. Eina kvenhlutverkið, sem & rétt á sér í þessari mynd, er Joan Bondell í hlutverki Lady- fingers, eldri konu, sem hefur lifað á fjárhættuspilum og séð betri daga. Unga fólkið þekkir ekki Joan Blondell, en þarna getur það séð, að það hefur misst af einni beztu gamanleik- konu síns tíma. >rátt fyrir ónauðsynlega mikQ ástarævintýri er mynd þessi tví- mælalaust góð. >að verður að teljast sérstakt, hvílíka spennu er hægt að byggja upp um spiL jafnvel fyrir fólk, sem lítið eða ekkert vit hefuT á póker. Stjarna Steve McQueen hefur farið ört rísandi að undanförnu og hér sýnir hann í fyrsta sinn, að hann hefur fleira til að bera en kven- hyllL Þingsályktunartillaga Sveins Guðmundss.: Lánasjóður fyrir tækninýjungar í iðnaði Samband ísl. sveit- arfélaga mótfaliið — tillögu Framsóknarnrcaiina Powell sviptur þingsœti sínu Olafur Sigurðsson skritar um KVIKMYNDIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.