Morgunblaðið - 06.10.1967, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. OKT. 1967
19
ÁLITIDNÞINGSINS
Ályktanir Iðnþings
HÉR fara á eftir ályktanir 29.
Iðnþingsina:
Afurðalán
29. Iðnþing fslendiniga telur
að finna þurfi leiðir til þess að
iðnaðurinn verði ekki afskipt-
ur við ráðstöfun þess fjár-
magns, s©m veitt hefur verið
til framleiðsluatvinnuveganna
með endurkaupuim Seðlaþa-nk-
ans á afurðavíxlum.
Vefðlagsákvæði
29. Iðnþing Íslendinga skor-
ar á stjórnarvöld landsins, að
þau hlutist til um að verðlags-
yfirvöldin leggi raunhæft mat á
verðútreikninga við ákvörðun
verðlagsákvæða.
Samkeppnislán
29. Iðnþing íslendinga legigur
áherzlu á að ávallt sé fyrir hendi
nægilegt fjármagn til ráðstöfun
ar til að veita innlendium kaup
endum véla og tækja sömu lána
fyrirgreiðslu, þegar þeir kaupa
vélar og tæki innanlands og er
lendis.
Þá verði iðnaðarsamtökunum
tryggð aðild að lánanefnd þeirri
sem heimilar erlendar lántök-
ur.
Iðnlánasjóður
29. Iðnþing ísl'endinga leggur
sem fyrr áherzlu «á eflingu Iðn
lánasjóðs og bendir á í því sam
bandi eftirfarandi leiðir:
1. Hlutur Iðnlánasjóðs í end
urlánum frá Framkvæmdasjóði
verði hlutfallslega ekki minni
en lán Framfcvæmdabankans
til iðnaðar síðustu árin.
2. Iðnlánasjóði verði séð fyr
ir lánsfé til endurbóta eins og
verið hefur, þó þannig að heild-
arstofnlán til iðnaðar vaxi við
æskilega aukningu hans.
3. Unnið verði að því, að það
fjármagn, sem ákveðið hefur
verið, að veitt skuli til hagræð
ingarl'ána komi fyrst að fuilu
til ráðstöfunar.
4. Haldið verði áfram breyt-
ingum á lausaskuldum iðnaðar
ins í föst lán með milligöngu
Iðnlánasjóðs hjá þeim fyrirtækj
um sem búa við óeðlilega fjár-
magnsuppbygigingu. þjóðarinn-
ar.
Iðnaðarbanki íslands hf.
29. Iðnþing fsl'endinga telur
eflingu Iðnaðarbankans mikil-
væga fyrir vöxt iðnaðarins í
landinu. Óskar Iðnþingið þess,
að Iðnaðarbankinn fái að opna
útibú frá bankanum, þar sem
sýnt er, að það þjóni hagsmun-
um iðnaðarins.
Iðnþingið ítrekar fyrri óskir
sínar þess efnis að Iðnaðarbank-
anurn verði veitt heimild til
gjaldeyrisverzlunar, svo að
bankinn geti veitt viðskipta-
mönnum sínum alhliða banka-
þjónustu, sem jafnframt stuðli
að þeirri þróun, að fyrirtæki
geti haft öll viðskipti sín í ein
um banka.
Fræðslumál
1. 29. Iðnþing Íslendinga
fagnar ákvörðun ríkisstjórnar-
innar um að auka verkfcennslu
fyrir iðnnema í fjöknennustu
iðngreinunum í Reykjavík, nú
á komandi skólaári.
2. Iðnþingið telur, enn sem
fyrr,- góða iðnfræðslu í landinu
eina af máttarstoðum íslenzks
iðnaðar- og atvinnulífs. Því
leggur þingið mikla óherzlu á
að fjárveitingavaldi ríkis og
sveitafélaga verði gerð grein
fyrir mikilyægi þess, að iðn-
fræðslulögin frá 1966 komist
sem allra- fyrst til fullra fram-
kvæmda um land allt, sbr. sam
þykkt síðasta iðnþings.
3. Einn liðurinn í uppbygg-
ingu fyrir iðnaðinn er efling á
starfsemi iðnfræðsluráðs, iðn-
fulltrúa og fræðslunefnda iðn-
greinanna, — Til þess að til-
ætlaður árangur náist af störf
um þessara aðila er nægjanlegt
fjármagn höfuðnauðsyn, enda
er hér fyrir höndum mjög mik
ið starf.
4. Þá vill þingið leggja á-
herzl'u á nauðsyn þess að hrað-
að verði uppbyggingu framtíð-
ar húsnæðis fyrir iðnskólana í
landinu og lýsir fullum stuðn-
ingi við óskir Iðnfræðsluráðs
um opinber framlög til iðnskóla
bygiginga, sbr. áætlun ráðsins
frá í nóvember 1966 (sem iðn-
þinginu hefur verið gerð grein
fyrir).
5. Þingið vill lýsa stuðningi
sínum við fyrirhugaða eflingu
meistaraskóla og teliur tíma-
bært, að hann taki til fleirj
iðngreina en verið hefur.
ræmis gætir í tollum hráefnis
og fullunnina vara.
2. Beitt verði þeim ákvæðum,
sem til eru í tollalöggjöf, þegar
fyrir liggur, að um undirboð er
lendra framleiðenda er að
ræða.
3. Settar verði reglur um að
við útboð af hálfu opinberra að
ila sé tekið tillit til þjóðhags-
legs gildis þeiss, að verk séu
framkvæmd af innlendum að-
ilum í stað erlendra samkeppn
isaðila.
4. Teknar verði upp tíma-
bundnar ráðstafanir, þegar hætt
er við, að innlend framleiðsla
sem er þjóðhagslega hagkvæm,
dragist verulega saman eða
leggist niður af völdum inn-
fhxtninigs.
Gæðamatsnefndir
29. Iðnþing fagnar þeim til-
raunum sem gerðar hafa verið
hjá einstöku iðnfélögum til að
kama á gæðamati á iðnaðar-
vinnu.
Þingið felur Landssambands-
stjórn að láta kanna hvaða að-
gerðir iðnfélög hafa gert í þessu
efni og undirbúa tillögu um
framtíðarfyrirkomulag gæða-
mats og leggja hana fyrir næsta
Iðnþing.
Tryggiingamál iðnaðarins
29. Iðnþing íslendinga sam-
þykkir, að milliþinganefnd í
tryggingamálum haldi áfram
störfum og kanni til hlítar þá
möguleika, sem eru á starf-
ræfcslu tryggingafélags.
Herierð gegn tóbaki í Noregi
FYRIR tveimur árum skip-
aði norska „Landsfélagið
gegn krabbameiini“ nefnd til
að fhuga á hvern hátt dregið
verði úr reykingum. Formað-
ur hennar var Kjell Bartveit
læknir. Þessi nefnd hefur nú
afhent heilbrigðismálastjópn-
inni langt álit (um 200 síður)
og sfcal hér drepið á nokkur
atriði úr því.
Fræðsla um skaðsemi tó-
baiks skla byrja í 3. og 4. bekk
þarnaskólans og halda áfram
út skólann í sambandi við
kennslu * í heilsufræði. —
— Nokkur fræðsla um skað-
semi tóbaks hefur verið í skól
unum undanfarin ár, en borið
lítinn árangur, s'vo að lagt er
til að þessari fræðslu verði
hagað á annan hátt en áður.
Nefndin leggur til að stofn-
uð verði sérstök nefnd til þess
að rannsa'ka sfcaðsemi tóbaks-
ins og ti'l þess að berjast
gegn tóbaksnotkun, En aðal
áhersluna beri þó að leggja
á, að unglingar og börn venj-
ist efcki á að reýkja. Nefndin
leggur fram ítarleg gögn um
knabbameins'hættuna sem
stafi af tóbaki og ennfremur
á að hjartasjúkdómar stafi
oft af tóbaksnotkun.
Þá leggur nefndim til að
bannað verði að auglýsa tó-
baksvörur og í öðru lagi að
skattur á tóbaki verði stór-
hækkaður. Um þetta tvennt
eru skoðanir mjög ðkiftar.
Það er enn ósamnað mál
hvort auglýsingar ýta nokk-
uð undir tóbaksnotkun í
heild og margir halda því
fram, að þær séu aðeins bar-
átta milli þeirra tegunda,
sem boðnar eru fram á mark-
aðnurn. — Og hvað hækkun
á skatti snertir þá er hún tal-
in tvíeggjað sverð. Allir vita
að áfengi og sígarettur eru
þær vörur, sem mest er
smyglað, og ef skatturinm
yrði hækkaður mundi varla
fara hjá því, að sígarettu-
smygl mundi aukast veru-
lega frá því sem nú er.
— En heilbrigðismálaistjórn
in mun nú auka þá starfsemi,
sem hún hefur að vísu gegrnt
hinigað til: að breiða upplýs-
ingar um skaðsemi tóbaks bet
ur út en áður, einkum í skól-
unum, og stuðla að aukimni
vísindalegri ranmsófcn á áhrif
um tóbaks á heiilsufar a.1-
mennings.
F.sská.
Tolla- og innflutningsmál
29. Iðnþing íslendinga telur
eftirfarandi breytingar nauðsyn
legar á tolla- og innflutnings-
málum.
1. Endurgkoðaðir verði toll-
ar af hráefnum, þar sem ósam-
Aðalfundur VARÐAR
Félags ungra sjálfstæðismanna, Akureyri, verður haldinn í Sjálf-
stæðishúsinu (uppi) nk. föstudag 6. þ.m. og hefst kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Rætt um vetrarstarfið.
Varðarféiagar eru hvattir til að fjölmenna stundvíslega.
STJÓRNIN.
NÆST SJALFRI SER
kýs hún Kotiíer's
Berklavörn I Reykjavík
heldur Félagsvist í Brautarholti 4 (í danssal
Heiðars Ástvaldssonar) laugardaginn 7. október
kl. 8,30.
Mætið stundvíslega.
Skrifstofustúlka óskast
Kaupfélag á Austurlandi vill ráða skrifstofustúlku
strax. — Upplýsingar gefur
Starfsmannahald S.Í.S.