Morgunblaðið - 04.03.1967, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MARZ 1967.
3
til með að mála á morgun.
' fr'" \
Þorvaldur Skúlasoa yiA wálverkið „Xilbrigði'
í BLAÐI Chrysler-bílaverksmiðj-
anna, sem nýkomið er út, er til-
k.vnnt, að umboð verksmiðjanna
á íslandi, Vökull hf, hefur verið
valið umboð janúarmánaðar.
í blaðinu er birt grein um
starfsemi Vökuls hf og tvær
myndir. Segir þar, að líklegast
sé engu Chrysler-umboði stjórn-
að af jafn ungum mönnum og
umboðinu á íslandi.
er-umboð mánaðarins
Vökull hf tók við Ohrysler-
umboðinu í októbermánuði 196'5
og hefur starfsemin gengið svo
vel, að það var tekið fram fyrir
tugi annarra og stærri umiboða,
þegar umboð janúarmánaðar var
valið.
Árið 1966 voru seldir nær 160
Ohrysler-bílar á íslandi, m. a.
voru keyptir tveir til afnota fyr-
ir ráðherra.
Spenntur fyrir þeim málverkum,
sem ég mála á morgun
— Þorvoldur Skúloson list-
mólnri opnor sýningu í Bognsol
ÞORVALDUR Skúlason, list-
málari opnar málverkasýn-
ingu í Bogasal Þjóðminja-
safnsins í dag. Sýnir hann þar
21 olíumálverk, en allar
myndirnar eru málaðar á und
anförnum fjórum árum. Þor
valdur hefur nú ekki haldið
sýningu á verkum sínum síð
an í september 1962, en þá
sagði Valtýr Pétursson um
sýningu hans:
„Ég er efinn I að hægt sé
að ná öllu sterkari byggingu
í málverkum en þeirri, sem
Þorvaldur Skúlason sýnir nú.
Ég veit ekki um neinn erlend
an málara, sem vinnur í sama
stíl og Þorvaldur Skúlason,
sem hefur náð meiri árangri
en hann. Ég veit að þetta er
mikið sagt, en ég held, að
ekki sé ofsagt“.
Af þessum ummælum er
ljóst að það hlýtur að vera
viðburður í listalífi Reykja-
víkurborgar, er Þorvaldur
Skúlason opnar sýningu.
Blaðamönnum var í gærdag
boðið að skoða sýninguna,
sem mun verða opin næstu
14 daga og þar hittu þeir Þor
vald, sem var að leggja síð-
ustu hönd á uppsetningu sýn
ingarinnar. Þorvaldur sagði
þá m.a.:
— Allflestar myndirnar
eru málaðar á síðustu fjórum
árum, þótt að þær séu að
vísu dateraðar árið 1966. Ég
hef unnið að þessu undanfar
in ár og oft og tíðum verður
niðurstaðan sú að ég eyðilegg
myndirnar, en það geri ég
einungis til þess að fá ekki
eins voðaleg eftirmæli. — Og
Þorvaldur kímir.
Allar myndirnar eru mál-
aðar í olíu og þegar við minn
umst á það segir Þorvaldur:
— Já, annað hvort verður
maður að hafa olíu eingöngu
eða þá eitthvað annað, því að
stærð salarins leyfir ekki
mikla fjölbreytni. Erfitt er að
koma fleiri málverkagerðum
fyrir. Sýningin mín ‘62 var
hins vegar miklu stærri.
— Hvað finnst yður sjálf-
um um þessar tvær sýning-
ar?
— Já, fjólublár litur er
kannski ríkjandi í myndun-
um, sumum a.m.k. og mér
finnst skemmtilegt að fást við
hann, þ'ví að í sjálfu sér er
hann andstyggilegur. Þá er og
mjög spennandi að fást við
hann, því að í skólanum, sem
ég sótti í gamla daga var allt
af sagt að umfram allt skyld
um við ekki nota hann. — Nú
og fjólublár litur, hann er
tízkulitur nú. Er ekki svo?
— Eru allar myndirnar til
sölu?
— Já, þær eru það, en ein
eða tvær eru með svo ósvífnu
verði að enginn mun í raun-
inni kaupa þær, en ég verð-
legg þær svona hátt einfald
lega vegna þess að ég vil
ekki selja þær, segir Þorvald
ur um leið og við kveðjum
hann.
Xvær myndanna á sýningunni. Báðar heita „Hvit birta“
— Það er nú ekki gott fyr-
ir mig að segja á þeim kosti
og lesti. Það er eins með mig
og foreldrana, sem ekki geta
gert upp á milli bamanna og
halda kannski mest upp á
þau sem eru ódælust. Annars
er ég mest spenntur fyrir
þeim málverkum, sem ég kem
Sýning Þorvaldar mun opn
uð almenningi kl. 19 í kvöld
og í dag verður hún opin til
kl. 22. Þá 14 daga, sem sýn-
ingin stendur yfir, verður
hún opin frá kl. 14 til 22 dag
hvern.
Vökull hf. valið Chrysl
TRYGGING
ER
NAUÐSYN
FERÐATRYGGINGAR
HAFA STÖRLÆKKAÐ!
100 þús. kr. ferðatrygging í 15 daga kostaði
áður 83 krónur, en nú
aðeins kr. 48,00
500 þús. kr. f erðatrygging í 15 daga kostar nú
aðeins kr. 240,00
ALMENNAR TRYGGINGAR £
PÓSTHÚSSTRÆTI 9 . SÍMI 17700
©
STAKSTEINAR
Eftirtektarsamur
borgarfulltrúi
Á síðasta fundi borgarstjórnar
Reykjavíkur kom til umræðu
tillaga, sem borgarfulltrúar Fram
sóknarflokksins fluttu um hita-
veitumál og hafði annar þeirra,
Kristján Benediktsson, framsögn
fyrir henni og flutti alllanga
ræðn um málefni hitaveitunnar.
Birgir ísleifur Gunnarsson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
kvaðst ekki geta stillt sig um að
ræða nokkuð þennan tillögu-
flutning Framsóknarfulltrúanna.
Hann skýrði frá því, að borgar-
ráð hefði að undanförnu setið i
mörgum fundum til þess að
ræða hitaveitumálin, og befði
hitaveitustjóri, Jóhannes Zoega,
mætt á öllum þessum fundum
og gert grein fyrir viðhorfum í
hitaveitumálum. Þau hefði siðan
verið rædd af fullkominni hrein-
skilni meðal borgarráðsmanna og
á fundi borgarráðs síðastliðinn
föstudag kosin nefnd þriggja
manna, sem í eiga sæti Birgir
ísleifur Gunnarsson, Guðmund-
ur Yigfússon og Jóhannes Zoega,
til þess að gera ákveðnar tiÞ
lögur tU borgarráðs um þetts
efni. Birgir Gunnarsson benti á,
að greinilegt væri, að ekkert
skorti á eftirtekt hjá Kristjáni
Benediktssyni á borgarráðsfund-
um og væri út af fyrir sig ekkert
nema gott um það að segja. Hitt
væri ljóst, að hann hefði að
loknum borgarráðsfundi sl. föstn-
dag farið heim tU sin og skrifað
niður þær athugasemdir, sem
fram höfðu komið hjá hitaveitn-
stjóra á borgarráðsfundunum og
borið þær síðan fram í tillögu-
formi á borgarstjórnarfundi áa
þess að taka afstöðu til hinna
mismunandi efnisatriða og án
þess að gera tillögu um ákveðna
stefnu til eða frá. Þetta litla
dæmí sýnir glögglega starfsað-
ferðir þeirra Framsóknarmanna
í borgarstjórn Reykjavíkur. Það
er vissulega fagnaðarefni fyri»
borgarbúa, að Kristján Bene-
diktsson skuli taka svo vel eftir
á borgarráðsfundum sem nú ec
komið á daginn, en hitt er held-
ur kátlegt, að hann skuli setjast
niður og bera fram tillögu um
mál, sem hann sjálfur hefur
staðið að, að er í rannsókn og
athugun á vegum borgarráðs sem
hann á sjálfur sæti í og tillagna
að vænta mjög fíjótlega.
Enginn
F ramsóknarmaður
Þá var það og ljóst á fyrr-
nefndum borgarstjórnarfundi, að
Framsóknarmönnum gremst það
mjög, að engin Framsóknarmað-
ur á sæti i Framkvæmdanefnd
byððingaráætlunar. Á fundi þess-
um báru borgarfulltrúar Fram-
sóknarflokksins fram fyrirspuru
um framkvæmdir nefndarinnar,
og þegar Geir HaUgrímsson borg-
arstjóri hafði gefið itarleg svöc
við þeim spurningum, fluttf
Kristján Benediktsson ræðu, og
taldi að ýmislegt mætti að störf-
um nefndarinnar finna og sögu-
sagnir gengju um, að hún hefðl
framið margs konar vitle.vsur.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokka
ins, Álþýðuflokksins og Alþýðu-
bandalagsins gerðu allir athuga-
semdir við þetta pex Kristjána
: Benediktssonar og kröfðust þess,
að hann gæfi nánari skýringar á
ummælum sínum. en ljóst var, að
borgarfulltrúinn var ekki reiðu-
búinn til þess og voru allir ræðu-
menn sammála um, að þessir ein-
kennilegu tilburðir Framsóknar-
manna i borgarstjórn varðandl
| störf Framkvæmdanefndar bygg-
ingaráætlunar byggðust eingöngu
á gremju þeirra yfir þvi að ekkl
hefur verið talin ástæða til ai
I skipa neinn Framsóknarmann í
þá nefnd.