Morgunblaðið - 28.09.1967, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. SEPT. 1967
31
Gjaldkeri handsamaði
ávísanaialsara
GJALDKERI í útibúi Útvegs-
bankans að Laugavegi 105, Erik
Hákonarson, handsamaði í gær
ávísanafalsara og afhewti hann
lögreglunni. Maðurinn hafði
komið til Eriks og viljað selja
ávísun, sem Erik sá strax að
var fölsuð. Þegar Erik vildi ekki
kaupa ávísunina, hljóp maður-
inn út og hugðist bjarga sér á
fiótta, en Erik stökk yfir af-
greiðsluborðið og hljóp á eftir.
Náði hann manmnum fyrir utan
og urðu með þeim nokkrar
sviptingar en Erik tókst að
halda manninum föstum þar til
lögreglan kom á vettvang. í fór-
um hans fundust fjögur blöð
úr stolnu ávísanahefti og hafði
hann útfyllt þau öll.
Bsndaríska leikkonan
flaug utan i gær —
Húseign Steinstólpa
slegin á 4,95 millj.
NAUÐUNGARUPPBOÐ fór fram
á húseign fyrirtækisins Stein-
stólpar í Súðarvogi í gær. Var það
annað og síðara uppboð á hús-
eigninni.en Framkvæmdasjóður
tslands ásamt öðrum aðilum
óskaði eftir uppboðinu.
Við fyrra uppboðið var Fram-
kvæmdasjóðinum, sem er arftaki
Framkvæmdabanka íslands, sleg-
in húseignin á eina miiljón kr.
- TYNDIST
Framih. af bls. 32
skáta í Hafnarfirði, Slysavarnar-
deildin Ingólfur í Reykjavík og
Slysavarnardeildin Fiskaklettur
í Hafnarfirði.
Leitin hófst um hádegisbíl í
gær og var m.a. beðið um að-
stoð þyrlu frá varnarliðinu.
Þyrlan fann síðan manninn í
flæðarmálinu sunnan við Bala í
Garðahreppi. Var hann örendur.
Maðurinn var 76 ára og hafði
eklki gengið heill til skógar.
en lögmaður uppboðsþola óskaði
eftir öðru uppboði, sem síðan fór
fram í gær
Hæsta tilboð í gær átti Einar
Ásmundsson,- 4 milljónir 950 þús-
und krónur, en næsthæsta boð
átti Guðjón Styrkársson, lögfræð
ingur fyrir hönd síns umbjóð-
enda.
Borgarfógeti tekur sér 14 daga
frest til þess að athuga boðin og
er hæstbjóðandi bundin við boð
sitt þann tíma.
BANDARÍSKA sjónvarpsleik-
konan, sem hér var á ferð og
ætlaði að fljúga flugvél sinni til
Moskvu, ef leyfi fæst, fór frá
Reykjavik í gær kl. 13.20. Með
henni fóru tvær flugvélar, og
ætluðu að hafa samfylgd með
henni.
Leikkonan flaug í fyrstu í átt
til Keflavíkur, þar sem hún lét
hjólin snerta flugvöllinn, enda
Keflavíkurflugvöllur áfangastað
ur í áætlun frúarinnar. Síðan
tók hún beina stefnu á Prest-
wick og var áætlaður flugtími
þangað 6 klukkustundir og 10
mínútur.
Frúin mun hafa átt hér lengri
viðd'völ, en ráðgert hafði verið
vegna óhagstæðs veðurs á flug-
leiðinni yfir Atlantshaf. Næsti
áfangi hennar er svo Kaup-
mannaihöfn, en þaðan ætlar hún
að fljúga til Moskva.
Brú á ósa Hvítár viö Borgarnes
hið brýnasta nauösynjamál —
— segir Ásgeir Pétursson,
sýslumaður Borgfirðinga
Á LANDSFUNDI Félags ís-
lenzkra bifreiðaeigenda, sem
haldið var í Borgarnesi um síð-
ustu helgi var rætt um brúar-
gerð yfir Hvítá á móts við Borg-
arnes af Ásgeir Péturssyni, sýslu
manni. Gat Ásgeir þess á fund-
inum, að enginn ágreiningur
væri milli stjórnmálaflokka
um nauðsyn þess að byggja brú
á Hvítá á móts við Borgarnes.
Núverandi ríkisstjórn hefði sýnt
Askorun ráðgjafanefndar Evrópuráðsins:
Grikkland taki upp þing-
ræðislega stjórnarhætti
— annars kunni því að
verða vísað úr ráðinu
'Strassbourg, 27. september.
— AP-NTB —
RÁÐGJAFANEFND Evrópu
ráðsins skoraði á Grikkland í
dag að taka að nýju upp eðli-
lega þingræðislega stjómar-
hætti og gaf í skyn, að ell-
egar kynni Grikkland að
verða vísað úr ráðinu. Ráð-
gjafanefndin fór þess á leit
við ráðherranefnd Evrópu-
ráðsins, að ráðherranefndin
skoraði á stjómarvöldin í
Aþenu að „koma á þingræð-
islegri stjórn, sem tryggði á
nauðsynlegan hátt mannrétt-
indi“. Stjórn sú, sem tók við
völdum fyrr á þessu ári eftir
valdaránið í Grikklandi, hef-
ur ekki heimilað hinni reglu-
legu 115 manna þingmanna-
sendinefnd landsins á þingi
Evrópuráðsins að fara til
Strassbourg. Hefur þeirri
skoðun verið að vaxa fylgi,
að grípa verði til aðgerða
gagnvart Grikklandi.
Kanellopoulos, fyrrverandj for
sætisráðherra Grikkla.nds, hefur
v-arað herstjórn landsins við því,
að hún verði að koma á eins
fljótt er unnt er þingræðisleg-
uim stjórn'arháttum og stjórn-
málaifrelsi í landinu, ef ekki eigi
að leiða aif sér þær hættur, sem
geti eyðilagt landið.
Kanellopouilos, sem er leiðtogi
hægri flokks'ins, Þjóðlega um-
bótaisaimbandsins og annar ai
tveimur stærstu stjórnmálaiflokk
um landsins, hefur rofið fimm
mániaða þögn sína á sfjórnmála-
vetitvangi með því að lýsa því
yfir, að núverandi herstjórn
verði að vikja fyrir frj'álsri
s t j ó r n m álast ar f s em i, sem verði
að laga sig að þeirri reynslu,
sem fengizt hafi af fortíðinni og
ástaíi'diniu nú.
Stjórnimálafréttariltarar í
Aþenu hafa látið í Ijós mikla
uindrun yfir hinni hvössu gagn-
rýni á herstjórninni frá þessum
fyrrverandi forsætisráðherra,
sem var sviptur vöildum með
valdaráninu í vor. Kanellopoulos
ræddi við erlenda fréttamenn í
íbúð sinni í Aþenu og er hann
þannig fyrsti gtjómmálamaður-
inn í Grikklandi, sem skipulegg-
ur blaðamannarfund í því skyni
að gagnrýna stjórn landsins frá
því í valdarániinu í aipríL
Hann vair handtekinn, er her-
inn framkvæmdi valdaránið 21.
apríl og var látinn laus sólar-
hring síðar. Á blaðamainnafund-
inum nú vísaði hann á bug þeim
yfirlýsingum herstjór nar innar,
að hinir gömlu stjórnmálamenn
væru ililr og spillitir. Ég get ekki,
sagði hann, fallizt á, að þessir
menn séu hinir einu í landi mánu
sem hafi rétt til þess að ræða
opinsfkátt um stjórnmál og uim
framtíð Grikklands.
Grikkland getur orðið að
nýju Víetnam
í frétt frá Pairís segir, að aðal-
framkvaemdastjóri gríska Mið-
fiokkasambandsins, Nikolas
Nicolaides hafi sagt, að Grikk-
land geti orðið að nýju Víetmam,
ef ekki verði þegar í stað gerð-
ar ráðstafanir til þess að koma
á lýðræðislegu stjórnarfari í
landinu .
Sagði hainn á blaðamann.aifundd
í París, að tilgangurinn með
ferðaliagi sínu til útlanda væri
að sannifæra lönd Evrópu um,
áð nauðsynlegt væri, að þau
gerðu ráðsitafanir í ofangreinda
'átt þegar í stað. Nioolaides
kenndi Konstamtin konungi um
vaildaránið og sagði: Hann vildi
verða póliitískur leiðtogi.
Holland hefur einnig fetað í
fótspor skandinavísku landanna
og borið fram mótmæli sín við
Evrópuráðið gegn herstjórndnni
I Griikklaindi. Hefur mótmæla-
orðsendingin þegar verið aifhent
ma.nnréttindadómsitólnum í Stras
bou.rg.
málinu áhuga og því hefðu mæl-
ingar hafizt. Það væri þó annað,
að byrjað væri á slíkum mæl-
ingum en að fullnaðarákvarðan-
ir hefðu verið teknar. Tæknileg
rannsókn á jarðlögum og öðrum
aðstæðum verður vitanlega að
fara fram og kostnaðaráætlun
að gerast, sem verða forsendur
fyrir lokaákvörðun í þessu máii.
— Það er augljóst mái, að fyrir
Borgarnes er brúin beimlínis
lífsnauðsynleg, en mjög gagn-
leg fyrir alla Vestlendinga, sagði
Ásgeir. Ennfremur að brýrnar
yfir Ferjukotssíki væru illnot-
hæfar og að Hvítá loki stundum
veginum við Hvítárvelli í vatna-
vöxtum. Ýti það mjög á nauð-
syn þess, að athugunum verði
flýtt eftir mætti um fyrirhug-
aða brúargerð við Borgarnes.
í þessu sambandi má sérstak-
lega geta þess, að sýslunefnd-
irnar í Borgarfirði samþykíktu
á aðalfundi sínum í vor mjög
eindregna áskorun á ríkisstjórn
og Alþingi, að hraðað yrði undir
búningi að brúarsmíð við Borgar
nes.
í viðtali er Mbl. átti í gær við
Árna Pálsson, yfirverkfræðing
hjá Vegagerðinni, sagði hann, að
hér væri um gamalt mál að ræða.
Þess má geta að eitt dagblað-
anna í gær hafði það eftir sveit-
arstjóranum í Borgarnesi, „að
ekki væri ólíklegt, að fram-
kvæmdir yrðu í þessu máli á
næsta áratug . .
Af þessu tilefni sneri blaðið
sér til Sigurðar Jóhannssonar,
vegamálastjóra, og sagði hann:
— Eitt dagblaðanna minnist á
þessa frétt í dag. Sú frétt er ekki
frá Vegagerðinni komin, heldur
algjörlega höfð eftir sveitar-
stjóranum í Borgarnesi. í sumar
hafa verið framkvæmdar í Borg
arfirði mælingar með þessa brú-
argerð fyrir augum. Meðan fram
kvæmd á síðustu 4ra ára áætlun
stendur yfir, er verið að undir-
búa hina næstu. Þó tel ég ólík-
iegt, að brúargerð yfir Borgar-
fjörð komi með í hinni næstu.
Mælingar þær, sem gerðar
voru í sumar, eru m.a. gerðar
vegna skipulags í Borgarnesi.
Brún mun eflaust koma í land
á Seleyrinni sunnan fjarðarins,
en ekki liggur ljóst fyrir, hvar
hún kemur í land að norðan-
verðu.
— Um þetta mál hafa verið
fluttar fjölmargar þingsályktun-
artillögur, en hve oft man ég
ekki. Brú þessi verður mjög
gagnleg þegar að því kemur að
lögð verði hraðbraut norður í
land og ennfremur kemuir til
álita, er brýrnar á Hvítá og
Ferjukotssíki anna ekki lengur
umferðinni þar um, brú yfir
Borgarfjörð. Leiðin í Borgames
og þá um leið á Snæfellsnes mun
þá styttast um eina 20 km. og
leiðin norður um fáeina km.
Sigurður sagði, að hér væri
um merkilegt mál að ræða, sem
vonandi myndi leysast einihrvern
tíma, en það væri ekki á dag-
skrá nú. Þá gat hann þess að
Vegagerðin þyrfti oft og tíðum
að svara þingmönnum um hin
og þessi mál. Þetta mál væri
meðai þeirra, sem Vegagerðin
hefði búizt við að spurt væri um,
en ekki mætti gefa í skyn að
brúa ætti Borgarfjörð á morg-
Tólf árekstrar
í Reykjavík í gær
TÓLF árekstrar urðu í Reykja-
vik í gær á tímanum frá hálf
átta að morgni til átta að kvöldi.
Auk þess varð sVo eitt gang-
brautarslys. Engin meiðsli urðu
á fólkií árekstrunum tólf en
þessi árekstrarfjöldi er óvenju-
legur í Reykjavík á góðviðris-
degi eins og var í gær.
- KAUPA LEYLAND
FramJi. af bls. 32
Bæjarráð Kópavogs kaus nefnd
til þess að athuga tilboð, sem
bárust. Nefndina skipuðu Ás-
geir Jóhannesson, bæjarfulltrúi,
Leifur Kristjánsson, bifvélavirki
og Péttur Kristjánsson, langferða
bifreiðastjóri. Til greina komu
þrjú tilboð, frá Leyland, Volvo
og þýzka fyrirtækinu Bussing.
í viðtali við Mbl. í gær sagði
Ólafur Jónsson, framkvæmda-
stjóri SVK, að vagnamir væru
af gerðinni Leyland Worldmast-
er og væri kaupverð hvers vagns
716.000 krónur og áætla má að
hver yfirbygging muni' kosta um
850.000 krónur.
Nefndin, sem athugaði tilboðin
fór mjög varlega í rökstuðningi
sínum fyrir kaupunum. Segir
þar, að helzta ástæða fyrir kaup-
unm sé sú að engin áhætta sé
að kaupa vagna af svo þekktri
gerð, og sem m.a. er mest notuð
í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi
og London. Þá gat Ólafur þess,
að formaður nefndarinnar, Ás-
geir Jóhannesson, hefði látið orð
falla um það, að ekki væri sér-
stök ástæða til að hafa viðskipti
við Svía vegna samgöngumála
um þessar mundir.