Morgunblaðið - 28.09.1967, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. SEPT. 1967
- ERLENT YFIRLIT
Framhald af bl3. 17
ingum. Stjórnin hefur öruggan
meirihluta á þingi — 86 atkvæði
— og þarf ekki að efna til nýrra
kosninga fyrr en 1971. En ef
stjómin tapar með miklurn mun
í fleiri aukakosningum kemst hún
í erfiða aðstöðu. Reynslan sýnir,
að slíkax rikisstjórnxr eru valtar
í sessi.
Reynsla íhaldsmanna á árun-
um 1961-62 er flestum enn í
fersku mínni. íhaldsmenn biðu
ósigur í hverjum aukakosning-
unum á fætur öðrum og sjálfs-
traust þeirra beið hnekki. Stjórn
in lét ekki af völdum fyrr en
1964, en hún var völt í sessi og
lítils megnug, þótt þingmeiri-
hluti hennar væri traustur.
Ástandið nú er að mörgu leyti
ólík’t. Wilson hefur meiri tíma til
stefnu, og ef allt verður með
felldu ætti ástandið í efnahags-
málunum að komast í sæmilegt
horf næsta vor. Talið er, að í
vetur verði tala atvinnulausra
800 þúsund eða ein milljón, en
haustið 1970 eða vorið 1971 mun
ástandið hafa lagazt svo mjög, að
flestir hafa gleymt þessum töl-
um.
Aukakosningarnar. í West
Walthamstow og Cambridge, þar
sem jafnaðarmenn töpuðu einn-
ig þótt það kæmi ekki á óvart
þar eð um vafakjördæmi var að
ræða, snerust nær einvörðungu
um efnahagsmál. Það er eink-
um tvennt, sem veldur kjósend-
um áhyggjum: Vöruverð hækk-
ar meira en laun og skortur er á
atvinnu, einkum fyrir unglinga,
sem lokið hafa skólagöngu. Viet-
namstríðið og umsókn Breta um
aðild að Efnahagsbandalaginu
komu aldrei til umræðu.
Næsta prófraun Verkamanna-
flokksins verður aukakosnignin
í Gorton, einní útborg Manchest-
ers, síðar í haust, en þar verður
barizt um þingsæti, sem staðið
hefur autt síðan Konni Zilliacus,
ákafur og óútreiknanlegur
vinstrisinni, lézt í sumar. Meiri-
hluti hans var 8,308 atkvæði, og
Gorton var talið öruggt Verka-
m'annaflokkskjördæmi þangað til
flokkurinn tapaði kosningunum í
West Walthamstow. Ef eins marg
ir stuðningsmenn Verkamanna-
flofcksins sitja heima í Gorton og
uppi varð á teningnum í West
WaLthamstow, hljóta jafnaðar-
menn að bíða ósigur þar líka. Og
íhaldsmenn hafa sterkan fram-
bjóðanda: Winston S. Churchili,
sonarson Sir Winston Churchills.
Hann er aðeins 26 ára gamall.
Lýðveldið í
Rhodesíu?
Horfur á samkomulagi milli
brezku stjórnarinnar og stjórnar
Ian Smiths í Rhodesíu hafa
aldrei verið minni. Ekki kæmi á
óvart, þótt Ian Smith lýsti yfir
stofnun lýðveldis 11. nóvember,
en þá verða liðin tvö ár síðan
hann lýsti einhliða yfir sjálf-
stæði nýiendunnar.
Stjórnarflokkurinn í Rhodesíu,
Rhodesíufylkingin, heldur flokks
þing sitt 28. september, o.g þá er
búízt við að fram verið bornar
háværar kröfur um, að stjórn
Smith hætti öllum tilraunum sín
um til þess að komast að sam-
komulagi við Breta. Smith og
ráðherrar 'hans vilja gjarna kom
ast að samkomulagi svo að endi
Blaðburðarfólk óskast
í nokkur hverfi í Hafnarfirði
Talið við afgreiðsluna.
Amarhraun 14, sími 50374.
Wi O t* 4 Utt Wfl i í>
BALLETTSKOLI
EDDU
SCHEVING
Skólinn tekur til starfa í næstu viku. Kennt verður á tveim stöðum í vetur.
K.R.-heimilinu fyrir Vesturbæ, Miðbæ, og Hlíðar, við Laugalæk fyrir Laugar-
nes, Kleppsholt og Voga.
Innritun daglega í síma 23-500 frá kl. 10—12 f.h. og 3-—5 e.h.
_ Trygging fyrir réttri tilsögn í dansi.
D S I
verði bundinn á efnahagslegar
refsiaðgerðir gegn landinu, og
þeir sækjast mjög eftir því að
fleiri erlend ríki viðurkenni
stjórn þeirra.
Smith tók skýrt fram í viðtali
nýlega, að ef samkomulag ætti
að nást, yrðu Bretar að ganga að
skilyrðum Rhodesíustjórnar. En
hann bætti því við, að viðræður
mundu ekki tefja störf stjórn-
laganefndair, sem værí að semja
nýja stjórnarskrá fyrir Rhodeíu.
Búizt er við, að nefndin ljúki
störfum á næsta ári, en svo get-
ur farið að lýst verði yfir stofn-
un lýðveldisins áður en störfum
hennar lýkur.
í umræðum Allsherjarþingsins
hefur George Brown, utanríkis-
ráðherra Bréta, ítrekað, að
brezka stjórnin muni ekki grípa
til valdbeitingar gegn Rhodes-
íu og hún sé andvíg efnahags-
legri styrjöld gegn Suður-
Afríku.
Kosningar á
Spáni hundsaðaB1
Franco, þjóðarleiðtogi Spánar,
hefur skipað Luis Carrero
Blanco aðmírál varaforseta í
stað Augustin Munoz Grandes
hershöfðmgja, sem sagði af sér
í júlL Hinn nýi varaforseti er
einhver dyggasti samstarfsmað-
ur Franco og hefur um langt
skeið verið voldugur að tjalda-
baki. Hann er mjög ihaldssamur,
svo að ekki er að vænta mikilla
breytinga á stefnu Franco, en
það kemur betur í ljós þegar ný
stjórn verður mynduð í byrjun
næsta árs.
Fyrstu almennu kosningarnar,
sem fram hafa farið á Spáni frá
því borgarastyrjöldinni lauk
fyrir 31 ári, verða haldnar 10.
október, en þær munu valda litl-
um sem engum breytingum.
Samkvæm,t nýju stjórnarskrár-
lögunum fær helmingur þjóðar-
innar — heimilisfeður og giftar
konur — að kjósa 104 af 563 með
limum neðri deildar þingsins
(cortes), en að venju verða aðrir
þingmenn kosnir af verkalýðs-
félögunum, sem eru undir eftir-
liti stjórnarinnar, bæjar- og
sveitarstjórnum, héraðsþingum
og menningar- og stéttarfélögum.
Nokkrir þingmenn eru skipaðir.
Þótt hér sé stigið smáskxef í
lýðræðisátt, hafa andstæðingar
Francos ákveðið að ‘ hundsa
kosningarnar. Leiðtogar stærstu
ólöglegu stjórnmálaflokkanna,
kristlegra demókrata, sósíalista,
sósíaldemókrata Oig kommúnista,
ákváðu að vísu í júlí að bjóða
fram í kosningunum, en breyttu
ákvörðun sinni þegar í ljós kom,
að samkæmt gildandi reglum"
hafa þeir ekki hina minnistu
möguleika á að reka árangurs-
ríka 'kosningabaráttu, hvað þá
að vinna þingsæti. Nú er fram-
boðsfrestur útrunninn, og
Franco þarf ekki að óttast gagn-
rýni á hinu nýja þingi.
Allir stjórnmálafLokkar eru
bannaðir nema fiokkur stjórnar-
innar, Þjóðhreyfingin, og enginn
átti að fá að bjóða sig fram í
kosningunum nema hann ynni
Þjóðhreyfingunni hollustueið.
Einnig var þess krafizt, að fram-
bjóðendur legðu fram meðmæli
frá meðlimum fráfarandi þings,
og héraðsþingum eða undirskrift
ir 0,5% íbúa viðkomandi hér-
aðs. Þessi ákvæði urðu til þess,
að margir andstæðingar stjóm-
arinnar hættu við að bjóða sig
fram. Margir frambjóðendur eru
embættismenn héraðsstjórna eða
fyrrverandi embættismenn, liðs-
foringjar eða kaupsýslumenn og
iðjuhöldar, sem tengdir eru
stjórninni.
Þar sem um litla sem enga
keppni verður að ræða í kosn-
ingunum, beinist athyglin að
vali Francos á þeim mönnum,
sem hann sjálfur skipar í neðri
deild þingsins og í efri deild
þess. Einnig verður beðið með
eftirvæntingu eftir myndun
nýrrar stjórnar á næsta ári. En
skipun Blancos í embætti vara-
forseta bendir til aukinna áhrifa
íhaldsmanna, og ekki er ólíklegt
að bandalag Shaldsmanna og fal-
angista taki við að Franco iátn-
um, en hann er nú að búa í hag-
inn fyrir eftirmann sinn.
Frá Matsveina og
veitingaþjónaskóíanum
Námskeið fyrir
framreiðslustúlkur
8 vikna námskeið fyrir framreiðslustúlkur hefst
3. október næstkomandi. Kennsla verður bæði bók-
leg og verkleg. Kennt verður þrjú kvöld í viku,
á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 20—22.25.
Innritun fer fram í skrifstofu skólans 28. og 29.
september kl. 15—17. Sími 19675.
SKÓLASTJÓRINN.
Landsmálafélagið Vörður
Almennur félagsfundur verður haldinn
í Sjélfstæðishúsinu fimmtudaginn 28.
september næstkomandi kl. 8.30. Fundar-
efni: Forsætisráðherra dr. Bjarni Benedikts-
son, ræðir um vandamálin sem við er að
etja. Síðan verða frjálsar umræður.
Stjórnin