Morgunblaðið - 04.03.1967, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MARZ 1967.
5
Nýtízku hárgreiðsla sýnd á fundi
HÚSMÆÐRAFÉLAG Reykja-
víkur hefur nú fengið nýtt og
fallegt félagsiheimili í Hall-
veigarstöðum við Túngötu.
Þegar blaðamaður við Mbl.
heimsótti Húsmæðrafélagskon
ur í nýja félagsheimilið einn
daginn í vikunni, voru þær
önnum kafnar við handa-
vinnu og önnur störf. Þær
voru að búa sig undir basar,
sem þær ætla að halda laug-
Félagskonur vinna fyrir basarinn í nýja félagsheimiiinu í Hallveigarstöðum við Túngötu.
ardaginn 18. marz í félags-
heimilinu (Hallveigarstöðum,
gengið inn frá Túngötu, niður
í kjallara.). Frú Jónína Guð-
mundsdóttir, foimi. félagsins,
tjáði blaðamanni, að þar sem
félagskonur væru nú loksins
búnar að fá sitt eigið hús-
næði, eftir að hafa í nokk-
ur ár verið húsnæðislausar,
þyrftu þær eins og gefur að
skilja á auknum fjárstyrk að
halda. Félagsstarfið krefst eig-
ins húsnæðis, en húsnæðis-
kostnaður er mikill og því
ætluðu félagskonur nú að efla
til basars til fjáröflunar fyrir
húsnæðið og þá starfsemi, sem
þar á að fara fram, s. s. nám-
skeið og samkomur. Á bas-
arnum verða fyrst og fremsf
fallegar og vel gerðar páska-
vörur, sem félagskonur hafa
sjálfar unnið. Jónína kvaðst
ekki vita til þess, að áður hafi
hérlendis verið haldinn basar,
sem eingöngu hefur á boð-
stólnum páskavörur. Blaða-
maður skoðaði sýnisihorn af
mununum og voru það m. a.
smekklega gerðar svuntur, að-
eins ein af hverri gerð, púðar,
sérstaklega gerðir fyrir barna-
herbergi, auk annarra, bakka-
bönd, veggteppi, grillhanskar,
auk fjölda annarra muna.
Háfa félagskonur unnið síðan
um áramót að undirbúningi
basarins og komið saman
vikulega í félagsheimilinu þar
sem kaffi hefur verið selt til
ágóða fyrir basarinn.
Frú Jónína tjáði blaða-
manni ennfremur, að nú þeg-
ar þær hefðu fengið sitt eigið
húsnæði, hyggðust þær efna
til matreiðslunámskeiðs fyrir
reykvískar húsmæðúr, auk
sýnikennslu á matarréttum og
fleiru. Einnig hafa þær hug á
að halda föndurnámskeið og
saumanámskeið. Sagðist Jón-
ína vona að sem flestar konur
kæmu á námskeiðin og hag-
nýttu sér þann lærdóm, sem
þar ætti að vera hægt að fá.
Mánudaginn 6. marz verður
félagsfundur haldinn í Tjarn-
arbúð. Verða þar ýmiss áríð-
andi mál til umræðu, en auk
þess verður þar skemmtileg
og fróðleg kynning og sýning
á nýtízku hárrgeiðslu, toppum
og hárkollum.
Jónína bað fyrir þau skila-
boð til félagskvenna að skila
basarmunum í Hallveigarstaði
eigi síðar en 5. og 6. marz nk.
milli kl. 2—5.
..
Sýnishorn af páskamunum.
Bréf til vinar míns
Frá Jóni Haraldssyni, arkitekt
Lokaorð um Fossvogsskipulagið
Kæri vinur.
Þakka þér kærlega bréfið þitt.
Heldur þykir mér þú stóryrtur
í garð okkar ágætu yfirvalda,
ljúfurinn. — Það ku ekki vera
fallegt. Þú verður þó að viður-
kenna, að faglega rökfastar voru
svargreinar hlutaðeigandi við at-
hugasemdum mínum, 1 síðasta
bréfi; — og ritaðar af karlmann-
legum þrótti.
Þótt skipulagsmál borgarinnar
eir/kennist að vísu ekki beinlínis
af svifi andans yfir vötnunum,
vírður þú að viðurkenna, að ekki
var óeðlilegt, að ég gæti vonast
nftir lagfæringum á augljósustu
ritleysum. Eður hvat?
Borgarstjórinn okkar mætti á
fyrirhuguðum fundi með lóða-
eigendum í Fossvogi nú fyrir
skömmu. Reyndist hann ihafa
fullan skilning á óskum lóðaeig-
enda, — en upplýsti þó, að engar
breytingar yrðu leyfðar á skil-
málunum. *
Skýrði borgarstjóri skilmálana
ftarlega (ég saknaði annars höf-
undanna), og gaf glöggar upplýs-
ingar um gang málsins frá upp-
hafi. Þær þótti mér eftirtektar-
verðastar upplýsinganna, að þrátt
fyrir að í samkeppninni hafi ver-
ið veitt ein 1. verðlaun, tvenn
2. verðlaun, ein 3. verðlaun og
að auki keyptar þrjár tillögur,
skuli engin verðlaunatillagan
heldur ein þeirra þriggja, sem
keyptar voru, vera, sú hin af-
burðabezta, — að dómi dóm-
nefndar, — að mér skilst, —
þeirrar sömu dómnefndar, sem
verðlaunin veitti!!
Heldur þykir mér nú braka í
meginviðum nútíma samkeppnis-
kerfis arkitekta, ef ekki annarra
einnig. Ef til vill yrði þetta fyrir-
komulag þó til farsældar íslend-
ingum í keppni við útlendinga, —
ef skilningur þeirra fengist líka
á ágæti kerfisins.
Sem svar við spurningu þinni,
skal ég geta þess nú, að máls-
meðferð Fossvogsmálsins var á
sínum tíma mikið deilu- og hita-
mál innan Arkitektafélagsins, þar
til hætt var að ræða það.
Er þó ekki að efa, að þessum
nýju upplýsingum fengnum, að
stjórn Arkitektafélagsins gangi
úr skugga um og tryggi sér, að
engar þær reglur séu brotnar,
lagalegar né siðalegar, sem um
slík mál gilda meðai norrænna
arkitekta. Það varðar jú heiður
félagsins. — Því erfitt kann að
reynast að fá útlendinga til
keppni á íslandi í framtíðinni, ef
eitthvað er bogið við leikreglur
okkar, — því „Sjaldan launar
kálfur ofbeldi" eins og skáldið
sagði. Og þá er punkturinn settur
fyrir aftan þetta mál, af minni
hálfu.
Eftir er aðeins, að þú hlífir
mór, elskulegur, við að teikna
þarna, eins og mér hefur þegar
samizt um við hina tvo vini
mína, sem ráðgerðu byggingar.
Annars allt hið bezta frétta.
Beztu kveðjur frá okkur öllum.
Þinn einlægur
Jón Haraldsson.
Hjalti Pálsson
Sigurður Markússon
Stöðuskipti hjá SÍS
STJÓRiN Sambands ísl. sam-
vinnufélaga hefur ráðið Hjalta
Pálsson sem framkvæmdastjóra
Innflutningsdeildar, eftir fráfall
Helga Þorsteinssonar, fram-
kvæmdastjóra, sem lézt 19. þ.m.
Hjalti Pálsson er 44 ára, sonur
hjónanna Páls Zóphoníassonar,
alþingismanns og Guðrúnar
Hannesdóttur. Hann var fram-
kvæmdastjóri Dráttarvéla h.f.
194ð til 1960 og framkvæmda-
stjóri Véladeildar SÍS fró 1952.
f framkvæmdastjórn SÍS hefir
Hjalti Páisson átt sæti síðan
1955. Hjalti Pálsson er kvæntur
Ingigerði Karlsdóttur.
Við framkvæmdastjórn Véla-
deildar SÍS tekur Sigurður Mark
ússon, sem undanfarin ár hefur
verið framkvæmdastjóri skrif-
stofu Sambandsins í Hamborg
og þar áður í London.
Sigurður Markússon er 37 ára.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Verzlunarskóla íslands 1950. Ár-
ið 1959 varð hann starfsmaður
skrifstofu SÍS í Leith og fram-
kvæmdastjóri skrifstofunnar, er
hún var flutt til London árið
1962. 1964 tók hann við fram-
kvæmdastjórn skrifstofu Sam-
bandsins í Hamborg. Sigurður
Markússon er kvæntur Ingiríði
Árnadóttur,
Taugakerfi í
brezkum fjár-
málum
Lundúnum, 1. marz NTB.
NEÐRI deild brezka þingsins tók
í dag til umræðu frumvarp ríkis-
stjórnarinnar þess efnis að Bret-
ar innleiði tugakerfið , fjármála-
kerfi landsins.
Verði frumvarpið að lögum
mun allt hið flókna brezka pen-
ingakerfi með pence og hálf-
penny, shillinga, florin og hálf-
krónur hverfa, en pundið að
verðgildi (120 kr: ísl.) verður
grunneining. Því verður skipt í
100 pence.
Ef frumvarpið nær fram að
ganga verður breytingin frá og
með febrúarlokum 1971.
Ekki dóttii
Rússlands-
Íkeisata
Hamborg, 28. febrúar NTB.
DÓMSTÓLL í Ilamborg kvað I
i dag upp þann dóm, að Anna
Anderson, sem nú er búsett í
Schwarzwald, geti ekki öðlast
viðurkenningu á því að vera
einkadóttir Nikulásar H. Rúss-
landskeisara. Dómur réttarins
þýðir, að hún fær ekki viður-
urkennda kröfu sina tii arfs
eftir keisarann. Hefur kröfu
hennar um viðurkenningu á
því, að hún sé dóttir keisar-
ans, verið vísað á bug mörg-
um sinnum áður.
Anna Anderson, sem nú
liggur rúmföst í litlu húsi í
Schwarzwald, hefur flutt mál
sitt fyrir dómstólunum í 34
ár. Hefði dómstóllinn í Ham-
burg kveðið upp dóm þess
efnis, að hún væri hin eina
eftirlifandi af fjölskyldu keis-
arans, sem myrt var, þá hefði
hún getað gert kröfu til auð-
æfa Romanov-fjölskyldunnar,
sem talin eru vera 25 millj.
rúblur (1200—1300 millj. ísl.
kr.), en þetta fé á að hafa
verið lagt inn í Englands-
banka, sex árum áður en fjöl-
skyldan var myrt í Jakater- I
inaburg. L