Morgunblaðið - 13.05.1967, Page 27

Morgunblaðið - 13.05.1967, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1967. 27 Ályktanir Þjó5málastefnn Vðkn Alyktun um stjórnarskrármál- efni ÞJÓÐMÁLARÁÐSTEFNA Vökn leggur áherzlu á aö hið fyrsta Terði hafin heildarendurskoðun Stjórnarskrár lýðveldisins ís- lands og harmar jafnframt það sinnuleysi, sem þessu brýna máli hefur verið sýnt allt frá stofnun lýðveldsins. Meginþætti núgild- andi stjórnarskrár má rekja tii upphafs 19, aldar og er ein- sýnt, að nútíma þjóðfélagi hæfir ekki að öllu leyti sá stakkur, sem þá var sniðinn. Við væntanlega endurskoðun stjórnarskrárinnar verði enn byggt á þeim meginatriðum, sem stjórnskipun ríkisins hvíl- ir á; lýðræði, þingræði og þrí- greiningu ríkisvaldsins. Þjóðmálaráðstefna Vöku legg uir áherzlu á eftirtalin atriði: 1. Vald forseta íslands við lausn stjórnskipulegra erfiðleika verði skýrgreint nánar en nú og vald. hans við stjórnar- myndanir aukið. 2. Tekið sé til athugunar, hvort forseta lýðvelidsins skuli veitt frestandi neitunarvald á lög- gj af armálefnum. 3. Tekið verði til afhugunar, hvort ekki sé rétt að afnema deildaskiptingu Alþingis og þá jafnframt tryggt, að máls- meðferð verði ekki óvandaðri en nú er. Ráðnir verði til AI- þingis lögfræðilegir ráðunaut ar, er aðstoði við undirbún- inig og samningu löggjafar. 4. Starfsaðstaða stjórnarandstöð unnar verði viðurkennd í stjórnarskránnL 5. Búsetuskilyrði kosningarétt- ar til Alþingis verði færð til samræmis við kosningaréttar skilyrði til sveitarstjóma. 6. Grundvallarskipan dómsvalds ins sé ákveðin í stjórnarskrá. 7. Ráðstefnan telur, að efla þurfi eftirlit með einstökum handhöfum framkvæmdar- valdsins og bendir í því sam- bandi á stofnun embættis „umboðsmanns Alþingis“. 8. Tillögur til stjórnarskrárbreyt inga verði lagðar undir þjóðaratkvæðL 9. Mannréttindaákvæði stjðrnar skrárinnar verði endurskoðað til samræmis við það, sem fullkomnast þekkist með öðr- um þjóðum. 10. í>essi verði gætt, að fram- kvæmdavaldið geti á örugg- an hátt gegnt þeirri frum- skyldu að halda uppi lögum og rétti í þjóðfélaginu. 11. Stjórnskipunarvenjur, er varða afstöðu og starfskipt- ingu milli æðstu handhafa ríkisvaldsins, þ.á.m. um þingræði og úrskurðarvald dómstóla um stjórnskipu- legt gildi laga, verði lögfest ar í stjórnarskránnL Ályktun um málefni stúdenta L Þjóðmálaráðstefna Vöku, hald in í Reykjavík 4.-5. marz 1967, vekur athygli á: að einungis 10% af 20 ára ald- ursflokki Ijúka hérlendis stúdentsprófi að meðaltali ár hvert. Sambærileg tala í ná- grannalöndunum er 16-17%; að aðeins 35,7% innritaðra stúd- enda við Háskóla íslands ljúka kandidatsprófi að með- altalL Ráðstefnan bendir á, að auk- in og betri menntun, aukin sér- hæfing og sérþekking er undir- staða stöðugra framfara og auk- innar velmegunar í nútíma menningarríki. Því er það vandamál alþjóðar, að laða fleiri og fleiri til langskólanáms. Hlutfallistala stúdenta svo og við koma kandidata sýnir greinilega að vandamálið er alvarlegt og brýnt. _ n. Ráðstefnan vekur athygli á: að þeir, er langskólanám stunda, geta ekki helgað sig eðlilegu heimilis- og fjölskyldulífi fyrr en 5-10 árum síðar en aðrir þjóðfélagsþegnar. að nám hvers stúdents dregst oftast nær óþarflega mikið á langinn, vegna mikillar vinnu með námL Ráðstefnan bendir á, að ungt fólk fer ekki í langskólanám af hugsjón einni saman. Því er von um betri kjör og lífsafkomu það, sem hvað þyngst er á metunum. Ráðstefnan ályktar því að skoða 'beri aðbúnað stúdenta og lífskjör og afkomu kandidata í nánu samhengi. Til að gera langskólanám eftirsó'knarvert og til að nýta námstímann sem bezt, verður að gefa stúdentum tækifæri til að lifa mannsæm- andi lífi á íslenzkan mælikvarða, án þess að það komi niður á námi þeirra, og síðan að greiða sérstaklega fyrir menntun þeirra, þegar þeir hefja störf í þjóðfélaginu. m. Ráðstefnan bendir á: að aðbúnaður að félagslegum þörfum stúdenta hefur lítið, sem ekkert breyzt sl. 215 áir, Strigoskór Lágir og uppreimaðir. Allar stærðir nýkomnar. KVENGÖTUSKÓR, gott úrvaL KARLMANNASKÓR og KARLMANNASANDALAR SWSMSMinJMM 'uunn&3 ihc^i Q en á sama tírna hefur fjöldi stúdenta nær þrefaldast; að fjárhagsstuðningur þjóðfélags ins við stúdenta hefur á undanförnum áratugum ver- ið með þeim hætti, að þeir hafa orðið að afla sér tekna samhliða námL Ráðstefnan fagnar því fram- komnum tillögum í Stúdentaráði og Háskólaráði um Stúdenta- stofnun. Telur ráðstefnan til- löguna þá raunhæfustu, er fram hefur komið hérlendis til að bæta úr aðbúnaði stúdenta við H.Í. Hvetur ráðstefnan stúd- enta til að standa fast saman um þessa tillögu, svo að koma megi Stúdentastofnun heilli í höfn. Þá lýsir ráðstefnan eindregn- um stuðningi sínum við frum- varp til laga um Lánasjóð ísL náunsmanna, er nú liggur fyrir AlþingL Telur ráðstefnan þá til- högun, er gert er ráð fyrir í frum varpinu líklega til árangurs á þessu sviðL en hvetur um leið til þess að reynt verði að ná mark- miði lagana á sem skemmstum tíma. IV. Ráðstefnan fagnar þeim breytingum, er gerðar hafa ver- ið á félagslegum samtökum stúdenta og leggur til að endur- skoðun fari fram á lögum Stúdentaráðs með tilliti til feng- innar reynslu undanfarið ár samhliða breytingum, sem gera verður með tilkomu Stúdenta- stofnunar. Þá hvetur ráðstefnan til samstarfs milli S.H.Í.' og S.Í.S.E. á þeim sviðum er eðli- legt þykir og aðstæður gefa til- efni tiL © 9 Komvörumar firá General Miíls fáið þér í hverri verzlun. Ljáffeng og bœtiefinarík fieða fyrir alla jjölskylduna. HtlLDSÖLUBIRGÐIR )) EHSgM & WBM (dgff DANISH GOLF Nýr stór! gódur smávinaill Smávindill {réttri stærd, fullkominn smávindill, fram- leiddur úr gæðatóbakL DANISH GOLF, nýr, stóri SmávindilljSem ánsegja erad kynnast.DANISH GOLF erframleiddur af stærstu tóbaksverksmidju Skandina- viu, og hefir i mörg ár verid hinn leidandi danski smávindill. Kaupid i dag DANISff GOLF i þagilega 3stk.þakkanum. cgj| SCANDINAVIAN TOBACCO COMPANY DENMARK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.