Morgunblaðið - 20.04.1967, Síða 16

Morgunblaðið - 20.04.1967, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1967. Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstj órar: Ritstjórnarfulltrúi: Auglýsingar: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: í lausasölu kr. Áskriftargjald kr. 105.00 Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthias Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Simi 22480. J 7.00 eintakið. 5 á mánuði innanlands. ) LÁGKÚRULEG FRAM- KOMA ÞINGMANNS CJamkomulagið innan Fram- sóknarflofeksins hefur löngum verið grátt. Síðasta dæmið um það er, þegar Framsóknarmálgagnið vekur sérstaka athygli á hinum l'ágkúrulegu ummælum Jóns Skaftasonar um Ólaf Thors. í ræðu, sem Jón Skaftason flutti hinn 21. des. 1964, þeg- ar Ólafur Thors lá veikur í heimahúsum og hafði ekki setið þingfundi um tveggja mánaða skeið sökum sjúk- leika, sagði þessi Framsókn- arþingmaður: „Hann viður- kenndi ósigur sinn í verki og sagði af sér stjórnarforustu, er verðbólguglíman var töp- uð og stjórnin stóð uppi ráða laus og gat ekki komið fram löggjöf á þingi, sem hún hafði bundið heiður sinn við að £ramkvæma.“ í þessum fáu orðum eru margföld ósannindi. Ólafur Thors sagði efeki af sér af þeirri ástæðu, sem þessi Framsóknarþingmaður full- yrðir í þessum orðum, og verðstöðvunarfrumv. ríkis- stjórnarinnar var efcki stöðv- að vegna þess, að rí'kisstjórn- in gæti ekki komið því fram, heldur af þeim ástæðum, sem Ólafur Thors tilgreindi í ræðu hinn 9. nóv. 1963. í ræðu þessari sagði Ólaf- ur Thors: „í gærkvöldi og í dag hafa farið fram viðræð- ur mil'li ýmissa forustu- manna launþegasamtaka og rfkisstjórnar. Hafa þeir tjáð ríkisstjórninni, að þeir muni beita sér fyrir því að verk- föllum þeim, sem nú standa yfir og þeim, sem boðuð hafa verið, verði frestað og að ekki verði stofnað til nýrra verk- falía a.m.k. fram til 10. des. n.k., enda verði frv. um launamál o. ffl. ekki afgreitt meðan svo stendur. Þar sem það var megin tilgangur þessa frv. að fá ráðrúm til undirbúnings efnahagsað- gerða og ti'l viðræðna um kjaramálin, telur rfkisstjórn- in að svo vöxnu máli ekki rétt að ljúka nú endanlegri afgreiðslu frv. og leggur til, að atkvæðagreiðslu við þessa síðustu umræðu málsins á Alþingi verði frestað.“ Eðvarð Sigurðsson var upphafsmaður að því sam- komulagi, sem Ólafur Thors vitnaði til í þessari ræðu og sömdu hann og Björn Jóns- son við ríkisstjó.rnina um mál þetta hinn 8. nóv. Þegar Ólafur Thors fflutti ræðu sína 9. nóv 1963, sem varð síðasta ræða hans í stjórnarsessi, duldist engum, sem á hann hlýddu, að kraft- ar hans voru á brotum sem og glögglega kom fram í svo- hijóðandi tilkynningu er Ólafur Thors sendi frá sér 12. nóv. 1963, en þar.sagði: „Læknar mínir hafa tjáð mér, að mér sé nauðsynlegt að taka mér algera hvíld frá störfum í nokkra mánuði. Ég get því efeki unnið að lausn hinan ýmsu vandamála sem framundan bíða. Haustið 1961 stóð svipað á fyrir mér. Tók ég mér þá hvíld frá störfum í þrjá mánuði. Ég tel ekfci rétt að hafa sama hátt á nú og hef því ákveð- ið að biðjast lausnar frá em- bætti mínu.“ Af þessu bréfi Ólafs Thors má ljóst vera hverjar ástæð- ur lágu til þess, að hann baðst lausnar frá embætti sínu og þótt öllum væri þetta ljóst, efcki sízt alþingismönn- um, tekur Jón Skaftason sér fyrir hendur að búa til algjör lega ósannar staðhæfingar um ástæðurnar fyrir lausnar- beiðni Ólafs Thors og þessar fullyrðingar lét hann sér sæma að láta frá sér fara öp- inberlega 10 dögum áður en veikindi þau, sem leitt höfðu til lausnarbeiðni Ólafs Thors, leiddu til andláts hans. í útvarpsumræðunum í sl. viku hélt Jón Skaftason enn áfram þessari þofekalegu iðju og rangtúlkaði ummæli Ólafs Thors í síðustu ára- mótaræðu hans. Þegar svo er komið, er ástæðulaust annað en fletta ofan af þessum lág- kúrulega málflutningi, sem vafalaust er einhver sá ó- merkilegasti, sem stjórnmála maður hér á landi hefur lagt sig niður við um langt skeið. ADENAUER Ijegar Konrad Adenauer * varð kanzlari V-Þýzka- lands 1949 var það hernumið land, efnahagur þess í rúst og afleiðingar styrjaldarinn- ar blöstu hvarvetna við. Þeg- ar hann lét af kanzlaraemb- ætti í október 1963 hafði V- Þýzkaland verið frjálst og sjálfstætt lýðveldi um níu ára skeið, þýzka efnahags- undrið var þekkt um víða veröld og land hans og þjóð hafði áunnið sér virðulegan sess í - samfélagi þjóðanna jafnframt því að vera eitt á- hrifamesta veldi á megin- landi Evrópu. Forusta hins aldna stjórn- málaskörungs á örlagatímum í sögu þýzku þjóðarinnar hafði úrslitaáhrif á uppbygg- ingu og þróun lýðræðisins í V-Þvzkialandi. Lvftraaðishuv- LAOS eftir Fred 5. Hotfmar Vientiane, Laos, Associated Press). SAVANG Vatthana konung- ur hefur setið að völdum í meira en sjö ár, — en hann hefur ekki verið krýndur ennþá, því stjörnuspekingar hans geta ekki fundið heilla- væniegan dag. Forsætisráðherrann, Souv- anna Phouma, kallar sig hlut lausan, en hann grípur fegins hendi alla aðstoð, sem hann getur fengið. Blómlegasta verzlun Laos er með ópíum, arðvænleg aukatekjulind fyrir nokkra hæstsettu hershöfðingja í Laos og mikið af tekjum landsins kemur frá gull- smygli. Þrátt fyrir slíka firru hafa Bandaríkin og aðrar vestræn- ar þjóðir tekið til við að leiða ,Iand deyfðarinnar" inn í tuttugustu öldina. Starfið er unnið af þolinmæði, kaldr- analegri kýmni og stundum af dálítilli festu. Ef ekki hefði verið um að ræða ágang kommúnista til að ná völdum í Suðaustur- Asíu með uppreisnum, kynni hið innilokaða og allt að því veglausa, litla kóngsríki, Laos, að hafa mókt áfram. En Laos er eitt af aðalmörk- um þeirrar sóknar, og Banda- ríkin, Bretland, Astralía og önnur lönd skárust í leikinn fyrir nokkrum árum til að hjálpa því við að halda sjálf- stæði sínu. Framfara hefur orðið vart af tveimur ástæð- um. í fyrsta lagi, styrjöldin milli liðssveifca stjórnarinnar og Pathet Lao uppreisnsr- mannanna, sem hlynntir voru kommúnistum og studdir af Norður-Víetnam skortir að því er virðist bolmagn til að styðja Pathet Lao í jafnrík- um mæli og fyrir nokkrum árum, og heyr enn stríð við Bandaríkjamenn í Suður- Vietnam. f öðru lagi hefur Souvanna Phouma, — sem er slóttugur, viðmótsþýður, franskmennt- aður prins, — tekizt að koma á, a.m.k. um stundarsakir og eftir áralangar byltingiar og gagnbyltingar, stjórnmála- jafnvægi í landinu. Hægrisinninn Phoumi Nosa van, hershöfðingi og gamall andstæðingur, hefur verið sviptur tign af hérrétti, sem dæmdi hann fyrir að undir- búa samsæri til að kollvarpa stjórninni fyrir um það bil tveimur árum. Hann dvelst í útlegð í Thailandi. Banda- rískir sérfræðingar álíta, að ferli Phoumis sé lokið. Kong Le, fimm feta hár hershöfðingi, sem ávallt er hugsanlegur keppinautur Souvanna, er í Indónesíu und- ir því yfirskyni, að hann leiti sér lækninga og hernaðar- þjálfunar. Souvanna telur, að hann muni hafa bægt Kong Le frá öllum raunverulegum völdum yfir hlutleysisöflun- um, um það leyti, sem honum verður leyft að snúa aftur. „Stríðið í Víetnam mun hafa mikil áhrif á framtíð Laos,“ segir sendiherra Banda rikjanna William Sullivan. „Laos hefur verið skotmark kommúnista engu síður en Suður-Víetnam. En Laos er annað skrefið í heildaráætl- uninni." Sullivan bendir á, að verði Norður-Víetnam neytt til að draga saman seglin í Suður- Víetnam, muni Pathet Lao hverfa til stjórnlagalegra leiða í Laos. Sendiherrann viðurkennir, að þetta sé bjartsýnt viðhorf, en telur jafnmiklar líkur benda til, að Norður-Víetnam menn muni snúa til sóknar í Laos til þess að afla sér hern- aðarlegs ávinnings til að bæta upp hernaðarlegt af- hroð í Víetnam. Það er almennt viðurkennt, að málamiðlun í Suður-Víet- nam, hagstæð málstað komm- únista, myndi hafa í för með sér skjótan og þungan hern- aðar ágang rauðliða á Laos og Thailand. „Ég held ekki, að atburðir í Kína muni hafa mikil áhrif á Pathet Lao,“ segir sendi- herra Breta, Fred Warner. „En ef atburðir í Kína leiða til minnkandi aðstoðar við Norður-Víetnam, munu menn finna fyrir því í Laos.“ Diplómatísk samskipti eru dálítið ruglingsleg hér um slóðir. Vingott er með Banda- rikj amönnum og Rússum. Ekkert ástríki er með Banda- ríkjamönnum og Frökkum. „Laos er eitt af fáum sam- Souvanna Phouma komulagssvæðum Sovétríkj- anna og Bandaríkjanna, sagði gamalreyndur bandarískur stjórnarerindreki. „Við álít- um, að Rússar vilji, að Laos sé hlutlaust." Frakkar breiða út sögu- sagnir um, að Bandaríkin hefðu verið ábyrg fyrir að bola burt Kong Le. Ameríkan ar segja, að Frakkar hafi hvatt Kong Le til að stofna til vandræða. Eins og víða annars staðar eru aðgerðir CIA, (Banda- rísku leyniþjónustunnar), sveipaðar leynd. En starfs- menn hennar virðast ekki eins lausir í rásinni og þeir voru árið 1960, þegar fullyrt var, að þeir hefðu verið ráð- gjafar Phoumis í byltingar- tilraun, sem var upphafið að löngu óróatímabili. Til er, að Sullivan sendi- herra hafi krafizt þess, að CIA noti sömu leiðir og stjórnmálamenn til að hafa samband við Washington, frekar en sínar eigin leiðir. Orðrómur er um, að CIA styðji andstöðustarfsemi inn- fæddra gegn kommúnistum á svæðum Pathet Lao. Air American, flugfélag í eigu óbreyttra borgara, sem gert hefur samning við hjálpar- starfssemi Bandaríkjanna, er sagt hafa annazt störf fyrir CIA, svo sem að varpa vopn- um og skotfærum til manna af Meo-kynþætti og annarra „vinveittra." í orði kveðnu annazt Air Amerioa um „hrísgrjóna- sendingar” og flóttamanna- hjálp. Á launalista félagsms í Laos eru 1000 manns, af sjö þjóðernum. Um það bil 100 eru flugmenn. Embættis- menn Air America segja, að engir starfandi orustuflug- menn séu þar á meðal. Flug- Framhald á bls.22 sjónin stendur nú traustum fótum í V-Þýzkalandi og það er engum einum manni frem- ur að þakka en Konrad Ad- enauer. Á stjórnartíma naz- ista hélt hann fast við sfeoð- anir sínar um lýðræðislega stjórnarhætti og þegar styrj- öldinni lauk hafði þessi sí- ungi gamli maður bæði liífs- reynslu og vizku til þess að leiða Þjóðverja á ný til lýð- ræðislegra stjórnarhátta. Á sviði utanrífeismála ein- beitti Adenauer sér að því að binda V-Þýzkaland traustum böndum alþjóðlegri sam- vinnu hinna vestrænu lýð- ræðisrífeja. Með því treysti hann enn grundvöll lýðræðis ins í Þýzkalandi og skapaði Þióðverium iafnframt smátt og smátt mikil áhrif meðal vestrænna þjóða. Framan af stjórnarferli hans lagði hann megináherzlu á nána sam- vinnu við Bandaríki Norður- Ameríku og á síðustu valda- árunum átti hann þátt í því ásamt öðru stórmenni álfunn ar að leggja grundvöll að betri tímum í samskiptum Þjóðverja og Frafeka. Það var sögulegur atburður í líifi þjóða sem um aldir hafa bor- izt á banaspjót. Adenauer var einn helzti forustumaður þeirra, sem unnið hafa og vinna að sameiningu Evrópu og skildi að í slfkri samvinnu var þýzku lýðræði bezt borg- ið. — Adenauer var mikill bar- áttumaður. Á litríkum stjórn málaferli horfði oft illa. En hann bar jafnan sigur af hólrni. Jafnvel á síðustu ævi- árunum, þegar hann átti að hafa sezt í helgan stein, tók hann umdeildan þátt í inn- anflokksdeilum Kristilegra demókrata. Það sýndi að þótt hann hefði náð hinum æðstu virðingairstöðum taldi hann það ekfei eftir sér að hætta orðstír sínum, ef hon- um þótti mikið við liggja. Konrads Adenauers mun verða minnzt sem eins stór- menna sögunnar. í sögu þjóð ar hans og Evrópu mun nafn hans standa við hlið þeirra, sem hæst ber. Með honum er fallinn í valinn einn þrótt- mesti baráttumaður _ etftbv stríðsáiy

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.