Morgunblaðið - 28.09.1967, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. SEPT. 1967
Danir efstir í Norður-
iandakeppninni í ár
— eftir sigurinn yfir IMoregi
DANIR hafa sannarlega náð að
skapa gott knattspyrnulið í ár.
Lið þeirra, sem i vor gekk illa
að skora, og náði því aðeins
tveim jafnteflisieikjum, reynd-
ist er á leið ógnvaldur hverrar
varnar. Liðið vann íslendinga
14—2 og Norðmenn á dögunutn
5—0.
Næsti landsleikur Dana er við
Holland 4. okt. í Kaupmanna-
höfn. Valið hefur verið sair.a
lið og vann Noreg og ísland.
Þurfti nú ekki einu sinni fund
í landsliðsnefndinni til að sarr.-
þykkja valið. Nefndarmenn
hringdu hver í annan — og ailt
var samþykkt óbreytt.
Og með sigri sínum yfir Norð
mönnum eru Danir komnir í
efsta sæti töflunnar yfir Norð-
urlandaknattspyrnuna í ár og
sækja upp á við í keppni Norð-
urlandaþjóðanna sem stendur í
4 ár í senn með samtals 12
leikjum fyrir hvert lið.
Norðurlandaþjóðirnar heyja
einn landsleik hvor gegn annari
árlega. Norðurlandameistari er
skráður eftir hvert sumar en
þegar liðin hafa mætzt 4 sinnum
móti hvort öðru — 2 heima óg
2 úti, — er lokið ákveðinni
keppni. Staðan í keppninni í
15:0
JAPANIR unnu einn mesfa sig-
ur er unnizt hefur í landsleik í
knattspyrnu er þeir í gær sigr-
uðu lið Filipseyja með 15 mörk-
um gegn O. Leikurinn fór fraim
í Tokíó og var liður í undan-
keppni OL-leikanna, en í Asíu-
riðlinum eru sex lönd.
í hálfleik var staðan 9—0. Um
5000 mamns sáu leikinn sem að
mestu var leikinn í flóðljósum.
Miðherji Japana, Xamamoto,
sikoraði 7 mörk. Beztur Filipps-
eyjamanna var — þrátt fyrir
allt — markvörðurinn sem bjarg
aði snilldarlega að minnsta
kosti sex sinnum.
sumar er nú þessi:
Danmörk 2 110 5—1 3
Svíþjóð 2 110 3—1 3
Noregur 2 10 1 2—5 2
Finnland 2 0 0 2 0—4 0
Öll löndin eiga eftir einn leik.
í 4 ára keppnmni er staðan
þessi:
Finnland
Svíþjóð
Danmörk
Noregur
Á sama
11
11
11
11
hátt
4 3
2 4
2 5
4 4
17—12 12
14—14 12
19—16 10
11—19 10
og Danir hafa
sótt upp á við hafa Finnar dal-
að. Undanfarin tvö ár hafa þeir
átt mjög sigursælt lið, en gæfan
hefur snúið við þeim baki í ár
eins og lesa má út úr töflun-
um.
Stúlkur við dómstðrf í knattspyrnu
Hafa róandi áhrif á skapstóra leikmenn
ÞAÐ er oft rifizt og deilt um
störf dómara á knattspyrnu-
völlum. Sýnist að sjálfsögðu
sitt hverjum uim málin. Vafa
laust reynir hver dómari að
gera sitt bezta, en dómarar
eru mannlegir og getur sjálf-
sagt á orðið handvömm eins
og hverjum öðrum.
Það síðasta á sviði dómara
mála er áhugi kvenna á dóm-
arastörfum. Hefur risið nokk
ur alda eða tízkufyrirbæri í
þessum efnum. f Suður-
Ameríku er þegar til noikk-
ur hópur kvenna sem lagt
hefur stund á dómarastörf og
hafa stúlkurnar dæmt leiki
yngri flokka, en standa nú á
þröskuldi þess að dæma
einnig leiiki hinna eldri.
í Japan hefur stúlka þegar
dæmt sinn fyrsta leik í
,,meistaraflokki“ og von er
á fleirum til þeirra starfa
mjög fljótlega.
Enska knattspyrnan
9. UMFERÐ ensku deildarkeppn-
innar fór fram sl. laugardag og
urðu úrslit leikja þessi:
1. deild:
Arsenal — Manchester City 1-0
Coventry — W.B.A. 4-2
Fulham — West Ham 0-3
Leeds — Leicester 3-2
Liverpool — Everton 1-0
Manchester U. — Tottenham 3-1
N. Forest — Chelsea 3-0
Sheffield U. — Newcastle 2-1
Stoke — Southampton 3-2
Sundarland — Sheffield W. 0-2
Sundárland — Sheffield W. 0-2
Wolverhamton —- Burnley 3-2
2. deild:
Aston Villa — Crystal Palace 0-1
Blackburn — Bolton 2-1
Erlendur setti 3
met sama daginn
Erlendur Valdimarsson í ÍR
vann það einstæða afrek á inn-
anfélagsmóti á Melavellinum í
Reykjavík, að setja þrjú ungl-
ingamet sama daginn, í ólíkum
greinum.
Og voru það þessar greinar.
Kúluvarp: 15,46 m. (átti gamla
metið sjálfur). Kringlukast:
49,80 m. (átti gamla metið sjálf-
ur) og í sleggjukasti 48,43 m.
en þar átti gamla metið Jón Ö.
Þormóðsson ÍR.
Erlendur Valdimarsson hefur
sýnt miklar framfarir í sumar
og má reikna með að hann fari
nú í haust yfir 16 m. strikið í
kúluvarpi og 50 m. strikið í
kringlukasti.
Blackpool — Birmingham 1-0
Cardiff — Derby 1-5
Carlisle — Huddersfield 2-1
Hull — Middlesbrough 0-2
Ipswich — Norwich 0-0
Millwall — Bristol City 1-1
Plymouth — Preston 1-2
Portsmouth — Rotherham 1-1
Q.P.R. — Charlton 2-1
í Skotlandi urðu úrslit m.a.
þessi:
Aberdeen — Clyde 1-2
Celtic — St. Johnstone 1-1
Falkirk — Rangers 0-1
Hearts — Dundee 1-0
Sumir eru þeirrar skoðun-
ar að stúlikiur séu vel til dóm
arastarfsins fallnar, ekki sízt
aif því að leikmenn muni
síður grípa til róttæik ra hefnd
araðgerða þegar kvenmaður
dæmir leik. Margar stúlkn-
anna hafa töluvert inngrip
í knattspyrnu, þvi víða um
heim er fjöldi stúlknaliða
sem knattspyrnu iðkar.
Það má telja víst að nokk-
ur bið verði á því að þessi
Staðan er þá þessi:
1. deild:
Liverpool 13 stig
Arsenal 13 —
Sheffield W. 13 —
N. Forest 11 —
Manchester City 11 —
Tottenham 11 —
2. deild:
Q.P.R. 15 stig
Blackburn 14 —
Blackpool • 14 —
Crystal Palace 12 —
Derby 12 —
Sex vikno æiing-
oi í Mexico
GÍFURLEG úrkoma sem staðið
hefur nær látlaust í 4 sólar-
hringa hefúr mjög spillt æfinga
skilyrðum í Mexico City en þar
er nú allt í fullum undirbún-
ingi fyrir „Litlu OL-leikana“
sem hefjast 14. okt.
Þegar eru komnir til þátt-
töku í leikunum . — 3 vikutm
fyrir tímann — 224 þátttakend-
ur frá Svíþjóð, Finnlandi, Nor-
egi, Ítalíu, Hollandi, Ungverja-
landi, Júgóslavíu og báðum
hlutum Þýzkalands. Er íþrótta-
fólkið við æfingar á staðnum
fram að keppninni.
Kynskoðun ó
OL-leikunum
ALLIR þeir er vinna til verð-
launa á Olympíuleikunum í
Grenoible eða Mexico verða
teknir til sérstakrar „kyn.skoð-
unar“, að því er alþjóða OL-
nefndin tilkynnti í dag.
Ákvörðun þessi kemur í kjöl-
far ýmissa hneykslismála er
upp hafa komið að undanförnu
þar sem nokkrar af fremstu
íþróttakonum Sovétríkjanna og
A-Evrópuþjóðanna hafa ýmist
ekki mætt til læknisskoðunar
eða að rannsókn lokinni ekki
verið taLdar „kvenlegar verur“.
Cí\
AUGLYSIHGAR
SÍMI 22*4*80
„nýjung“ í dóm aramálum
sjáist hér á landi. En vera
má þó, að biðin verði ekki
eins löng og ma'rgur ætlar,
því stúlkur eru fljótar að
keppa að ákveðnu marki, ef
þær setja sér það.
Myndin sem hér fylgir er
frá S-Ameríku og sýn.ir
stúlbu við dómarastörf í leik
ungra pilta. Hún virðisf sann
arlega hafa hugann við starf-
ið.
Síðklætt
kvenfólk í
knuttspyrnu
Húsavík, 23. september. —
TIL fjáröflunar fyrir bygg-
ingu félagsheimilis á Húsavík
háðu Kvenfélagið og Kvenna-
deild Slysavarnarfélagsins í
gærkvöldi knattspyrnukapp-
leik á flóðlýstum leikvelli við
barnaskólann. Konurnar voru
búnar tízkubúningi frá árunum
1920, sem er gjörólíkur stuttu
pilsunum í dag. En nýju tízk-
unni mun hentá betur í knatt-
spyrnukeppni, því að á stundum
týndist boltinn í pilsfaldi kepp-
enda.
Dómari í leiknum var Björn
Friðfinnsson, bæjarstjóri (lög-
fræðingur) og dæmdi hann
mjög vel, enda stöðvaði hann
leikinn nokkrum sinnum, til
þess að fletta upp í lagasafninu,
sem hann hafði meðferðis og
vafi var á um hvort refsivert
brot væri að ræða. Starfslið
mótsins, línuverðir og læknar,
var allt í viðeigandi skraut-
klæðum.
Úrslit urðu, að Slysavarnar-
deildin sigraði með tveimur
mörkum gegn einu eftir fram-
lengdan leik, sem ljúka varð
með vítaspyrnukeppni og slys-
aði þá kvennadeildin eitt mark,
sem réði úrslitum. Aðrar víta-
spyrnur voru varðar og mun
það sjaldgæft í svo hörðum leik.
— FréttaritarL