Morgunblaðið - 10.05.1967, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. MAI 1067.
*-> .
„Hunangsilmur" í Lindarbæ
Ný Snrtseyjarkvik-
mynd frumsýnd í kvöld
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ frumsýnir
fimmtudagskvöldið 11. þ.m. leik
ritið Hunangsilm eftir brezka
leikrita- og smásagnahöfundinn
Shelagh Delaney, sem var að-
eins 19 ára gömul, þegar hún
skrifaði leikritið, sem á frum-
málinu heitir A TASTE OF
HONEY.
Shelagh Delaney er brezk
verkakona og um þær mundir
sem hún skrifaði leikritið, vann
hún í verksmiðju í Manchester.
Hún sendi leikritið Joan Little-
wood og var það frumflutt við
góðar undirtektir af Theatre
Workshop í London í maímán-
uði árið 1958. Hlaut leikritið
Charles Henry Foyle-verðlaun-
in, sem veitt eru árlega nýju
leikriti, sem þykir skara fram-
úr. Var leikritið seinna sýnt í
átján mánuði samfleytt í West
End. Síðan hefur Shelagh skrif-
að fleiri leikrit auk smásagna.
Hunangsilmur fjallai- um 'íf
fátækrar stúlku í Manchester,
um móður hennar og þá menn
sem þær mæðgur kynnast og
umgangast. Er leikritið skrifað
af djúpu innsæi í líf þessa fólks,
en höfundur ólst sjálf upp í því
fátækrahverfi, sem leikurinn
gerist og þekkir því verkefnið
til hlítar. Leikarar eru fimm;
stúlkuna leikur Brynja Bene-
diktsdóttir, en móður hennar
Helga Valtýsdóttir. Mennirnir
SINFÓNÍ UHLJ ÓMS VEIT ís-
lands heldur tvenna tónleika nú
í vikunni, n.k. fimmtudagskvöld
og á laugardaginn kl. 3. A
fimmtudagstónleikunum munu
tvö verk heyrast hér í fyrsta
sinn, Fiðlukonsert Béla Bartóks
og Kadensa og dans eftir Þorkel
Sigurbjörnsson. Einleikari í báð
um tónsmíðunum verður Dénes
Zsigmondy.
Zsigmondy stundaði nám í
Tónlistarakademíunni í Búda-
pest. Strax að námi loknu hófust
tónleikaferðir hans um alla
Evrópu og skömmu síðar til
þrír sem kom fram í leiknum
eru leiknir af Bessa Bjarnasyni,
Sigurði Skúlasyni og Gísla Al-
freðssyni. Leikstjóri er Kevin
Palmer, en leikmynd og bún-
inga hefur Una Collins gert. Þýð
andi er Ásgeir Hjartarson.
Norður-, Mið- og Suður Ameríku
og Austurlands. Á ferðum sín-
um hefur Zsigmondy leikið með
hinum fremstu hljómsveitum.
Hann hefur einnig verið stjórn-
andi einleikaranámsskeiðs í
fiðluleik í Alþjóðlegum sumar-
skóla Weikersheim kastala.
Fimmtudagstónleikunum lýk-
Dénes Zsigmondy
ur með fjórðu sinfóníu Tsjai-
kovskýs.
Seinustu „sunnudagstónleik-
ar“ vetrarins verða að þessu
sinni fluttir fram á laugardag
og hefjast þeir kl. 3, eins og
áður er sagt. Þar verður Zsig-
mondy einnig einleikari og leik-
ur Poeme eftir Chausson og
Tzigane eftir Ravel. Þar að auki
leikur hljómsveitin „Ung-
verska þjóðlagasvítu" eftir
Weiner, svítu af dönsum frá
seinustu fjórum öldum eftir
Coates og loks Bolero eftir
Ravel. Stjórnandi á báðum tón-
leikunum verður Bohdan Wodic-
zko.
Aðgöngumiðar að þessum
tónleikum eru seldir í bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar
og bókabúðum Lárusar Blöndal.
Teknir af lífi
Accra, Ghana, 9. maí (AP)
Tveir liðsforingjar úr hernum
í Ghana voru teknir af lífi í dag
fyrir aðild að misheppnaðri
byltingartilraun, sem gerð var í
landinu hinn 17. apríl s.I.
Á FUNDI Ferðafélags fslands í
kvöld, miðvikudagskvöld kl.
8,30 verður frumsýnd ný kvik-
mynd um Surtseyjargosið eftir
Ósvald Knudsen og nefnist hún
„Með sviga lævi“. Mynd þessi
er framhald fyrri kvikmyndar
Ósvalds „Surtur fer sunnan“.
Hefst myndin vorið 1965, þeg-
ar hraunrennsli var að hætta
úr Surtsey. Um sama leyti hófst
gos í Syrtlingi og sést Það frá
upphafi, en þvi lauk í septem-
ber sama ár og hvarf eyjan
skömmu síðar og er þar nú 20
metra dýpi.
Lá gos niðri í Surtsey. Á ann-
an í jólum 1965 hófst nýtt neðan
sjávargos suður af Surtsey og
myndaðist þar eyja, sem nefnd
var Jóðnir og varð hún stærst
30 hektara og 70 metra há. Hún
er nú horfin aftur. Einnig sýn-
ir myndin hraungosið, sem hófst
í Surtsey á ný 19. ágúst 1966
og stendur enn, úr hinum upp-
runalegu gígum Surtseyjar.
Ósvaldur Knudsen hefur nú
farið milli 60 og 70 feyðir út í
Surtsey til myndatöku og eru
kvikmyndir hans merkar heim-
ildir um gosið. þar sem fylgst
hefur verið með öllum stigum
þess frá upphafi. Eins og í fyrrl
myndini hefur Magnús Blöndal
Jóhannesson samið tónlistina og
Dr. Sigurður Þórarinsson samið
og flutt texta.
Dr. Sigurður Þórarinsson
sagði, er fréttamönnum var sýnd
kvikmyndin, að Surtseyjargos-
ið nálgaðist nú að vera íslands-
met, hvað lengd snerti og myndi
ná tímalengd Mývatnselda
snemma á sumri komanda. Kvað
hann ástæðu til að ætla að f
Surtsey væri sagan að endurtaka
sig og væri sennilegt að Bjarn-
ey, og fjeiri af Vestmannaeyjum,
væru kiarnar úr hliðstæðum gos-
um. Gat Sigurður þess, að á
nærri tveimur árum, sem gios
lágu niðri á eynni, hafi hún
minnkað um 10 hektara, en er
nú aftur búin að ná fyrri stærð.
Taldi hann líklegf að eyjan
myndi minnka verulega með ár
unum, en einhver hluti standa
eftir.
Nafn kvikmyndarinnar kemur
úr Völuspá, næstu línu á eftir
Surtur fer sunnan. Sagði Dr. Sig-
urður að enn væru í Völuspá
mörg góð nöfn á Surtseyjar-
kvikmyndir, sem á eítir þessum
tveimur kynnu- að koma.
Bílaverkstæði
Af sérstökum ástæðum er bílaverkstæði ásamt
sprautum til sölu. Tilboð merkt: „848“ sendist Mbl.
fyrir 13. þ.m.
Smiðir
Vantar nokkra faglærða menn eða menn vana
smiði á eldhúsinnréttingum.
Timburiðjan hf.
Simi 36710, eða 19407.
2ja herb. íbúð
Til sölu er 2ja herbergja íbúð í kjallara í húsi við
Kleppsveg. íbúðin selst tilbúin undir tréverk og
sameign fuilgerð. Sérinngangur. Sérþvottahús. Sér
hiti. Afhendist strax. Teikning til sýnis á skrif-
stofunni.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
Málflutningur. Fasteignasala.
Suðurgötu 4. Sími 14314.
Matreiðslustörf
Kai'l eða kona óskast til matreiðslustarfa á sumar-
hóteli. Upplýsingar í síma 12423.
Vantar skipstjóra
vanan humarveiðum á 65 tonna bát frá Keflavík.
Upplýsingar í símum 2058 og 2032.
Framkvæmdastjóri
Ungmennafélag fslands óskar eft.ir að ráða fram-
kvæmdastjóra frá 1. júní n.k. Upplýsingar um
starfið eru veittar á skrifstofu félagsins Lindar-
götu 9 kl. 5 — 7 alla virka daga nema laugardaga.
Sími 12546.
Stjórn Ungmennafélags fslands.
TIL SÖLU
Einbýlisbús — i^lnarfirði
Fallegt einbýlishús á fallegum stað í
Hafnarfirði. 3 svefnherbergi og bað á efri
hæð tvær stofur. eldhús með borðkrók og
snyrtiherbergi á neðri hæð, 2 herbergi
ásamt geymslu og þvottahúsi á jarðhæð,
þar mætti hafa 2ja herbergja íbúð. Fall-
egur garður.
EINBÝLISHÚS. Lítið einbýlishús við
Garðaveg i Hafnarfirði.
Skip og Fasteignir
Austurstræti 18. — Sími 21735.
Eítir lokun 36329.
Sinfóníusveitin heldur
tvenna hljómleika