Morgunblaðið - 06.10.1967, Qupperneq 1
32 SIÐIJR
54. árg. — 226. tbl.
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hussein tregur að
þiggja aðstoð Rússa
Moskvuheimsókn Jórdaniukonungs
lokió Obreyft afstaða Rússa og Araba
Moskvu, 5. október. AP-NTB.
í TILKYNNINGU, sem gefin var
út í dag að loknum viðræðum
Husséins Jórdaníukonungs og
sovézkra ráðamanna er endur-
tekin krafan um, að fsraelsmenn
flytji burt allt sitt lið af arabisku
landi. Engin breyting virðist
hafa orðið á afstöðu Araba og
Rússa þannig að viðræður við
ísraelsmenn geti hafizt, segir
fréttaritari AP.
í tilkynningunni heita Rússar
því að halda áfram aðstoðinni
við Araba, en ekkert er minnzt
á beina efnahagslega eða hern-
aðarlega aðstoð við Jórdaníu-
menn. Því hefur verið haldið
fram, að Rússar hafi í viðræðun-
um við Hussein konung heitið
Jórdaníumönnum bæði efnahags
legri og hernaðarlegri aðstoð, en
af fréttatilkynningunni er ekki
hæg.t að ráða, hvort Jórdaníu-
menn hafi tekið boðinu, segir
frétiaritari Reuters.
Hins vegar hafa stjórnir land-
Framhald á bls. 24
Fimm í
fðrarbrofidi
Margt bendir til þess að
menningarbyltingin sé nú í
rénun eða íhaldssamari öfl
ráði nú gangi hennar. Vegg- 1
spjöld sjást nú ekki lengur í
Peking og rauðir varðliðar
eru fáliðaðir. Myndin að ofan ,
er af þeim fimmmenningum,
sem hrundu byltingunni af 1
stað og bera því mestu ábyrgð
á afleiðingum liennar. Frá v.
Chou En-Iai, forsætisráðherra, ,
frú Maó, Yao diplómat, Maó
formaður og Lin Piao. (Sjá
frétt á bls. 3).
Enugu í höndum
stjórnarhersins
— segja heimildir í Lagos
— Enugu-útvarpið ber á móti
Lagos, 5. okt., AP-NTB.
STJÓRNIN í Lagos, höfuð-
borg Nigeríu, sagði í dag, að
Enugu, höfuðborg aðskilnað-
Kommúnistar gera
uppreisn í Borneó
Djakarta, 5. október. NTB.
FORSETI Indónesíu, Suharto
hershöfðingi, skipaði hernum i
dag að bæla niður uppreisn sem
kommúnistar hefðu gert í af-
skekktum sveitaþorpum í indó-
nesísku Borneó. Suharto sagði,
að Kínverjar stjórnuðu skæru-
liðasveitum kommúnista.
Yfirmaður hersveita á Vestur-
Borneó, Witono hershöfðingi,
skýrði irá því í dag að sögn
hinnar opinberu fréttastofu,
Anitara, að uppreisnarmenn
hefðu látið greipar sópa um
þorp meðfram landamærum
Indónesíu og Malaysíu á Borneó.
Hann sagði, að uppreisnarmenn
hefðu pyntað þorpsbúa til þess
að neyða þá til að láta af hendi
matvæli. Þorpsbúum var sagt,
að annað hvort yrðu þeir að láta
af hen,di grísi, hænir og land-
búnaðarafurðir eða að öðrum
kosti yrðu heimili þeirra brennd
til öskiu, sagði Witomo.
Uppreisnin hófst með því að
gerð var árás á indónesískan
flugvöll í júlí, en að undanförnu
hefur hún breiðzt út. Suhartio gaf
út fyrirskipun sína til hersins
þegar slegið hafði í bardaga
milli skæruliða og varðflokks
indónesískra hermanna. Bardagi
þessi hófst þegar hermenn tóku
maitvælageymslu kommúnista í
frumskóginum, og sagt er að
margir skæruliðar hafi særzt.
arríkisins Biafra, væri fallin
í hendur stjórnarhersins eftir
tveggja mánaða borgarastyr-
jöld. Franska fréttastofan
AFP segir, að útvarpið í
Enugu hafi borið á móti
þessu. Sagði útvarpið, að her
Biafra hefði veitt stjórnar-
hernum mikla mótspyrnu og
fellt marga. Enugu er 60.000
manna borg og fullyrti út-
varpið, að lífið í borginni
gengi sinn vanagang og menn
væru alls óhræddir. Það
sagði ennfremur, að 2000 sjálf
boðaliðar hefði farið frá Port
Harcourt til Enugu til að berj
ast með Biafrahernum.
í yfirlýsinigu Dagos-stjórnarinn-
ar sagði, að Enugu hefði fallið
eftir sex daga umsátur. Ekki
var minnst á örlög Ojukwu, liðs
foringja, foringja uppreisnar-
manna, sem hratt borgarastyr-
jöldinni af stað með sjáflfstæð-
isyfírlýsingu Biafra-ríkis í maí
sl. Yfirvödd í Lagos segja, að
þau muni hafa hendtur í hári
Ojukwus fyrr eða síðar, en hans
bíður tafarlaus liflátsdómur.
Þá segir í stjórnaryfiriýsing-
unni, að ríikisstjórn Biafra hefði
Framhald á bls. 24
Slagsmál i
Lundúnum
Lundúnum, 5. okt. — NTB —
BREZKIR hafnarverka-
menn báru sigur úr být-
um í hörðurn slagsmálum
við kínverska sjómenn við
höfnina í Lundúnum í dag.
Kalla þurfti mannmargt
lögreglulið á staðinn til að
skakka leikinn. Slagsmálin
hófust þannig, að áhöfnin
af kínverska skipinu
„Hang Zhou“ reyndi að
festa merki með mynd áf
Mao Tse-tung á jakkaboð-
ung eins hafnarverka-
mannsins. Hann tók þetta
óstinnt upp, þreif merkið
og grýtti því í sjóinn í
fússi. í sama mund köst-
uðu fjórir Kínverjar sér á
manninn.
Starfsbræður þessa verka-
manns komu bráðlega á vett-
vang og innan skamms log-
Framhald á bls. 24
Brown leysir
frá skjóiunni
Styðja áfram Viet-
namstefnu U.S.A.
Scarborough, 5. okt. AP.
RÍKISSTJÓRN Harold Wilsons
mun halda áfram að styðja
stefnu Johnsons Bandaríkjafor-
seta í Víetnam, þrátt fyrir álykt-
un landsfundar brezka Verka-
mannaflokksins í Scarborough,
en í henni er skorað á brezku
stjórnina, að segja skilið við
stefnu Bandaríkjamanna í Viet-
nam. Ályktun þessi var sam-
þykkt með naumum meirihluta á
landsfundinum í gær.
Ákvörðun stjórnarinnar um
áframhaldandi stuðning við
Bandaríkin í þessu máli lá ljós
fyrir í dag, að sögn heimdldar-
manna. Þeir lögðu hins vegar
mikla áherzlu á eitt atriði: Ef
Bandiaríkin auka enn hernaðinn
í Vietnam þá mun brezka
stjórnin hugsa sig um tvisvar
áður en hún leggur blessun sína
yfir slikt. Heimildirnar hermdu,
að Bretar hefðu gert Johnson
þetta fullljóst.
Lundúnum, 5. okt.,
AP-NTB.
BREZKI utanríkisráð-
herrann, George Brown,
sagði við blaðamenn í dag,
að ef menn neyttu ekki
áfengis mundu þeir deyja.
Brown var að ræða um
forystugrein í „Daily
Mirror“, en þar segir að
erfiðleikarnir varðandi
Brown væru ekki þeir, að
hann drykki of mikið,
heldur, að hann ætti yfir-
leitt ekki að neyta áfengis.
Segir hlaðið, að Brown sé
svo fjörlyndur að eðlis-
fari að áfengi verki á hann
eins og olía á eld.
Buown lenti sam a.n við
bla'ðaljósmyndara sfl. þriðju-
dagskvöld er þeir ætl-uðu að
mynda hann á dansgóifi með
konu sinnd. Atburðurinn hetf-
ut orðið þes« valdandi, að
rætt er um að Brown segi af
sér embætti uitanríkisráð-
herra.
Á blaðamannafundinum
sagði Brown, að hann mundi
ekki breyta um lífshætti.
Hann sa.gði: „Þjóðin verður
að áikveða sjálf að hve miklu
leyti hún vill taka miig eins
og ég er, vegna þess, að það
er ekki hinn minnsti mögu-
leiki tid að ég breytist. Viilji
hún U'tanríkisráðherra, sem
ekkert rangt gerir þá er ég
vissulega ekki sá maður. En
ég býst við, að sá sem kærnd
á eftir mér yrði ekki sér'lega
góður utanrikisráðherra“.
%