Morgunblaðið - 04.03.1967, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MARZ 1967.
19
- KOSNINGARNAR
Framhald af bls. 14
d’Estaings, fyrrverandi fjár-
málartáðherra.
f andstöðunni eru fjölmargir
Ihópar frá hægrimönnum til
vinstrimanna. Fylgismenn Tixier
Vignaneourts, sem eru lengst til
hægri, (hafa ekki mikil áhrif í
leik stjórnmálaaflanna. Hann
reynir að smala saman hinni
mislitu hjörð óánægðra: mönn-
um, sem snúið hafa heim frá
Algier, fyrrverandi fasista, þjóð-
ernissinnum o.s.frv. Það má
kalla þennan hóp hægrisinna
„aktivis ta“.
Hinum megin eru kommúnist-
*r. Hér er um að ræða enn fleiri
óánægða menn. 1966-1967 mun
vera þýðingarmikið tímabil fyr-
Ir franska kommúnismann, því
*ð það markar afturhvarf flokks
ins til stjórnmálalífs. Hann fylg-
ir alþjóðastefnunni í þessu, þó
með nokkrum erfiðleikum og
semingi. í Frakklandi, eins og á
íslandi, eru flestir kommúnistar
óánægðir menn, sem sjá að þessi
flokkur er sterkasta afl stjórnar-
andstöðunnar. Hér er samt ekki
*»m að ræða einhverja andstöðu,
sem bindur sig fast við lögmál
Marx og Lenins. Fjölmörg tæki-
færi gefast til að komast að raun
um, að í augum meðlims komm-
únistaflokksins er hið fúllkomna
lýðræði alveg eins og meðlimur
radikalaflokksins mundi lýsa því,
það er að segja í samræmi við
hugsjónir ákvarðaðar á síðustu
öld. Vegna þessa hefur til dæmis
franski kommúnistaflökkurinn
mikil áhrif í fátækum héruðum
1 Mið-Frakklandi. En hin árang-
urslausa andstaða verður óþol-
andi þegar Kosygin kemiur að
heimsækja de Gaulle í París.
Kommúnistaflokkurinn finnur,
að hann verður að hugsa til
hreyfings. Þess vegna tekur
hann tillögu Mitterrands.
Francois Mitterrand er óum-
deilanlega orðinn leiðtogi vinstri
manna eftir tapið í forsetakosn-
ingunum 1965, sem er í raun og
reru sigur. Honum hefur tekizt,
að vísu með nokkrum erfiðleik-
um, að sameina radikalaflokk-
inn, jafnaðarmannaflokkinn
S.F.I.O. ásamt hinum svokölluðu
„klúbbum" í Vinstra-bandalagið
F.G.D.'S. (Fédération de la
GausOhe Démocratique et Soc-
iale).
Þessir tveir fyrrnefndu flokk-
&r eru elztu stjórnmálaflokkar í
Frakklandi. Voru þeir byltingar-
sinnaðir á sínum tíma, en eru nú
fhaldssamir, þar eð þeir hafa
ekki breytt kennisetningum sín-
um nema þá á móti byltiga-
stefnu, Sökum nýrra stjórnar-
manna og nýrra hugmynda virt-
ust þessir tveir flokkar vera al-
veg að líða undir lok. Án þess-
arar hættu hefðu þeir aldrei
fallizt á að laga sig eftir stjórn
manns, sem er ekki úr þeirra
flokkum. Jafnaðarmannaflokk-
urinn S.F.I.O. er í raun og veru
sigurvegarinn, því að helming-
ur frambjóðenda Vinstra-ibanda-
lagsins er úr þeim flokká. Klúbb-
arnir“ eru hópur manna, oft
menntamenn, sem reyna að dæla
nýju blóði í stjórnmálalíf Frakk-
lands. Þessir menn hafa nýlega
hafið þátttöku sína í stjórnmál-
um. Eftir að hafa rætt saman og
fundið nýjar hugmyndir, vilja
þeir koma þeim á framfæri.
Þessir klúbbar, sem í upphafi
voru umræðuhópar, eru nú orðn
ir nokkurs konar stjórnmála-
flokkar, án þess að þora að kalla
sig því nafni, svo óvinsælt er
c*rðið „flokkur“ í Frakklandi,
Allt þetta myndar Vinstra-
bandalagið. Hér er aðeins um að
næða kosningabandalag, sem
Mitterrand stjórnar með ströng-
um aga. Honum hefur tekizt hið
ómöguleiga, en heppnast honum
líka að halda þessu bandalagi
eftir kosningarnar? Það er álitið
vafasamt, svo mjög greinir menn
á í afstöðu sinni. En þessi sam-
steypa nægði ekki Bandalaginu
til að færa því sigur. Menn urðu
því að koma sér saman við aðra
flokka. Þeir gátu valið milli
samninga við Miðflokk Lecan-
uets, ti'l hægri, og til vinstri eink
um við Kommúnistaflokkinn.
Þrátt fyrir sterka andstöðu radi-
kalaflokksins, voru þessir samn-
ingar gerðir við Kommúnista-
flokkinn og lítinn jafnaðar-
mannaflokk (Parti Socialiste
Unifié) _ Það má segja, að
vinstrimenn í Frakklandi séu
sameinaðir nú í augnablikinu.
Þó er auðvelt að sýna fram á,
hve ótraust þessi sameining er.
Það gæti brotizt út ósamkomulag
innbyrðis: ósamkomulag um
framtíð sfcjórnarformsins, ósam-
komulag um utanríkisstefnu,
ósamkomulag um efnahagsmálin
o.s.frv. Þessi klofningur sýnir
hæfileika Mitterrands að hann
ákuli hafa getað sameinað þá í
eitt bandalag. Þessir flokkar hafa
þvi miður ekki getað fallizt á
sameiginlega stefnuskrá um
verklegar framkvæmdir, en hafa
heldur bosið að gefa út pésa full-
an af loforðum, sem franskir
vinstrimenn gefa ennþá, þar sem
þeir hafa aldrei getað komið
þeim í framkvæmd, enda þótt
þeir hafi verið oft við völd.
Þriðja stóra bandalagið er Mið
flokkurinn (Centre Démocrati-
que). Samkvæmt orðum sjálfs
forseta hans, undirtfýr hann nú
kosningarnar árið .... 1972, eða
það, sem kallað er „eftir enda-
lok gaullismans“. Þar sem þeir
álíta, að hvorki gaullistar né
vinstrimenn fái algeran meiri-
hluta, undirbúa miðflokksmenn
sig undir að leika hlutverk dóm-
ara milli hinna bandalaganna.
Miðflokkurinn er fyrst og fremst
myndaður úr kristilegum demo-
krötum, radikölum og frjálslynd-
um. Hann teflir fram ungu og
kraftmiklu liði, sem hugsar ekki
mjög ólíkt og gaullistar, en neit-
ar að beygja sig undir vilja eins
mianns. Röksemdir þessara leið-
toga eru Vissulega réttar. En
þessi aðferð leiðir til ríkisstjórn-
ar myndaðrar af miðflokk studd-
um ýmist af vinstri- eða hægi-
flokkum. Þetfca er það skipulag,
sem hefur oftast verið. í Frakk-
landi, og sem hefur alltaf endað
með ‘byltingu.
Hins vegar gengur þetta út
frá því sem gefnu að gaulisminr.
sé hægrisinnað afl. Nú er jafn
rangt að segja, að gaullisminn sé
ihaldssamur, og að segja, að
franskir vinstrimenn séu alltaf
framfarasinnar. Gaullistar segj-
ast vera frjálslyndir í efnaJhags-
málum, en þeir segja, að til þess
að frjáls viðskipti geti blómgazt
þurfi dómara, sem lætur virða
reglur. Af því leiðir oft nauð-
syn þess að ríkið skerst í leik-
inn. Það er satt, að mikið þarf
að gera í þjóðfélagsmálum í
Frakklandi og að framkvæmdir
Gaúllista hafa ekki alltaf náð
jatfn langt og orð þeirra. En það
er ekki víst, að andstæðingarnir
hafi gert miklu meira, þegar þeir
voru við völd.
Vafalaust er ríkisstjúrnin ein-
ráð. Þetta einræði er oft notað
á óvæntan og klaufalegan hátt
og næstum alltaf af meðal-
mennsku. Gaullistar, sem hafa
allt vald í hendi sér, kunna ekki
að nota það nema til þess að
bannfæra andstæðing, sem er þó
alltaf einhvers virði. Gagnrýni
hans hefur aldrei verið gefinn
gaumur, þó að hún væri stund-
Skrífstofustúlka
Óskum að ráða stúlku vana alhliða skrifstofustörf-
um. Verzlunarskóla- eða hliðstæð menntun æski-
leg. Tilb. sendist í pósthólf 193 Reykjavík.
um skýnsamleg. Andstaðan
kvartar vel að merkja undan því,
að hún geti ekki látið í ljós
skoðanir sínar í útvarpi og sjón-
varpi eins vel og æskilegt væri.
Því svara gaullistar til, að vinstri
flokkarnir hafi notfært sér
þetta þeim mun betur er þeir
voru við völd en þeir sjálfur
voru í andstöðunni. Þeir hafa
líka rétt fyrir sér. Það er dapur-
legt að komast að raun um, að í
Frakklandi, er frelsi til að tjá
sig réttur hins sterka. f raun og
veru er þessi lítilmennska í fram
kvæmd valdsins alltaf fyrir hendi
í stjórnmálalífi Frakka.
Hvað gerir svo kjósandinn?
Sá, sem kýs frambjóðanda
gaullisba er í 'heild ánægður,
ánægður með það sem vel hefur
verið gert á átta árum — og það
er margt. — Hann er ánægður
með bætt lífskjöi, með brottför
Ameríkana og endurreisn hins
góða orðstírs Frakka út á við.
Hann veit, að hann þarf ekki að
fordæma stríðið í Víetnam, þar
sem forseti hans hefur gert það,
og hann veit líka, að þar sem
1,5% 'fcekna hans renna til suðn-
ings vanþróuðum löndum, þarf
hann ekki að hugsa til þess
þriðja hluta mannkynsins, sem
deyr úr hungri.
Sá sem kýs andstöðuna er auð-
vitað óánægður: stúdent, sem
finnur hvergi herbergi, hjón,
sem finna hvergi íbúð, launþegi,
sem sér verðlag hækka örar en
laun sín. Hann er óánægður
vegna þess að de Gaulle forseti’
fordæmir stríðið í Víetnam, eða
þvert á móti óánægður með það,
að hann skuli ekki gera neitt
nema að flytja ræður til að binda
endi á það. Hann er óánægður
með að einstaklingsfrelsið s.kuli
vera óvirt opinberlega (þessi
gagnrýni er óvenjuleg, því að
Fröklkum hefur aldrei fundizt
óeðlilegt, að frelsi samlanda
þeirra væri takmarkað, (séu þeir
á annarri skoðun en þeir sjálf-
ir). Hann er óánægður með að-
stöðu Frakklands í Evrópu.
Hann er líka óánægður með
þjóðernisstefnuna bæði í innan-
lands og utanríkispólitíkinni. Ef
menn þeir, sem nú eru á fimm-
tugsaldri hafa skammazt sín fyr-
ir hinar fjölmörgu rikisstjórnir,
þá er fjöldi ungra manna, sem
skammast sín fyrir að heyra þá
fagna ávarpi, eins og þessu sem
Pompidou hélt: , Frakkar, mikil
og léttlynd þjóð“, eins og Chat-
eaubriand kallaði ykkur. Við
höfðum til snilli þinnar. And-
stæðingar okkar byggja vonir
sínar á þessu léttlyndi þínu, við
berjumst fyrir mikilleik þínum.
Ó, Frakkar, þið sem eigið það
de Gaulle að þakka að þið hafið
verið reistir upp frá dauðum,
rnegið þið enn einu sinni svara
kallinu,- ykkur til heiðurs og
hei'lla".
Hvað eru þá þessir Frakkar,
sem Pompidou vitnar tii, er dáið
hafa og risið aftur upp frá dauð-
um, endurholdgaðir í líki eins
manns? Eftir að þafa dvalið tvö
ár á íslandi, hefi ég ekki fundið
annan mun á íslendingum og
Frökkum en ólíkan ,,aksent“, er
þeir tala ensku (ef þeir síðar-
nefndu kunna þá ensku).
Óánægði maðurinn kýs því
gegn de Gaulle í frönsku kosn-
ingunum. Hann kýs Miðflokkinn,
Vinstra-<bandalagið eða Komm-
únistaflokkinn.
En loks er sá maður til, sem
veit ekki hvað hann vill. Þessi
manngerð virðist vera 35% af
öllum kjósendum. Hann hefur
lítinn álhuga á stjórnmálum. Mál
gögn allra flokkanna gera lítiS
úr honum, þar sem þau geta alla
ekki fallizt á að þessi maður
meðan engan áhuga á stjórnmál-
um, „þessi einskis nýti hópur i
stjórnmálalífi Frakka“, eigi að
ráða úrslitum, gaullistum í hag
eða þá andstæðingum hans. Ein
af fjarstæðum franska lýræðisins
er sú, að ákvörðunarvald er i
höndum þeirra, sem ekki hafa
álhuga.
Kannski hefur maður þessi
ekki nokkurn áhuga á stjórn-
málum. En kannski sér hann, er
hann íhugar ástandið, að aðeins
er um að ræða val milli gaull-
ista, sem lýsa yfir næstum þvi
opinberlega að þeir ætli að halda
völdum, jafnvel þó þeir tapi i
kosningunum, Vinstra-bandalags
ins, sem minnir hann á gærdag-
inn, Miðflokksins. sem talar við
hann um árið 1972, og Kommún-
istaflokksins sem talar við hann
um Moskvu.
Er hægt að koma með spá-
dóma um úrslit, eftir lýsingu á
bardaganum, sem háður er I
Fralkklandi? Þetta er mjög erf-
itt, en þó má birta niðurstöður,
sem fengnar voru fyrir fjórum
mánuðum: f stúdentakosning-
um í Strasbourg, bar einn listi
auðveldlega sigur úr býtum,
hann lagði til að allt yrði rifið
niður, allt frá hægri til vinstri,
og því síðan kastað „i öskutunn-
ur mannkynssögunnar“.
Kvöldvaka
Félags islenzkra leikara
verður endurtekin í Þjóðleikhúsinu mánu-
dagskvöld kl. 20.30
Aðgöngumiðasala í Þjóðleikhúsinu.
íbúðir í Hafnarfirði
Til sölu tvær 5 herb. íbúðir í ca. 125 ferm. húsi við Kelduhvamm.
Seljast fullfrágengnar að utan með öllum útihurðum, og tvö-
földu verksmiðjugleri, en án hitalagnar og múrhúðunar innan-
húss. íbúðirnar verða fokheldar í þessum mánuði. Bílgeymsla
fylgir annarri íbúðinni. Söluverð kr. 570 þús. og kr. 760 þús.
ÁRNI GUNNLAUGSSON, hrl, Austurg.ötu 10, Hafnarfirði
sími 50764, 9—22 og 1—4.