Morgunblaðið - 28.07.1967, Page 1
32 SIÐUR
Annar mannskæði jarð-
skjálftinn í Tyrklandi
Fjöldi þorpa í Austur-Tyrklandi hrundi til grunna — á annað
hundrað manns hafa farizt og óttazt er
að mannfall reynist miklu meira
De Gaulle í Monlreal ásamt borgarstjóranum, Jean Drapeau.
Kanadaheimsóknin hefur valdið fleirum en honum höfuSverk.
Ankara, 27. júlí, AP, NTB.
AFTUR hefur mannskæður
jarðskjálfti herjað Tyrkland,
svo skömmu eftir þann er þar
var, síðast, að björgunarlið og
hjúkrunafólk hafði hvergi
nærri lokið störfum í vestur-
tyrkneska bænum Adazapari,
þar sem jarðskjálfti varð að
bana nær hundrað manna á
laugardag í fyrri viku, er
fregnir bárust um jarð-
skjálfta í austurhéruðum
landsins í gærkvöldi.
Héruð þau er urðu fyrir
barðinu á náttúruhamförun-
um nú, eru í austurhluta
landsins, strjálbýl fjallahéruð
og svo erfið yfirferðar, að
De Gaulle situr viö sinn keip
Telur gagnrýni á sig ómerkilega. Bloð í Frakklandi
víðast verður þar ekki kom-
izt milli þorpa nema fótgang-
andi eða á hestbaki. Á svæði
því sem harðast hefur orðið
úti heitir Pulumur og þar eru
um 70 þorp sem telja 21.000
íbúa. Ekki hefur náðst sam-
band við nema örfá þessara
þorpa, en í þeim er frétzt hef-
ur frá, er talið að farizt hafi
nokkuð á annað hundrað
manna og óttazt að sú tala
eigi eftir að hækka verulega
áður en öll kurl korna til
grafar. Hundruð manna hafa
verið flutt í sjúkraskýli.
Jarðskjáltti þessi fannst allit
norðan frá Svartaihafi og suður
til landamæra TyrMands að Sýr-
landi og írak, en hans gæitti eklki
í vesturlhéruðum landsins og í
Adazapari urðu menn ekki varir
við neitt. I>ar var staddiur í gær
Páll páfi og flaug heimleiðis úr
tveggja daga Tyrklands-lheim-
sófcn sinni frá Izmir, rúmri
fclukkustund áður en jarðskjálft-
inn varð eysitra.
Björgunarlið og hjúkrunarlið
varð að hlaupa frá hálfnuSu
verki í Adazapar, eins og áður
sagði, þegar fréttist af jarð'skjálft
unum í austurhéruðunum, og
Framhald á bls. 31
Nassei víll oð
Hussein holdi
vináttu Breta
íeirút, 27. júlí. NTB.
NASSER Egyptalandsforseti
hefur beðið Jórdaníustjórn
um að viðhalda samskiptum
sínum við Bretland og Banda-
ríkin, að því er Beirutblaðið
A1 Nahar hermdi í dag. Þetta
kemur fram í útdrætti sem
blaðið segist hafa gert úr
ræðu er Hussein konungur
hélt á lokuðum fundi Jórd-
aníuþings á þriðjudaginn.
í Tel Aviv var sagt í dag, að
ísraelski herinn hefði tekið í
notkun fjölda sovézkra her-
gagna, sem þeir tóku her-
fangi á Sinaiskaga í síðasta
mánuði.
og Kanada halda áfram gagnrýni
París,*27. júlí, NTB.
SAMKVÆMT áreiðanlegum
heimildum sagði de Gaulle,
forseti við Pompidou forsætis
ráðherra og aðra ráðherra
þegar hann kom til Parísar í
nótt úr hinni umdeildu
Kanadaferð sinni, að hann
mundi verja framkomu sína
Gashernaði
í Jemen
mótmælt
Washington og London,
27. júlí, NTB-AP.
BANDARÍKJAMENN og
Bretar lýstu því yfir í dag, að
þeir mundu stySja alþjóðlegar
aðgerðir til að binda enda á
eiturgashernað Egypta í
Jemen.
Upp á síðkastið hafa stöð-
ugt borizt fréttir um, að
egypzkir hermenn beiti nýrri
tegund taugagass í styrjöld-
inni gegn konungssinnum í
Jemen. Talsmaður bandaríska
utanríkisráðuneytisins sagði
í dag, að bandaríska stjórnin
væri mjög uggandi vegna
þessara frétta. Aðalfulltrúi
Bandaríkjanna hjá SÞ, Arthur
Goldberg, segir í bréfi til
íulltrúa þingsins, að stjórnin
sé ekki síður uggandi en þing
heimur vegna gashernaðar
Egypta.
í London ræddust George
Brown utanríkisráðherra,
Framfhald á bls. 2
á næsta fundi stjórnarinnar á
mánudaginn.
De Gaulle er sagður líta svo á,
að gagnrýni sú sem ræða hans í
Montreal hefur sætt í ritstjóm-
argreinum margra blaða hafi
enga sögulega þýðingu.
f París er því veitt eftirtekt, að
de GauIIe sendi ekki Lester Pear
son skeyti í kveðjuskyni þegar
hann fór frá Kanada. Hins vegar
sendi hann forsætisráðherra Que-
becs kveðjuskeyti.
AFP hefur eftir áreiðanlegum
heimildum að forsetinn hafi af
ráðnum hug dregið taum frönsku
mælandi Kanadamanna. En ekki
hefur verið staðfest, að hann hafi
gert ráð fyrir því, hvaða áhrif
það mundi hafa í Kanada og
annars staðar í heiminum. Hins
vegar er enginn vafi sagður leika
á því, að de Gaulle hafi ætlað
að hvetja til aukinnar sjálf-
stjórnar handa frönskumælandi
Kanadamönnum.
De Murville kennt um.
Blöð í Frakklandi héldu áfram
að gagnrýna de Gaulle í dag
fyrir framkomu hans í Kanada-
heimsókninni, en ritstjóri blaðs-
ins „Paris-Presse“, Pierre
Charpy, hélt uppi vörnum fyrir
de Gaulle og sagði, að það hefði
ekki vakað fyrir forsetanum að
uppörva hreyfingu aðskilnaðar-
sinna í Quebec heldur hafi um-
mæli forsetans verið í samræmi
við þá stefnu hans að viðhalda
valdajafnvægi í heiminum.
Málgagn kommúnista, „L’Hum
anité“, sem venjulega styður
stefnu de Gaulles í utanríkismál-
um, gerir gys a'ð forsetanum, þar
sem í Kanadaheimsókninni hafi
hann vikið frá yfirlýstri stefnu
sinni um að forðast afskipti af
innanríkismálum annarra landa.
Kyrrt í Detroit en
róstur í 10 borgum
En blaðið bætir því við, að það
sé staðreynd, að stjórnarskrá
Kanada hafi verið samin á tím-
um nýlendustjórnarinnar og veiti
ekki franska þjóðarbrotinu sömu
réttindi og öðrum íbúum Kanada.
„La Depeche du Midi“, blað í
Toulouse, sem er mjög fjand-
samlegt gaullistum, kennir Couve
de Murville, utanríkisráðherra,
um hvernig fór og segir, að hann
hafi veitt rangar upplýsingar um
vandamál Kanada. Þrátt fyrir
alla sína galla, hefði aldrei
hvarflað að de Gaulle að taka
upp á þessu ævintýri, segir blað-
ið. „Le Monde“ segir, að of seint
sé að rétta hlut Montcalms
(franska hershöfðingjans, sem
glataði Kanada í hendur Bret-
um) og heimsóknin hafi valdið
alvarlegustu deilunum er upp
hafi risið í sambúð Frakklands
og Kanada í heila öld.
Framíhald á bls. 2
Moskvu, 27. júlí, NTB.
KÍNA og Sovétríkin undirrit-
uðu í dag viðskiptasamning fyr-
ir árið 1967. Viðræður um samn-
ing þennan hófust 12. apríl sl.,
er 20 manna kínversk sendinefnd
kom til Moskvu frá Peking,
skömmu eftir að aðgerðir Rauðu
varðliðanna í Peking og umsátr-
ið um sendiráð Sovétrikjanna í
borginni höfðu spillt svo sam-
búð ríkjanna að horfa þótti til
fullra vinslita.
Þrátt fyrir hugmyndafræði-
deilur landanna og misklíð í
mörgu eru verzlunarviðskipti
þeirra þó mikil. Árið 1965, síð-
asta árið, sem til eru töiur um,
keyptu Kínverjar vörur af
New York, 27. júlí.
AP-NTB.
KYRRT var í Deároit í dag, en
kynþáttaóeirðirnar hafa breiðzt
út til að minnsta kosti 10 annarra
borga í Bandaríkjunum. f
blökkumannahverfunum í San
Francisco og Los Angeles á
vesturströndinni kom til átaka
milli blökkumanna og lögreglu-
manna. f New York fóru ungir
Sovétríkjunum fyrir rúmlega 8
og hálfan milljarð króna og var
það þá 40% meira en árið áður.
Mest keyptu Kínverjar af vél-
um allskonar, flugvélum, málmi
og timbri. Innflutningur Sovét-
ríkjanna frá Kína minnkaði um
sem næst 40% á sama tíma en
nam þó hátt á tíunda milljarð
króna. Mest keyptu Sovétríkin
kjöt og kjötvörur.
Engin tilkynning hefur verið
birt um viðskiptasamning þenn-
an fyrr en nú að skýrt var frá
því, að samningaviðræðum væri
lokið og samningurinn hefði
verið undirritaður. Ekki segir
neitt um það í stuttorðri tilkynn-
ingu hvaða vörur samið hafi
verið um.
blökkumenn ránshendi um
verzlanir á Fifth Avenue.
í óeirðunum í Detroit hafa 36
manns beðið bana og tjónið er
metið á 500 milljónir dollara.
Þar hefur útgöngubanni verið
aflétt og aðaláherzlan er nú lögð
á það, að hreinsa til eftir óeirð-
irnar. Fjöldi manns hefur misst
heimili sín, en aðalvandinn er
ekki sá, að veita fólkinu húsa-
skjól heldur að útvega því mat.
Ofsalegar óeirðir geisuðu i
nótt í Toledo í Ohio, en í dögun
hafði þjóðvarðliðum tekizt að
koma á lögum og reglu. í Phoen-
ix í Arizona áttu lögreglumenn
í höggi við leyniskyttuT, sem
einnig létu á sér kræila í fyrri-
nótt. í Cambridge í Maryland
beittu lögreglumenn táragasi til
að dreifa óeirðarseggjum. Eld-
sprengjum var varpað að lög-
reglumönnum í hverfum blökku
manna í Chicago og Philadelpia.
Einnig kom til átaka i Cin-
cinnatti í Ohio, San Francisco,
South Bend í Indiana, nokkrum
útborgum New York og í Watts-
hverfinu í Los Angeles, þar sem
einhverjar ofsalegustu kynþátta-
óeirðirnar í sögu Bandaríkjanna
geisuðu fyrir tveimur árum.
í Detroit aflétti George
Romney banni við sölu á benzíni,
en bannað er að selja benzín í
ílátum. Bann við sölu á áfengi
Framlhald á bls. 2
Kínu og Sovétríkín undirritu
viðskiptnsumning